Morgunblaðið - 08.05.2012, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
vegna kjörs forseta Íslands fer
hægt af stað. Samkvæmt lögum um
kosningar skal atkvæðagreiðsla ut-
an kjörfundar hefjast svo fljótt sem
kostur er eftir að kjördagur hefur
verið auglýstur, þó ekki fyrr en
átta vikum fyrir kjördag, sem var
síðasti laugardagur, 5. maí.
Hjá sýslumanninum í Reykjavík
fengust þær upplýsingar í gær að
þar væru örfáir búnir að kjósa utan
kjörfundar. Sex manns kusu á laug-
ardaginn, einn á sunnudaginn og
örfáir í gær. Flestir þeirra sem hafa
kosið eru á leið í langt ferðlag utan-
lands.
Atkvæðagreiðslan hófst víðast
hvar hjá sýslumönnum í gær. Hjá
sýslumanninum á Akureyri hófst
utan kjörfundar atkvæðisgreiðslan
í gærmorgun og hafði enginn kosið
þar síðdegis. Hjá sýslumönnunum á
Ísafirði og á Selfossi voru heldur
engir búnir að kjósa í gær.
ingveldur@mbl.is
Fáir hafa
kosið utan
kjörfundar
Sex kusu í Reykja-
vík á laugardaginn
Morgunblaðið/Heiddi
Fánar Kosning til forseta Íslands
hófst utan kjörfundar um helgina.
„Krían er komin til okkar og víð-
ast hvar um landið en manni
finnst ekkert rosalega mikið af
henni ennþá,“ segir Brynjúlfur
Brynjólfsson, starfsmaður Fugla-
athugunarstöðvar Suðaustur-
lands.
Fyrstu kríur ársins sáust við
Ósland á Höfn hinn 25. apríl,
tveimur dögum seinna en með-
altalið, og síðan þá virðist sem
krían hafi tínst hægt til landsins.
„Krían er ekki alkomin því það
eru norðanáttir og svolítið kalt,
því heldur hún sig úti á sjó. Það
eru komnar um fimm hundruð
kríur út í Ósland hjá okkur og
það sást stór hópur við Vopna-
fjörð fyrir helgina. En það mætti
sjást svolítið meira af henni,“ seg-
ir Brynjúlfur og bætir við að hon-
um finnist fuglalífið þetta vorið
frekar rólegt.
Jóhann Óli Hilmarsson, formað-
ur Fuglaverndar, segir að það sé
komið mjög lítið af kríu á Suð-
vesturlandi. „Krían kemur oft
snemma út á Álftanes en núna er
bara ein og ein á stangli. Hjá mér
í Flóanum hefur sömuleiðis sést
mjög lítið af henni,“ segir Jóhann
Óli og vill kenna norðanáttinni
um. „Það hefur gerst áður að ef
það eru stífar norðanáttir þá
kemur hún seint. Einnig gæti
bakslag í ætiskosti haft áhrif. Það
er lítið komið af sumum fuglateg-
undum, eins og lóuþræl og rauð-
brystingi.“ ingveldur@mbl.is
Lítið af kríu komið til landsins
Morgunblaðið/Ómar
Kría á Álftanesi Óvenjulega fáar kríur hafa sést á Álftanesi nú í vor.
Kalt tíðarfar og norðanátt hægir á komu farfugla
Mjög lítið af kríu hefur sést á Suðvesturlandi í vor
Hafís er næstur landi um fimmtíu
sjómílur norðvestur af Barða.
Þetta má sjá af gervitunglamynd-
um frá því snemma í gærmorgun
en Veðurstofan birti hafískort út
frá myndunum sem sést hér að of-
an.
Veðurstofan bendir á að næstu
daga er spáð hægum vindi á svæð-
inu en síðar í vikunni snýst vindur
í suðvestanátt og þá gæti hafísinn
færst nær Íslandi.
Hafís gæti
færst nær
landi í vikunni
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn
þriðjudaginn 29. maí 2012 kl. 17.00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt á setu á ársfundinum.
Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins.
Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast
stjórn með skriflegum hætti tveimur vikum fyrir ársfund.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að
berast stjórn með skriflegum hætti viku fyrir ársfund.
Framboðum aðalmanna til stjórnar skal skila inn til
stjórnar viku fyrir ársfund.
Tillögur og framboð skulu berast til stjórnar Íslenska
lífeyrissjóðsins, Austurstræti 11, 101 Reykjavík.
Tillögur að breytingum á samþykktum og framboð til
stjórnar verða birtar á vefsvæði sjóðsins, islif.is.
Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins hvetur sjóðfélaga til þess
að mæta.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæði sjóðsins
islif.is eða hjá Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans
í síma 410 4040.
Ársfundur
Íslenska
lífeyrissjóðsins
Helstu kennitölur úr ársreikningi 2011 2010
Hrein raunávöxtun 3,9% 8,9%
Hrein raunávöxtun – meðaltal sl. 3 ára 6,0% -9,1%
Hrein raunávöxtun – meðaltal sl. 5 ára -4,4% -3,3%
Fjöldi virkra sjóðfélaga – meðaltal 9.147 8.118
Fjöldi lífeyrisþega – meðaltal 630 529
Heildarfjöldi sjóðfélaga 27.456 27.684
Hrein eign til greiðslu lífeyris í lok tímabils 33.734.147.489 30.663.756.766
Tryggingafræðileg staða Samtryggingadeildar 31.12.2011 31.12.2010
Hrein eign umfram heildarskuldbindingar 1,80% 0,80%
Hrein eign umfram áfallnar skuldbindingar 1,50% -1,40%
Ársreikning sjóðsins má nálgast á islif.is.
LÍF I LÍF II LÍF III Samtrygging:
Lögbundinn
lífeyrissparnaður
LÍF IV
Nafnávöxtun 2011
5 ára meðalnafnávöxtun
9,4% 10,0% 10,1% 9,5% 7,3%
3,8% 3,9% 4,2% 5,1% 2,5%