Morgunblaðið - 08.05.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Um helgina sagði The WallStreet Journal frá því að
Barclays-bankinn breski væri að
setja af stað netbanka til að safna
innlánum í Bandaríkjunum.
Ætlunin er aðstyðja við
vöxt bankans án
þess að þurfa að
treysta alfarið á lán-
tökur á heildsölu-
markaði.
Barclays setti nýverið af staðsamskonar netinnlána-
reikninga í Þýskalandi og halaði
inn milljarð evra á skömmum tíma.
Ætlunin er að ná í svipaða upphæð í
Bandaríkjunum.
Allt hljómar þetta ofur kunnug-lega í eyrum Íslendinga sem
fylgdust með svona fjársöfnun fyrir
fáeinum árum en auðvitað er
ánægjulegt til þess að vita að sögu-
frægur breskur banki skuli hafi
lært eitthvað af íslensku banka-
útrásinni.
Og einmitt af því að þetta erbreskur banki þá vakna spurn-
ingar um hvort ekki sé öruggt að
breska ríkið ábyrgist innistæð-
urnar sem bankinn safnar í Banda-
ríkjunum?
Nei, jafn sérkennilega og þaðkann að hljóma eftir Icesave-
deiluna við Breta þá vill svo til að
ábyrgðin liggur hjá innlánatrygg-
ingastofnuninni í Bandaríkjunum
en ekki hjá breskum skattgreið-
endum.
Það vill nefnilega svo til að öðr-um stjórnvöldum en þeim sem
nú gista Stjórnarráðið íslenska
þykir ekki mjög eftirsóknarvert að
láta skattgreiðendur ganga í
ábyrgð fyrir slíkar skuldbindingar.
Bresk ábyrgð
á innlánunum?
STAKSTEINAR
Meirapróf
Næsta námskeið byrjar 9. maí 2012
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737
Veður víða um heim 7.5., kl. 18.00
Reykjavík 6 léttskýjað
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 2 skýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað
Vestmannaeyjar 3 léttskýjað
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 8 skýjað
Kaupmannahöfn 8 heiðskírt
Stokkhólmur 12 léttskýjað
Helsinki 10 heiðskírt
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 7 skúrir
London 13 léttskýjað
París 17 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 12 skýjað
Vín 18 skýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 20 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 20 léttskýjað
Aþena 26 skýjað
Winnipeg 10 skúrir
Montreal 17 léttskýjað
New York 17 skýjað
Chicago 15 skúrir
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:34 22:16
ÍSAFJÖRÐUR 4:19 22:41
SIGLUFJÖRÐUR 4:01 22:24
DJÚPIVOGUR 3:59 21:50
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kristján L. Möller, formaður at-
vinnuveganefndar Alþingis, segir
að vinna nefndarinnar við sjávarút-
vegsfrumvörp ríkisstjórnarinnar
gangi vel. Hann segir að yfirferð
umsagna með gestum sé langt
komin og eftir það verði farið í að
vinna upp úr umsögnum og huga
að breytingartillögum.
Fulltrúar Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, Samtaka at-
vinnulífsins og Samtaka fisk-
vinnslustöðva komu á fund
nefndarinnar í gær til að ræða
frumvörpin. Í dag koma fulltrúar
fimm sveitarfélaga í sama tilgangi.
Kristján segir að fulltrúar samtak-
anna hafi fylgt eftir umsögnum
sínum og svarað spurningum
nefndarmanna. Fundurinn hafi
verið gagnlegur.
„Við höfum óskað eftir því að
unnið verði að lausn þessara mála í
samstarfi okkar og stjórnvalda. Því
hefur verið hafnað hingað til. Við
ítrekuðum þessa ósk á fundinum
og lögðum áherslu á að sá tími yrði
tekinn til vinnunnar sem þarf,“
segir Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ.
„Aðalatriðið er að við höfum
fengið margar góðar umsagnir og
gestir fylgt sínum umsögnum eftir.
Það er hin venjulega aðferð við
vinnslu þingmála að fara yfir um-
sagnir og taka tillit til réttmætra
ábendinga,“ segir Kristján.
Líst ekki á stækkun leigupotts
Kristján telur ekki tímabært að
tjá sig um einstök efnisatriði hugs-
anlegra breytingartillagna. Fram
hefur komið hjá öðrum nefndar-
mönnum að fjárhæð veiðigjalds
verði endurskoðuð í ljósi þeirra
umsagna sem borist hafa, meðal
annars í greinargerð sem sérfræð-
ingar unnu fyrir atvinnuveganefnd.
Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ól-
ína Þorvarðardóttir nefndu báðar í
frétt í Morgunblaðinu í gær að til
greina kæmi að gera breytingar á
fiskveiðistjórnarfrumvarpinu, með-
al annars að stækka leigupotta.
Framkvæmdastjóra LÍÚ líst ekki
vel á þá hugmynd. Segir að reynsl-
an af útgerð kvótalausra skipa sé
ekki góð og vísar til umfjöllunar
sem varð á sínum tíma um að
stórum hluta aflans væri hent aft-
ur í sjóinn. „Við viljum ekki sjá
þannig útgerðarhætti,“ segir Frið-
rik.
Morgunblaðið/Kristinn
Gestir Fulltrúar atvinnulífsins með Vilhjálm Egilsson og Arnar Sigur-
mundsson í broddi fylkingar, mæta á fund atvinnuveganefndar.
Yfirferð umsagna
um útvegsfrum-
vörp langt komin
Atvinnulífið fylgir eftir umsögnum
Skógareigendur
samþykktu á að-
alfundi sínum að
mótmæla frum-
varpi til laga
um umhverfis-
áhrif af nytja-
skógrækt. Fund-
armenn álykt-
uðu að kolefna-
binding skóga
sé afurð en ekki
auðlind. Hún sé þar af leiðandi
eign skógarbænda. Í ályktun
skógarbænda kemur fram að þeir
telji að frumvarpið innihaldi
íþyngjandi ákvæði sem leggi
kvaðir skógrækt umfram annan
landbúnað. „Sá kostnaðarauki
sem frumvarpið hefur í för með
sér getur hæglega valdið því að
aðeins sterkefnaðir aðilar hafi
tök á því að hefja nytjaskóg-
rækt,“ segir í ályktuninni.
Skógareigendur
mótmæla
Rækt Binding sé
eign, ekki auðlind.