Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 11
Ljósmyndir/Cristopher Lund
Nesjavallaleið Fyllsta öryggis var gætt og fylgdu foreldrar stúlkunum eftir keyrandi á leiðinni.
haldið allt til ársins 2003. Árlega
hafa Íslendingar tekið þátt í
mótinu og halda í ár um 400 ís-
lenskir þátttakendur á mótið frá
hinum ýmsu liðum.
Mikil upplifun
„Á mótinu er dagskrá allan
tímann svo þetta er mikill skóli
fyrir stelpurnar og ævintýri.
Margar þeirra eru að fara í fyrsta
sinn í svona ferð og kynnast þarna
krökkum frá ýmsum þjóðum. Frá
sjónarhorni okkar foreldranna
hvetur þetta krakkana til að halda
áfram. Íþróttir eru forvarnastarf
og maður vill að þau haldi áfram
sem lengst. Vil ég nota tækifærið
og koma á framfæri þakklæti til
þeirra sem stutt hafa stelpurnar
til fararinnar,“ segir Ása. En
styrktarreikningur stelpnanna er
0331-13-3029, kt. 571083-0519.
Á ferð Sæunn Rós og Díana Ósk voru léttar á fæti. Á skokki Eva Dröfn og Helga Þórey voru kátar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Í grein á vefsíðu breska dagblaðsins
Telegraph segir að rannsóknir danskra
hjartasérfræðinga hafi leitt í ljós að
reglulegt skokk geti aukið lífslíkur
karlmanna um sex ár en kvenna um
fimm ár. Ku nægja að skokka í klukku-
stund á viku til að njóta slíkra hags-
bóta, en rannsóknin var gerð á 2.000
dönskum skokkurum.
Þá kom í ljós samkvæmt rannsókn-
inni að létt skokk væri það sem væn-
legast væri til að auka lífslíkur fólks,
frekar en að gefa í og fara hraðar.
„Við getum með sanni sagt að
reglulegt skokk auki lífslíkur og góðu
fréttirnar eru þær að þú þarft ekki að
gera svo mikið,“ segir hjartalæknirinn
Peter Schnohr sem fór fyrir rannsókn-
inni, en rannsóknin leiddi í lós að karl-
kyns skokkarar sem eyddu frá einum
klukkutíma til tveggja og hálfs tíma á
viku í að skokka, tvisvar eða þrisvar,
lifðu að meðaltali 6,2 árum lengur en
þeir sem enga líkamsrækt stunduðu.
Kvenkyns skokkarar sem stunduðu
svipaða hreyfingu lifðu hins vegar að
meðaltali 5,6 árum lengur.
Það var teymi lækna og vísinda-
manna við hjartarannsóknarstöðina í
Kaupmannahöfn sem gerði rannsókn-
ina sem hófst árið 1976, en frá þeim
tíma hafa um 20.000 manns á aldr-
inum 20-93 ára verið rannsakaðir.
Voru þátttakendur meðal annars
spurðir út í það á hve miklum hraða
þeir hlypu.
Rannsóknir
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Skokk Samkvæmt danskri rannsókn getur létt skokk lengt lífið.
Létt skokk getur lengt lífið
Þeir voru ekki í alveg hefð-
bundnum hlaupagöllum hlaupar-
arnir sem sprettu úr spori í Kemp-
ton Park í Sunbury í Suður -
Englandi á dögunum.
Enda voru þeir klæddir sem ým-
iss konar lukkudýr og söfnuðu
með þessum íþróttaviðburði fé til
styrktar góðgerðarfélaginu Have a
Heart.
Góðgerðarsamkoma í Englandi
Reuters
Lukkudýr Þau voru ansi sæl og lukkuleg að sjá þar sem þau hlupu.
Lukkudýr
á hlaupum
Pása Þessi fékk smáaðstoð frá fé-
laga sínum við að fylla á tankinn.
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR Krókhálsi 11 · Sími 590 2160 · askja.is/notadir-bilar Opið kl.10-18
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
12
-0
91
3
Verð 9.900.000 kr.
Gæða-
bíll
19” álfelgur, aftengjanlegur dráttarkrókur, AIRMATIC loftpúðafjöðrun, birtudeyfir
fyrir inni- og útispegla, fjölstillanlegt ökumannssæti, hiti í framsætum, hraðanæmt
stýri, loftþrýstingsskynjari í hjólbörðum, Bluetooth símkerfi, leðurklætt stýri, minnis-
pakki fyrir sæti, stýri og útispegla, fjarlægðarskynjari, farþegasæti með minni,
viðarinnrétting, sumardekk, Audio 20 útvarp með geislaspilara og sex hátölurum,
þakbogar, þriggja svæða lúxusmiðstöð með loftkælingu og margt fleira.
Mercedes Benz GL 420
Árgerð 2007, 306 hestafla dísilvél, 4MATIC,
7 þrepa sjálfskipting, ekinn 85.000 km.