Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Öll skráð trúfélög njóta sóknargjalda
í hlutfalli við fjölda skráðra fé-
lagsmanna sinna. Þau hafa því öll
fundið fyrir skerðingu sóknargjalda
undanfarin ár, hvort sem þau eru inn-
an eða utan þjóðkirkjunnar.
Framkvæmdir hafa raskast
Niðurskurður sóknargjalda hefur
komið þungt niður á söfnuðum sem
standa í miklum framkvæmdum.
Dæmi um slíkan söfnuð er Lindasókn
í Kópavogi, ungur þjóðkirkjusöfnuð-
ur í nýbyggðu hverfi og sem stendur í
kirkjubyggingu.
„Það hafa allar byggingafram-
kvæmdir raskast vegna skertra sókn-
argjalda,“ sagði Arnór L. Pálsson,
formaður sóknarnefndar. Lindasókn
er sú 3. fjölmennasta á landinu, þar
eru tæplega 12.000 manns og þar af
um 2.600 börn sem ekki eru orðin 16
ára og borga því ekki sóknargjöld.
Arnóri telst til að söfnuðurinn hafi
haft úr um 20 milljónum minna að
spila í fyrra en ef sóknargjöld hefðu
ekki verið skert. Þau námu um 57
milljónum. Arnór sagði að sóknin
hefði tekið lán vegna kirkjubyggingar
upp á 250 milljónir árið 2008 og borg-
að af þeim skilvíslega síðan. Nú eru
lánin að nálgast 289 milljónir og
meira en helmingurinn af sóknar-
gjöldunum fer í afborganir og vexti.
„Við vonum að þetta verði eitthvað
lagfært, öðruvísi gætum við lent í
þroti,“ sagði Arnór.
Sjálfboðaliðar skipta um þak
Fríkirkjan í Hafnarfirði er 4. fjöl-
mennasta trúfélag landsins og voru í
henni 5.871 í ársbyrjun, þar af 4.247
greiðendur sóknargjalda.
„Við verðum að treysta á velvild og
örlæti safnaðarfólks,“ sagði Jóhann
Guðni Reynisson, formaður safnaðar-
stjórnar, um áhrif lækkunar sóknar-
gjalda. Safnaðarfólki hafa verið send-
ir gíróseðlar eða valkröfur stofnaðar í
heimabönkum til að hvetja til gjafa.
Jóhann sagði það hafa gefið góða
raun.
Hann sagði launakostnað vega
þyngst í rekstrinum. „Fólk áttar sig
ekki allt á því að við borgum laun
presta og annars starfsfólks af sókn-
argjöldunum, ríkið borgar ekki laun
presta okkar eins og í þjóðkirkjunni,“
sagði Jóhann. Söfnuðurinn er enn að
borga niður skuldir vegna endurgerð-
ar kirkjunnar árið 1999. Þak og kór að
utanverðu eru farin að láta á sjá.
Bræðrafélag kirkjunnar ætlar að
skipta um þak á kirkjunni í sjálfboða-
vinnu. Styrkur til efniskaupa fékkst
úr Húsafriðunarsjóði og kirkjan
borgar það sem á vantar.
Margt utansafnaðarfólk hefur not-
fært sér þjónustu safnaðarins og er
engum neitað sem hennar óskar. Jó-
hann hvetur þetta fólk til að skrá sig í
söfnuðinn svo sóknargjöldin renni
þangað sem það leitar þjónustu.
Byggist á frjálsum framlögum
„Tekjur af sóknargjöldum hafa
stórminnkað,“ sagði séra Jakob Rol-
land, kanslari biskupsdæmis Kaþ-
ólsku kirkjunnar á Íslandi. Kaþólska
kirkjan er fjölmennasta trúfélagið ut-
an þjóðkirkjunnar og með um 11.000
skráða meðlimi. Þar voru af innan við
7.400 greiðendur sóknargjalda í árs-
byrjun. Líklega eru þó kaþólskir hér
á landi 15-20 þúsund talsins, þar á
meðal fjöldi útlendinga sem flutt hef-
ur hingað.
Séra Jakob sagði sóknargjöldin
varla duga til að borga fasteigna-
skatta og tryggingar. Fáir starfs-
menn eru á launum og byggist safn-
aðarstarfið aðallega á sjálfboðastarfi,
þar á meðal starf prestanna. Séra
Jakob sagði sóknargjöldin alls ekki
duga til að halda uppi starfsemi
safnaðarins, t.d. ferðalögum
og messuhaldi úti um
landið.
Fé til framkvæmda
kemur aðallega frá safn-
aðarfólki og eins frá vel-
unnurum kirkjunnar er-
lendis. Séra Jakob sagði
eitt af aðalhlutverkum
biskupsins vera að fara
um Evrópu og leita
styrktaraðila að
hinum ýmsum
verkefnum
kirkjunnar.
Söfnuðirnir herða sultarólina
Trúfélög innan og utan þjóðkirkju finna fyrir skerðingu sóknargjalda Aukið sjálfboðastarf og frjáls
framlög skipta meira máli en áður Stór hluti sóknargjalda ungs safnaðar fer í afborganir og vexti
Morgunblaðið/hag
Trúarlíf Skerðing sóknargjalda hefur komið niður á starfi trúfélaganna, jafnt þjóðkirkjunni og öðrum trúfélögum.
Myndin var tekin í sunnudagaskóla í Lindasókn 2009, þar glímir söfnuðurinn við skuldir vegna kirkjubyggingar.
Ásatrúarfélagið er 6. fjölmenn-
asta trúfélag landsins. Í því var
1.951 félagi í ársbyrjun, þar af
1.763 greiðendur sóknargjalda.
Hilmar Örn Hilmarsson, alls-
herjargoði, sagði að mikil fjölg-
un í félaginu hefði vegið á móti
skerðingu sóknargjalda. Hann
sagði félagið njóta mikils sjálf-
boðaliðastarfs félagsmanna.
„Við skerðingu sóknargjalda
bætist það óréttlæti að við,
líkt og önnur trúfélög utan
þjóðkirkju, fáum 29,8% minna
en þjóðkirkjusóknir vegna þess
að við njótum ekki Jöfnunar-
sjóðs sókna,“ sagði Hilmar.
Ásatrúarfélagið fór í mál við
ríkið vegna þessa og tapaði
bæði í héraðsdómi og Hæsta-
rétti. Málinu var skotið til
Mannréttindadómstóls Evrópu.
Það hefur fengið málsnúmer
sem er vísbending um að málið
verði tekið fyrir, að sögn Hilm-
ars. Hann segir að vinnist mál-
ið þá muni það koma öllum
trúfélögum utan þjóðkirkjunnar
til góða.
Ásatrúarfélagið reynir að
halda uppi starfi á landsvísu
en skerðing sóknargjalda
hefur gert það erfiðara,
að sögn Hilmars. Fyrir-
hugað hof félagsins í
Öskjuhlíð, austan við
Nauthól, verður heldur
ekki byggt af sama metn-
aði og til stóð. Hilmar
Örn átti von á að fram-
kvæmdir við hofið
gætu hafist
seinni part
sumars.
Vegur upp
skerðingu
MIKIL FJÖLGUN Í
ÁSATRÚARFÉLAGINU
Hilmar Örn
Hilmarsson
Haukur Angantýsson,
alþjóðlegur meistari í
skák, andaðist á
lungnadeild Landspít-
alans í Fossvogi 4. maí
síðastliðinn 63 ára að
aldri.
Haukur fæddist á
Flateyri við Önundar-
fjörð 2. desember 1948.
Foreldrar hans voru
Angantýr Guðmunds-
son skipstjóri, f. 1. júlí
1916, d. 21. maí 1964,
og Arína Þórlaug Íb-
sensdóttir ritari, f. 11.
september 1923, d. 14. október
1994.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1968
fór Haukur til Þýskalands og lauk
námi í efnafræði frá Georg August
Universität í Göttingen 1973. Síðan
tók hann skipstjórnarpróf frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík 1975.
Haukur vann ýmis störf um æv-
ina, m.a. stundaði hann rannsókn-
arstörf á sviði efnafræði, kennslu,
sjómennsku, bæði innanlands og er-
lendis, og við netagerð.
Skákin átti lengi hug Hauks og
hann náði góðum árangri á þeim
vettvangi. Hann varð efstur ásamt
þremur öðrum skákmönnum á Ís-
landsmótinu 1975, en tók ekki þátt í
aukakeppni. Árið eftir
varð hann skákmeist-
ari Íslands og á Ís-
landsmótinu 1978 varð
hann efstur ásamt
Helga Ólafssyni en
tapaði úrslita-
einvíginu. Hann varð
skákmeistari Reykja-
víkur 1978 og náði
góðum árangri á Ril-
ton Cup í Stokkhólmi
1978/79. Árið 1979
fagnaði hann glæsileg-
asta sigri sínum, á
World Open í Phila-
delphiu. Hann varð efstur með 8
vinninga af 10, ásamt sex stórmeist-
urum – Miles, Browne, Gheorghiu,
Bisguier, Zuckerman og Fedoro-
wicz. Haukur var efstur á stigum og
var úrskurðaður sigurvegari á
þessu fornfræga og merkilega móti.
Hann var útnefndur alþjóðlegur
meistari 1981.
Haukur, sem varð skákmeistari
TR 1993, tefldi með Skákfélagi
Vinjar síðustu árin og leiddi sveit
félagsins á Íslandsmóti skákfélaga.
Jafnframt tók hann þátt í fjölmörg-
um skákmótum á vegum Vinjar.
Systkini Hauks eru Íbsen, Bára,
Auður, Ólafur Óskar og Guðrún.
Uppeldissystirin Soffía Jóna Vatns-
dal Jónsdóttir er látin.
Andlát
Haukur
Angantýsson
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Þú átt betri samskipti
Veglegur kaupauki að verð-
mæti 9.950 kr. fylgir öllum
seldum Alera heyrnartækjum
Þú verður virkur þáttakandi á mannamótum, getur sinnt vinnu og
námi betur og tekið þátt í félagslífinu með ReSound heyrnartækjum
því þau hjálpa þér að halda uppi samræðum í hvaða hljóðumhverfi
sem er.
Án heyrnartækja eiga heyrnarskertir erfitt með að tala við aðra
vegna þess að þeir hvorki heyra né skilja það sem fram fer.