Morgunblaðið - 08.05.2012, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Alls var 111
kaupsamningum
þinglýst á höfuð-
borgarsvæðinu
frá 27. apríl til 3.
maí. Þar af voru
87 samningar um
eignir í fjölbýli,
20 um sérbýli og
4 samningar um
annars konar eignir en íbúðar-
húsnæði.
Heildarveltan var 3.261 milljón
króna og meðalupphæð á samning
29,4 milljónir króna, samkvæmt
upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands.
Á sama tíma var 8 kaupsamn-
ingum þinglýst á Suðurnesjum þar
sem meðalupphæð var 18,4 millj-
ónir. 8 kaupsamningum var þinglýst
á Akureyri og var meðalupphæð
18,8 milljónir. Loks var 4 kaupsamn-
ingum þinglýst á Árborgarsvæðinu
en meðalupphæðin þar var 17,4
milljónir króna.
Þjóðskrá tekur fram að meðal-
upphæð kaupsamnings sé ekki hægt
að túlka sem meðalverð eigna.
111 kaupsamningum þinglýst
Teymi um málefni innflytjenda
stendur fyrir morgunverðarfundi á
Grand Hótel miðvikudaginn 9. maí
kl. 8:30-10 þar sem verður leitast
við að svara því hvort íslenska sé
forsenda þátttöku í samfélaginu.
Fluttir verða fyrirlestrar og
fundinum lýkur með samræðu í
pallborði á milli frummælenda og
fundargesta.
Innflytjendur
og tungumálið
Á aðalsafnaðarfundi Akureyrar-
sóknar var samþykkt ályktun þar
sem skorað er á stjórnvöld að leið-
rétta það ósamræmi sem komið sé í
tekjur sókna samanborið við aðrar
stofnanir á vegum innanríkisráðu-
neytisins.
„Hið góða starf sem unnið er í
sóknum landsins er farið að líða
verulega fyrir þessa tekjuskerð-
ingu,“ segir í ályktuninni.
Sóknir líða fyrir
tekjuskerðingu
„Stjórnmálaþátttaka við eldhús-
borðið – er það framtíðin?“ er yfir-
skrift opins fyrirlesturs Hauks Arn-
þórssonar um netlýðræði.
Fyrirlesturinn verður haldinn
miðvikudaginn 9. maí kl. 12-13 í
Lögbergi stofu 101 Háskóla Íslands
á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða
og stjórnmála við Háskóla Íslands.
Rætt um netlýðræði
STUTT
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.iss
Elsti núlifandi Grindvíkingurinn,
Valgerður Guðmundsdóttir, betur
þekkt sem Vala í Lundi, fagnaði
aldarafmæli síðastliðinn sunnudag
en hún fæddist hinn 6. maí 1912.
Eftir því sem best er vitað er Val-
gerður fyrst Grindvíkinga til að
ná hundrað ára aldri að sögn Þor-
steins Gunnarssonar hjá Grinda-
víkurbæ. Var haldið upp á áfang-
ann á heimaslóðunum í Ísólfsskála
við Grindavík þar sem fjöldi ætt-
ingja og vina kom saman í blíð-
skaparveðri á sunnudag. Einnig
var efnt til kaffisamsætis í Víði-
hlíð, hjúkrunardeild aldraðra, nú
eftir helgi þar sem Róbert Ragn-
arsson bæjarstjóri færði Valgerði
blóm enda ekki á hverjum degi
sem að haldið er upp á aldar-
afmæli í Grindavík.
Hraun, Ísólfsskáli,
Lundur og Víðihlíð
Valgerður ber hundrað árin vel
þótt úthaldið mætti vera heldur
meira að eigin sögn. Sjón og
heyrn eru aðeins farin að daprast
en annars er heilsan alveg þokka-
leg.
Afmælisbarnið býr enn heima
hjá sér í Lundi en þangað flutti
hún ásamt foreldrum sínum í byrj-
un sjöunda áratugarins. Fimm
daga vikunnar fer hún í dagvist á
hjúkrunardeildina í Víðihlíð en
þar sækir hún sér dægradvöl og
spjallar við íbúa og starfsfólk.
Eftir að hafa fæðst á Hrauni ár-
ið 1912 fluttist Valgerður fjög-
urra ára gömul upp á Ísólfsskála
þar sem hún ólst upp í fjörugum
hópi systkina. Samtals eignaðist
móðir hennar tólf börn í tveimur
hjónaböndum, og komust ellefu
barnanna á legg. Einn bróðir er
enn á lífi, þ.e. Jón Valgeir Guð-
mundsson, en níu ár skilja þau
systkinin að. Valgerður giftist
sjálf ekki eða átti börn.
Skáldmælt ráðskona sem
hefur aldrei átt þvottavél
Á langri ævi hefur Valgerður
unnið ýmis störf en hún starfaði
löngum sem ráðskona, meðal ann-
ars fyrir RARIK. Ófá sumrin ferð-
aðist hún um og sá um matseld
fyrir vinnuhópa sem unnu að því
að leggja rafmagnslínur um land-
ið þvert og endilangt. Þá starfaði
hún víðar bæði sem ráðskona og
við matseld m.a. í fiskvinnslu-
húsum í Grindavík auk þess sem
hún starfaði einnig sjálf við í fisk-
vinnslu.
Á hundrað árum er viðbúið að
einstaklingur hafi upplifað miklar
breytingar, bæði í sögulegu sam-
hengi sem og breytta hætti og
venjur við hin ýmsu störf á heim-
ilum rétt eins og annars staðar.
Að sögn Hinriks Bergssonar, syst-
ursonar Valgerðar, hefur frænka
til dæmis aldrei átt þvottavél og
hefur alla tíð þvegið þvotta í
höndum og með þvottabretti.
„Aldrei var þvottavél í Ísólfsskála
eða Lundi svo að hún kynntist því
ekkert að eiga slíkt tæki,“ segir
hann.
Hinrik ber frænku sinni afar vel
söguna, segir hana erna og vel á
sig komna. Hún geti til dæmis enn
farið með vísur og ljóð um og eft-
ir sjálfa sig. Eftirfarandi vísukorn
orti Valgerður m.a. um heilsu sína
og það að eldast nú nýverið – en
vísan birtist á vef Grindavíkur-
bæjar:
Nú ég gömul orðin er
augljóslega það sést á mér
bakið bognar, brjóst inn fellur
beyglast fótur, kreppist hönd.
Hugsjónin hún hefur dofnað
og sjónin dvín
en ég bið minn alvaldsföður
alla tíma að gæta mín.
Hefur aldrei átt þvottavél –
allt þvegið í höndum og á bretti
Grindvíkingurinn Valgerður Guðmundsdóttir, Vala í Lundi, orðin hundrað ára
Aldarafmæli Valgerður, eða Vala í Lundi eins og hún er þekkt, ber árin vel.
Ljósmynd/Þorsteinn Gunnarsson
Kveðja frá bæjarstjórn Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grindavík, færir
Valgerði, elsta Grindvíkingnum, blómvönd og kveðju í tilefni afmælisins.
Katrín Fjeldsted læknir var um
helgina kjörin forseti Evrópusam-
taka lækna á aðalfundi samtakanna
í Brussel. Þrjú voru í kjöri og fékk
Katrín 21 at-
kvæði af 26 í síð-
ari hluta forseta-
kjörsins.
„Ég hlakka til
þessa starfs og
þetta er mjög
mikill heiður og
ábyrgð,“ sagði
Katrín við Morg-
unblaðið. Hún
sagðist einnig líta
á kjörið sem viðurkenningu á starfi
Læknafélag Íslands í samtökunum.
Um er að ræða samtök lækna-
félaga frá löndum í Evrópusam-
bandinu og á Evrópska efnahags-
svæðinu. Að sögn Katrínar vinna
samtökin að ýmsum málum, sem
snerta læknafélög, sjúklinga, heil-
brigðisþjónustu og hagsmunamál
lækna í viðkomandi löndum.
„Þetta eru læknapólitísk sam-
tök,“ sagði Katrín, sem er fyrsta
konan sem gengir forsetaembætt-
inu.
Hún tekur við embættinu af Pól-
verjanum Konstanty Radziwille.
Katrín var varaforseti samtakanna
á árunum 2006-2009 og var kjörin
gjaldkeri þeirra árið 2010. Hún seg-
ist í starfi sínu þar hafa beitt sér
fyrir faglegu sjálfstæði lækna og
skýrari verkaskiptingu milli lækna
og annarra heilbrigðisstétta.
„Íslenskar áherslur eru alltaf of-
arlega í huga mínum en við eigum
margt sameiginlegt með læknum í
öðrum löndum og áherslur og
áhugamál eru svipuð. Við höfum öll
sameiginlegan áhuga á heilbrigðis-
þjónustu og því hvernig gæði henn-
ar verði tryggð sem best,“ sagði
Katrín Fjeldsted.
gummi@mbl.is
Kjörin
forseti
Evrópusam-
taka lækna
Þrír frambjóð-
endur í forsetakjörinu
Katrín
Fjeldsted
bruun-rasmussen.dk
Bredgade 33
DK-1260 Kbh. K
Tel +45 8818 1111
Verið velkomin á Hótel Loftleiðir
fimmtudaginn 10. maí n.k. kl. 15-19
og föstudaginn 11. maí kl. 10-12.
Þar munu reynslumiklir sérfræðingar okkar meta listaverk af
öllu tagi, „design“, vín og skartgripi.
Matið er án endurgjalds og án skuldbindinga með hugsanlega
sölu á uppboði í huga.
Við erum t.d. að leita að verkum eftir íslenska listmálara eins
og Jón Stefánsson, Ólaf Elíasson, Ásgrím Jónsson og Jóhannes
Kjarval og aðra eldri sem yngri meistara. Ef um stóra hluti er
að ræða, er best að koma með ljósmynd.
Fyrirfram greiðsla er möguleg.
Boðið er uppá heimsókn í heimahús báða dagana.
Nánari upplýsingar veita Össur Kristinsson, 5554991 og 6984991
og Peter Beck +45 88181186, e-mail: pb@bruun-rasmussen.dk
Hvers virði er þetta ?
Ó
la
fu
r
E
li
a
ss
o
n
:“
Tw
o
h
o
t
a
ir
co
lu
m
n
s”
,2
0
0
5
.
Tv
æ
r
h
ö
g
g
m
yn
d
ir
ú
r
ry
ð
fr
íu
st
á
li
m
eð
ra
fm
a
g
n
sp
er
u
m
.
H
a
m
a
rs
h
ö
g
g
:2
1
0
.0
0
0
d
kr
.