Morgunblaðið - 08.05.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Óvissa ríkir á fjármálamörkuðum í
Evrópu eftir forsetakosningarnar í
Frakklandi og þingkosningar í
Grikklandi á sunnudaginn. Helstu
hlutabréfavísitölur í Evrópu lækk-
uðu við opnun markaða í gær vegna
fréttanna en eftir að kanslari Þýska-
lands, Angela Merkel, sagðist ætla
að taka vel á móti nýkjörnum forseta
Frakklands, sósíalistanum Francois
Hollande, birti yfir fjárfestum og
hlutabréf hækkuðu.
Evran lækkaði í gærmorgun og
hafði ekki verið lægri frá því í janúar
en eftir ummæli kanslarans hækkaði
hún aftur.
Helsta hlutabréfavísitalan í Grikk-
landi lækkaði um 6,7%.
Kjósendur í Grikklandi höfnuðu
þeim stjórnmálaflokkum sem
hlynntir voru því að fá björgunarlán
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
Evrópusambandinu. Eftir kosningar
í Grikkland er óvíst hvort hægt verð-
ur að mynda ríkisstjórn og mögulega
þarf að blása aftur til kosninga, segja
erlendir fréttamiðlar. Úrslit kosn-
inganna vekja því spurningar um
hvort Grikkir vilji halda áfram þessu
samstarfi. Fréttaskýrendur hafa
sagt að gríska ríkið þurfi á þessari
fjármögnun að halda til standa
straum af daglegum rekstri. Aftur á
móti eru margir Grikkir óánægðir
með þær kvaðir sem láninu fylgja,
líkt og launalækkanir og aðhald í rík-
isrekstri.
Frakkar kusu sósíalistann
Francois Hollande sem forseta á
sunnudaginn en skoðanakannanir
bentu til þess, og niðurstaðan kom
því markaðnum ekki í opna skjöldu,
en 17 ár eru síðan vinstri maður
gegndi embættinu.
Nú beinast sjónir sérfræðinga á
markaði að því hvernig Hollande
muni vinna með Merkel og hvaða
áhrif það muni hafa á evrusvæðið.
Verður unnið að því að leysa efna-
hagsvanda evrusvæðisins með því
t.d. að auka aðhald í ríkisrekstri eða
auka fjárútlát ríkisins. Í kosninga-
baráttunni sagðist Hollande vilja
minnka aðhald í ríkisfjármálum og
auka hagvöxt. Þrátt fyrir að Merkel
segðist ætla að taka vel á móti Hol-
lande er hún fylgjandi því að haldið
sé áfram á þeirri braut sem mörkuð
hefur verið í niðurskurði á ríkisút-
gjöldum.
Óvissa á mörkuðum
eftir kosningarnar
Mikilvægum spurningum er enn ósvarað í Grikklandi
AFP
Óvissutímar Óvissa ríkir í Grikklandi eftir þingkosningar og lækkaði vísitalan um tæplega 7% í gær.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.-+
,/+.,
+,-.01
,+.1/0
,+.-20
+1.+01
+23./0
+.334-
+0+.12
+5,.,+
+,-.4+
,/+.50
+,3.23
,+.142
,+.3/,
+1.,3+
+23.-4
+.35,
+0,.-
+5,.55
,+/.02--
+,3./+
,/,.+1
+,3.4,
,+.024
,+.353
+1.2/-
+23.13
+.3555
+0,.04
+52.++
● Tiger Woods er
ríkasti íþróttamað-
ur heims, sam-
kvæmt fréttavef
BBC.
David Beckham
er efstur á lista yfir
ríkustu íþrótta-
menn Bretlands.
Hann er hins vegar
aðeins í 10. sæti yf-
ir ríkustu íþróttamenn í heimi.
Auður Beckhams er metinn á 160
milljónir punda (32 milljarðar króna) en
eignir Woods eru hins vegar metnar á
538 milljónir punda (108 milljarða
króna).
Tennisíþróttakonan Maria Sharapova
er efst á lista yfir ríkustu konur heims í
íþróttum. Á heimslistanum er Michael
Schumacher í öðru sæti og Michael
Jordan í því þriðja.
Tiger Woods
Tiger Woods ríkastur
● Dræm þátttaka var í útboði lánamála
ríkisins sl. föstudag þegar nýr tveggja
ára flokkur, RB14, var í boði en alls bár-
ust níu tilboð að fjárhæð 1.350 m.kr. að
nafnvirði en öllum tilboðum var hafnað.
Krafa flokksins hækkaði um níu punkta
frá deginum áður en þá birtu Lánamál
ríkisins kaupverð á ríkisbréfum fyrir
gjaldeyrisútboð SÍ þar sem krafan á
RB13 var hærri en hún var á markaði.
Erlendir aðilar hafa ekki ennþá sýnt
RB14 áhuga en þeir sækja mikið í stutta
flokka og nú styttist í gjalddaga á RB12
en þeir eiga um 70% af þeim flokki,
samkvæmt greiningu IFS.
Dræm þátttaka í útboði
● Alls var 111 kaupsamningum þing-
lýst á höfuðborgarsvæðinu 27. apríl
til og með 3. maí. Þar af voru 87
samningar um eignir í fjölbýli, 20
samningar um sérbýli og fjórir um
annars konar eignir en íbúðar-
húsnæði.
Heildarveltan var 3.261 milljón
króna og meðalupphæð á samning
29,4 milljónir króna, samkvæmt upp-
lýsingum frá Þjóðskrá Íslands.
Á sama tíma var átta kaupsamn-
ingum þinglýst á Suðurnesjum. Þar
af voru sex samningar um eignir í
fjölbýli og tveir um sérbýli. Heild-
arveltan var 147 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 18,4 millj-
ónir króna.
Veltan 3,2 milljarðar
veislusalir
Tökum á móti litlum og stórum
hópum í rómaðar veislur
Suðræn stemming
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is
Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi
á búslóðum til flutnings milli landa,
landshluta eða innanbæjar
Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir
eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með
fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi.
Stofnað árið 1981