Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Stjórnvöld áforma að framlengja
álagningu raforkuskatts í frumvarpi
sem fjármálaráðherra hefur lagt
fyrir efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis. Samkvæmt núgildandi
lögum á raforkuskatturinn að leggj-
ast af í lok þessa árs, í samræmi við
samkomulag sem ríkisstjórnin gerði
við Samtök atvinnulífsins, Alcoa
Fjarðaál, Norðurál, Rio Tinto Alcan
og Elkem þann 7. desember 2009.
Í frumvarpi fjármálaráðherra er
hins vegar lögð til sú breyting að
skatturinn verði ótímabundinn og
muni jafnframt hækka frá því sem
nú er, í takt við verðlagsþróun frá
því að hann var fyrst lagður á árið
2009.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka álframleið-
enda, segir í samtali við Morgun-
blaðið framlengingu raforkuskatts
vera „skýrt brot“ á því samkomu-
lagi sem var undirritað við stjórn-
völd í árslok 2009. „Það vekur mikla
undrun að ríkisstjórnin ætli ekki að
standa við gerða samninga.“ Að
sögn Þorsteins hafa fyrirtækin stað-
ið að fullu við sinn hluta þessa sam-
komulags með fyrirframgreiðslu
tekjuskatts, samtals að fjárhæð ríf-
lega 2,3 milljarðar króna.
Samningurinn fól í sér að álfyrir-
tækin þrjú sem starfa hér á landi,
auk Elkem á Grundartanga, féllust
á fyrirframgreiðslu tekjuskatts,
„ásamt sköttum á raforku og kol-
efnislosun vegna fljótandi eldsneyt-
is, sem lagðir verða á með sérstök-
um lögum, mun standa í þrjú ár frá
árinu 2010 að telja. Skattarnir eru
tímabundnir og falla niður í lok árs
2012,“ segir í samkomulaginu.
Stöðva skuldasöfnun ríkisins
Í frumvarpi fjármálaráðherra
kemur fram að áætlað er að kolefn-
isgjald á fljótandi jarðefnaeldsneyti
og skattur af seldri raforku og heitu
vatni skili ríkissjóði 5,8 milljörðum
króna í ár. Í fyrirliggjandi áætlun
um ríkisfjármál fyrir árin 2012 til
2015 er gengið út frá þessari tekju-
öflun. Ekki náðist í fjármálaráð-
herra, Oddnýju Harðardóttur, við
vinnslu fréttarinnar, en í frumvarp-
inu segir að skattlagningin sé
„nauðsynleg forsenda þess að takist
að ná markmiðum ríkisstjórnarinn-
ar um jöfnuð í ríkisfjármálum og að
stöðva skuldasöfnun með tilheyr-
andi vaxtakostnaði“. Þegar lög um
umhverfis- og auðlindaskatt voru
samþykkt á Alþingi árið 2009, en
lögin voru sett á þeim tíma sem
hluti af áætlun stjórnvalda og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins um jöfnuð í
ríkisfjármálum 2009-2013, var gert
ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af
skattgreiðslunum yrðu um 4,7 millj-
arðar króna á ársgrundvelli. Á það
er hins vegar bent í umsögn Sam-
taka atvinnulífsins (SA) til efna-
hags- og viðskiptanefndar að frá
þeim tíma hefur kolefnisgjaldið tví-
vegis verið hækkað og er nú um
tvöfalt hærra en upphaflega. „Hér
er enn eitt dæmið,“ að mati SA, „um
að aukin skattheimta skilar ekki
tekjuáformum stjórnvalda þegar
upp er staðið.“
Sendir alvarleg skilaboð
Illugi Gunnarsson, sem á sæti í
fjárlaganefnd Alþingis fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, segir í samtali við
Morgunblaðið að það sé orðið „sér-
stakt vandamál í sjálfu sér“ hversu
illa er hægt að treysta fyrri yfirlýs-
ingum ríkisstjórnarinnar. „Sökum
þessa fer hin pólitíska áhætta vax-
andi, sem aftur hefur mjög skaðleg
áhrif á fjárfestingar í landinu – af
því að menn geta ekki treyst fyr-
irheitum stjórnvalda. Ef fjárfestar,
ekki síst erlendir aðilar, sjá að það
er tilhneiging til þess á meðal
stjórnvalda að standa ekki við gerða
samninga, þá sendir slíkt mjög al-
varleg skilaboð til allra sem eru að
velta fyrir Íslandi sem ákjósanleg-
um fjárfestingarkosti.“
Þorsteinn tekur í sama streng og
segir það liggja í augum uppi að fyr-
ir áhugasama fjárfesta í orkufrek-
um iðnaði hér á landi skipti sköpum
að það sé stöðugleiki í rekstrarum-
hverfinu. „Það er því ekki mjög trú-
verðugt ef stjórnvöld sýna með
þessum hætti að það sé ekki hægt
að treysta þeim samningnum sem
þau gera.“
Raforkuskatturinn varanlegur
„Skýrt brot“ á samkomulagi For-
senda fyrir jöfnuði í ríkisfjármálum
Morgunblaðið/ÞÖK
Alcoa Fjarðaál Samkomulag álfyrirtækjanna og Elkem við stjórnvöld gerði
ráð fyrir því að sérstakur raforkuskattur myndi leggjast af í árslok 2012.
Raforkuskattur
» Raforkuskattur verður
varanlegur samkvæmt frum-
varpi fjármálaráðherra.
» Skatturinn átti að leggjast
af í árslok 2012 samkvæmt
samkomulagi sem stjórnvöld
gerðu við SA og stærstu not-
endur raforku í desember
2009.
» „Sérstakt vandamál í sjálfu
sér“ að ekki sé hægt að treysta
yfirlýsingum stjórnvalda, segir
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins.
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
ÆTLAR ÞÚ AÐ BREYTA
UM LÍFSSTÍL?
Að námskeiðinu standa m.a. læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar,
næringarfræðingur, íþróttafræðingar og sálfræðingar
Kynningarfundur 10. maí kl. 17:30 - Allir velkomnir
HEILSULAUSNIR
Hentar einstaklingum sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki
• Mán., mið. og fös. kl. 6:20 eða 10:00.
• Hefst mánudaginn 14. maí
• Skráning í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is
Helga
Einarsdóttir
„Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó nokkurn
tíma og var búin að vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað
í mínum málum. Ég er búin með grunnnámskeið í Heilsulausnum og
er núna á framhaldsnámskeiðinu. Ég hef náð góðum árangri, náð að
losna við mörg kíló og er bara svo miklu hressari og með miklu meiri
orku. Maður verður að vilja gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst
ekki um það að megra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og
koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.“