Morgunblaðið - 08.05.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, og framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins lögðu í gær
áherslu á að Grikkland þyrfti að
hlíta skilmálum samnings fráfarandi
ríkisstjórnar landsins við ESB og
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um neyð-
arlán.
Stjórnarflokkarnir tveir, sem
samþykktu skilmálana, fengu tæpan
þriðjung atkvæða í þingkosning-
unum í Grikklandi á sunnudaginn
var. Samanlagt fylgi þeirra fór úr
77,4% í 32,1% og þeir verða í minni-
hluta á þinginu, fengu samtals 149
þingsæti af 300.
Annar stjórnarflokkanna,
íhaldsflokkurinn Nýtt lýðræði, er
nú stærstur, fékk tæp 19% atkvæð-
anna og 108 þingsæti, að með-
töldum 50 sætum sem stærsta
flokknum er úthlutað sérstaklega.
Nýtt lýðræði fékk 33,5% atkvæða í
kosningum árið 2009.
Hinn stjórnarflokkurinn,
jafnaðarmannaflokkurinn PASOK,
galt mikið afhroð; fylgi hans fór úr
43,9% í 13,2% og hann er nú þriðji
stærsti flokkurinn.
Vinstriflokkurinn Syriza er
næststærstur, þrefaldaði fylgi sitt
og fékk 16,7% atkvæðanna.
Skilaði umboðinu
Leiðtogi Nýs lýðræðis, Antonis
Samaras, fékk umboð til að mynda
nýja ríkisstjórn en skilaði því eftir
að Syriza og fleiri flokkar höfnuðu
samstarfi við stjórnarflokkana tvo.
Talið er að Nýtt lýðræði og
PASOK eigi aðeins möguleika á
samstarfi við einn flokk, Lýðræðis-
lega vinstriflokkinn, sem styður að-
ild landsins að ESB og mynt-
samstarfinu, en hann fékk 19
þingmenn í kosningunum. Leiðtogi
flokksins gaf þó til kynna á sunnu-
dagskvöld að hann vildi ekki eiga
aðild að ríkisstjórn sem hlítti skil-
málum neyðarlánanna. „Við ætlum
ekki að taka þátt í því að halda
stefnu sem kemur fólki og sam-
félaginu á vonarvöl,“ sagði hann.
„Við stöndum við loforð okkar.“
Nýr hægriflokkur, Sjálfstæðir
Grikkir, er nú fjórði stærsti
flokkurinn, með 33 þingsæti.
Kommúnistaflokkurinn kemur
næstur með 26 sæti. Nýnasista-
flokkur, Gullin dögun, fékk 21 þing-
sæti.
Gríska vinstriblaðið Ta Nea
lýsti stjórnarmyndunarviðræðunum
sem „martröð“ og sagði að „ógern-
ingur“ yrði að mynda meirihluta-
stjórn.
Líklegt þykir að viðræðurnar
fari út um þúfur og nýjar þingkosn-
ingar fari fram um miðjan næsta
mánuð. „Það er mjög ólíklegt að
Nýtt lýðræði geti myndað sam-
steypustjórn,“ hefur The Wall
Street Journal eftir frammámanni í
Nýju lýðræði. „Við stefnum hrað-
byri að nýjum kosningum í júní.“
Blaðið hefur eftir Ilias Niko-
lakopoulos, stjórnmálafræðiprófess-
or í Aþenu, að nýjar kosningar
myndu aðeins gera stöðuna enn
flóknari. „Flokkarnir sem eru and-
vígir sparnaðaraðgerðunum myndu
liklega fá meiri stuðning,“ sagði
hann. „Framtíð landsins á evru-
svæðinu er augljóslega í veði.“
Horfur á að Grikkir
kjósi aftur í júní
Litlar líkur taldar á að hægt verði að mynda ríkisstjórn
ÚRSLITIN Í GRIKKLANDI
Heimildir: Reuters, igraphics.gr
Nýtt
lýðræði
Íhaldsmenn
PASOK (Samgríska
sósíalistahreyfingin)
Jafnaðarmenn
Gríski kommún-
istaflokkurinn
8%
Sjálfstæðir
Grikkir
Hægriflokkur
10,5%
Gullin dögun
Lengst til hægri 7%
Syriza (Vinstri-
bandalagið)
16,6%
Flokkarnir í fráfarandi stjórn
300
sæti alls
25,5%
19%
13,4%
Kjörtölur þegar 99%
atkvæða höfðu verið talin
Aðrir
Flokkarnir
þurftu 3%
atkvæða til
að fá sæti á
þinginu
Skammur tími til stefnu
» Boða þarf til nýrra kosn-
inga ef ekki tekst að mynda
nýja ríkisstjórn fyrir 17. maí.
» Leiðtoga Nýs lýðræðis
tókst ekki að mynda stjórn og
næststærsti flokkurinn fær nú
stjórnarmyndunarumboðið og
síðan þriðji stærsti flokkurinn.
Ef viðræður flokkanna bera
ekki árangur boðar forsetinn
til kosninga.
AFP
Í steininn Lögreglumenn bera einn stjórnarandstæðinga sem voru hand-
teknir fyrir mótmæli í miðborg Moskvu þegar Pútín sór embættiseiðinn.
Pútín sór embættis-
eiðinn í skugga átaka
Hundruð mótmælenda handtekin
Vladimír Pútín, nýkjörinn forseti
Rússlands, sór embættiseið sinn í
Kremlarhöll í gær í skugga átaka
milli lögreglumanna og andstæð-
inga forsetans. Hundruð manna
voru handtekin í átökunum.
Pútín var forseti á árunum 2000
til 2008 en varð að víkja vegna
stjórnarskrárákvæðis um að enginn
mætti gegna embættinu lengur en í
tvö kjörtímabil í röð. Dmítrí Medve-
dev var þá kjörinn forseti og Pútín
varð forsætisráðherra. Eitt af
fyrstu verkum Pútíns í gær var að
leggja til að þingið skipaði Medve-
dev í embætti forsætisráðherra.
Stjórnarandstæðingar saka Pút-
ín um að hafa troðið á mannrétt-
indum. Lögreglan handtók 436
stjórnarandstæðinga sem tóku þátt
í fjölmennum mótmælum gegn Pút-
ín á sunnudag. Að minnsta kosti
120 til viðbótar voru handteknir í
gær, þeirra á meðal Borís Nemtsov,
sem var aðstoðarforsætisráðherra í
valdatíð Borís Jeltsíns fyrstu árin
eftir hrun Sovétríkjanna.
bogi@mbl.is
Draghálsi 4 - 110 Reykajvík
Sími: 535 1300 - Fax: 535 1305 - verslun@verslun.is
T
A
K
T
IK
_
a
p
r1
2
_
3
8
0
5
Kæli- og frystitæki
Pöntunarsími: 535 1300
OFC 250
B: 685 D: 610 H: 1700 Kæling 2/12°C
199.000.+vsk
2 stærðir
sama verð
XS 600 Stærð (bxhxd)
1475x837x757mm Kæling -12/ -24°C
129.000.+vsk
Kæling +2/+12°C - Innbyggð lýsing -
Stærð b:682 d:450 h:675
Frystir
99.000.+vsk
KK 420
B: 615 D: 590 H: 1945
- 350 L innanmál -
Kæling +2/+10°C - 8
hillur - Læsing
KK 415
B: 606 D: 575 H:
1980 - 360 L
innanmál - Kæling
+2/+10°C - 8 hillur
- Læsing
109.000.+vsk SD 155 Stærð (bxdxh)
564x695x905mm Kæling
-12/ -22°C
SD 305 Stærð (bxdxh)
950x695x905mm
Kæling -12/ -22°C
79.000.+vsk 99.000.+vsk
199.000.+vsk
109.000.+vsk
Til á lager
KK 520 B: 650 D:
705 H: 1970 -
488 L innanmál -
Kæling -12/-22°C
- 8 hillur - Læsing
Frystir
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
ÞRÍR FRAKKAR
Café & Restaurant
Fersk skata með rjóma-
lagaðri sítrónu-dillsósu