Morgunblaðið - 08.05.2012, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Margir fjölmiðlar í Evrópu lýstu í
gær sigri jafnaðarmannsins Franço-
is Hollande í frönsku forsetakosn-
ingunum sem pólitískum straum-
hvörfum innan Evrópusambandsins
en vöruðu við því að Hollande þyrfti
að ráða fram úr mjög erfiðum úr-
lausnarefnum.
Þýsk dagblöð veltu því fyrir sér
hvaða áhrif sigur Hollande myndi
hafa á samstarf Þjóðverja og Frakka
og áhrif Angelu Merkel, kanslara
Þýskalands, innan ESB. Þýska-
landsútgáfa Financial Times sagði
að sigur Hollande markaði „tíma-
mót, einkum fyrir Angelu Merkel“
og benti á að hún studdi Nicolas Sar-
kozy í kosningabaráttunni. „Þetta er
mjög óþægilegt fyrir Merkel. Ekki
vegna þess að það ógni aðgerðunum
til að bjarga evrunni. Heldur vegna
þess að krafa hans um að bæta hag-
vaxtarþáttum við fjármálasáttmála
ESB vegur að æðsta valdi þýska
kanslarans í Evrópusambandinu.“
Vinstriblaðið Tagesspiegel sagði
sigur Hollande mikið áfall fyrir Mer-
kel. „Þetta þýðir að Þjóðverjar eru
með færri, of fáa, bandamenn.“
Þarf stuðning Merkel
Þýsku blöðin skírskotuðu til þeirr-
ar stefnu Hollande að draga úr
sparnaðaraðgerðum, sem Sarkozy
fyrirhugaði, og semja um breytingar
á sáttmála ESB-landa um aðhald í
ríkisfjármálum til að bjarga evrunni.
Í sáttmálanum er kveðið á um erf-
iðar sparnaðaraðgerðir til að minnka
fjárlagahallann en Hollande vill að
dregið verði úr sparnaðinum og
meiri áhersla lögð á hagvöxt. Hann
vill einnig hækka skatta á stórfyrir-
tæki og tekjur yfir einni milljón evra
á ári, jafnvirði 163 milljóna króna.
Hollande hyggst ennfremur skapa
60.000 kennarastörf, hækka lág-
markslaun og afturkalla áform
Sarkozys um að hækka eftirlauna-
aldur úr 60 árum í 62. Hollande segir
að þrátt fyrir þessar breytingar
verði hægt að eyða fjárlagahallanum
ekki síðar en árið 2017 eins og stefnt
hefur verið að.
Stjórn Merkel bauðst í gær til að
hefja viðræður um sérstakan
samning um hagvöxt en
áréttaði að ekki kæmi til
greina að slaka á kröfunni
um hert aðhald í ríkisfjár-
málum. The Wall Street Jo-
urnal segir að mjög erfitt verði
fyrir Hollande að
bregða út af aðhalds-
stefnunni án stuðn-
ings þýskra stjórn-
valda.
Sigur Hollande áfall fyrir Merkel
Reuters
Sigurhátíð Kona kyssir vin sinn sem var með mynd af François Hollande
fyrir andlitinu þegar franskir jafnaðarmenn fögnuðu sigri hans í París.
Kosningaósigur Sarkozys sagður grafa undan „æðsta valdi“ Merkel innan Evrópusambandsins
Þýska stjórnin segir ekki koma til greina að slaka á kröfunni um hert aðhald í ríkisfjármálum
Breska dagblaðið The Times
sagði í gær að François Hollande
væri að „leika sér að eldinum“
með efnahagsstefnu sinni sem
gæti annaðhvort leitt til hag-
vaxtar eða efnahagslegs og póli-
tísks umróts sem gæti haft mjög
alvarlegar afleiðingar. Krafa Hol-
lande um breytingar á sáttmála
ESB um aukið aðhald í ríkisfjár-
málum væri „sérstaklega
hættuleg“.
The Daily Telegraph spáði
einnig því að sigur Hollande
myndi leiða til frekara
umróts á evrusvæð-
inu. Vinstriblaðið
The Guardian var
bjartsýnna á að stefna Hollande
bæri tilætlaðan árangur en viður-
kenndi að hún gæti haft mjög al-
varlegar afleiðingar ef hún færi
út um þúfur.
Sigur Hollande á Nicolas Sar-
kozy er sögulegur. Þetta er í
fyrsta skipti frá árinu 1981 sem
sitjandi forseta tekst ekki að ná
endurkjöri. Hollande er fyrsti
sósíalistinn sem sigrar í forseta-
kosningum í Frakklandi frá valda-
tíma François Mitterrands á ár-
unum 1981 til 1995. Hollande og
Mitterrand eru einu vinstrimenn-
irnir sem kjörnir hafa verið í
embættið frá stofnun fimmta lýð-
veldisins árið 1958.
Sagður leika sér að eldinum
EFASEMDIR UM STEFNU HOLLANDE
Nicolas
Sarkozy
51,62% 48,38%
François
Hollande,
57 ára
Nicolas
Sarkozy, 57 ára
fráfarandi forseti
ÚRSLIT FRÖNSKU FORSETAKOSNINGANNA
Heimildir: Reuters, franska innanríkisráðuneytið
Kjörsóknin var rúm 80%.
Tvennutilboð*
Læsingar/hurðapumpur
Peningaskápar
Lásasmiðir með áralanga reynslu og víðtæka þekkingu
Inni/úti Læsingar ▪ húnar ▪ skrár ▪ rósettur ▪ sílindrar
Hurðapumpur Komum á staðinn og stillum hurðapumpur gegn vægu gjaldi
Bíllyklar
Smíðum og forritum flestar
gerðir bíllykla.
Mikið úrval, bjóðum heimsendingu og uppsetningu
gegn vægu gjaldi á höfuðborgarsvæðinu
Láttu smíða húslykil og þú færð annan með í kaupbæti að verðmæti 500kr
* Gildir ekki af kerfislyklum. Tilboðið gildir til 25. maí 2012
Tilboð fyirir áskrifendur Morgunblaðsins.
Komdu með afrifuna í verslun okkar
á Laugavegi 168 og nýttu þér þetta
frábæra tilboð.
Þjónusta og fagmennska
Verslun, Laugavegi 168 www.neyd.is laugavegur@neyd.is s: 510 8888 Opið alla virka daga 8:00-18:00
Lyklakerfi
Við smíðum og þjónustum lyklakerfi fyrir fyrirtæki
og húsfélög. Hringdu og fáðu ráðgjafa í heimsókn.
=
Traustir lásasmiðir í yfir 24 ár