Morgunblaðið - 08.05.2012, Qupperneq 23
Íbúafundur um
sjávarútvegsmál
og stöðu
Norðfjarðarganga
Undirskriftir frá þúsundum einstaklinga verða afhentar Ögmundi
Jónassyni innanríkisráðherra við Safnahúsið í Neskaupstað í dag,
þriðjudag, kl. 15:30. Með undirskrift sinni skorar mikill fjöldi fólks á
ríkisstjórn Íslands að hefja nú þegar framkvæmdir við gerð nýrra
Norðfjarðarganga og eigi síðar en fyrir árslok 2012.
Mætum við Safnahúsið kl. 15.30.
Í kvöld, þriðjudag kl. 19.30 verður haldinn íbúafundur í Nesskóla í
Neskaupstað, þar sem farið verður yfir frumvarp ríkisstjórnarinnar
til laga um stjórn fiskveiða og frumvarp til laga um veiðileyfagjöld.
Frummælendur verða Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, Gunnþór Ingvason Útvegsmannafélagi
Austfjarða, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Jón Björn
Hákonarson forseti bæjarstjórnar. Fundarstjóri er Smári Geirsson
Á fundinum verður einnig fjallað um stöðu mála Norðfjarðarganga.
Íbúar Fjarðabyggðar, fjölmennið á fundinn og takið
þátt í umræðum um þessi veigamiklu mál.
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Morgunblaðið
gefur út
stórglæsilegt
blað um garðinn
föstudaginn
18. maí.
Garðablaðð verður með góðum
upplýsingum um garðinn, pallinn,
heita potta,sumarblómin,
sumarhúsgögn og grill. Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 12, mánudaginn 14. maí.
Garða
blaðið
SÉ
RB
LA
Ð
Garðablað
UMRÆÐAN 23Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Eitt best varðveitta leyndarmál
sjúkrahúsanna er starf lífeindafræð-
inga. Lífeindafræðingar starfa inni á
rannsóknastofum spítala og annarra
heilbrigðisstofnana en eru flestir ekki
sýnilegir almenningi. Undantekning
er blóðtökur og ákveðnar rannsóknir
svo sem ómun á hjarta. Aðalstarfið er
fólgið í ýmiss konar greiningarstarfi,
sem fer að jafnaði fram inni á rann-
sóknarstofum, bæði við þjónustu-
rannsóknir og vísindarannsóknir.
Á stóru sjúkarhúsunum eru rann-
sóknarstofurnar með margvíslega sér-
hæfingu, svo sem sýklarannsóknir,
vefjarannsóknir, blóðmeinafræði,
efnarannsóknir og blóðbankastarf-
semi.
Á blóðmeinafræðideild Landspítala
er sérhæfð rannsóknastofa til mæl-
inga á blóðstorku. Í sambandi við hana
er miðstöð blæðingasjúkdóma og
segavarnir, sem eru sérstök deild sem
sér um að skammta blóðþynningar-
lyfið kóvar eftir mælingu á blóði
þynntra sjúklinga.
Lífeindafræð-
ingar hafa staðið
að mörgum vís-
indarannsóknum
með öðru starfs-
fólki á rannsókn-
ardeildum, svo
sem læknum og
líffræðingum. Sem
dæmi segi ég frá
einni slíkri.
Rannsóknin er fólgin í því að bera
saman skömmtun á blóðþynningarlyf-
inu kóvar (sem er warfarin) þegar
blóðið er mælt með hefðbundinni mæl-
ingaraðferð (próthrombin tíma, PT,
INR) annars vegar og með nýju
storkuprófi (Fiix PT), sem aðstand-
endur rannsóknarinnar (lífeindafræð-
ingur og læknir) hafa fundið upp, hins
vegar. Þetta nýja storkupróf fékk
hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands
2011 (1. verðlaun) og verður vonandi
hvati til enn frekari rannsókna á þessu
sviði. Samkvæmt tilraunum eru vonir
bundnar við að þetta nýja storkupróf
Brynja R.
Guðmundsdóttir
gagnist betur en hefðbundið próf því
það endurspegli betur raunverulega
blóðþynningu sjúklinganna heldur en
hin hefðbundna aðferð. Ef sú tilgáta
stenst þá gæti prófið orðið framleiðslu-
og söluvara.
Á Íslandi eru um 4.500 sjúklingar á
kóvar-blóðþynningu og þar af eru
u.þ.b. 3.000 sjúklingar á vegum Sega-
varna. Hluti sjúklinganna, um 1200
manns, mun taka þátt í rannsókninni.
Niðurstaðna úr rannsókninni er að
vænta í ársbyjun 2014.
BRYNJA R.
GUÐMUNDSDÓTTIR,
lífeindafræðingur.
Lífeindafræðingar, hvað gera þeir?
Frá Brynju R. Guðmundsdóttur
Thermowave plötuvarmaskiptar
Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði
Eimsvalar fyrir sjó og vatn
Olíukælar fyrir sjó og vatn
Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu
Fyrir orku iðnaðinn
Glycol lausnir fyrir byggingar og
sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali
Títan–laser soðnir fyrir
erfiðar aðstæður svo sem
sjó/Ammoníak
Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði
www.frost.is
Það var fyrir tilviljun að ég komst að í
frábæran dvalartíma fyrir eldri borg-
ara á Hrafnistu í Reykjavík. Kunn-
ingjakona sem ég talaði við í síma
sagði mér að hún dveldi þar tímabund-
ið og líkaði vel. Ég brá skjótt við, hafði
samband við heimilislækni minn sem
sendi inn umsókn og eftir nokkra daga
var ég komin í endurhæfingardeild á
Hrafnistu.
Endurhæfing fyrir eldri borgara á
höfuðborgarsvæðinu er úrræði sem
kom til við samning milli heilbrigð-
isráðuneytisins og Hrafnistu í Reykja-
vík í apríl 2009.
Dagþjálfun er með pláss fyrir 30
manns á dag sem geta dvalið í sjö vik-
ur í senn. Kostnaður er að hluta til
greiddur af Tryggingastofnun rík-
isins, en þátttakandi greiðir sjálfur kr.
875 fyrir hvert skipti sem hann mætir.
Innifalið í gjaldinu er morgunverður,
hádegismatur, síðdegiskaffi og leigu-
bíll sem sækir fólk að morgni og keyr-
ir það heim síðdegis.
Að dvalartíma loknum þurfa að líða
fimm mánuðir þar til hægt er að
sækja um aftur. Fjórar til fimm
starfskonur sjá um þessa deild. Elsku-
legt viðmót þeirra og þjónustulund er
einstök.
Meðferð flestra er; vatnsleikfimi í
sundlauginni, sjúkraþjálfun tvisvar í
viku, vaxmeðferð og æfingar fyrir
hendur og stólaleikfimi á hverjum
morgni.
Í vel búnum tækjasal starfa sex
sjúkraþjálfarar sem gæta þess að
þjálfun sé við hæfi
hvers og eins. Á
vinnustofu er
hægt að leggja
stund á ýmiskonar
tómstundaiðju.
Á mið-
vikudögum eru
helgistundir sem
prestur Hrafnistu-
heimilanna sér
um.
Fámennur en góður kór syngur
sálma við undirleik orgelleikara.
Eftir hádegismat leggjast flestir í
rafknúna hvíldarstóla og breiða yfir
sig létt ullarteppi til þess að slappa vel
af. Ekki er þó lengi til setunnar boðið.
Aðstoðarkonurnar okkar ýta mjúk-
lega við þeim sem hafa dottað og
minna á að þeir eigi að mæta í þetta
eða hitt, styðja þá sem þurfa þess með
og fylgja þeim eftir.
Á hverjum degi er eitthvað um að
vera, söngur, dans, upplestur og fleira.
Bingó á fjórðu hæð var tilkynnt. Ég
var búin að hreiðra vel um mig í stóln-
um og sagðist aldrei hafa farið í bingó.
„Gyða, þú getur unnið harðfisk.“
„Ha, harðfisk?“ Ég reif mig upp úr
hvíldarstólnum og rétt náði lyftunni.
Í bingósalnum var þétt setið. Ég
var sett niður við sex manna borð, allir
voru tilbúnir til að aðstoða mig við
bingóspilið og fylgdust vel með því að
ég gerði rétt. Að nokkrum tíma liðn-
um kölluðu tveir við mitt borð upp
„bingó“, sem var þá reyndar hjá mér.
Ég varð orðlaus þegar mér var færður
harðfiskpakki og smjör með.
Einn daginn var dansað í rúmgóð-
um sal. Göngugrindurnar stóðu í röð-
um í ganginum og í salnum. Allir sem
gátu staðið uppréttir fóru út á dans-
gólfið og hreyfðu sig í takt við fjör-
ugan undirleik sex harmónikuleikara.
Oft er fjöldasöngur í anddyrinu sem
kona í afgreiðslunni stjórnar. Hún
spilar á gítar og bakarinn leikur undir
á píanóið.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið
Hrafnista var stofnað af stéttarfélagi
sjómanna og tók til starfa á sjó-
mannadaginn árið 1957.
Happdrætti DAS hefur skilað góð-
um hagnaði árlega sem hefur farið
beint í uppbyggingu Hrafnistuheim-
ilanna í Reykjavík og Hafnarfirði.
Á síðastliðnum árum hafa farið
fram miklar endurbætur á húsnæði
Hrafnistu í Reykjavík. Flestir heim-
ilismenn búa nú í björtum og rúmgóð-
um einstaklingsherbergjum með eigin
salerni.
Við Brúnaveg eru 24 vandaðar
leiguíbúðir frá 70 til 114 m² að stærð.
Úr þeim er innangengt í Hrafnistu
og hafa íbúar þeirra aðgang að matsal
og allri annarri þjónustu.
Hvar sem litast er um blasir við
þrifnaður og reglusemi á öllum hlut-
um.
Með þessum línum vil ég senda
starfsfólki á Hrafnistu og öðrum sem
þar hafa komið við sögu kveðjur og
þakkir fyrir þann tíma sem ég fékk að
dvelja þar.
GUÐNÝ JÓHANNSDÓTTIR,
eldri borgari.
Hressingardvöl á Hrafnistu
Frá Guðnýju Jóhannsdóttur
Guðný
Jóhannsdóttir