Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
✝ Lára J. Árna-dóttir fæddist
á Norðfirði 28. júlí
1916. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli 29.
apríl 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Sigur-
björg Sigurð-
ardóttir, frá
Stóru-Breiðuvík-
urhjáleigu í Reyð-
arfirði, f. 1883, d. 1970 og
Árni Oddsson frá Búastöðum í
Vestmannaeyjum, f. 1888, d.
1938. Systkini Láru voru Guð-
finna, f. 1906, d. 1999, Sigríð-
ur, f. 1910, d. 2004, Að-
alheiður, f. 1913, d. 1987,
Pálína, f. 1914, d. 1993, Helga,
f. 1918, d. 2008, Vilhjálmur, f.
1921, d. 1993 og Óli Ísfeld, f.
Baldri, eiginmanni sínum, og
bjuggu þau á Ólafsfirði fyrstu
hjúskaparárin sín. Lára og
Baldur fluttust síðar til
Reykjavíkur þar sem Lára
vann lengst af sem matráðs-
kona hjá Olíufélaginu og lauk
hún þar sínum starfsferli. Eft-
ir að Lára og Baldur fluttu til
Reykjavíkur stóð heimili
þeirra alltaf öllum opið, hvort
sem fólk kom frá Eyjum eða
að norðan. Lára og Baldur
bjuggu í þjónustuíbúð á Afla-
granda 40 frá árinu 1988 og
bjó Lára þar ein eftir að Bald-
ur lést. Lára var mikil hann-
yrðakona og einnig hafði hún
mjög gaman af því að taka í
spil og spilaði hún m.a. brids
við nágranna sína og vini á
Aflagranda 40. Síðasta æviár-
ið dvaldi Lára á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli.
Útför Láru fer fram frá Ás-
kirkju í dag, 8. maí 2012 kl.
13.
1927, d. 1938.
Hinn 28. nóv-
ember 1942 giftist
Lára Baldri Jón-
assyni frá Ólafs-
firði. Foreldrar
hans voru Jónína
Jónsdóttir, f. 1891,
d. 1976 og Jónas
Jónsson, f. 1883,
d. 1974. Fjölskylda
Láru fluttist árið
1919 til Vest-
mannaeyja og bjó á Burst-
afelli.
Lára gekk í skóla í Vest-
mannaeyjum en vann síðan við
ýmis störf bæði í Eyjum og
uppi á landi, m.a. í vist í Norð-
tungu í Borgarfirði og á Hall-
ormsstað. Um 1940 fór Lára
til Siglufjarðar og vann þar í
síld, og þar kynntist hún
Lára Árnadóttir var alla tíð
glæsileg kona. Þrátt fyrir háan
aldur gekk hún bein í baki, vel
greidd, vel klædd og snyrtileg í
alla staði. Hún var hlý og ljúf
við alla sem á vegi hennar urðu.
Henni lánaðist ekki að eignast
börn sjálf en átti sannan stað í
hjörtum okkar sem aukaamma
og skáfrænka. Hún var gift afa-
bróður mínum og var okkur
systkinunum sem amma og
börnunum okkar líka. Þegar við
sem bjuggum úti á landi komum
í borgina tóku þau okkur opnum
örmum og buðu gistingu, mat og
góðan félagsskap. Þau komu líka
margar ferðir norður og höfðu
mikla ánægju af ferðalögum
bæði innan lands og utan.
Eftir að ég flutti suður með
mína litlu fjölskyldu jókst sam-
bandið og börnin mín tóku upp á
því að kalla hana Láru gervi-
ömmu í jákvæðri merkingu,
sennilega af því að hún var góð
viðbót við ömmur og langömm-
ur.
Síðustu 13 árin sem Lára bjó
á Aflagranda og Baldur frændi
var fallinn frá vorum við ná-
grannar í Vesturbænum og í
góðu sambandi. Hún sá húsið
okkar út um gluggann á svöl-
unum og stutt að skjótast yfir ef
hana vantaði eitthvað. Oft sátum
við og hún rifjaði upp minningar
frá Vestmannaeyjum og sagði
frá með ljóma í augum. Þrátt
fyrir að hafa flutt ung þaðan var
hún alltaf Eyjamaður í hjartanu.
Með þakklæti í hjarta kveð ég
Láru sem á langri ævi veitti ást
og umhyggju og var glæsileg
sem fögur rós fram á síðasta
dag langrar ævi.
Helga Björg
og fjölskylda.
Lára J. Árnadóttir
✝ Jakobína ÞóraPálmadóttir
fæddist í Reykjavík
19. október 1934.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Akraness 28.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar henn-
ar voru Pálmi Vil-
hjálmsson sjómað-
ur og verkamaður,
f. 13. desember
1896, d. 23. desem-
ber 1960, og Jórunn Guðmunds-
dóttir húsmóðir, f. 23. nóvember
1904, d. 4. nóvember 1993.
Systkini Jakobínu voru Vil-
hjálmur, f. 6. desember 1927, d.
4. mars 1986, Guðmundur, f. 15.
júní 1929, Sverrir, f. 4. október
1930, d. 19. júlí 1973, Haraldur,
f. 26. janúar 1932, d. 15. febrúar
1986, Sigurlaug, f. 15. október
1935, d. 21. júlí 1977, Aðalbjörg
Anna, f. 6. september 1938, og
Helga Sigríður, f. 31. júlí 1940.
Jakobína Þóra giftist hinn 12.
desember 1959 Guðmundi
f. 25. október 1960, sambýlis-
maður Alfreð Viggó Sig-
urjónsson, hennar börn eru Vil-
borg og Þorsteinn Gíslabörn. 3)
Jórunn Petra, f. 30. ágúst 1962,
sambýlismaður Jóhann Haf-
steinn Hafsteinsson, börn þeirra
eru Kristín Þóra, Hafsteinn
Helgi og Ingólfur Ari. Fyrir átti
Jórunn Petra soninn Guðmund
Orra Arnarson, sambýliskona
hans er Kolbrún Ýr Oddgeirs-
dóttir. 4) Helga, f. 11. september
1967, sonur hennar er Stefán
Andri Bertrand.
Jakobína Þóra hóf starfsferil
sinn við bókband hjá Prent-
smiðjunni Hólum, Þingholts-
stræti í Reykjavík. Árið 1961
fluttu Jakobína Þóra og Guð-
mundur Magnús búferlum til
Akraness og þar bjuggu þau til
æviloka. Jakobína Þóra starfaði
þar í bæ við fiskvinnslustörf hjá
Haferninum hf. og Haraldi
Böðvarssyni jafnframt sem hún
sinnti húsmóðurstörfum. Hún
tók þátt í ýmsum félagsstörfum
innan verkalýðshreyfingarinnar
á Akranesi, til að mynda var
hún lengi í stjórn sjúkrasjóðsins.
Jakobína Þóra verður jarð-
sungin frá Akraneskirkju í dag,
8. maí 2012, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Magnúsi Jónssyni,
sjómanni, starfs-
manni og formanni
Verkalýðsfélags
Akraness, f. 11.
apríl 1932, d. 2. jan-
úar 2005. For-
eldrar hans voru
Jón Helgi Guð-
mundsson prentari
og ritstjóri Vik-
unnar, f. 21. júlí
1906, d. 12. júní
1952, og Guðný Magnúsdóttir
húsmóðir, f. 31. ágúst 1909, d.
11. janúar 1995. Þau skildu.
Börn Jakobínu og Guðmundar
eru: 1) Jón Helgi, f. 9. sept-
ember 1959, kvæntur Atik Fau-
ziah Hadad. Börn Jóns Helga af
fyrra hjónabandi með Elsu
Björk Knútsdóttur eru Jakob
Þórir og Lilja Karen, hennar
börn eru Sara María og Magnús
Eli Baldursbörn. Fyrir átti Elsa
Björk soninn Kristján Ólaf Grét-
arsson, dætur hans eru Rakel
Kara og Karítas Lea. 2) Guðný,
Elsku mamma mín.
Nú er komið að kveðjustund,
þessari stund sem ég kveið svo
fyrir.
Það verður erfitt að hugsa sér
lífið án þín, en ég á þó fjársjóð sem
enginn tekur frá mér en það eru
dýrmætar minningar um þig sem
ylja mér þegar ég er sorgmædd.
Mamma, þín minning er ljúf og
góð. Þú varst mjög ákveðin, með
sterkar skoðanir, heiðarleg, skiln-
ingsrík, elskuleg, barngóð og gef-
andi móðir, tengdamóðir og
amma. Þú varst einstök. Mín
minning um æsku- og uppvaxtar-
ár mín er ljúf. Ég ólst upp við mik-
ið ástríki foreldra minna. Sam-
band þeirra var sérstakt og byggt
á bjargi, hvort sem var í blíðu eða
stríðu, leik eða starfi.
Elsku, elsku mamma mín, nú er
leið þinni lokið hér hjá okkur og
kominn tími til að kveðja þig og
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
gefið okkur í gegnum tíðina. Í dag
fylgi ég þér síðasta spölinn á loka-
stað tilveru þinnar og trúi því að
þið pabbi séuð saman og vakið yfir
mér og mínum. Ég er sorgmædd
og viðurkenni það alveg að vera
ekki sátt við að þurfa að kveðja
þig, en ég mun standa upprétt eins
og alltaf, reyna að skilja og fyr-
irgefa það sem orðið er.
Elsku mamma, það var erfið
reynsla að horfa upp á þig svona
veika þessar síðustu vikur en um
leið gott að vera hjá þér á síðustu
stundu sem þú áttir með okkur.
Það var mikil ró yfir þér og friður
þegar þú kvaddir og það er góð til-
finning að minnast þess og geyma.
Nú er komið að kveðjustundinni,
elsku mamma, minningar mínar
um þig munu lifa og ég mun varð-
veita þær í hjarta mínu um
ókomna tíð.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
En nú er komið að leiðarlokum,
elsku mamma mín, og kominn tími
til að kveðja, ég kveð þig með
trega og söknuði.
Farðu í friði, elsku mamma, ég
veit að þú vakir yfir okkur sem eft-
ir sitjum. Takk fyrir allt og allt.
Þín dóttir,
Jórunn Petra.
Mamma, elsku mamma,
man ég augun þín,
í þeim las ég alla
elskuna til mín.
Mamma, elsku mamma,
man ég þína hönd,
bar hún mig og benti
björt á dýrðarlönd.
Mamma, elsku mamma,
man ég brosið þitt;
gengu hlýir geislar
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best,
hjartað blíða, heita –
hjarta, er sakna ég mest.
(Sumarliði Halldórsson)
Þegar við minnumst mömmu
og ömmu koma sterk orð í hugann
eins og góð manneskja, hugulsöm,
ástrík, hörkudugleg baráttukona.
Hún var sannkallaður klettur í
hafinu. Þrátt fyrir veikindi undir
það síðasta kvartaði hún Jakob-
ína, eða Jagga eins og hún var
kölluð, aldrei og vildi ekkert um-
stang. Hún var sönn hvunndags-
hetja, ljósið okkar. Minningarnar
um hana munu veita okkur styrk
til að sætta okkur við brátt fráfall.
Þrautseigja hennar er okkar
veganesti fyrir lífið framundan,
okkar vopn og stuðningur til lífs-
sigra.
Við kveiktum á stóru kerti þeg-
ar hún veiktist en það náði ekki að
brenna niður. Við horfum nú á log-
ann þegar við ritum þessi orð og
ljósið og birtan er hún. Það er okk-
ar heitasta ósk og von að hún
mamma og amma hafi fundið frið-
inn aftur og sé með elskunni hon-
um pabba og afa Magga.
„Til þess er vonin að veita inn í líf okkar
hlýju og birtu.“
(La Rochefoucauld)
Hennar ætíð,
Helga og Stefán Andri.
Ég vil hér minnast elskulegrar
tengdamóður minnar, Jakobínu
Þóru Pálmadóttur eða Jöggu eins
og hún vildi alltaf láta kalla sig.
Jagga fæddist í Reykjavík og
þar ólst hún upp í stórum hópi
systkina. Lengst af bjó fjölskyld-
an við Lönguhlíð og þar undi
Jagga glöð við sitt uns grunn-
skólanámi lauk. Veikindi föður
hennar og kröpp kjör í Reykjavík
eftirstríðsáranna útilokuðu frek-
ari skólagöngu og snemma hélt
hún til starfa út á vinnumarkað-
inn. Henni varð oft tíðrætt um
uppvaxtarárin í Lönguhlíðinni og
minntist þeirra ávallt með brosi á
vör og mikilli væntumþykju.
Ég er ekki frá því að þessi lífs-
reynsla hafi snemma mótað
Jöggu, því ósérhlífnari og dug-
legri manneskju hef ég varla
kynnst á lífsleiðinni. Seint og
snemma var hún boðin og búin að
hlaupa undir bagga með náungan-
um og leggja sitt af mörkum. Þeg-
ar barnabörnin fóru að koma til
sögunnar var Jagga ávallt til taks.
Hvert á land sem var, hvenær sem
var.
Jakobína Þóra var gæfusöm í
einkalífinu. Hún var vel gift Guð-
mundi Magnúsi Jónssyni en hann
var einstaklega ástríkur, hrein-
skiptin og heiðarlegur maður. Þau
eignuðust fjögur heilbrigð börn og
barnabörnin urðu þeim öll sérlega
elsk. Jagga og Maggi fluttu
snemma á Akranes og á Garða-
brautinni áttu allir sér samastað.
Ástin og umhyggjan sem mætti
manni þar í dyrunum var yndisleg
og verður lengi í minnum höfð.
Bæði voru þau góðir uppalendur
en Jagga var svo sannarlega hið
milda yfirvald þegar barnauppeldi
var annarsvegar. Hún var ákveðin
og bjó yfir einbeittum vilja. Hún
hafði ríka réttlætiskennd og
ákveðnar skoðanir á sínu nánasta
umhverfi. Orðið „ungamamma“
kemur upp í hugann þegar um-
hyggja og áhugi Jöggu varðandi
börnin og barnabörnin var annars
vegar.
Jagga starfaði lengst af sem
fiskverkakona en auk þess tók
hún virkan þátt í alls konar fé-
lagsstörfum. Hún var manni sín-
um stoð og stytta í störfum hans
fyrir Verkalýðsfélagið á Akranesi
og sat t.a.m. lengi í stjórn Sjúkra-
sjóðs félagsins.
Hún vann alla tíð langan vinnu-
dag en tókst með sóma að búa
manni sínum og fjórum börnum
ástríkt og fallegt heimili. Jagga
unni vel góðum bókum, tónlist og
kvikmyndum. Hún ferðaðist víða,
bæði hér heima og erlendis. Hún
var hrókur alls fagnaðar og var
ávallt vel að sér um málefni líðandi
stundar. Allt fram á síðasta dag.
Jakobína Þóra Pálmadóttir var
verkakona og dugnaðarforkur allt
sitt líf. Hún var af þeirri kynslóð
Íslendinga sem með fórnfýsi, elju-
semi og hörku lagði hvað mest af
mörkum til að koma þessari þjóð
til bjargálna. Hún átti ættir að
rekja norður í Fljótin í Skagafirði
og ég veit að hún var ákaflega
stolt af því. Hún bjó ætíð að því að
vera upprunnin úr einni fegurstu
en jafnframt harðbýlustu sveit
landsins.
Mér finnst ég kveðja Jöggu
alltof snemma. Hún átti svo sann-
arlega skilið að fá að njóta ævi-
kvöldsins lengur. Njóta þess að
safna í kringum sig fleiri barna- og
barnabörnum og stússa í kringum
fjölskylduna.
Ég kveð hana með einlægu
þakklæti og djúpri virðingu. Guð
geymi minningu Jakobínu Þóru
Pálmadóttur.
Jóhann Hafsteinn.
Eldur er bestur
með ýta sonum
og sólar sýn,
heilyndi sitt,
ef maður hafa náir,
án við löst að lifa.
(Hávamál)
Með örfáum orðum langar mig
til að minnast ömmu Jöggu er
kvatt hefur þennan heim að lok-
inni langri og farsælli lífsgöngu.
Þegar einhver nákominn okkur
hverfur af sjónarsviðinu, þá birt-
ast í hugskoti okkar myndir og
minningar frá kynnum manns af
viðkomandi. Það eru því mörg
minningarbrot sem koma upp í
huga minn þegar ég hugsa um
samveru mína við ömmu minnar á
liðnum árum.
Ég var oft í pössun sem lítill
drengur hjá ömmu á Akranesi og
fór þangað oft um helgar. Í minn-
ingunni var amma stoð og stytta
fjölskyldunnar. Hún var alltaf
boðin og búin að gefa góð ráð og
stuðning ef einhver þurfti hennar
við. Amma var frábær kokkur og
naut fjölskyldan góðs af þessu
áhugamáli hennar í samveru-
stundum sínum, t.d. á sunnudög-
um þegar allir hittust í miðdeg-
iskaffi. Amma fór jafnframt með
okkur í mörg ferðalög um íslenska
náttúru.
Síðan minnist ég líka stunda
þegar hún kom og dvaldi hjá okk-
ur, bæði í Skólagerðinu, í Hamra-
hlíðinni og í Hveragerði. Amma
var alltaf tilbúin að hlusta á það
sem ég hafði að segja og gaf sér
tíma til þess. Hún var kona sem
gaf af sjálfri sér það besta sem
hún átti og fyrir það vil ég þakka
henni að leiðarlokum.
Hún amma mín, hún amma
Jagga á Akranesi, er farin yfir
móðuna miklu. Að henni er mikill
missir. Ég vil þakka himnaföður-
num fyrir samverustundir okkar.
Ég vil líka þakka himnaföðurnum
fyrir stundirnar sem ég átti með
henni og honum afa Magga. Bless-
uð sé minning þeirra beggja. Að
lokum vil ég þakka fyrir að hafa
fengið að kveðja hana á sinni
hinstu stundu, á dánarbeði henn-
ar. Það var mér mikils virði.
Síst vil ég tala um svefn við þig.
Þreyttum anda er þægt að blunda
og þannig bíða sælli funda –
það kemur ekki mál við mig.
Flýt þér, vinur, í fegri heim.
Krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
(Jónas Hallgrímsson)
Vertu sæl amma mín.
Far þú í friði og hafðu þökk fyr-
ir allt og allt.
Þinn
Þorsteinn.
Elskuleg systir og mágkona,
Jakobína Þóra Pálmadóttir, lést
þann 28. apríl sl. Við viljum minn-
ast Jöggu nú við leiðarlok:
Nú er ljósið dagsins dvín,
þótt dauðinn okkur skilji,
mér finnst sem hlýja höndin þín
hjarta mínu ylji.
Myndin þín hún máist ei
mér úr hug né hjarta.
Hún á þar sæti uns ég dey
og auðgar lífið bjarta.
Þótt okkur finnist ævin tóm
er ástvinirnir kveðja,
minninganna mildu blóm
mega hugann gleðja.
(Ágúst Böðvarsson.)
Við þökkum henni allar ljúfu og
góðu stundirnar sem við áttum
saman og nú eru á enda.
Minning hennar lifir með okkur
um ókomna tíð.
Anna Pálmadóttir Wilkes
og Topper Wilkes.
Jakobína Þóra
Pálmadóttir
Fleiri minningargreinar
um Jakobínu Þóru Pálma-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Móðir mín,
ÁSTRÍÐUR GUÐBJÖRNSDÓTTIR
frá Rauðsgili,
sem lést fimmtudaginn 3. maí, verður
jarðsungin frá Reykholtskirkju, laugardaginn
12. maí, kl. 14.00.
Snorri Tómasson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐBJÖRG S. SIGURJÓNSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
til heimilis í Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 1. maí, verður
jarðsungin í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
hjálparstarf ABC.
Guðríður Halldórsdóttir, Emil Th. Guðjónsson,
Ágúst Halldórsson, Hólmfríður A. Stefánsdóttir,
Björg Halldórsdóttir, Guðsteinn Ingimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.