Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
✝ Ernir KristjánSnorrason, geð-
læknir og taugasál-
fræðingur, fæddist í
Reykjavík 17. mars
1944. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 26. apríl
2012. Foreldrar
hans voru Björg
Guðný Kristjánsd.,
húsfreyja, f. 5. sept.
1917, d. 13. mars
2003, og Snorri Jónsson, versl-
unarmaður, f. 10. júlí 1911, d. 31.
mars 1986. Systir Ernis er Jó-
hanna, f. 15. júní 1942. Hálf-
systkin, sammæðra, eru Kolbrún
Skjaldberg, f. 26. maí 1951, og
Þór Skjaldberg, f. 20. mars 1957.
Ernir kvæntist 1971 Isabelle M.
Fiocre Snorrason, f. 11. mars
1949. Þau skildu. Móðir Isabelle
er Annie M. Fiocre, f. 15. nóv.
1921. Faðir hennar var Bernard
Fiocre, dýralæknir, f. 19. júní
1924, d. 11. janúar 2001. Dóttir
Ernis og Isabelle er Sandra
Snorrason, landfr., f. 13. sept.
1972, barnsfaðir Patrice Frahi, f.
17. feb. 1964. Dóttir þeirra er
Idora Frahi Snorrason, f. 3. nóv.
2000.
Ernir varð stúdent frá MR
1966. Hann lauk kandídatsprófi í
taugasálfræði og fyrri hluta
doktorsprófs frá Université
Strasbourg í Frakklandi 1971 og
cand. med. frá HÍ 1986. Hann
hlaut almennt lækningaleyfi á Ís-
landi 1988 og í Noregi 1993 og
sérfræðingsleyfi í geðlækn-
ingum 1994. Ernir starfaði á Ís-
landi, í Frakklandi og Noregi,
m.a. sem læknir og kennari. Þá
var hann taugasálfræðingur á
Grensásdeild sem og sérfræð-
ingur við taugadeild Landspít-
alans 1975-90 og á geðdeildinni
1990-93. Ernir starfaði við rann-
sóknir frá 1994 til æviloka og
rak lækningastofu í Domus Me-
dica til fjölda ára. Hann var
stofnandi og í stjórn þróunarfyr-
irtækisins Taugagreiningar hf.,
meðstofnandi Íslenskrar erfða-
greiningar ehf. 1994 og stofn-
andi breska lyfjafyrirtækisins
Hunter-Flemming 1999, sat í
stjórn þess og var þróunarstjóri.
Árið 1980 var hann með útvarps-
þáttinn „Kjarni málsins“. Hann
var einnig forseti Alliance fran-
caise 1984-5. Ernir var hesta-
ræktandi og byggði búið á Selja-
brekku í Mosfellsdal. Hann sinnti
einnig ritstörfum. Skáldsagan
Óttar kom út 1977 og ljóðakverið
Bölverkssöngvar 1976. Ný skáld-
saga eftir hann er væntanleg.
Útför Ernis fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 8. maí 2012, kl.
13.
Fyrrverandi sam-
býliskona Ernis er
Geirlaug Þorvaldsd.,
hóteleigandi, f. 13.
des. 1939. Foreldrar
Geirlaugar voru
Ingibjörg Guð-
mundsd., f. 11. apríl
1908, d. 6. júlí 2004,
og Þorvaldur Guð-
mundsson, f. 9. des.
1911, d. 10. jan. 1998.
Börn Ernis og Geir-
laugar eru 1) Þorvaldur, búfjár-
erfðafr. og doktorsnemi, f. 26.
ágúst 1977, maki Margrét Guðrún
Ásbjarnard., læknanemi, f. 5.
ágúst 1981. Sonur þeirra er Þor-
valdur Örn, f. 30. mars 2003. 2)
Ingibjörg, viðskiptafr. og læknir,
f. 3. maí 1979.
Ernir kvæntist 29. júlí 2006 eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Sólveigu
Franklínsd., m. einkarekstur, f. 4.
nóv. 1968. Móðir Sólveigar er
Guðrún S. Austmar Sigurgeirsd.,
hjúkrunarfr., f. 19. júlí 1947. Faðir
Sólveigar var Franklín Frið-
leifsson, bifvélavirkjameistari, f.
8. jan. 1945, d. 20. okt. 2011. Börn
Ernis og Sólveigar eru Franklín
Ernir, f. 9. des. 2002, og stúlka
fædd andvana 2. des. 2003.
Elsku ástin mín. Í dag kveð ég
þig, elskulegan eiginmann minn,
samstarfsfélaga og vin. Ég man
ætíð er við rákumst fyrst saman í
orðsins fyllstu merkingu. Ég
hljóp þig niður, bað afsökunar og
þú leist á mig og sagðir: „Ég held
þetta sé ást við fyrstu sýn.“ Mikið
fannst mér þú frakkur. Þú varst
alltaf svo skemmtilega hreinskil-
inn og orðheppinn. Við áttum
saman yndislegar stundir í rök-
ræðum og skemmtum okkur kon-
unglega heima í hugarflugi um
allt milli himins og jarðar. Minn-
ingin um einstakan mann, góðan
og gjafmildan, kemur fram í huga
mér og ég sakna þín meira en orð
fá lýst. Þú gast líka verið mikill
sérvitringur og skapstór með
sterkar skoðanir og rök fyrir öllu,
enda víðlesinn og ótrúlega af-
kastamikill á þinni alltof stuttu
ævi. Þú gafst mér dýrmætustu
gjöfina, drenginn okkar og stúlk-
una, og verð ég þér ævinlega
þakklát fyrir það. Við áttum sam-
an sorgir og sigra, í blíðu og
stríðu, sól og nýja von. En veik-
indin sigruðu að lokum og þú
kvaddir þennan heim á fögrum
vormorgni. Stríði þínu er lokið
eftir hetjulega baráttu og eftir sit
ég með söknuði. Ég geymi alltaf,
ástin mín, það allt er gafstu mér
og þakka þér hjartanlega fyrir
okkar samfylgd og óska þér góðr-
ar ferðar inn í Sumarlandið.
Þú verður ætíð í hjarta mér og
megir þú hvíla í friði og fylgja þér
gleði.
Ég elska þig.
Þín
Sólveig.
Kæri pabbi besti. Ég vil að þú
vitir hvað ég elska þig mikið.
Krakkarnir í bekknum mínum
sögðu alltaf að ég væri heppnast-
ur í bekknum. En nú finnst mér
ég vera óheppnastur, af því að þú
ert dáinn. Ég sakna þín svo mikið
og bjó til ljóð handa þér:
Mennirnir deyja og börnin væla,
enginn er lengur hamingjusamur.
Mennirnir deyja og börnin væla,
enginn er lengur hamingjusamur.
Þangað til að á himnaríki,
himnaríki, drottins ríki,
mennirnir eru komnir á.
Þá hamingjan rís á ný, já rís á ný –
rís á ný.
(Franklín Ernir Kristjánsson)
Megi góður guð passa þig og
vonandi er þér batnað og líður
betur núna. Lífið er alltaf öðruvísi
þegar einhver fer frá manni.
Ég mun alltaf minnast þín og
sakna þín. Hver á núna að kenna
mér að tefla?
Bless, elsku besti pabbi minn.
Þinn sonur,
Franklín Ernir.
Elskulegur bróðir minn Ernir
er látinn og lætur eftir sig stórt
skarð í lífi mínu og mun ég sakna
þess þegar hann hringdi og við
ræddum það sem honum lá á
hjarta, oft ræddum við um þjóð-
málin og oftar en ekki hafði hann
rétt fyrir sér um hvað koma
skyldi í þeim málum.
Hann var svo lánsamur að eiga
góða konu sem sýndi mikla þraut-
seigju í veikindum hans, sem ég
veit að hann dáðist að. Það eru
ótal minningar sem koma upp í
hugann eftir langa ævi, sem ekki
komast í stuttri kveðju svo ég læt
duga að þakka fyrir góðu sam-
verustundirnar okkar í 68 ár.
Börn hans og sérstaklega
Franklín, sem er lifandi eftir-
mynd hans, bið ég Guð að blessa
og styrkja.
Hvíl í friði elsku bróðir minn.
Jóhanna.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum)
Sorgin hefur knúið dyra hjá
fjölskyldu minni.
Við kveðjum í dag merkan
mann sem áorkaði miklu um æv-
ina, læknir, vísindamaður, frum-
kvöðull, uppfinningamaður, rit-
höfundur, kennari og
hrossaræktandi með meiru, en þó
fyrst og fremst í mínum huga ást-
in í lífi systur minnar og pabbi
uppáhaldsfrænda míns.
Ernir var mikill gæfumaður
með margt í lífinu þó að hann
fengi erfitt verkefni að takast á
við sem hann að lokum lagði frá
sér með reisn. Hann var ætíð von-
góður um að ná bata og börðust
þau Solla fyrir því að finna lækn-
ingu, ýmist saman eða hún fyrir
hann þegar þrek hans þvarr.
Ernir var mikill heimsmaður
og hafði sérstakt dálæti á Frakk-
landi og franskri menningu eftir
að hafa búið þar.
Hann var skarpgreindur, ákaf-
lega vel lesinn og hafði gjarnan
sterkar skoðanir á mönnum og
málefnum. Það var því gaman að
ræða heimsmálin við hann og
hann hugsaði yfirleitt út fyrir
rammann og velti upp nýjum og
áhugaverðum flötum. Ernir var
víðförull um ævina en leið hvergi
betur en í sveitinni sinni í Mos-
fellsdal. Hann naut sín innan um
hestana á Seljabrekku og hafði
gaman af ferðum upp að vatni þar
sem hann renndi fyrir grimma
urriða.
Ernir, Solla og Franklín Ernir
ásamt dýrunum þeirra bjuggu í
sveitasælunni þar sem þau höfðu
komið sér upp sinni eigin paradís
þegar veikindi Ernis hófust.
Hans ósk var að geta verið sem
lengst heima og af einstakri ósér-
hlífni og hógværð gerði Solla mín
honum það fært. Hún annaðist
veikan eiginmann sinn af virðingu
og alúð ásamt því að ganga í öll
störf sem tilheyra umfangsmikl-
um rekstri þeirra hjóna. Hetjan
mín hann Franklín Ernir var líka
duglegur við að hjálpa foreldrum
sínum og saman voru þau sterk
eining.
Elsku Solla, Franklín Ernir,
Ingibjörg, Þorvaldur, Margrét,
Þorvaldur Örn, Sandra, Idora og
ástvinir allir. Megi allar góðar
vættir vaka yfir ykkur og veita
huggun og styrk til að takast á við
missinn og sorgina. Minning Ern-
is lifir í hans góðu verkum og í
börnunum hans fjórum sem hann
var alla tíð ákaflega stoltur af.
Sofðu rótt kæri vinur.
Valgerður Franklins.
Nú er Ernir Snorrason bekkj-
arbróðir okkar í árgangi 1963 frá
Bifröst fallinn frá. Ernir fæddist
þann 17. mars 1944 og ólst upp í
Reykjavík. Ernir var sérstakur
maður, sem fór ekki troðnar slóð-
ir. Á árunum um miðja síðustu öld
voru orð kennarans hinn heilagur
sannleikur og það var nær óhugs-
andi að nemendur mótmæltu orð-
um hans, hvað þá að leggja fram
sjálfstæðar skoðanir. Við upphaf
náms að Bifröst kom það okkur
bekkjarfélögum Ernis mjög á
óvart þegar Ernir var sífellt að
grípa fram í fyrir kennaranum,
mótmæla skoðunum hans og
halda fram sínum skoðunum.
Sérstalega þar sem kennarinn
var sjálfur skólastjórinn. Mest
vorum við þó hissa á hversu Guð-
mundur skólastjóri tók þessum
athugasemdum vel og svaraði
þeim alltaf málefnalega jafnvel
þótt okkur bekkjarfélögunum
þætti Ernir alltof þrasgjarn í sín-
um málflutningi. Guðmundur
Sveinsson, skólastjóri á Bifröst,
var að mörgu leyti á undan sinni
samtíð hér á landi hvað varðar
skólamál. Hann lagði áherslu á að
byggja upp sjálfstæða skoðana-
myndun nemendanna með virkri
þátttöku þeirra í kennslustund-
um.
Ernir var góður námsmaður og
einnig var hann liðlækur körfu-
boltamaður og einn besti maður
skólaliðsins. En þar sem hann
skaraði fram úr var í ritfærni.
Þegar lesið var upp úr bestu rit-
gerðum nemenda voru það oftast
ritgerðir Ernis, Rannveigar Har-
alds og Jóns Kristjánssonar sem
voru valdar. Okkur bekkjarfélög-
um virtist sem Ernir stefndi
markvisst að því að verða skáld.
Það kom okkur því ekki á óvart
þegar fréttist að Ernir hefði fetað
í fótspor Halldórs Kiljans og
gengið í klaustur að loknu stúd-
entsprófi.
Það átti ekki eftir að verða
hans hlutskipti að verða skáld
þótt hann hafi gefið út eina bók,
Óttar, sem fékk almennt góðar
umsagnir og nú er önnur bók
tilbúin til útgáfu. Að loknu stúd-
entsprófi hélt hann til Frakklands
til náms og lenti þar í stúdenta-
byltingunni árið 1968 þar sem
hann var virkur þátttakandi. Hef-
ur það örugglega átt vel við hann
að berjast fyrir breyttu gildismati
almennt og eins auknum áhrifum
nemenda í stjórn skólanna. Sam-
skipti hans við okkur skólafélag-
ana voru ekki mikil eftir að hann
kom frá Frakklandi og réðst til
starfa á Landspítalanum. Þar fór
hann nýjar leiðir eins og hans var
von og vísa. Nýtti hann tölvu-
tæknina, sem þá var á frumstigi,
til að þróa tölvukerfi til mælinga á
starfsemi heilans og stofnaði
hann fyrirtækið Taugagreiningu
um þetta verkefni. Eins var hann
einn af stofnendum Íslenskrar
erfðagreiningar.
Við bekkjarfélagarnir í árgangi
1963 frá Bifröst sendum eigin-
konu, fjölskyldu og ættingjum
Ernis innilegar samúðarkveðjur,
F.h. bekkjarfélaga á Bifröst ár-
in 1961-1963,
Sigurður Gils Björgvinsson.
Ernir Kristján
Snorrason
Fleiri minningargreinar
um Erni Kristján Snorra-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
Garðsláttur - trjáklippingar -
mosaeyðing - beðahreinsanir
og öll almenn garðverk.
Uppl. í síma 777 9543.
Garðaþjónusta Hlyns.
Tökum garðinn í gegn!
Klippingar, trjáfellingar, beða-
hreinsanir, úðanir og allt annað sem
við kemur garðinum þínum.
Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð
og umfram allt hamingjusamir
viðskiptavinir.
20% afsláttur eldri borgara.
Garðaþjónustan: 772-0864.
Atvinnuhúsnæði
Lítil og stór skrifstofuherbergi
til leigu í Ármúla og við Suðurlands-
braut. Hagstæð kjör.
Upplýsingar í síma 899 3760.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Tómstundir
POOLBORÐ frá RILEY
Lækkað verð, 12mánaða vaxtalaus
kortalán.
www.billiard.is
Suðurlandsbraut 10 (2. h.),
108 Reykjavík, s. 568 3920.
Til sölu
Til sölu
Massey Ferguson 135, tæki
fylgja,Jurop-haugsugudæla,
árgerð 2004, 11 þús. lítra afköst.
Verð 100 þús., 12 tonna haugtank-
ur með nýupptekinni dælu. Verð
470 þús. og ýmis fleiri tæki.
Upplýsingar í síma 865 6560.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Pípulagnir
Pípulagningameistari getur tekið
að sér alla almenna pípulagn-
ingavinnu.
Upplýsingar í síma 778 9700.
Nú er rétti tíminn fyrir
trjáklippingar og fellingar
Látið fagmenn okkar nostra við
garðinn þinn. Öll almenn
garðþjónusta á einum stað.
577 4444
www.gardalfar.is
Bílastæðamálun
malbiksviðgerðir og vélsópun,
551 4000 & 690 8000
www.verktak.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílaþjónusta
Bílavarahlutir
VW og Skoda varahlutir 534-1045
Eigum til notaða varahluti í VW,
Skoda, Audi og Pajero frá '02.
Eigum einnig til nýja gorma í VW
og Skoda á lager. Kaupum bíla til
niðurrifs og uppgerðar.
Bílabúið, Kaplahrauni 11,
s. 534 1045.
Hjólbarðar
Kebek Blacklion sumardekk
175/65 R 14 kr. 10.700.
195/65 R 15 kr. 12.500.
205/55 R 16 kr. 14.900.
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
(á móti Kosti), Dalvegi 16 b,
Kópavogi, s. 544 4333.
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is