Morgunblaðið - 08.05.2012, Síða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Ný sending
Fallegir bolir
fyrir konur á öllum aldri
Margir litir og gerðir
Stærðir S-XXXL
Einnig eigum við alltaf
vinsælu velúrgallana
Stærðir S-XXXL
Verið velkomin
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Hugrún Halldórsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, á 28 ára afmæli ídag. Hún ætlar að eyða deginum í vinnunni. „Ég er að vinnafrá níu til hálfsjö. Ég hefði getað fengið frí í tilefni dagsins
en ég ákvað að taka það ekki. Það er gaman að vera með fólki á af-
mælisdeginum og gaman að eiga afmæli í vinnunni. Ég ætla að mæta
með köku, einhverja bombu fyrir samstarfsfólkið,“ segir Hugrún.
Um kvöldið er henni boðið í afmæliskvöldverð hjá foreldrum sínum
og síðan ætlar hún að fá sér drykk með vinahópnum.
Afmælisdagarnir hafa þó ekki alltaf verið svona ljúfir hjá Hug-
rúnu. „Ég á afmæli á prófatíma svo ég hef ekki getað haldið upp á
afmælið mitt af neinu viti undanfarin ár. Í fyrra var fyrsta „alvöru“
afmælið mitt, þá var ég ekki í skóla í fyrsta skipti í langan tíma. Ég
hef oft haldið upp á afmælið eftir prófin og þá tekið evróvisjón-
afmælispartí,“ segir Hugrún sem er mikill aðdáandi Evróvisjón-
söngvakeppninnar.
Spurð út í eftirminnilegan afmælisdag tengist sú minning prófa-
törninni. „Afmælisdagurinn fór í að læra fyrir rekstrarhagfræði-
próf sem var daginn eftir. Ég var gjörsamlega ofan í bókunum en
síminn hringdi á fimm mínútna fresti allan daginn, vinir og ætt-
ingjar að óska mér til hamingju. Það var mjög gaman en gerði það
að verkum að það varð enn erfiðara að halda einbeitingunni við
bækurnar.“ ingveldur@mbl.is
Hugrún Halldórsdóttir er 28 ára
Afmæli Hugrún Halldórsdóttir ætlar að eiga góðan dag í dag.
Mætir með köku
fyrir samstarfsfólkið
R
únar Þór fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Vík í Mýrdal, í Mos-
fellsbæ, Bandaríkj-
unum í þrjú ár en síðan
í Reykjavík.
Rúnar var í Víkurskóla, Hóla-
brekkuskóla, Varmárskóla, í High
School í Bandaríkjunum, lauk stúd-
entsprófi frá Fjölbrautarskólanum í
Ármúla, BS-prófi í markaðsfræði við
Johnson & Wales University í Provi-
dence á Rhode Island í Bandaríkj-
unum og lauk MBA-prófi frá HR
2009.
Rúnar, Gunnar og Guðmundur
Rúnar var í sveit á sumrin hjá
móðurafa sínum og ömmu í Holti á
Síðu og var í sumarvinnu á unglings-
árunum hjá verktakafyrirtækinu
Gunnari og Guðmundi. Gunnar varð
síðan bæjarstjóri í Kópavogi, Guð-
Rúnar Þór Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Trostan, 40 ára
Nýfermdur Rúnar og Hulda Sóllilja, með soninn Andra Dag á milli sín á fermingardaginn.
Skaftfellingur á skeiði
Á selaslóðum Rúnar og synirnir, Andri Dagur, Aron Máni og Egill Ari.
Hrefna Krist-
jánsdóttir,
fyrrverandi
húsfreyja og
bóndi á Stóra-
Klofa í Land-
sveit, er níræð
í dag, 8. maí.
Hún tekur á
móti gestum í
Menningar-
húsinu Hellu milli kl. 15 og 17 á af-
mælisdaginn. Gjafir eru vinsamlegast
afþakkaðar en hún bendir þeim sem
vilja gleðja hana á styrktarreikning
Blindrafélagsins, kt. 470169-2149,
bankareikningur: 0115-26-47015 eða
Krabbameinsfélagsins, kt. 700169-
2789, bankareikningur: 0301-26-
000706.
Árnað heilla
90 ára
Hafnarfjörður Elma Lísa fæddist 26.
júlí kl. 15.26. Hún vó 4.028 g og var 51
cm löng. Foreldrar hennar eru Telma
Ýr Friðriksdóttir og Ólafur Guð-
mundsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is