Morgunblaðið - 08.05.2012, Page 31
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
mundur sveitastjóri á Álftanesi en
Rúnar fór að vinna hjá BYKO.
Eftir stúdentspróf hóf Rúnar störf
við verslunina Hestamaðurinn og
starfaði síðan hjá Reiðlist.
Rúnar stofnaði eigið fyrirtæki,
Trostan, árið 2003, en var umdæm-
isstjóri VÍS á höfuðborgarsvæðinu
2003-2008, deildarstjóri einstaklings-
viðskipta VÍS 2008-2009 og hefur
verið framkvæmdastjóri Trostan ehf
frá 2009. Fyrirtækið flytur inn hesta-
vörur, einkum hnakka og reiðtygi og
er með söluaðila í tíu löndum.
Vill tengapabba sem forseta
Rúnar var einn af stofnendum
Framhaldsskólamóts í hestaíþróttum
1991, sat í barna- og unglingadeild
Fáks í nokkur ár, var einn af stofn-
endum Meistaradeildar hestaíþrótta
og formaður hennar 2009-2010, er
tengiliður Íslands við heimsmeist-
aramótið á íslenskum hestum í Berl-
ín 2013, situr í stjórn tímaritsins Eið-
faxa frá 2005, er einn af stofnendum
Íbúasamtaka Leirvogstungu og for-
maður þeirra, situr í stjórn Skaftfell-
ingafélagsins í Reykjavík og situr í
kosningastjórn Ara Trausta Guð-
mundssonar forsetaframbjóðanda.
Rúnar fékk ekki hestadellu. Hann
hefur alltaf verið með hana; „Þetta
hefur alla tíð blundað í mér. Ég hef
alla tíð sóttst eftir því að vera í návist
við þessar óviðjafnanlegu skepnur.
Fjölskyldan er nú með fimm hesta á
húsi í Mosfellsbænum og á fjölda
hrossa.“
Þegar þessu áhugamáli og að-
alstarfi sleppir er Rúnar töluverður
stanveiðimaður og sækir einkum í
sjóbirting og lax. Eftirlætisveiði-
staður hans, Hólmasvæðið í Skaftá,
er þó því miður úr sögunni eftir að
Skaftá ruddi sér nýjan farveg fyrir
u.þ.b. þremur árum.
Þá er Rúnar gegnheill Skaftfell-
ingur, alinn upp m.a. hjá móðurfor-
eldrum sínum í Vík og hjá fósturafa
og ömmu á Holti á Síðu, Rafni Val-
garðssyni og Halldóru S. Árnadótt-
ur.
Fjölskylda
Eiginkona Rúnars er Hulda Sól-
lilja Aradóttir, f. 7.9. 1973, leir-
listakona. Hún er dóttir Ara Trausta
Guðmundssonar, f. 3.12. 1948, jarð-
eðlisfræðings, rithöfundar, þátta-
gerðarmanns og forsetaframbjóð-
anda, og María G. Baldvinsdóttir, f.
2.5. 1954, sjúkraliða
Börn Rúnars og Huldu eru Andri
Dagur, f. 20.7. 1997; Aron Máni, f.
31.12. 2003, og Egill Ari, f. 26.2. 2008.
Hálfsystkini Rúnars, sammæðra,
eru Rafn Árnason, f. 1980, verkfræð-
ingur; Reynir Ingi Árnason, f. 1985,
hagfræðingur, og Róbert Árnason, f.
1993, nemi.
Hálfsystkini Rúnars, samfeðra,
eru Snorri, f. 1976, doktorsnemi;
Rannveig Heiðrún, f. 1977, umhverf-
isskipulagsfræðingur, og Sigríður
Stella, f. 1983, tónlistarnemi.
Foreldrar Rúnars eru Egilína Sig-
ríður Guðgeirsdóttir, f. 5.10. 1956,
gjaldkeri við fasteignasölu, búsett í
Mosfellsbæ, og Guðbrandur E. Þor-
kelsson, f. 12.12. 1952, læknir í
Reykjavík.
Uppeldisfaðir Rúnars er Eyjólfur
Árni Rafnsson, f. 21.4. 1957, forstjóri
Mannvits - verkfræðistofu, bróðir
Jóns Rafnssonar tónlistarmanns.
Úr frændgarði Rúnars Þórs Guðbrandssonar
Guðmundur Guðmundsson
skósmiður í Vík
Egilína Sigríður Jónsdótir
húsfreyja í Vík
Brynjólfur Oddsson
b. á Þykkvabæjarklaustri
Guðrún Þórðardóttir
húsfr. á Þykkvabæjarklaustri
Kristjánbjörg Á. Sigurðard.
húsfreyja á Þórshöfn
Guðbrandur Þorkelsson
vitav. á Loftsölum í Mýrdal
Elín Björnsdóttir
húsfreyja á Loftsölum
Rúnar Þór
Guðbrandsson
Guðbrandur E. Þorkelsson
læknir í Reykjavík
Egilína Sigríður Guðgeirsdóttir
gjaldkeri
Katrín S. Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Vík
Guðgeir Guðmundsson
vkm. í Vík
Sigríður G. Guðbrandsdóttir
verkak. í Rvík
Þorkell Árnason
sjóm. í Rvík
Árni Guðnason
bóndi á Þórshöfn
Björn Halldórs.
forstjóri Sorpu
Hrafnhildur S. Þorkelsd.
húsfreyja í Vík
Sigurður R. Gíslason
doktor í jarðfræði
Guðrún Gísladóttir
landfræðingur
Gísli Brynjólfsson
leigubílstj. í Rvík
Tveir einbeittir Rúnar á Vakri frá
Syðri-Hofdölum í firmakeppni.
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár
90 ára
Hrefna Kristjánsdóttir
Sigurbjörg Hlöðversdóttir
85 ára
Sigurjón O. Sigurðsson
80 ára
Indriði Björnsson
Steingerður Sólveig
Jónsdóttir
Þóra G. Magnúsdóttir
Þórir Sigurðsson Gröndal
75 ára
Elsa Þórdís Óskarsdóttir
Siguróli Jóhannsson
Sigurósk Eyland Jónsdóttir
Stella Björk Georgsdóttir
70 ára
Arndís Baldvinsdóttir
Egill Jónsson
Gylfi Borgþór Ólafsson
Kirsten Friðriksdóttir
Magnús Jóhannsson
60 ára
Björg Hólmfr.
Kristófersdóttir
Gunnar Jónasson
Helga Björk Gunnarsdóttir
Jón Hjörtur Skúlason
Kristjana Helgadóttir
Margrét Ámundadóttir
Margrét Böðvarsdóttir
Ólafur Sigurðsson
Ragnhildur Sigurðardóttir
Sigfús Kristinn Jónsson
Vignir Jóhannsson
Þorbjörg Garðarsdóttir
50 ára
Birgir Runólfur Ólafsson
Bjarni Hilmar Ólafsson
Bjarni Pétursson
Craig Peter Roy Clark
Jenný Heiða Björnsdóttir
Sigurpáll Marinósson
Símon Elí Teitsson
Sólveig Sigurðardóttir
40 ára
Árni Jón Arinbjarnarson
Benedikt Hjartarson
Guðmundur Már
Sigurðsson
Gunnar Örn Erlingsson
Gyða Steinunn Valsdóttir
Helga Björg Ágústsdóttir
Karla Esperanza Barralaga
Ocon
Kristín Traustadóttir
Rúnar Þór Guðbrandsson
Stefán Hafþór
Guðmundsson
Suphiab Khorchai
Þórunn Hildigunnur
Óskarsdóttir
30 ára
Björgvin Þorsteinsson
Brynjólfur Jónsson
Brynjólfur Már Georgsson
Cuong Van Vu
Dóra Sigrún
Gunnarsdóttir
Eduards Berzins
Gunnhildur
Guðmundsdóttir
Hafþór Axel Einarsson
Halldór Már Jónsson
Markús Hjaltason
Rúnar Björn Herrera
Þorkelsson
Stefán Jónsson
Þorvaldur Sveinsson
Til hamingju með daginn
30 ára Markús ólst upp í
Reykjavík. Hann lauk
prófum í hljóðverkfræði
við SAE í Hollandi.
Systir Hugrún Hjaltadótt-
ir, f. 1976, starfar á Jafn-
réttisstofu.
Foreldrar Hjalti Hugason,
f. 1952, prófessor í guð-
fræði við HÍ, og Ragnheið-
ur Sverrisdóttir, f. 1954,
djákni á Biskupsstofu í
Reykjavík.
Markús tekur á mót gest-
um á Prikinu í kvöld.
Markús
Hjaltason
60 ára Ólafur fæddist á
Selfossi og ólst þar upp.
Hann útskrifaðist frá Iðn-
skóla Selfoss og nam
húsasmíði hjá Sigfúsi
Kristinssyni, bygginga-
meistara. Ólafur starfar
hjá Ölfusgluggum ehf.
Kona Kristín Björnsdóttir,
bókari hjá BSSL.
Foreldrar Sigríður Ein-
arsdóttir, f. 1919, fv. hús-
freyja og Sigurður Ólafs-
son, f. 1925 mjólkur-
fræðingur.
Ólafur
Sigurðsson
Dr. Hannes Finnsson biskupfæddist 8. maí 1739 í Reyk-holti í Borgarfirði, sonur
Finns Jónssonar Skálholtsbiskups
og Guðríðar Gísladóttur úr Máva-
hlíð.
Hannes lauk stúdentsprófi í Skál-
holti, heimspekiprófi við Kaup-
mannahafnarháskóla og varð bacca-
laureus, lauk guðfræðiprófi og hlaut
doktorsnafnbót í guðfræði 1790.
Hannes stundaði kennslu og forn-
fræðistörf í Kaupmannahöfn til
1767, og 1770-77. Hann hafnaði há-
launuðu starfi sem þýðandi nor-
rænna rita við konunglega bókasafn-
ið í París, var boðið kennarastarf í
stærðfræði við hirð Soffiu Magda-
lenu ekkjudrottningar, var skrifari
Árnasafnsnefndar frá 1772, var boð-
in prófessorsstaða við Kaup-
mannahafnarháskóla 1775
en vígðist dómkirkjuprestur í
Skálholti 1776, var skipaður eftir-
maður föður síns 1777, tók biskups-
vígslu það ár og var Skálholtsbiskup
eftir föður sinn 1785 til dauðadags 4.
ágúst 1796.
Íslendingar áttu marga afburða-
fræði- og gáfumenn á 18. öld eins og
fram kemur m.a. í þáttum Péturs
Gunnarssonar um 18. öldina sem nú
er verið að sýna í Ríkisútvarpinu á
sunnudagskvöldum. Hannes var í
hópi þeirra. Hann var einn merkasti
lærdómsmaður þjóðarinnar á 18. öld
og einn ástsælasti biskup hennar.
Hann var í hópi virtustu handrita- og
fornfræðinga Norðurlanda, afburða-
guðfræðingur, einn lögvísasti maður
landsins, las og ritaði hebresku,
grísku og latínu og skrifaði og talaði
dönsku, sænsku, þýsku og frönsku
eins og innfæddur. Hann hlaut
fjölda lærdómsverðlauna og var m.a.
heiðursfélagi Konunglega forn-
fræðafélagsins í London.
Afkomendur Finns, föður Hann-
esar, nefndu sig Finsena og komu
víða við sögu fræða og hárra emb-
ætta í Danaríki. Hannes biskup var
t.d. afi Steingríms Thorsteinssonar
skálds og bróður hans Árna Thor-
steinsonar landfógeta, sem og Hilm-
ars Finsen landshöfðingja og langafi
Níelsar Finsen, nóbelsverðlauna-
hafa í læknisfræði.
Merkir Íslendingar
Hannes
Finnsson
30 ára Þorvaldur fæddist
á Akranesi og ólst þar
upp. Hann vann hjá Wurth
á Íslandi í sex ár en er nú
kokkanemi á Hótel Rangá.
Kona Anna María Þráins-
dóttir, byggingatækni-
fræðingur, f. 16.1. 1986.
Þau eiga nýfædda stúlku.
Foreldrar Sveinn Rafn
Ingason verkstjóri, f.
12.12. 1955 og Halldóra
Kristín Guðmundsdóttir,
starfsmaður sjúkrahúss
Akraness, f. 18.9. 1957.
Þorvaldur
Sveinsson