Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er einhver sem er að þrýsta á
þig og vill fá þig til að gera hluti sem þér
eru þvert um geð. Hlustaðu á hjarta þitt
því þar er svörin að finna.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur verið í miklum samskiptum
við annað fólk að undanförnu og þarft því
á svolítilli einveru að halda. Má vera að þú
horfir fram hjá sumu sem er hið besta
mál.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert áhrifagjarnari en vanalega.
Sannleikurinn er sá að besta leiðin til að
eignast vini er einfaldlega að vera vinaleg-
ur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Líf þitt er ástríðufullt og snertir á
flestum tilfinningum sem flæða um hjarta
þitt. Málið er að sættast við sjálfan sig og
halda svo áfram.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Að stinga höfðinu í sandinn flækir
málin bara enn frekar þegar til lengri tíma
er litið. Ekki gleyma að sinna þeim sem
næst þér standa.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einmitt þegar allt rúllar í vinnunni
kemur eitthvað upp á sem stöðvar flæðið.
Þú þolir illa að vera upp á kant við fólk.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér er nauðsyn að finna tíma fyrir
sjálfa/n þig. Allir aðrir eru uppteknir við að
tjá sig, þú þarft þess ekki, ert sátt/ur í
eigin skinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Margir taka mark á draumum
og þú ert ein/n af þeim. Mundu að seinna
kann þig að vanta svör við einhverju svo
taktu spyrjendunum vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert í góðu jafnvægi og því
gæti þér fundist yfirmaður þinn óvenju
sanngjarn í dag. Notaðu næsta árið til að
koma lagi á heimilisaðstæður þínar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er góður tími til að leysa
deilur sem tengjast sameiginlegri ábyrgð á
börnum. Fyrsta skrefið í átt að heimsfriði
er að skapa frið innra með þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er hin stöðuga vinna sem
fyrst og fremst skilar árangri. Gerðu ráð
fyrir lagfæringum og viðgerðum heima fyr-
ir og taktu frá tíma fyrir mikilvæg fjöl-
skyldumál.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða til þess að út-
hella hjarta sínu nema viðmælandinn sé
tryggur. Taktu sáttaboði og þú munt sjá
áhrifamátt fyrirgefningarinnar.
Lífið sjálft gefur tilefni til fögn-uðar á hverjum degi. En ef
ske kynni að fólk fyndi ekki
ástæðu til að gleðjast, þá er til
hugmyndaríkt fólk sem tekur að
sér að finna tilefnin, eins og
Hjálmar Freysteinsson frétti:
Sannlega ykkur segja kann,
svellkaldur og hrakinn,
allan daginn ötull vann
út í garði – nakinn.
Ástæðan fyrir uppátækinu
sagði hann „alþjóðlega nektar-
garðyrkjudaginn“ sem örugglega
væri runninn undan rifjum Evr-
ópusambandsins. Friðrik Stein-
grímsson var fljótur að prjóna
við:
Skulfu lúkur skulfu hné
og skynsemin á nippinu,
út af reglum ESB
arfann reytti á typpinu.
Björn Ingólfsson blandaði sér í
orðræðuna:
Flestum varð það mjög um megn
sem mændu á hann konum,
er við þeim blasti blár í gegn
búkurinn á honum.
Um það geta annálar
einhvern tíma síðar
að dregið fyrir daglangt var
í Duggufjöru og víðar.
Hallmundur Kristinsson af-
klæddist ekki í tilefni dagsins og
afsakaði sig:
Víst ég sýna átt hefði allt
þótt eitthvað gæti hríðað,
en af því það var svo andskoti kalt
ég ekki lagði í það!
Ólafur Stefánsson þekkir vel til
garðvinnu og velti vinnubrögð-
unum fyrir sér norður í landi:
Garðvinna er ekki gamanmál,
er gengur á vetrarforðann.
Þeir leggja í það líkama og sál,
og leppana, fyrir norðan.
Ágúst Marinósson gat ekki orða
bundist:
Lögin ströng það varðar við
og verður ekki hrakið.
Rangli um fólk með rauðan kvið
og reyti arfa nakið.
Loks Magnús Ólafsson frá
Sveinsstöðum:
Í unað þeirra ei mig lystir
aðeins segja þetta verð.
Undan mörgum eflaust frystir
evrópusambandsreglugerð.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af nekt, garðyrkju og
reglugerðum ESB
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
SEGÐU SVO AÐ ÞETTA SÉ
EKKI GAMAN
MIG VANTAR SJÁLFBOÐALIÐA TIL AÐ TALA
VIÐ ÓVININN OG SEMJA FRIÐ
VÆRI EKKI
GAMAN AÐ FARA
Á ALVÖRU
DANSLEIK?
ÞÚ VEIST, SVONA GAMALDAGS
ÞAR SEM ALLAR KONURNAR ERU
Í SÍÐUM KJÓLUM
SÉRSTAKLEGA EF ÞÚ
KYNNIR AÐ DANSA
ÞAR SEM HLJÓMSVEITIN
SPILAR STRAUSS VALS OG
ÚR LOFTINU HANGA
KRISTALSLJÓSAKRÓNUR.
VÆRI ÞAÐ EKKI GAMAN?
HVAÐ ÞYKISTU VERA AÐ GERA
IGOR? ERTU AÐ HLAÐA IPODINN
ÞINN ENN EINA FERÐINA!?!
Víkverji er mikill áhugamaður umkeðjur. Af þeim ástæðum lagði
hann leið sína í byggingarvöruversl-
un á dögunum til að festa kaup á
ákveðinni tegund af keðjum í
ákveðnum tilgangi. Oft er gott að fá
ráðleggingar í verslunum af þessu
tagi og hugðist Víkverji nýta sér
það í þessu tilviki.
En hvað var a’tarna? Þegar Vík-
verji var búinn að finna afgreiðslu-
mann til að spyrja ráða kom hann
ekki einungis að tómum kofunum,
heldur bærðist ekki áhugamælirinn
innra með manninum. Honum gat
ekki staðið meira á sama um það
sem Víkverji var að spyrja hann
um. Ef til vill hefur maður þessi ein-
hverja fordóma gagnvart keðjum.
Alltént. Áhugaleysi mannsins og
viljaleysi til að afgreiða Víkverja
var svo augljóst að Víkverji hrökkl-
aðist hreinlega frá. Sumt fólk á ekki
að vinna við afgreiðslu eða þjón-
ustu, það hefur einfaldlega ekki
lund til þess. Hversu miklu tjóni
ætli þessi maður hafi valdið fyr-
irtækinu gegnum tíðina? Eða var
hann bara eitthvað illa fyrirkall-
aður?
x x x
Nokkrum dögum síðar kom Vík-verji aftur í téða byggingar-
vöruverslun í sama tilgangi – til að
kaupa tiltekna gerð af keðjum.
Byrjaði hann í þeirri atrennu á því
að skima vel í kringum sig til að
kanna hvort fyrrnefndur af-
greiðslumaður væri nokkuð á svæð-
inu. Svo var ekki.
Þess í stað sveif á Víkverja annar
afgreiðslumaður og strax var ljóst
að hann var reiðubúinn að vinna
vinnuna sína. Eldur brann í augum.
Sýndi þessi nýi afgreiðslumaður er-
indi Víkverja ósvikinn áhuga og
svaraði fyrirspurnum af lipurð.
Ræki hann í vörðurnar brá hann sér
einfaldlega frá og spurði sér fróðari
menn. Og var snöggur að því. Vík-
verji fékk svör við öllum sínum
spurningum og keypti keðjurnar
sem hann var að leita að. Hélt að því
búnu alsæll heim á leið.
x x x
Ekki er einleikið hvað afgreiðslu-menn geta verið ólíkir – og það í
sömu versluninni.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik
en þann að leggja líf sitt í sölurnar
fyrir vini sína. (Jh. 15, 13.)
Svarið við spurningu dagsins
HVAÐ ER Í MATINN?
Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is
Tilbúnir fiskréttir · Ferskur fiskur
Heitur matur í hádeginu · Veisluþjónusta