Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Afmælisveislan eftir HaroldPinter sem sýnd er íÞjóðleikhúsinu skildi eftirveika hugsun um að
mögulega hefði ekki allt í absúrd-
ismanum, sem bæði Pinter og Bec-
kett höfundur Beðið eftir Godot
hafa verið kenndir við, elst vel.
Margt af því sem þótti afar nýstár-
legt á þeim tíma sem verkin komu
fram er minna nýnæmi í dag.
Mér finnst þó Beðið eftir Godot
hafa staðist tímans tönn. Þetta er
feikilega sterkt verk sem býður
upp á margs konar túlkunarmögu-
leika og vangaveltur. Biðinni eftir
Godot má þess vegna líkja við lífs-
hlaupið og brölt okkar þessi ár sem
við erum ofar moldu eins og það
leggur sig. Þarna er einnig fjallað
um kúgun á áhugaverðan hátt og
fleira. Auk þess er í verkinu kon-
unglegur heilaspuni og uppátæki
sem eru alger snilld út af fyrir sig.
Í þessari uppfærslu Kvenfélags-
ins Garps leika konur öll hlutverk
verksins en í því eru eingöngu karl-
hlutverk. Það er eitthvað gott við
að konur taki verk á borð við Beðið
eftir Godot með þessum hætti og
geri að sínu. Með því hrifsa þær til
sín stærri hluta af menningarkök-
unni og það er að sjálfsögðu allra
hagur að hæfileikaríkar konur geri
sem mest af því.
Það er ekki í boði að taka Beðið
eftir Godot og stytta eða breyta og
fylgja verður forskrift nákvæmlega.
Leikstjórinn Kristín Jóhannesdóttir
og þær stöllur fara nettilega í
kringum þetta með því að bregða á
leik á undan verkinu í karakter
karlanna sem þær hafa búið til.
Einnig stíga þær út úr verkinu ör-
fáum sinnum. Mörg atriðanna sem
eru utan leikritsins eru mjög
skemmtileg og til þess fallin að
færa verkið niður af stallinum sem
það er á sem eitt af frægari verk-
um leikbókmenntasögunnar. Karl-
týpurnar sem leikkonurnar hafa
búið til eru allar trúverðugar en
engin þeirra virðist vera mikil
mannvitsbrekka. Eina sem er veru-
lega ósennilegt í þessari uppfærslu
er að svona gúbbar skuli hafa valist
til að leika í verki á borð við Beðið
eftir Godot.
Beðið eftir Godot fjallar sem
kunnugt er um þá Estragon og
Vladimir sem eru einhvers konar
blanda af flakkara og trúði sem
standa við tré og bíða eftir Godot.
Á meðan á biðinni stendur grípa
þeir til margra ráða til að drepa
tímann, hugleiða það meira að
segja að drepa sig. En eins og
flestum er kunnugt – bæði þeim
sem hafa séð verkið og ekki – þá
kemur Godot ekki. Verkið er í
tveimur þáttum og í báðum þeirra
koma þeir Pozzo og Lucky við hjá
þeim félögum. Beðið eftir Godot
tekur um þrjá tíma í flutningi með
hléi og því var í manni hálfgerður
kvíðahnútur um hvort þetta gæti
ekki orðið löng og erfið bið. Svo
reyndist ekki og sérstaklega seinni
hluti verksins er mjög þéttur og
góður.
Þær Ólafía Hrönn/Hannes Guð-
mundsson, sem leikur Estragon, og
Halldóra Geirharðsdóttir/Smári
Einarsson, sem leikur Vladimir,
eru aðalkarakterar verksins. Upp-
lifunin af því að horfa á þær var
tvöföld. Maður horfði á þær túlka
karakterana sem þær hafa búið til
túlka persónur Becketts þannig að
maður hreifst bæði með verkinu og
glotti svo út í annað yfir skemmti-
legum fýlusvip sem Hannes Ólafíu
gat gefið Estragon og hvernig smá-
mæli Smára, sem Halldóra hefur
skapað, fluttist í Vladimir. Þær
hafa náð frábærum tökum á þess-
um karakterum sínum. Þær Sólveig
Guðmundsdóttir/Halldór Jónsson
Maack og Alexía Björg Jóhannes-
dóttir/Jón Hlöðver Böðvarsson léku
Pozzo og Lucky einnig prýðilega.
Sem ljóðskáldið og rapparinn Hall-
dór og kvennaljóminn Jón Hlöðver
voru þær afbragð.
Í þessari uppfærslu hefur leik-
stjórinn sagst leggja út af því að
persónur verksins séu allar orðnar
flóttamenn í fannferginu á Íslandi.
Þess vegna er snjór á harðkúlu-
höttunum þeirra Estragons og Vla-
dimirs og á sviðinu og tréð er hvítt.
Mér fannst þessi nálgun frekar
vitsmunaleg en að hún gæfi verk-
inu eitthvað nema hvað hvítt sviðið
var ljómandi þekkilegt. Kristín Jó-
hannesdóttir hefur hér gert góða
og frumlega sýningu.
bbbmn
Beðið eftir Godot eftir Samuel Beckett
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hall-
dóra Geirharðsdóttir, Sólveig Guð-
mundsdóttir og Alexía Björg Jóhann-
esdóttir. Börn: Nikolos og Benjamín.
Leikmynda- og búningahöfundur: Helga
I. Stefánsdóttir, ljósahöfundur Kjartan
Þórisson, þýðing: Árni Ibsen. Leikstjóri:
Kristín Jóhannesdóttir. Litla svið Borg-
arleikhússins. Frumsýning 5. maí 2012.
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKLIST
Tvöföld upplifun
Góð „Kristín Jóhannesdóttir hefur hér gert góða og frumlega sýningu.“
Leiksýningin Skrímslið litla systir
mín verður sýnd á alþjóðlegri barna-
leikhúshátíð sem nefnist Spring-
festival í Kaupmannahöfn á fimmtu-
daginn kemur. Hátíðin hefst á
morgun og stendur til 16. maí nk. en
á þeim tíma verða sýndar á þriðja
tug leiksýninga fyrir börn og ung-
linga. Sýndar verða sýningar frá
m.a. Danmörku, Svíþjóð, Frakk-
landi, Belgíu og Íran.
Leikhúsið 10 fingur frumsýndi
Skrímslið litla systir mín í Norræna
húsinu fyrr á þessu ári við góðar við-
tökur. Ekki er langt síðan farið var
með sýninguna í leikferð til Dan-
merkur og í framhaldinu var henni
boðið á fyrrgreinda hátíð. Leikari og
höfundur bæði leiktexta og leik-
myndar er Helga Arnalds, en leik-
stjóri er Charlotte Bøving sem jafn-
framt er meðhöfundur.
Frumleiki Leikmyndin er öll gerð úr pappír sem er rifinn, bleyttur og
krumpaður eftir þörfum til þess að koma sögunni til skila.
Leikið í Danaveldi
Skrímslið litla systir mín sýnd á al-
þjóðlegri barnaleikhúshátíð í vikunni
Kvennakór Garðabæjar
heldur árlega vortónleika
sína í Hásölum, sal Hafn-
arfjarðarkirkju, í kvöld
kl. 20. Efnisskráin verður
sumarleg og fjölbreytt
þar sem íslensk lög verða í
öndvegi vegna söngferðar
kórsins til Bandaríkjanna
og Kanada á slóðir Vest-
ur-Íslendinga í júní nk.
Hljóðfæraleikur á tónleik-
unum er í höndum þeirra
Bryndísar Björgvins-
dóttur sellóleikara, Svövu
Bernharðsdóttur víólu-
leikara og Sólveigar Önnu Jónsdóttur píanóleikara. Kórstjóri er Ingibjörg
Guðjónsdóttir. Forsala aðgöngumiða er hjá kórkonum og á kvennakor-
@kvennakor.is , en miðar verða einnig seldir við innganginn.
Ferðalangar Kvennakór Garðabæjar leggur
brátt land undir fót í söngferð vestur um haf.
Sumarleg efnisskrá
Vortónleikar Kvennakórs Garðabæjar
Ljósmyndasýning sem nefnist Fugla-
blik í Grasagarðinum hefur verið
opnuð í Café Flóru í Grasagarðinum.
Sýningin er farandsýning Fugla-
verndarfélags Íslands og er hún til-
einkuð velunnara félagsins, Hjálmari
R. Bárðarsyni, sem lést í mars 2009.
Hjálmar var brautryðjandi í fugla-
ljósmyndun hér á landi og gaf út
fyrstu stóru ljósmyndabókina um ís-
lenska fugla árið 1986. „Á und-
anförnum árum hefur fjölgað mjög í
hópi íslenskra fuglaljósmyndara eins
og sést á því að þátttakendur í sýn-
ingunni eru 18 og aldurinn spannar
frá 14 ára til 87 ára. Viðfangsefnin
eru misjöfn en sammerkt með verk-
unum er aðdáun og virðing á ís-
lenskri náttúru og íslenskum fugl-
um,“ segir m.a. í tilkynningu.
Sýningin stendur til 3. júní og er op-
in daglega á afgreiðslutíma Café
Flóru kl. 10-22.
Fuglaljósmyndir í Grasagarðinum
Stundum flott stundum
bara eitthvað rugl.....
Taktu mynda-
vélina alltaf
með þér hvert
sem þú ferð
Lomo truflar
ekki líf þitt,
Lomo er hluti
af lífinu
Notaðu hana
alltaf á nóttu
sem degi
Prófaðu að
taka mynd frá
mjöðminni
Ekki hugsa
rassgat um af
hverju þú ert
að taka mynd
Ekki hafa
áhyggjur af
einhverjum
reglum