Morgunblaðið - 08.05.2012, Síða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Of Monsters and Men
var stödd í Los Angeles sl. föstudag
þegar blaðamaður Morgunblaðsins
náði tali af henni og átti að leika á
tónleikum þar um kvöldið sem tekn-
ir voru upp fyrir útvarpsstöðina
KROQ. Þaðan var förinni svo heitið
til New York þar sem hljómsveitin
leikur í spjallþætti gamanleikarans
Jimmys Fallons í kvöld.
Hljómsveitin lauk tónleikaferð
um Evrópu í þarsíðustu viku og
segir Arnar Rósenkranz Hilmars-
son, slagverksleikari sveitarinnar,
að uppselt hafi verið á alla tón-
leikana. Hljómsveitin spilaði í
Þýskalandi, Belgíu, Hollandi,
Frakklandi og Englandi og segir
Arnar viðtökur hafa verið góðar.
„Platan er ekki komin út í það
mörgum löndum í Evrópu, hún er
bara komin út í Þýskalandi, kom út
þar í næstsíðustu viku en fólk virð-
ist vera að uppgötva okkur í Evr-
ópu líka sem er frábært,“ segir
hann.
-Hvað er búið að selja mörg ein-
tök af plötunni í Bandaríkjunum?
„Fyrir u.þ.b. viku var búið að
selja um 105 þúsund eintök,“ segir
Arnar en eins og frægt er orðið náði
platan sjötta sæti bandaríska plötu-
listans, Billboard, í apríl sl. sem er
besti árangur íslensks tónlistar-
manns eða hljómsveitar frá upphafi
á þeim langa lista. Platan er nú í 34.
sæti eftir fjórar vikur á listanum,
sæti ofar en nýjasta plata Bruce
Springsteens, Wrecking Ball.
Hljómsveitin fór víða um Bandarík-
in og Kanada í tónleikaferð í apríl
og var alls staðar uppselt. Liðs-
menn hennar sneru aftur heim í ör-
stutt frí að henni lokinni og héldu
svo í ferð um Evrópu.
Fyndið og gaman
-Eru aðdáendur að elta ykkur og
biðja um eiginhandaráritanir?
„Já, þeir eru duglegir að bíða
hérna eftir okkur fyrir utan tón-
leikastaðina og biðja um eiginhand-
aráritanir sem er mjög fyndið en
rosa gaman,“ segir Arnar.
-Og einkennilegt ekki síst í ljósi
þess hversu hratt þetta hefur gerst?
„Já, það er mjög skrítið að koma
héðan af eyjunni litlu til Bandaríkj-
anna, þessa risalands og fólk veit
hver maður er úti í búð stundum.
En maður getur farið í Smáralind-
ina óáreittur,“ segir Arnar og hlær
að þessum furðum.
Hljómsveitin snýr brátt heim í
tveggja vikna frí en heldur svo aft-
ur til Bandaríkjanna, mun þar leika
á fjölda tónlistarhátíða. Dagskráin
er þétt alveg fram undir lok ágúst-
mánaðar þegar hljómsveitin leikur
á tónlistarhátíðinni í Reading.
Ævintýri Liðsmenn Of Monsters and Men hafa upplifað mikið ævintýri und-
anfarnar vikur og plata hljómsveitarinnar selst eins og heitar lummur.
Í þætti Fallons og á fjölda hátíða
Önnum kafin Of
Monsters and Men
Kvikmyndin Die Mörder sind unter
uns eða Morðingjar meðal vor frá
árinu 1946 verður sýnd í Kamesinu á
5. hæð Borgarbókasafnsins við
Tryggvagötu í dag kl. 15 og 17.
Myndin er hluti af þýskri kvik-
myndahátíð sem haldin er í samstarfi
við Goethe-Institut.
Í myndinni segir frá Susanne sem
snýr heim til Berlínar eftir að hafa
verið frelsuð úr útrýmingarbúðum.
Heimaborg hennar er í rúst eftir
stríðið og í íbúð hennar hefur sest að
skurðlæknir nokkur, Mertens að
nafni, sem er nýsnúinn heim úr stríð-
inu. Mertens er þjakaður af minn-
ingum stríðsins sem hann reynir að
slæva með kald-
hæðni og drykkju.
Susanne leyfir
Mertens að dvelj-
ast áfram í íbúð-
inni og með þeim
þróast ástarsam-
band. Þá kemst
hann að því að
yfirmaður hans úr
hernum sem fyrirskipað hafði fjölda-
morð á saklausum borgurum nokkr-
um árum áður lifir nú ábátasömu og
áhyggjulausu lífi í næsta nágrenni.
Upp koma áleitnar spurningar um
hverjir eigi að refsa fyrir stríðsglæpi,
einstaklingar eða dómstólar.
Morðingjar meðal vor
Síðumúla 11, 108 Reykjavík,
sími 568 6899, vfs@vfs.is
www.vfs.is
Byssuskápar
frá kr. 23.500
Empire Total film Variety
Tommi, Kvikmyndir.is
Stærsta ofurhetjumynd allra tíma!
EGILSHÖLL
16
16
14
KRINGLUNNI
ÁLFABAKKA
VIP
12
12
12
12
LL
L
10
10
10
10
10
10
STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI !
L
16
10
SELFOSS
THEAVENGERS KL. 5 - 8 - 10:10
IMPY´SWONDERLANDM/ÍSL.TALIKL. 6
SVARTURÁLEIK KL. 8
KEFLAVÍK
16
12
10THEAVENGERS KL. 5 - 8 - 10:50 3D
GONE KL. 8 2D
SVARTURÁLEIK KL. 10 2D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
12
12
L
10
AKUREYRI
THEAVENGERS (3D) KL. 6 - 9 3D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
GONE KL. 8 2D
WRATHOF THE TITANS KL. 10:10 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 7 - 8 - 10 - 11. 3D
THEAVENGERS KL. 6 2D
BATTLESHIP KL. 8 - 10:50 2D
TITANIC KL. 9 3D
THECOLDLIGHTOFDAY KL. 5:50 2D
UNDRALAND IBBA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
STÓRSKEMMTILEG TEIKNIMYND
THEAVENGERS KL. 5 - 7 - 8 - 10 - 10:50 3D
THEAVENGERSVIP KL. 5 - 8 - 10:50 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 10:20 2D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
CABIN IN THEWOODS KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D
BATTLESHIP KL. 8 - 10:40 2D
AMERICANPIE: REUNION KL. 8 2D
FJÖRFISKARNIRM/ÍSL.TALI KL. 5 2D
THEAVENGERSKL. 5 - 6 - 8 - 9 - 10:50 3D
THEAVENGERS KL. 6 2D
CABIN IN THEWOODSKL. 10:10 2D
COLDLIGHTOFDAY KL. 6 - 8 2D
YFIR 35 ÞÚS. BÍÓGESTIR !
SVALI&SVAVAR
ALLAVIRKA
MORGNAKL. 7.00
Sláðu á þráðinn í 571 1111 eða kíktu
á okkur á facebook K 100,5