Morgunblaðið - 21.05.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 1. M A Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 117. tölublað 100. árgangur
UMHYGGJA OG
ÁST SKIPTIR
MIKLU MÁLI
FJÖGUR GLÆNÝ LEIKRIT DATT EN NÁÐI
SAMT ÞRIÐJA
SÆTINU
SVIÐSETT Í ÓVENJULEGUM LEIKRÝMUM 26 KÁRI STEINN ÍÞRÓTTIRHANDLAGAÐ KAFFI BEST 10
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Fiska Grásleppukarlar í Stykkishólmi að
gera klárt fyrir vertíðina í gærmorgun.
Grásleppukarlar eru nú í fyrsta
skipti skyldugir að koma með fisk-
inn að landi, ekki aðeins hrognin,
og áætlað er að aflaverðmæti grá-
sleppunnar geti orðið rúmlega 300
milljónir króna á vertíðinni, að
sögn Arnar Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Landssambands
smábátaeigenda. Þessi verðmæti
skipta grásleppukarla verulegu
máli og ljóst er að á þennan hátt fá
þeir fyrir olíu á bátana og rúmlega
það. »16
Fá olíu á bátana
fyrir grásleppuna
Útlendingar í fangelsum
» Tíu Íslendingar afplána nú
dóma eða eru í gæsluvarðhaldi
í útlöndum, m.a. í Perú, Bras-
ilíu og Taílandi.
» Hér á landi afplána 16 út-
lendingar dóma og níu eru í
gæsluvarðhaldi.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Íslendingur sem afplánaði refsingu í
S-Ameríku lýsir í viðtali við Morg-
unblaðið hörmulegum aðstæðum í
fangelsunum sem honum var haldið
í. Ofbeldi var mikið, óþrifnaðurinn
yfirþyrmandi og maturinn af mjög
skornum skammti og afar ólystugur.
Í einu fangelsanna lak þvag og
saur út í þröngan fangasalinn þar
sem 25 mönnum var haldið. Maður-
inn var síðan færður í annað fangelsi
þar sem 80 fangar voru í sama fanga-
salnum. Einu sinni á dag var mat-
urinn borinn inn, lítið box sem inni-
hélt nautakjöt – en þó aðallega sinar
og bein – og kjötið varð að sjóða í um
þrjá tíma til að það yrði ætt. Mað-
urinn reiddi sig á matvæli úr fangels-
isversluninni sem hann keypti fyrir
fé sem hann fékk sent frá Íslandi.
Maðurinn slapp við árásir af hálfu
samfanga en varð á hinn bóginn fyrir
hrottalegri árás fangavarða eftir að
hann hafði kvartað yfir vatnsleysi í
fangasalnum. „Ég var dreginn inn á
gang þar sem er engin eftirlits-
myndavél og þar voru högg og spörk
látin dynja á mér,“ segir hann.
Maðurinn, sem hefur lengi glímt
við geðræn vandamál, þjáist enn af
afleiðingum árásarinnar.
MEldraun í erlendu fangelsi »12-13
Verðirnir létu höggin dynja
Hörmulegar aðstæður í fangelsi í S-Ameríku þar sem Íslendingur afplánaði
Ofbeldi og mikill óþrifnaður Maturinn afar ólystugur og af skornum skammti
Ljósmynd/Jón Arnar Sigurþórsson
Fall Um 30 til 40 metrar eru niður að sjó frá syllunni þar sem maðurinn lenti.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er vel hægt að síga í einföldu
bandi en hann ákvað að vera öruggur
og síga í tvöföldu bandi. Hann var
kominn svolítið áleiðis niður 12-15
metra stál í stapanum þegar bandið
slitnaði og féll í frjálsu falli, á að giska
sex til átta metra og lenti milli tveggja
steina á syllu,“ segir Viðar Konráðs-
son, tannlæknir á Ísafirði, um tildrög
slyss í Stapa við Aðalvík á fjórða tím-
anum síðdegis í gær.
„Trúlega hefur bandið verið sól-
bakað, skemmt af sól. Hann var með
svonefnda eggjahvippu með 150 eggj-
um í um sig miðjan eins og bjarg-
hring. Það getur hafa tekið eitthvað af
högginu,“ segir Viðar um félaga sinn
sem er á sextugsaldri og þaulvanur
bjargmaður. Hinn slasaði var fluttur
mjaðmagrindarbrotinn til Reykjavík-
ur með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Maðurinn var með kunningja sín-
um, þaulvönum bjargmanni á sjö-
tugsaldri, þegar slysið varð og horfðu
Viðar og fjórði maðurinn í hópnum á
félagann hrapa niður þar sem þeir
biðu í báti fyrir neðan.
Ólýsanlegt augnablik
„Það er ekki hægt að lýsa því með
orðum hvernig það er að sjá vin sinn
falla í Stapanum. Hann var hreyfing-
arlaus fyrst, líklega í nokkrar sekúnd-
ur. Þær voru lengi að líða,“ segir Við-
ar sem slasaðist sjálfur alvarlega við
eggjatöku í Hornbjargi fyrir 9 árum.
Viðar hringdi eftir hjálp og leið
ekki langur tími þar til hópur manna
sem voru á ferðalagi á bát skammt
frá, þar með talinn bráðatæknir,
komu á vettvang og hlúðu að hinum
slasaða. Tugir björgunarsveitamanna
fluttu manninn í björgunarskip þang-
að sem þyrla Gæslunnar sótti hann.
Hrapaði þegar bandið slitnaði
Þaulvanur bjargmaður mjaðmagrindarbrotnaði við fall í Stapa við Aðalvík Tvöfalt band gaf sig
Lá hreyfingarlaus eftir fallið Félagi hans horfði á slysið Sekúndurnar „voru lengi að líða“
Slys í Aðalvík
Loftmyndir ehf.
Aðalvík
Fljótavík
Stapi
Félagar í Hestamannafélaginu Sleipni fóru á
laugardag með hestana sína í árlegan baðtúr.
Riðið var frá Selfossi til strandarinnar vestan við
Stokkseyri þar sem hross og menn böðuðu sig
vel og vandlega. Síðan var riðið til baka upp með
Ölfusá.
Að sögn Magnúsar Ólasonar, varaformanns
hestamannafélagsins, hefur verið farið í sund-
reið árlega frá því á sjötta áratug síðustu aldar.
Hrossin fengu sína árlegu baðferð
Ljósmynd/Olgeir Andrésson
„Ef sjávar-
útvegsfrum-
vörpin verða
samþykkt í
óbreyttri mynd
hefði það mikil
áhrif á Lands-
bankann. Þau
draga úr virði
bankans og þar
með verðmæti
eignarhluta ríkisins,“ segir Stein-
þór Pálsson, bankastjóri Lands-
bankans. Stjórnvöld hyggjast fjár-
magna nýja fjárfestingaráætlun
með sölu á eignarhluta í bönkum.
Steinþór kallar eftir framtíðarsýn
vegna sölu Landsbankans. »4
Veiðigjöldin myndu
rýra eign ríkisins
Steinþór Pálsson