Morgunblaðið - 21.05.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
•
14 nátta ferð - einstakt tækifæri
Benidorm
Frá kr. 109.900 með fullu fæði
Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 14 nátta ferð til
Benidorm þann 5 júní. Í boði er m.a. Mont Park hótelið
með fullu fæði. Gríptu
þetta frábæra tækifæri
og njóttu lífsins í sumar-
byrjun á Benidorm á
ótrúlegum kjörum.
Allra síðustu sætin 5. júní
Hotel Mont Park
Kr. 109.900 - með fullu fæði
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára,
í herbergi með fullu fæði í 2 vikur. Verð m.v. gistingu í
tvíbýli með fullu fæði kr. 139.900. Aukagjald fyrir einbýli
kr. 20.000.
HHH
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eyða þarf mörgum óvissuþáttum í at-
vinnulífinu eigi að skapast góð skil-
yrði fyrir sölu á eignarhlut ríkisins í
bönkunum. Um þetta eru bankastjór-
ar stóru bankanna sammála.
Áform um eignasölu eru rakin í
nýrri fjárfestingaráætlun ríkisstjórn-
arinnar en þar er áætlaður hluti rík-
isins í eigin fé í Landsbankanum um
síðustu áramót metinn á 162,3 millj-
arða, 14,4 milljarða í Arion banka og
6,1 milljarð í Íslandsbanka, saman-
lagt 182,8 milljarða króna.
Til samanburðar eru útlán bank-
anna þriggja til útgerða áætluð um
300 milljarðar og er hlutur Lands-
bankans 135 milljarðar.
Fjármagna á umrædda áætlun
með sölu eignarhluta ríkisins í bönk-
unum og nýju veiðileyfagjaldi.
Áhrif gjaldsins á rekstur útgerða
gæti sett strik í reikninginn og áætl-
að verðmæti eignarhlutanna.
Byrja á „litlu hlutunum“
Dagur B. Eggertsson, varafor-
maður Samfylkingar, hefur sagt að
horft sé til greiningar Bankasýslu
ríkisins í söluferlinu, þ.e. að farið
verði í „sölu á litlu hlutunum í Arion
banka og Íslandsbanka fyrst og síðan
hluta af Landsbankanum rólega“.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri
Arion banka, segir að enn sé talsvert í
nýskráningu í kauphöllinni.
„Eins og við höfum sagt held ég að
Arion banki sé kominn í þá stöðu að
geta verið áhugaverður fjárfestingar-
kostur fyrir fagaðila. Ég tel hins veg-
ar að það sé ekki komið að því að skrá
bankann á hlutabréfamarkað og dreg
raunar í efa að það sé hægt með aðra
banka. Ekki í bili. Öll óvissa í um-
hverfinu gerir eignasölu sem þessa
erfiðari en ella. Það er því mikið atriði
að létta af óvissu. Þá verða markmið
um sölu eignahluta í bönkunum væn-
legri.
Það er óvissa á mörgum sviðum.
Það er mikil óvissa um gengisdómana
sem og um fiskveiðistjórnunarfrum-
vörpin. Almennt er mikil óvissa um
nýtingu á auðlindum. Þá er óvissa um
afléttingu gjaldeyrishafta, svo ég
nefni enn annað dæmi af mörgum.
Það er því mikilvægt að fækka
óvissuþáttum,“ segir hann.
Myndu lenda í greiðsluvanda
Má í þessu samhengi rifja upp að í
umsögn bankans um fiskveiðistjórn-
arfrumvörpin segir að fyrirhuguð
veiðigjöld muni „veikja stöðu fyrir-
tækja í sjávarútvegi til muna og gera
mörgum þeirra ókleift að standa við
skuldbindingar sínar“. Talið berst að
hugsanlegri sölu á bréfum í bankan-
um til almennings og telur Höskuld-
ur þá rétt að stilla væntingum í hóf.
„Hvað snertir hlutabréfamarkað held
ég að menn eigi að vera með hófsam-
ar væntingar og spara hástemmdar
yfirlýsingar í þeim efnum. Þetta er að
gerast heldur hægar en vonast var
til. Það er aðeins ein nýskráning
komin frá hruni, nýskráningin á Hög-
um sem tókst mjög vel. Það eru
áform um að ljúka fleiri skráningum
á þessu ári og ég held að hægt sé að
vera bjartsýnn á að það gangi eftir.“
Eigið fé sterkt
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís-
landsbanka, sér einnig fyrir sér að
eignarhlutur ríkisins í bankanum
verði seldur til fagfjárfesta. Hvað
varðar tímasetningu á nýskráningu í
Kauphöllinni sé það eigandans að
ákveða hana. „Ég tel Íslandsbanka
góðan fjárfestingarkost. Það er hins
vegar mikilvægt að eyða óvissu um
sjávarútvegsmálin og gengisdómana.
Eigið fé bankans er sterkt eins og áð-
ur hefur komið fram í umræðum um
kvótamálin og gengisdómana,“ segir
Birna og svarar því aðspurð að sam-
þykkt fyrirhugaðra fiskveiðistjórn-
unarfrumvarpa yrði að óbreyttu
„áfall“ fyrir bankann.
„Við höfum reyndar líka sagt að við
erum með mjög sterk sjávarútvegs-
félög í viðskiptum og erum því
bjartsýn á að geta unnið
þetta með þeim.“
Horfa til stórra fagfjárfesta
Bankastjórar stóru bankanna þriggja telja nokkurn tíma í nýskráningu á hlutabréfamarkaði
Ríkið hyggst selja hlut sinn í Arion banka og Íslandsbanka fyrst Kvóta- og gengismál valda óvissu
Mikil verðmæti Hlutur ríkisins í eigin fé stóru bankanna þriggja er metinn á ríflega 180 milljarða króna. Við það bætist eiginfjárstyrking Landsbankans.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er verið að kaupa stuðning. Það
á að framlengja líf ríkisstjórnar-
innar,“ segir Halldór Halldórsson,
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, um nýja fjárfest-
ingaáætlun stjórnvalda, nánar til-
tekið þau áform að verja auknu fé til
samgangna á landsbyggðinni, m.a.
með fé sem sótt verður í veiðigjöld.
Fram kemur í áætluninni, í liðn-
un Fjármögnun með sérstöku veiði-
gjaldi, að verja eigi 7,5 milljörðum til
samgangna á árunum 2013-2015,
með sérstaka veiðigjaldinu sem ætl-
unin er að leggja á útgerðina.
Halldór gagnrýnir harðlega að
fyrirhugaðar
samgöngu-
bætur, þar með
talið jarðgöng,
skuli skilyrtar
með þessum
gjöldum, en
hann tekur fram
að hann tjái sig
um málið per-
sónulega en ekki
sem formaður
samtakanna sem hann fer fyrir.
Óvissa um fjármögnunina
„Það er illa gert hjá stjórnvöld-
um að stilla málum upp á þennan
hátt, fyrir utan að fulltrúar stjórn-
valda hafa sjálfir sagt að það þurfi að
endurskoða veiðigjöldin. Það er því
mikil óvissa um fjármögnun fjárfest-
ingaáætlunarinnar. Svo er rangt að
ofurskattleggja eina atvinnugrein til
að koma öðrum af stað. Ég tel að það
muni koma niður á landsbyggðinni.
Annars vegar með því að soga pen-
inga úr atvinnugrein sem ella færu í
nýsköpun og þróun og svo hins veg-
ar með loforði um að rétta pínulítið
af þeim fjármunum til baka. Ég tek
þó fram að í tillögunum er að finna
ýmislegt jákvætt. Ég geri hins vegar
athugasemdir við fjármögnunina.“
Atkvæðakaup og liður í að
framlengja líf stjórnvalda
Veiðigjöld
borgi jarðgöng
Skapandi greinar
» Í fjárfestingaáætluninni er
tilgreint í hvað fé sem fæst
með arði og eignasölu verður
varið í á árunum 2013-15.
» Eiga þar af 2,2 milljarðar
króna að fara í skapandi grein-
ar og 3,85 milljarðar króna í
„græna hagkerfið“.
Halldór
Halldórsson
,,Ef sjávarútvegsfrumvörpin verða samþykkt í óbreyttri
mynd hefði það mikil áhrif á Landsbankann. Þau draga
úr virði bankans og þar með verðmæti eignarhluta rík-
isins. Ég vona því að lögin verði þannig úr garði gerð að
þau kosti samfélagið ekki of mikið og hafi ekki neikvæð
áhrif á bankann og atvinnulífið,“ segir Steinþór Pálsson,
bankastjóri Landsbankans.
„Ég tel að það geti tiltölulega fljótt orðið af skráningu
[í kauphöllinni], jafnvel strax á næsta ári. Mesta óvissan
er í kringum gengislánadómana. Við þurfum að fá þau
mál aftur fyrir okkur. Ríkið þarf sem stærsti eigandinn að
hafa skýra framtíðarsýn með sinn eignarhlut, þannig að þeir sem kaupa hlut
viti að hverju þeir ganga, hvernig ríkið hyggst haga málum og hversu hratt
það ætlar að minnka sinn hlut í framtíðinni. Þeir sem eiga minnihluta í fyr-
irtæki með ríkinu þurfa að hafa tryggingu fyrir því að þeir séu jafnsettir og
þeir væru, ef þeir fjárfesta í öðrum fyrirtækjum, m.ö.o. að það sé í lagi að eiga
fyrirtæki með ríkinu og sömu leikreglur gildi um slík fyrirtæki og önnur á
markaði. Því miður er tilhneiging til hins gagnstæða varðandi Landsbankann
eins og málum er háttað. Hvað þetta varðar þurfa stjórnmálamennirnir að
standa sig betur. Þegar þeir koma þessu í lag verður hins vegar hægt að laða
fjárfesta að bankanum,“ segir Steinþór og víkur að auknu eigin fé ríkisins í
bankanum.
„Nýi Landsbankinn gerði samning við kröfuhafa í gamla Landsbankann
vegna ákveðinna lánasafna. Þau hafa reynst verðmætari en talið var og mun
ríkið að óbreyttu eignast stóran hlut þess hlutafjár sem gamli bankinn heldur
á um næstu áramót þegar uppgjör mun eiga sér stað. Eigið fé ríkisins í bank-
anum mun því væntanlega aukast úr ríflega 160 milljörðum króna í ársbyrjun
og verður hugsanlega ríflega 200 milljarðar í lok
þessa árs ef ekki koma til einhverjar kollsteypur eins
og t.d. með samþykkt laga sem rýra verulega stöðu
viðskiptavina bankans og þá um leið verðmæti hans.“
Veiðigjöldin myndu draga úr
verðmæti eignarhluta ríkisins
LANDSBANKINN VILL SKÝRARI FRAMTÍÐARSÝN
Höskuldur
Ólafsson
Birna
Einarsdóttir
Steinþór Pálsson