Morgunblaðið - 21.05.2012, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Smith & Norland hefur
útvegað Íslendingum
gæða-heimilistæki í 80 ár.
Við seljum vandaðar vörur
og kunnum okkar fag.
Skiptið við traust og
rótgróið fyrirtæki.
Verið ávallt velkomin í
verslun okkar, því að sjón
er sögu ríkari.
Umboðsmenn um land allt.
Ryksuga
VS Z3XTRM12
Mjög kraftmikil 1800 W
ryksuga með
„Compressor“-tækni.
Skilar hámarks-sogkrafti
með lágmarks-orkunotkun.
4 lítra slitsterkur poki.
Vinnuradíus 10 metrar.
Tilboðsverð:
29.900 kr. stgr.
(fullt verð: 37.900 kr.)
Þvottavél
WM 14A163DN
Einstaklega góð kaup.
Tekur mest 5,5 kg, vindur
upp í 1400 sn./mín.
Orkuflokkur A+.
Íslenskt stjórnborð.
Tilboðsverð:
89.900 kr. stgr.
(fullt verð: 114.900 kr.)
Þvottavél
WM 14E262DN
Tekur mest 6 kg, vindur
upp í 1400 sn./mín.
Orkuflokkur A+.
Mjög stutt kerfi (15 mín.).
Íslenskt stjórnborð og
leiðarvísir.
Tilboðsverð:
119.900 kr. stgr.
(fullt verð: 149.900 kr.)
Þvottavél
WM 14S464DN
Tekur mest 8 kg, vindur
upp í 1400 sn./mín.
Orkuflokkur A+++.
iQdrive: Kolalaus, hljóðlátur
og sparneytinn mótor.
Mjög stutt kerfi (15 mín.).
Íslenskt stjórnborð og
leiðarvísir.
Tilboðsverð:
163.900 kr. stgr.
(fullt verð: 199.900 kr.)
Þurrkari
WT 46E364DN
Góður þurrkari sem tekur
mest 7 kg. Skjár sem sýnir
afgangstíma. Íslenskt
stjórnborð og leiðarvísir.
Tilboðsverð:
129.900 kr. stgr.
(fullt verð: 159.900 kr.)
Þurrkari
WT 46E305DN
Glæsilegur þurrkari sem
tekur mest 8 kg. Sérkerfi:
Ull 6 mín., blandaður
þvottur, útifatnaður, heitt
20 mín. og 40 mín. hrað-
kerfi. Íslenskt stjórnborð og
leiðarvísir.
Tilboðsverð:
139.900 kr. stgr.
(fullt verð: 169.900 kr.)
Uppþvottavél
SE 45E234SK
Hvít, 12 manna. Fimm kerfi.
Hljóð: 48 dB (re 1 pW).
Tilboðsverð:
99.900 kr. stgr.
(fullt verð: 119.900 kr.)
Uppþvottavélar
SN 45M205SK (hvít)
SN 45M505SK (stál)
Glæsilegar 13 manna
uppþvottavélar. Fimm kerfi.
Sérlega hljóðlátar: 44 dB
(re 1 pW). Tímastytting
þvottakerfa („varioSpeed“).
Íslenskur leiðarvísir.
Tilboðsverð:
139.900 kr. stgr. (hvít)
(fullt verð: 169.900 kr.)
Tilboðsverð:
159.900 kr. stgr. (stál)
(fullt verð: 189.900 kr.)
Gæða-heimilistæki í 80 ár
Ryksuga
VS 06G2001
Kröftug 2000 W ryksuga
með 4 lítra slitsterkum poka.
Vinnuradíus 10 metrar.
Tilboðsverð:
23.900 kr. stgr.
(fullt verð: 28.900 kr.)
Ariel þvottaefni og Lenor
mýkingarefni fylgja með
öllum Siemens þvottavélum.
Sævar Már Gústavsson
saevar@mbl.is
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, segir að umhverf-
is- og héraðsnefnd muni fjalla um
ástand slóða á Fljótsdalsheiði og
víðar á hálendinu norðan Vatnajök-
uls í vikunni og ræða um mögulegar
lausnir á þessu ástandi.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
á föstudag eru miklar skemmdir á
hálendinu vegna utanvegaaksturs
og vegna þess að ökumenn búa til
nýjar slóðir þegar þær eldri verða
ófærar. Víða eru ljót sár í grónum
jarðvegi.
„Ég hafði nú ekki heyrt mikið af
þessari umræðu en það er gott að
hún sé komin af stað og mikilvægt
er að finna lausnir á þessu,“ segir
Björn.
Framhald af Kárahnjúkavegi
Honum finnst líklegast að rætt
verði við hagsmunaaðila til þess að
skoða hvað hægt sé að gera til þess
að sporna við utanvegaakstri. Einn-
ig segir Björn að ýmsar hugmyndir
um hvernig sé hægt að sporna við
vandanum sem hafa verið skoðaðar
gegnum tíðina verði ígrundaðar. Til
að mynda hafi margir bent á að ef
almennilegur þjóðvegur verður
lagður norðan Vatnajökuls í beinu
framhaldi af Kárahnjúkaveginum
þá geti það komið í veg fyrir ut-
anvegaakstur.
„Það var einmitt ágætis fundur á
Hótel Héraði á uppstigningardag
þar sem rykið var dustað af hug-
myndum sem hafa annað slagið
komið upp. En þar kom einmitt
fram að ef þessi þjóðvegur yrði
lagður norðan Vatnajökuls þá væri
fólk ekki að skjótast yfir þessa
slóða sem eru engum færir nema
menn séu á réttu bílunum, útbúnir
réttu tækjunum,“ segir Björn.
„Það verður ekkert aðhafst í
þessu fyrr en umhverfis- og héraðs-
nefnd hefur farið yfir þetta og met-
ið hvort og hvernig sé hægt að tak-
ast á við vandann. En einnig er
líklegt að það verði farið á staðinn
og gerð úttekt með þeim sem
þekkja vel til þessara mála. Myndir
sem maður hefur séð af þessu líta
mjög illa út og það þarf að skoða
þessi mál rækilega.“
Ljósmynd/Skarphéðinn G. Þórisson
Hálendið Vegaslóðar hafa skilið eft-
ir sig ljót sár í jarðvegi á hálendinu.
Þjóðvegur norðan jökulsins gæti létt á slóðum
Umhverfis- og héraðsnefnd Fljótsdalshéraðs mun fjalla um utanvegaakstur í vikunni
Norðurhlíð Skálafells er enn þakin
snjó þrátt fyrir að maímánuður sé
senn á enda.
Á laugardaginn síðastliðinn fór
hópur fólks sem hafði unnið í Skála-
felli í vetur og kannaði aðstæður í
norðurhlíð fjallsins en þar er nægur
snjór og gott skíðafæri að sögn
Önnu Laufeyjar Sigurðardóttur,
formanns skíðadeildar KR.
„Við buðum þeim sem höfðu kom-
ið að opnun Skálafells í þessa ferð
til þess að þakka þeim fyrir hjálp-
ina. Fyrst vorum við dregin upp á
fjallið á vélsleðum sem öllum fannst
náttúrlega hrikalega spennandi.
Síðan var grillað á staðnum og
krakkarnir renndu sér niður brekk-
urnar og við hættum ekki fyrr en
allir voru farnir að kvarta undan
þreytu í lærum og höndum,“ segir
Anna en hún segir að færðin hafi
minnt á fyrirheitna landið.
„Það er náttúrlega draumurinn
að í framtíðinni verði gert almenni-
legt skíðasvæði þarna í norðurhlíð-
inni. Þarna er snjórinn kominn í
október, nóvember og heldur sér
svona lengi eins og raun ber vitni,“
segir Anna.
Skálafell Hér sjást þeir Róbert Þór
Sigurðsson, sex ára, og Guðjón Guð-
mundsson, sjö ára.
Fyrirheitna
landið fundið
í Skálafelli
Nóg er af snjó í
norðurhlíð Skálafells
Ráðstefna um framtíð lífeyrismála
á Íslandi verður haldin mánudag-
inn 21. maí á Grand Hótel í Reykja-
vík. Ráðstefnan hefst kl. 13.00 og
stendur til 16.00. Hún er öllum opin
og aðgangur er ókeypis.
Fjallað verður um uppbyggingu
íslenska lífeyrissjóðakerfisins og
hlutverk þess í íslensku samfélagi,
m.a. með hliðsjón af samspili þess
við almannatryggingakerfið.
„Á ráðstefnunni verður leitast
við að varpa ljósi á stöðu lífeyr-
ismála, þær áskoranir sem kerfið
stendur frammi fyrir og fjalla á
uppbyggilegan hátt um markmið
og leiðir í þeim efnum,“ segir í til-
kynningu.
Fjallað um framtíð
lífeyrissjóðakerfis