Morgunblaðið - 21.05.2012, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
Framtíð
lífeyrismála á Íslandi
RÁÐSTEFNA › GRAND HÓTEL REYKJAVÍK › mánudagur 21. maí 2012 › kl 13:00-16:00
DAGSKRÁ:
13:00 Setning: Pétur Magnússon, formaður Öldrunarráðs Íslands
13:10 Uppbygging íslenska lífeyrissjóðakerfisins
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
13:40 Lífeyrismál frá sjónarhorni vinnumarkaðarins
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
14:00 Samspil lífeyrissjóða og almannatryggingakerfisins;
horft til framtíðar
Árni Gunnarsson, formaður nefndar um endurskoðun
almannatryggingakerfisins
14:20 Kaffihlé
14:50 Allt er gott sem endar vel
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins
15:10 Er framtíðin björt eða svört?
Ásmundur Stefánsson, löggiltur ellilífeyrisþegi
15:30 Pallborðsumræður framsögumanna
16.00 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri: Rannveig Guðmundsdóttir,
formaður Samstarfsnefndar um málefni aldraðra og fv. ráðherra
ALLIR VELKOMNIR – AÐGANGUR ÓKEYPIS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Það kemur mér skemmtilega á
óvart hvað við eigum margt sameig-
inlegt þó að þetta séu ólíkir staðir
að mörgu leyti,“ segir Eiríkur Björn
Björgvinsson, bæjarstjóri á Akur-
eyri, sem bindur miklar vonir við
vinabæjarsamband Akureyrar og
Denver í Colorado í Bandaríkj-
unum, en viljayfirlýsing þess efnis
var undirrituð á dögunum.
Um 20 manna sendinefnd frá
Denver var á Íslandi fyrir skömmu
og í kjölfarið fóru fulltrúar Akur-
eyrar til Denver með fyrsta flugi
Icelandair til Denver. „Þetta hefði
aldrei komið til nema vegna beins
áætlunarflugs Icelandair til Denver
og vegna þess að Akureyri er orðin
einn af áfangastöðum Icelandair á
Íslandi,“ segir Eiríkur Björn um
sambandið, en í yfirlýsingunni er
lögð áhersla á samvinnu á sviði
menningarmála, menntunar og við-
skipta. Hann bendir á að bæirnir
eigi greinilega margt sameiginlegt á
sviði menningarmála og það hafi
berlega komið fram á nýliðnum
dögum, bæði á Akureyri og í Den-
ver. Borgarstjórnin í Denver leggi
til dæmis áherslu á að koma listinni
á framfæri með því að hafa lista-
verk sýnileg, rétt eins og bæj-
arstjórnin á Akureyri reyni að gera.
Akureyri er útivistarbær og þar
er Vetraríþróttamiðstöð Íslands.
Allt sem tengist útivist og heil-
brigðu líferni er einkennandi fyrir
Denver og nágrenni enda leggja
heimamenn áherslu á að þeir séu
þeir grennstu í Bandaríkjunum.
„Mér finnst þessi útivistarvinkill
mjög skemmtilegur og spennandi
og hann er til staðar á báðum stöð-
um þó ég sjái mig ekki vigta íbúa
Akureyrar sérstaklega,“ segir Ei-
ríkur.
Svalasti borgarstjórinn
Denver er þjónustuborg fyrir
stórt útivistarsvæði og Eiríkur seg-
ir að engum hafi dulist áhugi Mich-
aels B. Hancocks borgarstjóra á að
fá beint flug með Icelandair frá Ís-
landi og þannig aukna tengingu við
Evrópu. Hann hafi áhuga á að
kynnast því hvernig samskiptin
gangi milli borgarinnar og hinna
ýmsu útivistarsvæða. Akureyri vilji
nýta Akureyrarflugvöll með svip-
uðum hætti til þess að þjónusta
Norðurland og jafnvel stærra
svæði. „Þetta er mjög spennandi
samstarfsvettvangur,“ segir hann.
Eiríkur segir að fyrstu kynni lofi
góðu. „Denverbúar voru mjög góðir
heim að sækja og mér fannst ég
vera á heimavelli. Borgarstjórinn er
engum líkur, sá svalasti sem ég hef
hitt.“
Vinabæir á flugi í ferðamennsku
Akureyri og
Denver stilla
saman strengina
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tveir svalir Eiríkur Björn Björgvinsson segir að Michael B. Hancock, borg-
arstjóri í Denver, sé engum líkur. Hann sé sá svalasti.
Denver er 10. vinabær Akureyrar,
en fyrir eru Álasund í Noregi,
Lahti í Finnlandi, Randers í Dan-
mörku, Västerås í Svíþjóð, Vogar
í Færeyjum, Grimsby í Englandi,
Murmansk í Rússlandi, Narsaq í
Grænlandi og Gimli í Kanada, en
samskiptin við Gimli hófust 1975
í tilefni 100 ára afmælis land-
náms Íslendinga í Manitoba.
Samstarf Akureyrar við nor-
rænu vinabæjakeðjuna hófst
1953. Samstarfið hefur verið
stöðugt, bæði formlegt og
óformlegt með þátttöku bæjar-
yfirvalda, félaga og hópa.
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri á Akureyri, segir að
samstarfið sé mest við norrænu
vinabæina. Bæjarstjórarnir og
fulltrúar bæjarstjórnanna hittist
einu sinni á ári og fundurinn í ár
verði á Akureyri í tilefni 150 ára
afmælis bæjarins.
Denver 10.
vinabærinn
VINABÆJAKEÐJA
Samtök rann-
sókna- og há-
skólaneta í Evr-
ópu eða
Trans-European
Research and
Education Net-
working Asso-
ciation (TE-
RENA) munu standa að árlegri
ráðstefnu samtakanna í Háskólabíói
dagana 21.-24. maí næstkomandi.
Er þetta í fyrsta sinn sem ráð-
stefnan er haldin á Íslandi.
Ráðstefnan er sú stærsta og virt-
asta sinnar tegundar í Evrópu en í ár
verða haldnir fyrirlestrar m.a. um
netöryggi, netleynd, grænan rekstur
tölvukerfa, hvernig megi nota sam-
tökin til frumkvöðlastarfsemi og
framfara í efnahags- og samfélags-
málum og hvernig tölvunet koma að
smíði og þróun nýs stjörnusjónauka
sem er í smíðum. Um 500 sérfræð-
ingar, aðallega frá Bandaríkjunum,
Evrópu og Ástralíu, á sviði tölvuneta
munu heimsækja ráðstefnuna og
halda þar fyrirlestra.
Terena-ráðstefnan
haldin á Íslandi
í fyrsta skipti
Birgitta Jóns-
dóttir, ásamt sex
öðrum, stefndi á
dögunum banda-
rískum stjórn-
völdum fyrir rétt
í New York
vegna nýrra laga
sem gefa Banda-
ríkjaher heimild
til að handtaka
almenna borgara hvar sem er í
heiminum og hneppa í varðahald án
dóms og laga, segir í tilkynningu
frá Hreyfingunni.
Dómsúrskurður í málinu var les-
inn upp í síðustu viku þar sem segir
að tvær greinar laganna standist
ekki stjórnarskrá landsins og þar
með talin sú grein sem segir til um
varðhald án dóms og laga og því
var fallist á lögbannskröfu sjö-
menninganna sem fögnuðu nið-
urstöðunni ákaflega.
Birgitta sagði í samtali við vefinn
The Sparrow Project að niðurstað-
ann væri sigur fyrir allan almenn-
ing og að hún styrkti tjáning-
arfrelsi um allan heim.
Vann mál gegn
bandarískum
stjórnvöldum
Brigitta Jónsdóttir