Morgunblaðið - 21.05.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég byrjaði minn kaffi-barþjónsferil á kaffihúsi íReykjavík sem heitirKaffi Roma, en svo flutt-
ist ég til Svíþjóðar og vann þar sem
kaffibarþjónn um tíma. Ég flutti
aftur heim á hinu margumrædda
hrunári 2008, og stofnaði ári seinna
fyrirtæki ásamt tveimur öðrum sem
heitir Kaffibíllinn ehf., en það er
kaffihús á hjólum. Þar hef ég unnið
á sumrin enda einvörðungu sumar-
starfsemi, en verið í háskólanámi á
veturna,“ segir Hrönn Snæbjörns-
dóttir en hún stóð fyrir málþingi
nýverið í samstarfi við Kaffi-
barþjónafélag Íslands. Yfirskrift
málþingsins var: Hinir ólíku vegir
til kaffibollans, og var kaffimenning
Íslendinga skoðuð frá ýmsum hlið-
um. Ræddu nokkrir af reyndustu
kaffibarþjónum landsins um fjöl-
margt sem tengist kaffi, allt frá
samskiptum við kaffibændur í fjar-
lægum heimsálfum til samskipta og
tryggðar viðskiptavina hér á landi.
Málþingið var hluti af lokaverkefni
Hrannar í hagnýtri menningar-
miðlun við sagnfræði- og heim-
spekideild Háskóla Íslands.
Áríðandi að baunir séu ný-
malaðar þegar hellt er upp á
Hrönn segir það hafa verið
gaman að geta sameinað kaffiáhuga
sinn og námið í þessu lokaverkefni.
„Mér fannst kjörið að halda mál-
þing um íslenska kaffimenningu af
því að mér fannst vanta að varpa
ljósi á hina ungu fagstétt kaffibar-
þjóna. Á málþinginu fjölluðum við
um þjónustu á kaffihúsum, hvernig
viðskiptavinurinn og kaffibarþjónn-
inn tala saman og einnig var fjallað
um grunnþætti í kaffigerð. Til
dæmis er athyglivert að hún er aft-
ur orðin vinsæl gamla góða aðferðin
að hella upp á kaffi í gegnum trekt.
Og það er mjög mikilvægt að kaupa
gott hráefni því það skiptir öllu máli
í kaffigerð að hráefnið sé gott og
baunirnar nýmalaðar. Enn eitt at-
riðið sem skiptir máli er að hafa
rétt hlutföll milli vatnsmagns og
kaffimagns þegar hellt er upp á.“
Þurfa að vita allt um kaffið
Hrönn segir að Íslendingar séu
mjög framarlega þegar kemur að
kröfum um gæðakaffi og þeir verða
æ meðvitaðri um hvað þeir setja í
kaffibollann sinn. „Fólk sem kaupir
sér kaffisopa á kaffihúsum gerir
kröfur um að fá þar gott kaffi og
treystir sínum kaffibarþjónum til að
standa undir nafni þegar þeir laga
kaffið. Þeir sem vinna á kaffihúsum
þurfa því að huga að mörgum þátt-
um öðrum en þeim að vanda til
verka þegar kaffið er lagað. Góður
kaffibarþjónn þarf að vita allt um
kaffið sem boðið er upp á og þekkja
uppruna hráefnisins. Tengslin við
kaffibóndann sjálfan eru alltaf að
verða sjáanlegri, sum kaffihús á Ís-
landi versla meira að segja beint við
kaffibændur og vita nákvæmlega
frá fyrstu hendi hvernig kaffið er
unnið, brenna það sjálf og afgreiða
Ást og umhyggja
skipta máli í kaffi
Íslendingar eru mjög framarlega þegar kemur að kröfum um gæðakaffi og þeir
verða æ meðvitaðri um hvað þeir setja í kaffibollann sinn. Mjólkurkaffidrykk-
irnir latte og cappucino sem voru hvað vinsælastir eru að víkja fyrir svörtu.
Hrönn Snæbjörnsdóttir hélt nýverið málþing um kaffimenningu Íslendinga.
Ljósmyndir/Berglind Mari Valdimarsdóttir
Hrönn Sameinaði kaffiáhugann og námið í lokaverkefni sínu við háskólann.
Á vefsíðunni canadianliving.com er
hægt að finna innblástur að ýmsum
skemmtilegum hlutum sem kryddað
geta hversdaginn. Ef þú ætlar t.d.
að baka bollakökur um helgina get-
ur þú fundið hugmyndir að fallegum
skreytingum á kökurnar á þessari
vefsíðu. En þar er lesendum kennt
að búa til býflugur og litrík blóm úr
pappír, líma á pinna sem stungið er
í kökurnar. Einföld en frábær hug-
mynd í barnaafmælið eða sum-
arpartíið. Hagkvæm ráð er líka að
finna á vefsíðunni eins og t.d.
hvernig spara megi í matarinn-
kaupum. Á canadianliving.com er
líka að finna helling af girnilegum
uppskriftum þar á meðal tíu skot-
heldar uppskriftir að hamborgurum.
Það er hægt að gleyma sér á þess-
ari vefsíðu enda er hún suðupottur
af öllu því er viðkemur daglegu lífi
okkar.
Vefsíðan www.canadianliving.com
Morgunblaðið/Frikki
Matarinnkaup Hagkvæmt og gott er að nýta sér matarmarkaði.
Innblástur fyrir daglegt líf
Á morgun, þriðjudag, eru loka-
tónleikar fyrir sumarfrí í tónleikaröð
Edrúhallarinnar, Kaffi, kökum og rokki
og róli. Langi Seli og Skuggarnir munu
koma fram sem og Retrobot, sem eru
nýbakaðir sigurvegarar Músíktilrauna.
Gera má ráð fyrir að rokkabillígleðin
verði við völd hjá Sela og félögum og
að næg orka verði meðal ungviðisins í
Retrobot. Tónleikaröðin fer svo í sum-
arfrí en verður með viðvist á sum-
arhátíð SÁÁ í ágúst. Fyrir þá sem ekki
vita er Edrúhöllin í Efstaleiti 7 og hús-
ið verður opnað 20. Tónleikar hefjast
20.30. Kostar aðeins 500 kr. inn og
nóg til af kaffi og kökum.
Endilega …
… njótið Sela
og Retrobot
Morgunblaðið/Ernir
Góður Langi Seli er ofursvalur.
Marianne Christensen sagnaþulur,
dáleiðslutæknir og leiðbeinandi segir
viskusögur í Merkigili á Eyrarbakka
næstkomandi föstudagskvöld 25.
maí kl 20. Yfirskrift sagnakvöldsins
er: Geta sögur heilað og læknað?
Marianne er dönsk og hefur undan-
farin ár notað menntun sína sem
sagnaþulur, dáleiðslutæknir og NLP-
leiðbeinandi. Marianne ætlar að deila
sögum af því hvernig hún tókst á við
sorgina þegar maður hennar veiktist
og féll frá. Að auki gefst tími til að
ræða saman um hvernig sögur geta
verið læknandi. Marianne segir sögur
sínar á ensku. Einnig koma fram þær
Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir og
Áslaug Jóhannesdóttir. Jóhanna er
kennari og sjúkraliði og hefur mikla
og góða tilfinningu fyrir skjólstæð-
ingum sínum. Jóhanna segir sögu af
því hvað kom henni á lappirnar eftir
stofnfrumuskipti. Áslaug nuddari,
heilari, dáleiðslutæknir og sagnaþul-
ur deilir heilunarsögum sínum. Sögur
geta aukið skilning, bent á leiðir til
að bregðast við aðstæðum á nýjan
hátt og geta verið umbreytandi.
Sagnakvöld í Merkigili
Geta sögur heilað og læknað?
Sagnaþulur Marianne Christensen segir viskusögur.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Bíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is
Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir
Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi