Morgunblaðið - 21.05.2012, Page 13
fyrr en um hálffjögur og þú getur
ímyndað þér hvernig manni leið þá í
maganum. Oftast var um að ræða
soðna kjúklingalifur og kjúklinga-
hálsa. Stundum hrísgrjónasletta með
og grænmeti. Þetta var mjög lítill og
ólystugur matur,“ segir hann og
greinilegt að hann hryllir enn við.
Þegar þarna var komið sögu var
hann farinn að fá fé frá ættingjum og
vini á Íslandi. Féð var sent frá utan-
ríkisráðuneytinu, til sendiráðsins í
Washington og þaðan til ræð-
ismannsins en maðurinn hrósar þess-
um aðilum öllum fyrir gott starf.
Hann gat nú keypt sér meira af
matvælum í fangelsinu. „Þá gat ég
fyrst farið að borða almennilega, ég
keypti mikið af eggjum og osti. Og við
fengum meira af brauði en í hinu
fangelsinu.
Þarna var mjög góður geðlæknir
og ég komst loksins á rétt geðlyf
vegna geðrænna vandamála minna
og er enn að nota nákvæmlega sömu
geðlyf sem geðlæknir minn við Land-
spítalann skrifar upp á,“ segir hann.
Högg og spörk dundu á honum
Aðbúnaðurinn var vissulega betri
en ofbeldið var skammt undan.
„Í þessu fangelsi varð ég fyrir
hrottalegri líkamsárás af hálfu fanga-
varða. Það varð vatnslaust á deildinni
minni og ég fór til þess fangavarðar
sem var á vaktinni og sagði honum að
það væri vatnslaust. Hann sneri
buxnavösunum úthverfum og sagði
við mig: „Ég á ekkert vatn.“ Það fauk
eitthvað í mig, ég hvessti mig og síðan
var það bara búið. Ég hef kannski
sagt eitthvað ógætilegt, ég man það
ekki. Ég fór síðan til klefa míns, lag-
aði mér kaffi og var að vefja mér síg-
arettu, það var ódýrast að kaupa tób-
ak sem maður vafði sjálfur en þá
birtist skyndilega inni í klefanum
hópur fangaverða og fremstur fór
fangavörður sem bar titilinn in-
spector. Hann sló mig með krepptum
hnefa á vinstri vanga, þannig að aug-
að sökk og vanginn varð helblár og
bólginn. Síðan tóku þeir á mér og
sneru mjög illa upp á hægri hand-
legginn. Ég man að þeir drógu mig út
úr klefanum og þá missti ég meðvit-
und. Svo rankaði ég við mér, kominn
um 50 metra frá deildinni minni, þar
sem fangaverðirnir drógu mig áfram
í handjárnum. Ég var dreginn inn á
gang þar sem er engin eftirlits-
myndavél og þar voru högg og spörk
látin dynja á mér. Ítrekað var spark-
aði í ökklana á mér. Á endanum féll
ég í gófið við þungt högg í kviðinn.
Við það varð ég að kasta þvagi og ein-
hvern veginn tókst mér að toga bux-
urnar niður og kasta vatni á gólfið.
Þarna var ég geymdur eiginlega það
sem eftir lifði dags, reyndar var ég
tekinn úr handjárnunum en ég fékk
hvorki mat né drykk,“ segir hann.
„Um mánuði eftir líkamsárásina
kom í heimsókn til mín vinur minn frá
Íslandi og lét hann mér í té fatnað
auk þess að kaupa handa mér nauð-
synjar og leggja fé inn á reikning
minn við verslun fangelsisins. Þetta
var á afmælisdegi aldraðs föður míns
og gladdi mig meira en orð fá lýst.“
Afleiðingar árásarinnar hrjá hann
enn. „Ég er skaddaður á hægri oln-
boga eftir þá, ég lyfti til dæmis ekki
símaskrá með hægri handlegg.
Vinstri ökkli er skaddaður og vinstra
hné sömuleiðis. Ég fæ mikinn verk í
ökkla og hné þótt ég gangi bara stutt-
ar vegalengdir.“
Hann sækir enn meðferð hjá geð-
lækni og bæklunarlækni. Fjárhag-
urinn er slæmur og hann á ekkert fé
til að endurgreiða ræðismanninum.
„Vinir mínir og fjölskylda hafa staðið
eins og klettar við bakið á mér frá því
ég kom aftur til landsins og kann ég
ekki nein orð til þakka þeim, en orð
ein nægja ekki til.“
Nokkrum mánuðum eftir árásina
lauk afplánuninni. Um leið var úr-
skurður kveðinn upp um að hann
mætti ekki snúa aftur til viðkomandi
lands í um áratug. „Það er allt í lagi.
Ég er ekkert á leiðinni þangað aftur.“
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
Da
lve
gu
r
esvegur
SkógarlindSmáratorg
hvammsvegur
Re
yk
ja
ne
sb
ra
ut
KORTIÐ GILDIR TIL
31. maí 2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Glatist kortið sendu þá póst á askrift@mbl.is.
MOGGAKLÚBBSTILBOÐ
BÓNSTÖÐIN BÝÐUR
50% AFSLÁTT AF ALÞRIFUM
OG DJÚPHREINSUN TIL 31. MAÍ
Opnunartími: mánud. - föstud. frá kl. 8:00–17:00.
Laugardagar: sérpantanir.
Bónstöðin, Dalvegi 16c, 201 Kópavogur, sími: 571 9900 / 695 9909.
TILBOÐ 1
Alþrif á fólksbíl
Fullt verð: 9.000 kr.
Moggaklúbbsverð: 4.500 kr.
TILBOÐ 3
Alþrif og djúphreinsun á fólksbíl
Fullt verð: 16.000 kr.
Moggaklúbbsverð: 8.000 kr.
TILBOÐ 2
Alþrif á jeppa
Fullt verð: 12.000 kr.
Moggaklúbbsverð: 6.000 kr.
TILBOÐ 4
Alþrif og djúphreinsun á jeppa
Fullt verð: 22.000 kr.
Moggaklúbbsverð: 11.000 kr.
VIÐ ERUM HÉR
FRAMLENGTTILBOÐ!
Pétur Ásgeirsson, sviðsstjóri rekstrar- og þjón-
ustusviðs utanríkisráðuneytisins, segir að ráðu-
neytið aðstoði íslensku fangana á ýmsan hátt,
m.a. við að fá lögmann og gætir að því að fylgt sé
alþjóðlegum reglum um réttindi handtekinna
manna. Ísland er nú með 21 sendiskrifstofu eða
fastanefndir erlendis og því lendir það oft á herð-
um kjörræðismanna Íslands (heiðurskonsúla),
sem eru alls um 250 talsins, að aðstoða Íslend-
ingana. Þá biðji ráðuneytið oft sendiráð annarra
norræna ríkja um að veita Íslendingum aðstoð.
Pétur segir að það geti verið vandkvæðum
bundið fyrir Íslending sem er dæmdur til refs-
ingar erlendis að fá leyfi til að afplána dóminn
hér á landi. Ísland er aðili að samningi Evrópu-
ráðsins um flutning dæmdra manna og fullnustu
refsinga, eins og flest önnur Evrópuríki og nokk-
ur ríki utan álfunnar einnig. Ef Íslendingur er
dæmdur til refsingar í landi sem er aðili að samn-
ingnum hefur hann rétt á að óska eftir flutningi
til Íslands. Öðru máli gegnir um þau lönd sem
ekki eru aðilar að samningnum, þá eru engin slík
réttindi til staðar, m.a. Taíland, Perú, Brasilíu og
fleiri ríki S-Ameríku. „Við höfum reynt að fá ís-
lenskan fanga fluttan frá Brasilíu en viðbrögðin
þaðan voru þau að fyrst þyrfti að gera samninga
um flutning dæmdra manna og fullnustu refs-
inga.“ Undanfarið hefur nokkuð verið fjallað um
aðstæður í fangelsinu í Taílandi þar sem íslensk-
ur karlmaður situr í gæsluvarðhaldi.
Pétur segist ekki geta rætt um málefni ein-
stakra fanga, nema þeir hafi sérstaklega falið
ráðuneyti að gera það. Á almennum nótum geti
hann þó sagt að fordæmi séu fyrir því að menn
sem eru dæmdir í fangelsi í Taílandi geti afplánað
hluta af dómnum í sínu heimalandi. Forsenda fyr-
ir slíku sé að samningur um flutning dæmdra
manna sé í gildi. Gerð slíks samnings er nú í
undirbúningi við Taíland og önnur ríki.
Erfitt að fá flutning ef samningur er ekki fyrir hendi
KEMUR OFT Í HLUT HEIÐURSKONSÚLA AÐ AÐSTOÐA ÍSLENDINGA SEM LENDA Í FANGELSI ERLENDIS