Morgunblaðið - 21.05.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
LAUGAVEGI 32 · SJADU.IS
SÍMI 561 0075
Full búð af nýjum og flottum gleraugum
KOMDU OG SJÁÐU
Kröftugur jarðskjálfti skók norð-
austurhluta Ítalíu í gærmorgun. Að
minnsta kosti sex manns létu lífið í
skjálftanum og tugir slösuðust alvar-
lega. Eignatjón vegna skjálftans er
gríðarlegt, en bæði heimili, verksmiðj-
ur og kirkjur eru gjöreyðilögð eftir
skjálftann sem mældist 6,0 stig.
Skjálftinn varð um nóttina og þús-
undir manna þustu út á götur í borgum
og bæjum á Emilia Romagna-svæðinu
á Norðaustur-Ítalíu. Fjölmennar
björgunarsveitir leituðu að fórnar-
lömbum í rústum bygginga, en vegna
nokkurra öflugra eftirskjálfta sem
urðu 1-2 klukkustundum eftir aðalsk-
jálftann voru aðstæður til leitarinnar
erfiðar.
Tjón á sögulegum byggingum
Fjórir hinna látnu voru vaktastarfs-
menn í verksmiðjum sem hrundu,
þeirra á meðal tveir sem urðu undir
þaki sem gaf sig í keramíkverksmiðju.
Meðal hinna látnu eru einnig 37 ára
gömul þýsk kona og rúmlega hundrað
ára gömul kona sem sögð er hafa látist
vegna áfalls.
Ljóst er að tjón á sögulegum bygg-
ingum og minnisvörðum er umtalsvert.
Margar fornar byggingar eru orðnar
að rústum einum, þar á meðal þrjár
kirkjur. Hundruð bíla krömdust undir
hrundum steinhleðslum. Fulltrúar al-
mannavarna fluttu hundruð eldri borg-
ara, sem vistaðir voru á elliheimilum, í
bráðabirgðaathvörf, þar sem þeir biðu
þess að hættuástandi yrði aflýst.
Að sögn ítalskra yfirvalda var
skjálftamiðjan í Finale Emilia, 36 kíló-
metra norðan við Bologna-hérað, en
dýpt hans var aðeins 5,1 kílómetri sem
þykir lítið miðað við öfluga skjálfta af
þessu tagi.
Skjálftans varð vart í 100 kílómetra
fjarlægð í Feneyjum, þar sem íbúar
hafa lýst því að þeir hafi fundið híbýli
sín skjálfa. Samkvæmt upplýsingum
frá utanríkisráðuneytinu hafa engar
vísbendingar borist um að Íslendingar
hafi slasast í jarðskjálftanum.
Gríðarlegt tjón varð í
öflugum skjálfta á Ítalíu
AFP
Öflugur Skjálftinn mældist 6,0 stig og voru sjúkrahús, skólar og elliheimili rýmd í öryggisskyni
A.m.k. sex fórust og tugir slösuðust alvarlega Margar byggingar rústir einar
6 dauðsföll áttu sér stað í
norðausturhluta Ítalíu, í þorpinu
Emilia-Romagna þar sem
skjálftinn mældist sterkastur.
Bologna
6.0 á richter Ferrara
Skjálftinn
á Ítalíu
RÓM
ÍTALÍA
50 km
Sextán ára göm-
ul stúlka lést
þegar sprengja
sprakk við skóla
í borginni
Brindisi á Ítalíu á
laugardag. Fimm
ungmenni særð-
ust auk þess al-
varlega.
Sprengjunni
hafði verið kom-
ið fyrir í ruslafötu við skóla í borg-
inni og sprakk hún rétt fyrir klukk-
an 8 að morgni þegar nemendur
voru á leið í skólann. Lögreglan
vinnur nú að rannsókn málsins að
sögn fréttastofunnar AFP. Grunur
leikur á að mafían standi á bak við
tilræðið, en skólinn er í hverfi þar
sem Unita-mafían ræður ríkjum.
16 ára stúlka lést og
5 slösuðust í
sprengjutilræði
Áfall Fólk syrgir
um alla Ítalíu.
ÍTALÍA
Þjóðernissinninn Tomislav Nikolic
var kjörinn forseti Serbíu um
helgina. Hann vann nauman og
óvæntan sigur á Boris Tadic sem
hefur verið forseti landsins síðastlið-
inn áratug. Kannanir höfðu sýnt að
Tadic hefði um 58% fylgi en Nikolic
tók fram úr honum á lokasprett-
inum. Talið er að loforð Nikolic, sem
eitt sinn var bandamaður Slobodans
Milosevic, um að tryggja Serbíu að-
ild að Evrópusambandinu hafi ráðið
miklu um úrslitin. Serbía sótti form-
lega um aðild í mars á þessu ári.
Nocolic sagðist vilja ljúka þeirri veg-
ferð sem forveri hans hóf og tryggja
fullan samruna við ESB, en einnig
leysa efnahagsvandann sem þjóðin
glímir við um þessar mundir.
Þrautseigur Nikolic sigraði loks í
þriðju atlögu að forsetaembættinu.
Þjóðernissinni
sigraði óvænt
SERBÍA
AFP
Réttarhöld vegna málaferla
Tchenguiz-bræðra gegn efnahags-
brotadeild bresku lögreglunnar
(SFO) munu hefjast í vikunni, að því
er fram kemur á vef Telegraph. Með-
al þeirra saka sem bræðurnir bera á
efnahagsbrotadeildina eru meintar
ólögmætar húsleitir sem fram-
kvæmdar voru í húsakynnum þeirra
bræðra í mars á síðasta ári. Lög-
reglan hefur síðan beðist afsökunar
á aðgerðunum vegna óáreiðanleika
þeirra upplýsinga sem húsleitar-
heimildirnar voru byggðar á. Efna-
hagsbrotadeildin hætti rannsókn
sinni á málum bræðranna snemma á
þessu ári, en fram hefur komið að
SFO hafi boðið þeim að málið yrði
látið niður falla gæfu þeir 50 millj-
ónir punda til góðgerðarmála. Að
öðrum kosti gæti rannsóknin tekið
5-10 ár. Ástæða rannsóknarinnar
var meðal annars grunur um ólög-
mætar lántökur Roberts Tchenguiz
hjá Kaupþingi. Krafa bræðranna
nemur milljónum punda. Samkvæmt
upplýsingum af breska fjármála-
vefnum This is Money er búist við að
bræðurnir muni gera kröfu í
þrotabú Kaupþings, en áður hefur
kröfu þeirra um tveggja milljarða
greiðslu úr þrotabúinu verið hafnað.
Í hefndarhug Bræðurnir fullyrða að málaferlin muni „leiða niðurlægjandi
upplýsingar um bresku efnahagsbrotadeildina í ljós“.
Málsókn Tchenguiz-
bræðra fyrir dóm
„Ég vaknaði við skjálftann um
fjögurleytið í nótt, þá hristist allt
heimilið,“ segir Emil Hallfreðsson,
atvinnumaður í fótbolta sem er
búsettur í Veróna á norðanverðri
Ítalíu, í um 150 kílómetra fjarlægð
frá þungamiðju skjálftans. „Þetta
var talsverður hristingur, og svo
fann maður smávegis fyrir eftir-
skjálftunum sem fylgdu,“ segir
Emil, sem leikur
með liðinu Hellas
Verona. Hann
segir íbúa Veróna
fylgjast náið með
fréttum af
skjálftanum og
fátt annað sé
rætt manna á
milli.
„Heimilið hristist“
SKJÁLFTINN FANNST Í 150 KM FJARLÆGÐ
Emil Hallfreðsson