Morgunblaðið - 21.05.2012, Page 23
leiklistinni um skeið, starfar sjálf-
stætt við menningarráðgjöf og er
framkvæmdastjóri Arkitektafélags
Íslands.
Félagsstörf
Hallmar var fulltrúi nemenda í
stjórn Dramatiska Instituted,
fulltrúi D.I. í Nordiskt scenskoleråd,
í stjórn Íslendingafélagsins í Stokk-
hólmi. Þá var hann í skólanefnd
Leiklistarskóla Íslands, í stjórn
Sænsk – íslenska félagsins í Reykja-
vík, í fulltrúaráði Listahátíðar í
Reykjavík, í stjórn Leiklist-
arsambands Íslands, í stjórn Félags
leikstjóra á Íslandi (lengstum for-
maður eða gjaldkeri). Hann var einn-
ig stjórnarformaður Stak ehf.,
fulltrúi nemenda í Háskólaráði Við-
skiptaháskólans á Bifröst. Hann hef-
ur setið í nokkrum fagráðum við út-
hlutun styrkja á vegum
Menningarmálanefndar Reykjavík-
urborgar (síðast formaður fagráðs
2007). Hann var fulltrúi Reykjavík-
urborgar í samráðsnefnd um starf-
semi leikhópa í Borgarleikhúsinu, sat
í ýmsum samningarnefndum, m.a.
fyrir Félag leikstjóra á Íslandi og
Ríkisútvarpið. Hann var formaður
kynbótanefndar Sörla og Sóta, for-
maður fræðslunefndar Sörla, hefur
annast ýmis dómnefndarstörf, s.s.
vegna í leikritasamkeppni EBU
vegna Prix Europa í Berlín í þrjú ár
og í dómnefnd 2008 vegna framlags
Íslands til Norrænu leikskáldaverð-
launanna.
Hallmar og hestarnir
Hallmar ólst upp við hesta-
mennsku föður síns og erfði áhuga
hans hestum. Hann hefur haldið
hesta nánast alla tíð en þau hjónin
eru með hesthús í Hafnarfirði og að-
stöðu í Borgarfirði fyrir útbeit og úti-
göngu.
Þá má geta þess að Hallmar hefur
verið gæðingadómari á hestamótum.
Þau hjónin eiga sumarhús í Hey-
holti í Borgarfirði þar sem Hallmar
málar og þau njóta náttúrunar.
Fjölskylda
Eiginkona Hallmars er Sigríður
Sigþórsdóttir, f. 30.6. 1953, arkitekt.
Foreldrar hennar: Sigþór Þór-
arinsson, látinn, bóndi og hreppstjóri
í Einarsnesi í Borgarhreppi í Mýr-
arsýslu, og Sigríður Guðmunds-
dóttir, húsfreyja en þau eru bæði lát-
in.
Dóttir Hallmars og Sigríðar er
Herdís, f. 10.9. 1972, lögmaður í slit-
astjórn Landsbankans, búsett í
Kópavogi en maður hennar er Magn-
ús Orri Schram og er dóttir hennar
Sigríður María Egilsdóttir en sonur
Herdísar og Magnúsar Orra er Hall-
mar Orri Schram.
Systkini Hallmars: Katrín, f. 1.9.
1957, söngkona og söngkennari og
minkab. í Ásaskóla í Gnúpverja-
hreppi en maður hennar Stefán Guð-
mundsson, söngvari, söngkennari og
minkab.; Aðalbjörg, f. 23.2. 1964,
læknaritari, búsett á Húsvík, en
maður hennar er Ragnar Emilsson
rafvirki.
Foreldrar Hallmars eru Sigurður
Hallmarsson, f. 24.11. 1929, fyrrv.
skólastjóri og fræðslustjóri, og Her-
dís Kristín Birgisdóttir, f. 15.7. 1926,
húsfreyja, þau eru búsett á Húsavík.
Úr frændgarði Hallmars Sigurðssonar
Jón Helgason
vkm. á Húsavík
Herdís Benidiktsdóttir
frá Auðnum
Kristín Jónsdóttir
húsfr. á Túnsbergi
Steingrímur Jónsson
b. á Túnsbergi.
Jóhanna Jóhannsdóttir
húsfr, á Húsavík
Sigurður Jónsson
b. á Hrafnsst. í Kölduk.
Guðrún Marteinsd.
af HraunkotsættHallmar
Sigurðsson
Sigurður Hallmarsson
fv. skólastj. og fræðslustj. á Húsavík
Herdís Birgisdóttir
húsfr. á Húsavík
Birgir Steingrímsson
skrifstofum. KÞ á Húsavík
Aðalbjörg Jónsdóttir
húsfr. á Húsavík
Jónina K. Sigurðard.
húsf. á Húsavík
Hallmar Helgason
sjómaður á Helgast. á Húsavík
Helgi Flóventsson
sjóm. eftirherma og skemmtikr. á Húsavík
Guðrún Steingrímsdóttir
söngkona á Húsavík
Jóna Helgadóttir
form.Verkakvennafél. Húsav.
Kristrún Helgad.
form. kvennréttindafél. Nönnu
Hallmar Sigurðsson
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
85 ára
Hulda Þorsteinsdóttir
Pernille Alette Hoddevik
80 ára
Edda Helgadóttir
Örn Helgason
75 ára
Sigrún I. Karlsdóttir
70 ára
Grímur Markússon
Hrefna H. Hagalín
Sonja Sofie Danielsen
60 ára
Anna Sigurbjörg
Sigurðardóttir
Björg Jónasdóttir
Hallmar Sigurðsson
Haraldur Guðmundsson
Martin Leonard Grabowski
Páll Gunnlaugsson
Víglundur Þorsteinsson
50 ára
Aðalheiður Eiríksdóttir
Anna Eðvarðsdóttir
Anna Þóra Gísladóttir
Björn Rúnar Albertsson
Guðm. A. Hermannsson
Guðný Björk Eydal
Hafþór Björgvin Jónasson
Hjördís Harðardóttir
Hlynur Vigfús Björnsson
Jónína Valgerður
Reynisdóttir
Sigurlaug B. Arngrímsdóttir
Snæbjörn Jónsson
Súsanna S. Forberg
40 ára
Bjarni Sigurður Ásgeirsson
Bjarni Þorsteinsson
Brynja Bergsveinsdóttir
Guðný Sigríður Björnsdóttir
Helgi Már Björnsson
Hilmar Ágústsson
Hulda Björg Jóhannesdóttir
Jón Björnsson
Kristinn Hallur Sveinsson
Linda Mary Stefánsdóttir
Magnús Sæmundsson
Sif Ásthildur Guðbjarts-
dóttir
Skúli Þórðarson
Snjólaug Elín Árnadóttir
30 ára
Avia Diane Earle
Bjarni Aðalgeirsson
Bryndís Ester Ólafsdóttir
Eyrún Ólöf Sigurðardóttir
Hildur Jana Júlíusdóttir
Hilmar H. Guðmundsson
Hrund Jóhannsdóttir
Ingvar Helgason
Jón Gunnarsson
Karen Ósk Sigþórsdóttir
Magnús Björnsson
Svala Bergmann Hjalta-
dóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sigfús ólst upp á
Laxárdal. Hann starfar
sem tæknimaður hjá
tölvu- og rafeindaþjón-
ustu Suðurlands og nem-
ur kerfisfræði við HÍ.
Maki Helena Steinþórs-
dóttir, f. 1984, grunn-
skólakennari.
Sonur Hrafnkell Máni, f.
2010.
Foreldrar Hörður Harð-
arson, f. 1953 og María
Guðný Gunnarsdóttir, f.
1953, bændur á Laxárdal.
Sigfús
Harðarson
30 ára Snædís Scheving
Aðalsteinsdóttir fæddist á
Egilsstöðum en ólst upp á
Reyðarfirði. Hún er nemi í
þroskaþjálfafræði við HÍ.
Maki Óli Valur Guð-
mundsson, f. 1980, hús-
gagna- og húsasmiður.
Sonur Hlynur Örn Óla-
son, f. 2010.
Foreldrar Anna Björg
Björnsdóttir, f. 1961, og
Aðalbjörn Scheving, f.
1953, d. 2009.
Snædís S.
Aðalbjörnsdóttir
Torfi Hjartarson, tollstjóri ogríkissáttasemjari, fæddist áHvanneyri í Borgarfirði 21.
maí 1902. Foreldrar hans voru Hjört-
ur Snorrason alþm., skólastjóri á
Hvanneyri og bóndi á Skeljabrekku
og í Arnarholti í Stafholtstungum, og
k.h., Ragnheiður húsfreyja.
Hjörtur var sonur Snorra, b. á
Skerðingsstöðum, bróður Sigríðar,
langömmu Jóns M. Samsonarsonar
handritafræðings.
Meðal systkina Ragnheiðar var Ás-
geir efnaverkfræðingur, Markús, b. í
Ólafsdal, og Áslaug, móðir Ragnars
H. Ragnar tónlistarmanns. Ragn-
heiður var dóttir Torfa, skólastjóra í
Ólafsdal Bjarnasonar.
Bræður Torfa Hjartarsonar voru
Snorri, skáld og bókavörður, og Ás-
geir, kennari og bókavörður. Börn
Torfa og k.h., Önnu Jónsdóttur hús-
móður: Hjörtur, fv. hæstaréttardóm-
ari; Ragnheiður, kennari og fv. rektor
Menntaskólans í Reykjavík, Sigrún,
sem var húsmóðir í Kanada, og Helga
Sóley, hjúkrunarfræðingur í Reykja-
vík.
Torfi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1924,
embættisprófi í lögfræði frá Háskóla
Íslands 1930 og dvaldi í London við
framhaldsnám 1930-31.
Torfi naut mikils trausts sem
traustur og vandaður embættis-
maður, enda tollstjóri í Reykjavík á
árunum 1943-72, sáttasemjari á sama
tíma frá 1945 og til sjötíu og átta ára
aldurs og oddviti yfirkjörstjórnar við
bæjarstjórnarkosningar í Reykjavík
á árunum 1949-70. Þá kom hann eitt
sinn sterklega til greina sem borg-
arstjóraefni sjálfstæðismanna og sem
ráðherra í utanþingsstjórn. Hann
varð fyrsti formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna sem var
stofnað 27. júní 1930 og hélt eft-
irminnilega ræðu á afmæli SUS á
Þingvöllum, 1990. Þar mælti hann
skörulega gegn ESB-aðild og sagði
Íslendinga ekki hafa brotist undan
Dönum til að láta þá stjórna sér aftur
í gegnum Brussel.
Torfi var látlaus og hressilegur í
viðmóti, hélt góðri heilsu fram á elliár
og ók eins og herforingi sínum hálfrar
aldar gamla Willys-jeppa, er hann
sjálfur var kominn á tíræðisaldur.
Hann lést 8. október 1996.
Merkir Íslendingar
Torfi
Hjartarson
Torfi Hjartarson.
30 ára Ástmar Reynisson
er borinn og barnfæddur
Hafnfirðingur. Hann starf-
ar nú sem aðstoðarverk-
efnisstjóri hjá íþrótta- og
tómstundanefnd Hafn-
arfjarðar.
Maki Íris Ósk Jónsdóttir,
f. 1991, nemi.
Foreldrar Halldóra María
Gunnarsdóttir, f. 1957,
stuðningsfulltrúi á sam-
býli og Einar Guðnason, f.
1958, bílamálari.
Ástmar
Reynisson
112 Grafarvogi - Sími: 586 1000 - www.husgogn.is
Kojur íbjarga málunum
Margar stærðir og gerðir af kojum og rúmum,
litlum og stórum, breiðum og mjóum
fyrir barnaherbergið og sumarbústaðinn!
Sérverslun með kojur og fylgihluti
Vefverslun
husgogn.is
erum á
Facebook
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón