Morgunblaðið - 21.05.2012, Qupperneq 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er tíminn til þess hafa samband
við vini og vandamenn, einkum þá, sem þú
hefur ekki séð lengi. Einfaldleikinn er best-
ur.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kynnist mörgum í starfi þínu og
þarft að muna að ekki eru allir viðhlæjendur
vinir. Þú ert til í að leggja ýmislegt á þig
fyrir ástina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu það ekki slá þig út af laginu,
þótt einhverjir vilji fara hraðar í hlutina, en
þú telur við hæfi. Þú ert á þeim stað í lífinu
að þig þyrstir í ævintýri.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Listrænar hugmyndir fanga athygli
þína í seinni tíð. Fátt jafnast á við lestur
góðrar bókar þegar hvíldar skal njóta.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur yndi af skáldsögum og lætur
þig dreyma um að skrifa eina sjálf/ur.
Sinntu skáldagyðjunni í þér. Þú hefur engu
að tapa?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Óvæntir atburðir á fjármálasviðinu
koma þér á óvart en þú getur gefið þér
tíma til að gera þér mat úr stöðunni. Not-
aðu tækifærið til að skella þér í fjallgöngu
ef veður leyfir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur mikla þörf fyrir vináttu. Ein-
hver á eftir að sýna raunverulegan styrk
sinn í erfiðu máli. Mundu að borða reglu-
lega, ekki bara á kvöldin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er alltaf auðveldara, þegar
einhver eða einhverjir halda um hlutina með
manni. Magn er ekki sama og gæði. Vand-
aðu orðaval þitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Valdabarátta getur gert það að
verkum að þú finnir til máttleysis í dag.
Kannaðu fjárhaginn og sjáðu hvað er á þínu
færi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú stendur eins og klettur í öllu
því róti sem í kringum þig er. Vertu bara
þakklát/ur og mundu að sönn vinátta snýst
um það að gefa og þiggja.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Í dag viltu vera umvafinn fólki
sem gerir ekki rellu út af smámunum. Dag-
draumar þínir gætu hlaupið með þig í
ógöngur, hugsaðu áður en þú framkvæmir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það getur reynst þér heilladrjúgt að
eiga góða trúnaðarvini. Sýndu skoðunum
annarra virðingu þótt þú sért ósammála
þeim. Einhver slær þig út af laginu í stutta
stund í dag.
ÍLögbergi birtust árið 1937 vísureftir Konráð Gíslason. Þar er
vitnað í dr. Jón Þorkelsson þjóð-
skjalavörð þar sem hann segir að
Konráð hafi verið meira skáld en
margur hver, sem fyllti dagblöðin
með kvæðum eða léti eftir sig heilar
ljóðabækur – en hann orti sjaldan
og þá einungis í kátínu á yngri ár-
um, þegar hann var í sínum hóp. Er
því margt af vísum hans, þótt þær
séu vel gerðar, svo lagað að þær
eru ekki ætlaðar til að verða prent-
aðar. Dr. Jón telur óþarft að láta
vísur Konráðs niður falla með öllu.
Fyrsta vísan er um Shiesby skóara
og kann ég engin deili á honum:
Ef þú djöflast upp á mig
með eitraðan skollafingur
sjálfur fjandinn sæki þig
Shiesby skó-gyðingur.
Síðan segir: „Árið 1833 lögðu
þeir Jón Sigurðsson (forseti d.
1879) og Skafti Timotheus Stef-
ánsson (d. 1836) frá Íslandi til
Kaupmannahafnarháskóla um
Mikjálsmessuskeið og tóku sér far
með Flensborgarskipi. Þeir fengu
útivist langa og náðu ekki til Kaup-
mannahafnar fyrri en undir jól um
veturinn. Voru menn þá farnir að
telja þá af fyrir löngu og héldu að
skipið mundi hafa farist. Um það
kvað Konráð:
Á sjávarbotni sitja tveir
seggir í andarslitrum
aldrei komast aftur þeir
upp úr hrogna-kytrum.
Sjávarbylgjur belja oft,
bragnar niðri hljóða,
aldrei sjá þeir efra loft
ellegar ljósið góða.“
Skafti Timotheus Stefánsson var
aðeins 27 ára gamall þegar hann
drukknaði í Holmens kanal 8. apríl
1836 – „og hefir Ísland ekki nýlega
misst betra eður efnilegra son í
blóma aldurs síns“, skrifaði Tómas
Sæmundsson í Fjölni. Í skýringum
með Saknaðarljóði Jónasar Hall-
grímssonar segir í útgáfu „Svarts á
hvítu“, að þeir Skafti hafi verið
bræðrasynir og að þessi atburður
hafi valdið því, að Jónas yrkir kvæð-
ið; bæði er mannlýsing Skafta
þungamiðja kvæðisins og af 4. er-
indi má ráða að við fráfall Skafta
hefur hugmyndin að kvæðinu kvikn-
að þegar Jónasi verður hugsað til
allra þessara efnismanna sem Ísland
hefur misst.
Þetta er 9. erindið:
Það man ég yndi
öðru meira
er við Skafta
skilning þreyttum
eður á vænum
vinafundi
góða, geðspakur,
á gleði jók.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á sjávarbotni sitja tveir
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
HVAÐ
HELDURÐU AÐ
HAFI KOMIÐ
FYRIR MIG?
LÁTTU
MIG
ÞEKKJA
ÞAÐ
HENNI LÍKAR VEL VIÐ MIG!
HENNI LÍKAR VEL VIÐ MIG! HÚRRA!
GÓÐA NÓTT
GÓÐA NÓTT
GÓÐA NÓTT
ÉG HEF BÆTT Á
MIG 30 KÍLÓUM Á
TVEIMUR MÁNUÐUM
ÉG ER
ANDSTUTTUR...
MIG SVIMAR OG
FÖTIN MÍN
PASSA EKKI
LENGUR Á MIG
VERTU ALVEG
HREINSKILINN VIÐ
MIG LÆKNIR
ÆTTI
ÉG AÐ FARA Í
MEGRUN?
VIÐ ERUM VILLT,
MATARLAUS OG
ÞAÐ ER ALDREI AÐ
VITA HVENÆR
JÓLASVEINNINN
FINNUR OKKUR.
EITTHVERT OKKAR
VERÐUR AÐ FÓRNA
SÉR SVO VIÐ
GETUM LIFAÐ AF
EFTIR UPPHEFÐ RÚDÓLFS ÞÁ URÐU
HREINDÝRIN AÐ FINNA SÉR EINHVERN
ANNAN TIL AÐ LEGGJA Í EINELTI
GÓÐA NÓTT
Tími garðeigandans er að rennaupp. Byggingavöruverslanir og
blómaræktendur keppast um að
auglýsa allt fyrir garðinn og inn um
lúguna hrynja allskonar bæklingar
og auglýsingar. Víkverji var einmitt
að glugga í slíkt auglýsingaefni um
daginn og fylltist valkvíða því á
hverri síðu var eitthvað sem hann
taldi sig bráðvanta, allt frá laufhrífu
til útisófasetta.
x x x
Bestu stundirnar á Víkverji í garð-inum sínum, með fingurna á
kafi í mold eða með hönd á hrífu.
Fátt gefur meiri hugarró, að mati
Víkverja, en að koma sér vel fyrir
úti í beði og reyta illgresi eða róta í
mold með fingrunum.
En nú er höggormur kominn í
Paradís. Hin síðari ár hefur geit-
ungum fjölgað verulega. Víkverja er
ekkert sérlega uppsigað við geit-
ungana en það er ekki gagnkvæmt.
Tók svo steininn úr í fyrra þegar
þeir gerðu sér bú á stærð við hand-
bolta í áhaldakofa sem stendur í
einu horni garðsins. Efninu í búið
stálu þessi óargadýr úr grindverki í
garði Víkverja og í kyrrlátu veðri
mátti heyra skrapið í þeim við
verknaðinn. Búið var hins vegar
mikil listasmíð. Umferðin til og frá
búinu var gífurleg og enginn fjöl-
skyldumeðlimur vogaði sér í það
horn garðsins. Kallaður var til mein-
dýraeyðir sem fölnaði upp þegar
hann leit herlegheitin og sagði að
þarna væri líklega um að ræða holu-
geitunga og þeir væru skaðræð-
iskvikindi. Þeir væru árásargjarnir
og stungur þeirra væru sársauka-
fullar. Fóru leikar svo að búinu var
eytt.
x x x
Víkverji hafði bundið vonir við aðkrossmessuhretið hefði kannski
gengið af þessum kvikindum dauð-
um, en líklega hefur honum ekki
orðið að þeirri ósk sinni því nú þeg-
ar hafa nokkrir geitungar sýnt sig.
Baráttunni um yfirráðin í garðinum
er því líklega ekki lokið.
En nú mætir Víkverji betur búinn
til leiks en áður því hann fjárfesti í
endurhlaðanlegum rafmagnsflugna-
spaða svo nú mega geitungarnir
fara að vara sig. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir
yðar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
NÝ
www.avon.is
Glæsileg heimasíða og vefverslun
Frábær opnunartilboð
Skráðu þig á póstlista
www.avon.is
Þú gætir dottið í lukkupottinn
og unnið Avon Gjafabréf að
verðmæti 10.000 kr.
Nýjir sölufulltrúar velkomnir!
Þær sem gerast sölufulltrúar
fyrir 11. maí fá glæsilegar gjafir.
Sjá nánar á www.avon.is
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Baðolían frá AVON er komin aftur.
Baðolían sem beðið
hefur verið eftir!