Morgunblaðið - 21.05.2012, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 142. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Aftur á forsíðu Playboy
2. Hent fram af svölum á 4. hæð
3. Banaslys í Skorradal
4. Á gjörgæslu eftir líkamsárás
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sýning á verkum eftir þýsk-
svissneska listamanninn Dieter Roth
verður opnuð í Galleríi Fold á föstu-
daginn kemur kl. 17-19. Sýnd verða
grafíkverk og verk unnin með bland-
aðri tækni.
Sýning á verkum
Dieters Roths
Myndbands-
verk, sem er upp-
taka af tólf
klukkustunda
löngum óp-
erugjörningi
Ragnars Kjart-
anssonar, Bliss,
verður sýnt í fullri
lengd á tjaldi á
stóra sviði Þjóðleikhússins í dag frá
klukkan tólf á hádegi til miðnættis.
Gestir geta komið og farið að vild
meðan á sýningunni stendur.
Tólf stunda langur
gjörningur sýndur
Sópransöngkonan Hallveig Rún-
arsdóttir og píanóleikarinn Antonía
Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna
á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norð-
urljósasalnum á morg-
un, þriðjudag, kl.
12.15. Þetta eru síð-
ustu hádegis-
tónleikarnir hjá Ís-
lensku óperunni
í vor. Aðgangur
að tónleik-
unum er
ókeypis.
Hallveig syngur
Stúlkuna á heiðinni
Á þriðjudag Austan og suðaustan 8-13 m/s. Rigning, einkum suð-
austanlands en þurrt á Norðausturlandi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast
norðaustantil á landinu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 3-9 m/s, en 11-17 við
suður- og suðausturströndina. Rigning sunnan- og austanlands.
Hiti 4 til 14 stig, hlýjast suðvestantil.
VEÐUR
Nýliðar Skagamanna héldu
sigurgöngu sinni áfram í
Pepsi-deild karla í knatt-
spyrnu. Þeir tóku á móti
Kelflvíkingum og fóru með
sigur af hólmi, 3:2, þar sem
Garðar Gunnlaugsson skor-
aði sigurmarkið á lokamín-
útu leiksins. Akurnesingar
hafa þar með unnið alla
fjóra leiki sína á Íslands-
mótinu og tróna í toppsæti
deildarinnar. »2-5
Skagamenn á
mikilli siglingu
Chelsea-menn eru enn í sigurvímu
eftir fyrsta sigur liðsins í Meistara-
deild Evrópu. Lundúnaliðið vann Bay-
ern München í dramtatískri
víta-
spyrnu-
keppni í
München
þar sem
Petr Cech
og Didier
Drogba voru
hetjur liðs-
ins. »7
Cech og Drogba tryggðu
Chelsea Evrópubikarinn
Þórsarar eru einir á toppi 1. deildar
karla í knattspyrnu eftir tvær um-
ferðir en þeir lögðu Þrótt á heimavelli
sínum um helgina. KA-menn gerðu
góða ferð til Reykjavíkur þar sem þeir
höfðu betur gegn Leiknismönnum og
nýliðar Hattar náðu jafntefli gegn
Haukamönnum fyrir austan. Hjörtur
Júlíus Hjartarson var svo hetja Vík-
inga í sigri gegn ÍR-ingum. »8
Þórsarar byrja vel í 1.
deildinni í fótbolta
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Hjónakornin Barrie og Bungon O’Sul-
livan giftu sig við hátíðlega athöfn í
Kópavogskirkju síðastliðinn laugar-
dag. Þetta væri raunar ekki frásögur
færandi ef ekki væri fyrir það að þetta
er fimmta brúðkaup þeirra hjóna á
jafnmörgum árum. Barrie og Bungon
giftu sig fyrst í Taílandi, heimalandi
Bungon, fyrir fimm árum en síðan þá
hafa þau ferðast einu sinni á hverju ári
til þess að endurtaka leikinn. Þannig
hafa þau gifst á Íslandi, í Papúa Nýju-
Gíneu, Ástralíu og tvisvar í Taílandi.
Veisluhöld í hvert skipti
Að sögn Barries fagna þau brúð-
kaupsdeginum almennilega í hvert
skipti en að þessu sinni var brúð-
kaupsveislan haldin á veitingahúsinu
Lækjarbrekku. „Algjörlega. Við ger-
um þetta almennilega. Við keyptum
nýjan brúðarkjól á hana á Íslandi og
ég keypti mér virkilega falleg kjólföt,“
segir Barrie spurður hvort þau end-
urnýi brúðkaupsfötin í hvert skipti.
Hann bætir við að giftingarhringarnir
hafi einnig verið endurnýjaðir en
brúðurin fékk splunkunýjan demants-
hring fyrir brúðkaupið á Íslandi. Bar-
rie segir þau hjónin jafnframt fara í
nýja brúðkaupsferð eftir hvert brúð-
kaup. „Við förum um næstu helgi á
hótel uppi á íslenska hálendinu,“ segir
Barrie.
Spurður hvernig sú hugmynd að
gifta sig aftur á hverju ári hafi komið
til segir Barrie: „Við töldum að það
myndi vera mjög rómantískt að
giftast einu sinni á ári, fagna því
sem endurnýjun ástar okkar.
Okkur fannst þetta vera
dásamleg hugmynd og eitt-
hvað sem annað fólk gerir
ekki.“ Að sögn Barries
ferðast þau Bungon um með
stórt og fallegt kerti sem er
áletrað með nöfnum þeirra og
dagsetningu upphaflega brúð-
kaupsdagsins en þau kveikja á
því á hverju ári þegar þau gifta
sig að nýju. Hann segir þau hafa bæði
gifst í kirkjum og að búddista sið en
annað tveggja brúðkaupa þeirra í
Bangkok fór fram að sið búddista.
Uppáhaldsbrúðkaupið
„Enn sem komið er þá er þetta
brúðkaup í uppáhaldi,“ segir Barrie
spurður hvaða brúðkaup sé hans uppá-
haldsbrúðkaup. „Við fórum beint upp
að eldfjalli, við fórum allan gullna
hringinn og við höfum jafnframt
skemmt okkur vel á skíðasvæðunum
ykkar, við elskum skíðasvæðin,“ segir
Barrie og bendir á að þau hafi einnig
skoðað seli. „Einhver sagði við okkur
að það væru engir rostungar á Íslandi
en því er ég ósammála vegna þess að
við tókum myndir af tveimur rost-
ungum hér á Íslandi. Nema að hér séu
vampýruselir, þeir voru með mjög
stórar tennur.“
Gifta sig úti um heim allan
Barrie og Bungon O’Sullivan hafa gift sig fimm sinnum á jafnmörgum árum
Halda stórveislu í hvert skipti sem þau endurnýja ást sína hvort á öðru
Morgunblaðið/Ómar
Ástfangin Barrie og Bungon O’Sullivan giftast á hverju ári og fagna þannig endurnýjun ástar sinnar.
„Yfirleitt eru þetta vinir og vanda-
menn okkar vegna þess að vinnan
mín dregur mig út um allan heim
og því bjóðum við vinnufélögum,
vinum o.fl. til þess að fagna
með okkur,“ segir Barrie en
hann er fæddur á Írlandi
og starfar sem heilsu-
verndar- og umhverfis-
fulltrúi í olíu- og gasiðn-
aði.
Að sögn Barries
mættu 42 gestir á Lækj-
arbrekku síðastliðinn
laugardag til þess að
fagna nýjasta brúðkaupi þeirra
hjóna. „Lækjarbrekka er ynd-
islegur veitingastaður, yfir-
kokkurinn og starfsfólkið voru
dásamleg, maturinn var frábær og
að mínu mati framúrskarandi,“
segir Barrie um brúðkaupsveisl-
una.
Spurður hvort hann og Bungon
verði aldrei þreytt á þessu segir
Barrie: „Nei, við elskum að vera
saman.“ Hann segist ánægður
með athöfnina. Kópavogskirkju
segir hann einstaklega fallega,
sérstaklega að innanverðu.
Elska að vera saman
YFIRLEITT VINIR OG VANDAMENN SEM FAGNA MEÐ ÞEIM