Morgunblaðið - 25.05.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 25.05.2012, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 5. M A Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  121. tölublað  100. árgangur  SJÓARINN SÍKÁTI Í GRINDAVÍK EFLIST STÖÐUGT ALLRA HANDA AFÞREYING Á VESTFJÖRÐUM FJÖRLEGIR DAGAR 56 SÍÐNA FERÐABLAÐ FERÐASUMAR 2012 Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Vitað var í október af áformum lögreglu- mannanna, sem hafa verið kærðir til rík- issaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Í desember hófu þeir störf hjá lögmannstofu í hálfu starfi og minnkaði starfshlutfall þeirra jafnhliða hjá embættinu. Í samtali við verjanda Karls Wernerssonar kom fram að þegar lögmenn hefðu séð skýrsluna hefðu þeir áttað sig á tengslum skýrsluhöfunda við embætti sérstaks sak- sóknara og að þeir hefðu gert athugasemdir við hana eftir að þeir áttuðu sig á innihaldi hennar. Kostnaður við slit þrotabús Milesteone er kominn á þriðja hundrað milljóna króna, þar af er kostnaður við slitastjóra 76 milljónir. MVissu af áformum um eigin rekstur »14 Morgunblaðið hefur heimildir og gögn sem sýna að slitastjóri hefur haft góðan aðgang að gögnum frá Milestone sem sérstakur sak- sóknari hafði lagt hald á og einnig varpa þau mynd á samskipti embættisins og slitastjóra. Í minnisblaði til kröfuhafa sem slitastjóri vann um skýrsluna sem mennirnir unnu og Morgunblaðið hefur undir höndum segir: „Í grófum dráttum eru niðurstöður skýrslunnar þær að líklegt sé að Milestone ehf. hafi fjár- magnað afborganir og uppgreiðslu lána með ólögmætum hætti frá 30. nóvember 2007.“ Saksóknari gaf heimild  Saksóknari veitti slitastjóra aðgang að gögnum Milestone ehf.  Vissu í október af áformum lögreglumannanna að hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu Mikil mildi þykir að tveir erlendir ferðamenn, karl og kona, skyldu sleppa lifandi þegar brún Lágeyjar, sunnan Dyrhólaeyjar, hrundi undan þeim rétt fyrir hádegi í gær. Þau féllu með skriðunni nærri 40 metra niður í fjöruna. Fólkið var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Karlmaðurinn mun hafa fótbrotnað og konan meiðst á baki. Að sögn læknis á slysadeild í gær sluppu þau ótrúlega vel, engin merki voru um lífshættulega áverka innvortis eða á höfði. Ljósmynd/Jónas Erlendsson Hröpuðu rúma 40 metra þegar bjargbrúnin gaf sig  Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mik- ilvægi sjávar- útvegsfyr- irtækja fyrir borgina og van- metur áhrif hans á önnur fyrirtæki. Þetta segja stjórnendur sjávarútvegs- fyrirtækja í Reykjavík sem rætt var við um umsögn borgarráðs til atvinnuveganefndar Alþingis um kvótafrumvörp ríkis- stjórnarinnar. » 17 Skilur ekki mikil- vægi sjávarútvegs Baldur Arnarson baldura@mbl.is Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna van- efndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustig- inu í viðunandi horf. Meðal þeirra eru Signý Jóhann- esdóttir, formaður Stéttarfélags Vest- urlands, og Vil- hjálmur Birgisson, formaður Verka- lýðsfélags Akra- ness, sem telja stjórnvöld fela vandann með því að greiða með at- vinnulausum til fyrirtækja. Þá for- dæmir Vilhjálmur að hlutastarf skuli skerða tekjur at- vinnulausra, þvert á loforð ríkisstjórnarinnar í vor. Már Guðnason, formaður Verkalýðsfélags Suðurlands, sér engin merki um þá stórfelldu atvinnuppbyggingu sem boðuð var í stöðug- leikasáttamálanum. „Loforðin sem voru gefin hafa ekki verið efnd og það er lítið eða ekkert verið að gera. Hvaða aðgerðir eru í gangi til að stuðla að atvinnuuppbyggingu? Ég sé þær ekki. Það er allt frosið,“ segir Már. Óbreytt hlutfall atvinnulausra í þrjú ár Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir atvinnuleysi meðal félagsmanna sinna hafa haldist á bilinu 11-12% á síðustu þrem árum. „Þetta er fráleitt sú staða sem við viljum hafa uppi í þessum málum,“ segir Sigurður. Kristján G. Gunnarsson, formaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og ná- grennis, er hættur að trúa stjórnvöldum og lof- orðum þeirra í atvinnumálum. MVerkalýðsfélög krefjast starfa »6 Félögin telja sig svikin  Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda Spá ASÍ » Gert er ráð fyrir því í nýrri hagspá ASÍ að atvinnuleysi verði komið niður í 4,6% árið 2014. » Hagstofa Íslands segir að fara þurfi aftur til 1995 til að finna jafn mikið at- vinnuleysi og ASÍ spáir, ef hrunárin eru tekin frá. „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okk- ar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvins- son, forstjóri Samherja, um húsleit- ina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. maí sl. til Hæstaréttar Íslands. Hér- aðsdómur hafnaði þá kröfu Sam- herja um að húsleit og það að leggja hald á gögn sem Seðlabanki Íslands framkvæmdi hjá Samherja í lok mars sl. yrði dæmt ólögmætt og að Seðlabankanum yrði gert að skila aftur gögnum sem hald hefði verið lagt á. Þorsteinn Már sagði það hafa gert Samherja erfitt fyrir að þurfa að bíða vikum saman eftir að fá gögnin sem beiðni Seðlabankans um húsleit byggðist á. Þegar þau loks bárust urðu þeir Samherjamenn undrandi á útreikningum bankans. „Mér finnst það óhugnanlegt ef starfsmenn Seðlabankans reikna á þann hátt sem þarna er gert. Það hvarflar að mér að eitthvað annað búi að baki þegar maður sér hvernig þeir reikna,“ sagði Þorsteinn. »2 Kæra úrskurðinn  Forstjóra Samherja þykir óhugnanlegt ef starfsmenn Seðlabankans reikna eins og þeir gerðu í Samherjamálinu  „Með því að gefa forsætisráð- herra orðið um at- kvæðagreiðsluna urðu forseta Al- þingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli,“ seg- ir Halldór Blön- dal, fyrrv. forseti Alþingis, í grein í blaðinu í dag. Á fundi þingsins í gær hafi Jóhanna Sigurðardóttir tekið inn varamann og því borið að sitja þegj- andi í ráðherrastól sínum. »23 Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið Jóhanna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.