Morgunblaðið - 25.05.2012, Page 4

Morgunblaðið - 25.05.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Hjá Vodafone hafa fengist þær upplýsingar að tæknilega sé því ekkert til fyrirstöðu að leggja kaplana í veginn en hjá borginni fengust þær upp- lýsingar að þess hafi ekki verið krafist þar sem óvíst sé um eignarhald á veginum og það sé þægi- legra að leggja ofan í svörðinn. Í umsögn heilbrigð- iseftirlits borgarinnar segir að gæta þurfi að „óþarfa jarðraski,“ að umhverfisspjöll verði ekki á framkvæmdatíma „og að frágangur framkvæmda- svæða sé í sama eða betra horfi en fyrir var“. Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli Morgunblaðið/Styrmir Kári Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymla- sóttar sem berst með villiköttum í fóður. Fleiri bændur í Svarfaðardal og víðar hafa orðið fyrir tjóni. Dýralæknir og bændur hvetja til þess að villiköttum verði fækkað. Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir Norð- austurumdæmis, staðfestir að talsvert hafi borið á kattasóttinni í vor, mest þó í Svarf- aðardal. Tekið hefur verið sýni á einum bæ og ræktað og með því var umrædd sótt staðfest. Bogfrymill er einfrumungur sem í flestum til- vikum smitast í fé með villiköttum sem leita skjóls í fjárhúsum og skíta í heyið. Talið er að kettirnir smitist af fuglum eða nagdýrum. Bogfrymlasóttin veldur fósturláti þannig að ærnar bera dauðum lömbum en stundum kem- ur annað lambið dautt en hitt lélegt. Ólafur segir að ef bændum takist að láta lömbin lifa í tvo daga komist þau oft á legg. „Það hefur orðið verulegt tjón á nokkrum bæjum. Vanalega drepst mest hjá yngri ánum sem ekki hafa myndað ónæmi gegn þessu,“ segir Ólafur. Farið yfir málin að loknum sauðburði „Það er erfitt að horfa upp á að einn þriðji af tekjum búsins þurrkist upp á einu bretti,“ seg- ir Sigurður Bjarni á Brautarhóli um áhrif sótt- arinnar. Hann segir erfitt að rekja smitleiðina. Tekur fram að ekki sé köttur á bænum. Hins vegar sé alþekkt að villikettir séu í sveitum, dýr sem flakki á milli bæjar og reyni að finna sér skjól þegar kólnar. Hann segist hafa orðið var við fósturlát í fyrra og svo hafi eitthvað orð- ið til þess að smitið hafi magnast mjög í ár. Annað bú í Svarfaðardal varð illa úti í vor en langt er á milli og ólíklegt að smitið hafi borist þar á milli. Ólafur Jónsson segir að farið verði yfir þessi mál að loknum sauðburði og hugað að ráðum. Hann getur þess að erlendis hafi bólusetning verið reynd en slíkt bóluefni sé ekki til hér á landi. Þá megi ekki sofa á verðinum gagnvart fjölgun villikatta. Bóndi í Eyjafjarðarsveit segist hafa orðið var við fólk aki með ketti út í sveit og sleppi á víðavangi. Telur hann að þetta sé fólk í bæjum sem lendi í vandræðum með dýrin og vilji ekki kosta til að láta dýralækna aflífa þau. Það auki á villikattavandann. Segist hann hafa fangað fjölda villikatta í vetur og fargað. „Það þarf að gera allsherjar átak í fækka villiköttum hér í dalnum. Það er eina vörnin til lengri tíma litið,“ segir Sigurður Bjarni á Brautarhóli og bætir því við að til greina komi að láta bólusetja féð. Mikið tjón vegna villikattasóttar  Sníkjudýr sem berst í sauðfé með villiköttum veldur fósturláti  Bóndi í Svarfaðardal missti þriðjung lamba sinna  Bændur og dýralæknir vilja gera átak til að fækka villiköttum í sveitum Morgunblaðið/RAX Karað Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur. Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í gær að þeir Ann- þór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson skuli sæta gæsluvarðhaldi til 13. júní næstkomandi. Þeir voru ekki færðir í héraðsdóm heldur mætti dómari í fangelsið á Litla-Hrauni til að kveða upp úrskurðinn, sem þykir eins- dæmi. Gæsluvarðhaldsúrskurðirnir voru kærðir til Hæstaréttar. Það var lögreglan á Selfossi sem óskaði eftir gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna. Mennirnir eru grunaðir um að hafa veitt samfanga sínum á Litla- Hrauni áverka sem drógu hann til dauða. Lögmenn Annþórs og verjandi Barkar sendu frá sér sitt hvora yfirlýsinguna í gær vegna fréttaflutnings af málinu. Í yfirlýsingunum kemur m.a. fram að verjendum hafi ekki verið afhent nein rannsóknargögn og svo virðist sem fjöl- miðlar hafi haft greiðari aðgang að gögnum málsins en verjendurnir. Verjandi Barkar kveðst t.d. hafa verið við- staddur yfirheyrslu yfir skjólstæðingi sínum ásamt tveim- ur lögreglumönnum. Svo hafi skýrsla skjólstæðingsins verið lesin nánast orðrétt í fréttatíma. Í báðum yfirlýsingunum er bent á að samkvæmt skýrslu réttarmeinafræðings sé ekki hægt að fullyrða hvort blæð- ingin sem leiddi til andlátsins hafi verið af mannavöldum eða ekki. Báðir hinir grunuðu hafa neitað sök í málinu. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, sagði unnið á fullu að rannsókn málsins. Hann vildi ekki tjá sig um það frekar að öðru leyti en því að unnið væri í sam- ræmi við fyrirmæli sakamálalaga um að upplýsa mál og kanna allt sem horft gæti til sektar eða sýknu. gudni@mbl.is Hnepptir í gæsluvarðhald Morgunblaðið/Ómar Litla-Hraun Grunur leikur á að tveir fangar í fangelsinu hafi veitt samfanga sínum áverka sem leiddu til dauða.  Verjendur hinna grunuðu gagnrýna fréttaleka Ástþór Magnússon forsetaframbjóð- andi segir að skipulögð aðför hafi ver- ið gerð að framboði hans. Í ljós hafi komið að einn og sami einstakling- urinn falsaði allar þær undirskriftir sem reynst hafi falsaðar á með- mælendalistum fyrir framboð Ástþórs. Grunur vaknaði um að einhver nöfn á meðmæl- endalistum Ást- þórs Magnússonar hefðu verið skráð þar án vitundar viðkomandi ein- staklinga. Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykja- víkurkjördæma norður og suður, sagði að áður en listarnir væru vott- aðir væri kannað hvort viðkomandi meðmælandi væri kosningabær, orð- inn 18 ára, og hvort hann hefði mælt með fleiri en einum frambjóðanda. Hún sagði að við yfirferð á með- mælendalistum hefði komið í ljós að líklega hefði einn listinn verið skrif- aður með sama penna. Í ljós hefði komið að ótiltekinn fjöldi einstaklinga hefði verið á listum án þess að hafa skrifað á þá eigin hendi. Ástþór sagði að grunur hefði vakn- að varðandi þann sem safnaði „föls- uðu“ undirskriftunum. Maðurinn fór hringinn í kringum landið á kostnað Ástþórs. Hluti nafnanna sem hann skilaði var falsaður, að sögn Ástþórs. Segir nöfn meðmælenda vera fölsuð Ástþór Magnússon STÚDENTAGJAFIRNAR FÁST HJÁ JÓNI OG ÓSKARI Stúdentarósin 2012 úr 14 kt gulli kr. 19.900 Stúdentastjarnan 2012 úr 14 kt gulli kr. 16.500 Stúdentastjarnan /Silfur kr. 7.900 www.jonogoskar.is / Sími 5524910 / Laugavegur / Smáralind / Kringlan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.