Morgunblaðið - 25.05.2012, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 25.05.2012, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það hefur ver-ið einn afhelstu kost- um íslenskrar blaðaútgáfu að al- menningur hefur átt þar góðan að- gang og getað komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Þeir, sem reynt hafa að koma greinum sínum inn í blöð í nágrannalöndunum, vita að slíkt er þrautaganga, sem sjaldan ber árangur. Fastráðn- ir blaðamenn eða blaðamenn á sérstökum samningum og fast- ir pistlahöfundar sjá nánast al- farið um öll skrif sem þar ganga á prent. Undantekningarnar eru ein og ein grein eftir þjóð- þekkta menn sem viðkomandi blað telur sérstakan akk í að birta. Ríkisútvarpið, sem er í „þjóð- areign“, eins og Litla-Hraun og fiskimiðin, gefur eiganda sínum ekki sjálfsagðan aðgang að hljóðnemum sínum nema eftir sérstöku einhæfu vali, og stundar áróður sinn eins og sú „þjóðareign“ sé alls ekki til staðar. Sérstök ákvörðun var tekin þar á bæ að fella orðið „ríkis“ burt úr allri umfjöllun um stofnunina og nú er hún undantekningarlaust nefnd „RÚV“ af öllum starfsmönnum sem þar eru vistaðir. En ríki og ríkiseign er þó hið lögvarða heiti yfir „sameign þjóðar“, en það hugtak hefur raunar enga afmarkaða merkingu að lögum. Skatturinn sem fólk er lög- þvingað til að greiða til stofn- unarinnar er kallaður „þjón- ustugjald“ en ekki skattur og ætti því helst að greiðast af Samfylkingunni sérstaklega, eigi að taka það hugtak bók- staflega. Þótt dagblöðum hafi fækkað síðustu áratugina og þrengst hafi um þau blöð sem eru á markaði, eru þau enn mik- ilvægasti vettvangur almenn- ings til umræðu, þótt settar hafi verið nokkrar skorður á lengd birts texta. Knappari texti þarf ekki að draga úr gildi greina og oftast er boðið upp á að lengri útgáfa sé birt á net- miðli blaðsins þyki mönnum mikið liggja við að allt efni frá þeim fái birtingu. Netið er að verða sífellt virk- ari kostur fyrir fólk til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þótt margt sé óheflað og jafn- vel ógeðfellt í bloggheimum dæmir hið versta sig smám saman úr leik og annað sem þar birtist er um margt upplýsandi og fróðlegt og til fyrirmyndar. Í Morgunblaðinu í gær má nefna tvær greinar sem fara nokkuð gegn almennum rétt- trúnaði stundarinnar, þótt þar sé farið fram af kurteisi og hóf- semi. Greinarnar eru þó ólíkar að efni til þótt lög- menn skrifi þær báðar. Grein Ein- ars S. Hálfdán- arsonar fjallar um útlendinga á Íslandi og í lok hennar seg- ir: „Það tíðkast mjög nú um stundir að útvatna mannrétt- indahugtakið. Hver þjóð ræð- ur sínu landi líkt og hver fjöl- skylda íbúð sinni. Enginn á rétt á að flytja inn í autt her- bergi í annars húsi, hvað þá að krefjast framfærslu fjöl- skyldunnar. Íslensk lög og reglur og alþjóðlegir sátt- málar eiga að ráða hver hér sest að. Verði útlendingi á, þá eru það ekki meðfædd rétt- indi hans að neita flutningi til heimalands síns til að taka þar út refsingu. Það er líka af- bökun af versta tagi á mann- réttindahugtakinu að íslensk- um stjórnvöldum sé óheimilt að sannreyna aldur manns án samþykkis viðkomandi. Og það berst fljótt út, eins og nýjustu dæmin sanna, ef talið er auðvelt að hafa íslensk yf- irvöld, fjölmiðla og almenning að fíflum, raunar að athlægi. Að lokum þetta: Er ég einn um að finnast ógnvekjandi að menn komist svo auðveldlega hingað án gildra skilríkja? Er öryggisins gætt með sama móti á öðrum sviðum? Hver er, eða ætti að vera, ábyrgð skipa- og flugfélaga, eru þau stikkfrí“? Hin greinin, eftir Jónas Fr. Jónsson, er nefnd: Rannsók- arnefnd Alþingis á villigötum. Í greininni eru færð sterk rök fyrir þeirri yfirskrift, en henni lýkur með þessum orð- um: „Hlutlæg umræða um skýrslu RNA hefur verið tak- mörkuð, enda mikill spuni viðhafður við útgáfu hennar. Stjórnmálamenn gáfu henni gæðaeinkunn án þess að hafa haft tíma til að lesa hana og sama gerðu ýmsir álitsgjafar. Háskólamenn efndu til gagn- rýnislausrar umræðu, oft með starfsmenn eða ráðgjafa RNA sem ræðumenn. Hæsti- réttur var ein af fáum stofn- unum þjóðfélagsins sem með- tóku skýrsluna af fagmennsku og hefur m.a. sagt skýrum orðum að skýrsla RNA feli ekki í sér sönnun (mál 561/2010). Það myndi bæta greiningu og lær- dóm vegna fjármálakrepp- unnar 2008 ef þeir aðilar sem vilja ástunda gagnrýna hugs- un og vandaða heimildaöflun nálguðust skýrslu RNA á sama faglega hátt.“ Málefnalegar grein- ar, vel studdar rök- um, eru þýðing- armiklar fyrir þjóðmálaumræðuna} Orðið frjálst Þ að má helst ekki skrifa fréttir um það að einn viðurstyggilegasti glæpa- maður allra tíma hafi haft sérlegt dálæti á tilteknum tölvuleik og spilað hann í rúmt ár. Það er nefnilega til fólk sem hefur ákaflega gaman af téðum tölvuleik, það móðgast við slíkan frétta- flutning og tekur honum sem persónulegri árás. Þegar fjölmiðlar segja frá því að hundar af tiltekinni tegund ráðist ítrekað á bæði menn og dýr, þá er talað um en herferð gegn blásak- lausum skepnum og eigendum þeirra. Blaðamenn liggja einkar vel við höggi þegar einhvern langar í slag og það er vinsæl dægra- stytting að draga fjölmiðla og starfsfólk þeirra í hina og þessa dilka; vinstri, hægri og allt þar á milli og ýmislegt er tínt til í þessum tilgangi. Stundum er eitt eða annað grafið upp úr fortíð fólks og leitt að því líkum að það sem viðkom- andi gerði fyrir einhverjum árum hafi afgerandi áhrif á hvernig hann eða hún fjallar um málefni dagsins í dag. Við fáum að velja okkur forseta í júní. Blaða- og frétta- menn hafa að undanförnu legið undir ámæli úr ýmsum áttum fyrir að gera hinum eða þessum frambjóðand- anum of hátt undir höfði, eða fyrir að láta eins og ein- hverjir aðrir séu hreinlega ekki til. Einn dró framboð sitt til baka fyrir skömmu og sagði það m.a. vera vegna þess að fjölmiðlar hefðu ekki sinnt sér sem skyldi. Annar frambjóðandi segir að aðstaða tiltekins fjölmið- ils hafi verið misnotuð til að hygla öðrum frambjóðanda og enn annar kvartar undan því að fjölmiðlar leggi sig í einelti og reyni að telja fólki trú um að hann sé skrýtinn. Einhvern tímann hefði þetta verið kallað að skjóta sendiboðann. Fyrir 25 árum var pappírspésa nokkrum dreift í öll hús á stór-Hafnarfjarðarsvæðinu. Tilgangur útgáfunnar var að hvetja fólk til að kjósa Alþýðubandalagið í næstu þingkosn- ingum, einkum Ólaf Ragnar Grímsson sem var í 2. sæti á lista flokksins á Reykjanesi. Á for- síðu pésans blasti við mynd af ferskum og fríðum æskulýð, rjóðum í kinnum og ef minn- ið svíkur ekki, þá var myndin tekin í eindæma veðurblíðu skammt frá Kópavogskirkju. Undirrituð var í þessum hópi (þrátt fyrir að vera ekki komin með kosningarétt) og telur sér skylt að játa þetta athæfi hér og nú, þar sem ekki er ólíklegt að stór hluti starfa minna á næst- unni muni snúast um kosningabaráttuna og forsetakosn- ingarnar. En kannski er ekkert tilefni til svona játninga þar sem þetta segir ekkert um það hvaða skoðun ég hef á þeim sem eru að bjóða sig fram til forseta núna. Ekki frekar en þátttaka forsetaframbjóðenda í ungliðastarfi stjórn- málaflokks fyrir 20 árum eða svo er óræk sönnun þess að viðkomandi sé viljalaust handbendi viðkomandi flokks. P.S.: Ef einhver er svo stálheppinn að hafa varðveitt þennan bækling, þá er ég sauðslega ungmennið með gleraugun í fremstu röð. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Sauðslega ungmennið anno 1987 STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is K irkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarða- sambands Íslands (KGSÍ) og for- stjóri Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæma. Á aðalfundi KGSÍ sem fór fram 12. maí sl. var lýst yfir áhyggjum af minnkandi framlagi ríkisins til kirkjugarðanna. Kostnaður við greftranir er nú meiri en þær tekjur sem koma frá ríkissjóði. Kirkjugarð- arnir eru fjársveltir og er framlagið til þeirra vel undir meðalframlagi til annarra opinberra stofnana innan innanríkisráðuneytisins. Á árinu 2005 tók gildi nýtt sam- komulag milli kirkjugarða landsins og ríkisins um hvernig staðið yrði að framlagi ríkisins til kirkjugarðanna. Tekið var upp nýtt fyrirkomulag sem gerði ráð fyrir einingaverði, annars vegar var einingaverð fyrir umhirðu á fermetra og hins vegar fyrir hverja gröf sem tekin var, bæði kistugrafir og duftgrafir. Miklar skerðingar voru gerðar á einingaverðinu á árunum 2008 og 2009 og hefur það ekkert hækkað, en byggingavísitalan hefur aftur á móti hækkað um 30% á sama tímabili. ,,Kirkjugarðar Reykjavíkur- pófastdæma skiluðu halla á rekstri sínum í fyrsta skipti á síðasta ári, en undir þá fellur yfir helmingur af kirkjugörðum landsins þ. á m. Foss- vogskirkjugarður og Gufunes- kirkjugarður. Kirkjugarðar Reykja- víkurprófastsdæma hafa verið með svipuðu sniði allt frá 1932 og hafa því verið starfræktir í 80 ár án halla,“ segir Þórsteinn og bætir við að það stefni einnig í mikinn halla fyrir árið 2012. Niðurskurður ,,Við höfum skorið niður á öllum sviðum kirkjugarðanna. Sem dæmi eru sumarstarfsmenn einungis um 130 í dag en voru áður vel yfir 200,“ segir Þórsteinn. Þá hefur ekki verið ráðið í þær stöður sem menn hafa hætt í, meðalaldur vinnuvéla í garð- inum er orðinn vel yfir 10 ár og end- urnýjunarþörf er orðin mjög mikil bæði á vélunum sem og húsnæði kirkjugarðanna. ,,Viðhaldsþörf tækja og fasteigna er farin að segja til sín og það verður að gera eitthvað í þessu,“ segir Þórsteinn. Kirkjugarðar úti á landi eru að lenda í sömu stöðu. ,,Þau geta ekki greitt verktökum fyrir graftökuna með tekjunum frá ríkinu, því þær eru mun lægri en það sem verktak- inn óskar eftir að fá,“ segir Þór- steinn. Þar spilar inn í hækkun olíu- gjalda og aðrar hækkanir, án hækkana á einingaverði til kirkju- garðanna. Staðan í raun og veru Fjárlaganefnd afgreiddi ekki frumvarp til breytinga á lögum um kirkjugarða á þeim forsendum að kirkjugarðarnir ættu næga peninga. Þar er vitnað til lífeyrisskuldbind- inga sem kirkjugarðarnir geyma en eru ekki að nokkru leyti ætlaðir til notkunar í rekstri kirkjugarðanna. ,,Þau segja að þetta sé sjóðsinneign sem er rangfærsla. Það ber að að- greina þetta enda er okkur ekki heimilt að nota þessa peninga til reksturs,“ segir Þórsteinn. Því verð- ur að setja þessa peninga til hliðar þegar skoðuð er fjárhagsstaða kirkjugarða landsins. ,,Fólk verður að vita hvernig staðan er í raun og veru hjá kirkjugörð- unum,“ segir Þórsteinn. Kirkjugarðar geta varla starfað áfram Kirkjugarðar Staðan er slæm hjá kirkjugörðunum og gera verður breyt- ingar á framlögum til þeirra svo þeir hafi grundvöll til að starfa áfram. Á aðalfundi KGSÍ var samþykkt ályktun sem send var þingmönn- um, þar sem skorað var á þá að hækka framlag til kirkjugarða að því marki, að þróun lögboðins framlags ríkisins til kirkjugarða fylgi þróun framlaga ríkisins til annarra stofnana ríkisins á veg- um innanríkisráðuneytis á tíma- bilinu 2008 til 2012. Þá er einnig skorað á þingmenn að svonefnt einingaverð til kirkjugarða verði uppfært til þess verðs sem gild- andi samningur milli ríkisins og Kirkjugarðaráðs gerir ráð fyrir. ,,Við búumst ekki við við- brögðum við þessari áskorun til alþingismanna, en við væntum þess að alþingismenn hafi þetta í hugskoti sínu þegar málin verða rædd við afgreiðslu fjárlaga. Þetta skiptir alla Íslendinga máli,“ segir Þórsteinn Ragn- arsson. Varðar alla Íslendinga SKORAÐ Á ÞINGMENN Þórsteinn Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.