Morgunblaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012 Með hækkandi sól fara lax og silungur að gera vart við sig í ám hér á landi. Á leið sinni í og úr ánum ferðast laxfiskar með strönd landsins og þá eru einhver brögð að því að lögð séu silung- anet fyrir framan þær landaeignir, sem til þess hafa rétt, en það eru eingöngu þau lög- býli, sem nýttu slíkan rétt á árunum fyrir gildistöku laxveiðilaganna 1957. Laxveiðar í sjó hafa hins veg- ar verið bannaðar frá 1932 og öll slík veiði fyrir löngu af lögð. Lax getur á hinn bóginn flækst í silung- anet og því hafa silungsveiðar í sjó verið bannaðar á göngutíma laxa á nokkrum stöðum umhverfis landið. Slíkar reglur eru t.d. í gildi í 1,5 mánuði yfir sumarið við Faxaflóa og Þistilfjörð. Reglurnar og tengd lög nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði má finna á vefsíðu Fiskistofu, www.fiskistofa.is undir slóð lax- og silungsveiða. Nú í vor setti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið nýja reglu- gerð um búnað og frá- gang neta vegna veiða göngusilungs í sjó (nr. 402/2012). Þessi reglu- gerð, sem byggist á 32. grein laga nr.61/2006 um lax- og silungsveiði kemur í stað reglna, sem Fiskistofa gaf út á síðasta ári (nr. 331/ 2011). Nýja reglugerð- in er efnislega mjög samhljóða fyrri reglum en reynt að hafa hana einfalda og auðskilj- anlega. Helstu ákvæði reglugerðarinnar eru sem hér segir: 1. Ákvæði um lengd og dýpt nets. 2. Fyrirkomulag nets í sjó. 3. Möskvastærðir og girnisþykkt nets. 4. Bil á milli neta í sjó. 5. Ákvæði um merkingu neta með nafni eiganda. Þessu til viðbótar vil ég minna á þau ákvæði, sem almennt gilda samkvæmt lögum um lax- og sil- ungsveiði, varðandi friðun gagnvart allri netaveiði í fersku vatni og sjó frá kl. 22.00 á föstudagskvöldi til kl. 10.00 á þriðjudagsmorgni. Einnig skal minnt á að allar ár, sem sil- ungur gengur í, hafa 1,5 km frið- unarsvæði fyrir framan ós í sjó og þar er ekki heimilt að leggja net af neinu tagi. Gangi lax í viðkomandi á er friðunarsvæðið hins vegar 2,0 km. Eftirlitsmenn Fiskistofu munu í sumar eins og undanfarin ár fylgj- ast grannt með því að öll net í sjó séu í samræmi við lög og reglugerð- ir. Ómerkt net, sem ekki eru í sam- ræmi við ofan nefnda reglugerð eða landslög verða tekin upp, afhent lögreglu og kæra gefin út. Sér- staklega er vakin athygli á því að merkja net rækilega með nafni veiðiréttarhafa, því sárt er fyrir landeiganda að láta fjarlægja ómerkt net, ef það er að öðru leyti löglegt. Varðandi upplýsingar er að öðru leyti vísað á vefsíðu Fiskistofu, www.fiskistofa.is. Ný reglugerð um búnað og frágang silunganeta í sjó Eftir Árna Ísaksson » Ómerkt net, sem ekki eru í samræmi við reglugerð eða lands- lög verða tekin upp, af- hent lögreglu og kæra gefin út. Árni Ísaksson Höfundur er forstöðumaður lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu. Ég hef hlotið þá miklu ábyrgð ásamt öðru góðu fólki að koma af stað hóp til stuðnings ungu fólki sem greinst hefur með gigt- arsjúkdóm. Af því til- efni ákvað ég að skrifa smá grein til að vekja athygli á hópnum. Hér áður fyrr var ég á þeirri skoðun að gigt væri sjúkdómur sem aðeins eldra fólk, yfir fimmtugu, greindist með, að þetta væri svona gamalmenn- issjúkdómur ef svo má til orða taka. En ég hafði rangt fyrir mér. Þegar ég var 24 ára verkjaði mig alls staðar í líkamann, ég reyndi að hrista það af mér, en fór að lokum til læknis. Ég var send í blóðprufu og þegar niðurstöðurnar komu var ég greind með iktsýki, sem kallast liðagigt í daglegu umtali. Þetta var mikið áfall, og ég vissi eiginlega ekkert hvað ég átti að gera. Þar sem ég greindist með hana á mjög háu stigi var ég strax sett á mjög sterk lyf. Bæði lyf sem ég þarf að fá í sprautuformi einu sinni í viku, og svo fer ég upp á spítala á 7 vikna fresti þar sem mér er gefið lyf í æð. Litla ég, sem var staðföst á þeirri skoðun að þetta gæti ekki hent svona unga og hrausta stúlku sem hafði nánast aldrei verið veik á ævinni, að litla ég skyldi grein- ast með gigt. Í fyrsta sinn þegar ég fór og fékk lyf í æð var bara fullorðið fólk uppi á spítala, þá er ég að tala um 50+, og mér leið eins og ég væri eina unga manneskjan sem væri með þennan „gamalmennissjúkdóm“. Ég grét all- an tímann í það skipti. Í dag veit ég að það eru því miður miklu fleiri ungmenni sem að hafa verið greind með gigtarsjúkdóm. Gigtarsjúkdómar eru margs konar og í flestum tilvikum sjást þeir ekki utan á fólki. Sem því miður gerir það að verkum að maður mætir ekki mikl- um skilningi frá samfélaginu. Algengur fylgikvilli gigt- arsjúkdóma er mikill þreyta, og það að leggja sig á daginn misskilja marg- ir sem leti. Ég fékk oft mikið samviskubit yfir því að ég gæti ekki gert hluti sem aðr- ir geta, og það leiddi til andlegrar vanlíðanar. Í dag hef ég sætt mig við að ég verð að taka mark á minni getu og hætta að bera mig saman við full- frískt fólk. Það er mikið áfall að greinast með krónískan sjúkdóm, og þess vegna tel ég það mjög mikilvægt að kynnast öðrum sem eru á svipuðum aldri. Góð andleg líðan skiptir miklu máli, og ég tel að með endurvakningu þessa hóps getum við stutt hvert við annað og skemmt okkur vel saman. Gigtarfélag Íslands samanstendur af mörgu góðu fólki, og margir mis- munandi hópar hittast reglulega til að deila sögum og fræðast. Hópurinn ungt fólk með gigt sam- anstendur af ungu fólki á aldrinum 18-40 ára hvort sem það er í árum eða anda. Við hittumst einu sinni í mánuði uppi í Gigtarfélagi að Ármúla 5, 2 hæð. Við erum með Facebook-síðu, sláið inn ungt fólk með gigt í leitarglugg- ann, eða farið á þessa slóð http:// www.facebook.com/gro- ups/144190209034907/. Ef þú ert með gigt, vertu með í hópnum, því að andlegur stuðningur getur breytt öllu. Ungt fólk með gigt Eftir Ingibjörgu Magnúsdóttur » Litla ég, sem var staðföst á þeirri skoðun að þetta gæti ekki hent svona unga og hrausta stúlku sem hafði nánast aldrei verið veik á ævinni, að litla ég skyldi greinast með gigt. Ingibjörg Magnúsdóttir Stjórnarformaður Ungs fólks með gigt           4. útdráttur 24. maí 2012          Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 1 1 8 1 5         Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 1 3 6 3 0 2 0 7 3 3 5 6 4 4 1 7 3 3 7 9         Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 1372 11822 21279 42117 51657 64355 3167 18606 38739 47078 64178 74511         Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) 9 7 5 1 3 5 5 9 2 6 1 5 5 3 2 4 2 4 4 7 1 4 1 5 3 4 2 2 6 0 8 8 5 6 8 6 6 8 4 5 0 7 1 6 2 7 8 2 6 4 7 8 3 4 4 5 7 4 7 3 9 4 5 3 6 9 2 6 1 7 1 7 6 9 1 7 4 6 9 4 1 1 6 7 0 1 2 7 1 8 9 3 7 7 2 6 4 7 9 2 4 5 3 8 5 4 6 3 1 7 5 6 9 7 1 7 7 7 4 8 1 6 9 0 0 2 8 1 5 3 3 7 8 8 1 4 8 9 8 9 5 4 4 4 3 6 3 4 9 6 7 2 4 0 5 8 1 1 1 1 8 9 5 6 2 8 9 8 7 3 9 2 0 5 5 1 0 2 9 5 5 4 8 7 6 3 9 4 7 7 3 9 9 8 8 3 9 4 2 0 5 4 4 3 0 2 6 3 4 0 8 5 5 5 2 2 9 9 5 6 0 2 2 6 4 2 6 8 7 4 7 3 9 1 0 3 7 7 2 1 2 2 8 3 1 0 0 6 4 2 1 5 6 5 2 6 5 0 5 6 3 9 5 6 4 3 9 0 7 7 4 1 0 1 1 1 6 0 2 3 9 1 2 3 1 0 4 0 4 4 4 2 7 5 2 6 9 1 5 7 2 1 2 6 6 8 3 4 7 7 5 8 9 1 2 4 8 1 2 4 4 5 5 3 1 6 4 5 4 4 8 5 1 5 2 9 9 8 5 9 2 2 0 6 6 9 0 4 7 8 3 1 8 1 3 5 0 1 2 5 7 0 4 3 2 2 8 8 4 5 1 8 4 5 3 0 9 4 6 0 4 0 9 6 8 2 3 3 7 9 2 8 9          Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) 8 8 4 1 0 0 8 0 1 8 6 5 1 3 3 3 0 1 4 4 3 1 2 5 3 7 1 8 6 3 7 9 0 7 2 8 6 1 1 2 6 1 1 0 0 8 7 1 8 7 6 5 3 3 3 2 2 4 4 5 1 4 5 4 1 2 8 6 4 1 5 1 7 3 1 6 0 1 4 8 9 1 0 2 0 3 1 9 4 7 3 3 3 5 0 8 4 4 5 5 2 5 4 1 8 9 6 4 5 8 9 7 3 2 1 1 2 2 3 8 1 0 4 2 0 1 9 5 2 5 3 3 7 3 3 4 4 7 9 1 5 4 4 0 9 6 4 6 0 4 7 3 2 5 5 2 5 3 1 1 0 8 0 3 1 9 7 7 2 3 5 0 5 4 4 5 0 0 3 5 4 5 6 6 6 5 3 0 6 7 3 5 2 7 2 5 3 5 1 0 8 8 2 2 0 0 0 9 3 5 3 4 5 4 6 2 7 1 5 4 6 2 9 6 5 5 8 0 7 3 5 2 8 2 6 0 3 1 1 0 9 7 2 0 4 7 1 3 5 5 9 2 4 6 7 3 4 5 5 2 8 2 6 5 5 9 0 7 3 8 3 5 2 9 7 8 1 1 2 7 4 2 1 0 5 7 3 5 6 8 6 4 6 8 0 1 5 6 1 6 4 6 6 3 5 0 7 3 8 6 0 3 0 4 6 1 1 9 8 9 2 1 8 0 1 3 6 0 1 9 4 7 0 6 1 5 6 3 0 6 6 6 4 3 6 7 4 0 6 3 3 2 4 6 1 2 1 7 9 2 2 9 2 5 3 6 4 0 9 4 7 7 0 0 5 6 7 4 6 6 6 5 5 1 7 5 0 3 2 3 3 0 5 1 2 4 0 3 2 3 4 2 6 3 6 7 2 8 4 7 9 2 9 5 6 9 8 7 6 6 7 3 4 7 5 2 8 7 3 3 3 3 1 2 7 5 8 2 4 1 8 2 3 7 0 1 8 4 8 3 8 4 5 7 3 1 1 6 7 1 7 9 7 5 5 3 0 3 4 6 4 1 2 9 0 7 2 4 6 8 9 3 7 0 6 7 4 8 9 2 8 5 8 0 0 0 6 7 6 6 2 7 6 2 6 6 3 8 1 8 1 3 1 9 7 2 4 7 6 5 3 7 3 1 2 4 9 4 0 7 5 8 3 0 4 6 7 9 5 9 7 6 6 1 0 3 8 4 5 1 3 4 8 2 2 5 2 4 3 3 7 3 8 8 4 9 5 2 0 5 8 3 7 6 6 8 3 8 6 7 6 8 4 9 5 3 2 7 1 3 5 7 7 2 5 3 1 0 3 7 9 6 3 4 9 8 3 2 5 8 4 6 8 6 8 6 0 1 7 7 1 7 4 5 3 3 5 1 4 0 2 0 2 5 8 4 3 3 8 0 3 4 5 0 2 6 6 5 8 4 9 6 6 8 6 5 2 7 7 4 2 2 5 5 5 9 1 4 1 3 7 2 6 1 4 3 3 8 7 1 7 5 0 6 3 8 5 8 8 2 8 6 8 7 4 1 7 7 7 3 5 5 9 0 0 1 4 3 0 3 2 6 6 6 4 3 9 0 0 6 5 0 7 3 0 5 9 1 0 1 6 9 1 3 2 7 7 7 5 9 6 0 5 1 1 4 4 2 7 2 7 0 9 6 4 0 0 4 6 5 0 8 9 5 5 9 5 0 4 6 9 4 8 2 7 8 5 2 7 6 2 6 5 1 4 8 4 7 2 7 9 4 5 4 0 5 8 4 5 1 0 8 7 6 0 0 6 1 6 9 9 9 1 7 8 5 4 0 6 9 7 8 1 5 1 9 0 2 8 5 8 7 4 0 7 8 5 5 1 4 7 9 6 0 4 4 2 7 0 2 8 0 7 8 6 6 2 7 9 8 7 1 5 2 3 4 2 9 1 7 6 4 1 2 2 7 5 1 8 3 1 6 0 4 4 9 7 0 6 3 9 7 8 7 1 5 8 0 5 6 1 6 3 1 0 2 9 6 4 0 4 2 1 0 4 5 1 8 7 2 6 0 5 8 2 7 0 7 0 5 7 8 8 9 5 8 0 6 3 1 6 4 9 9 2 9 6 8 0 4 2 5 3 0 5 1 9 8 1 6 0 8 9 5 7 0 7 2 2 7 9 5 6 8 8 2 8 1 1 6 5 0 6 3 0 2 5 7 4 2 7 2 3 5 2 1 4 3 6 1 0 1 1 7 1 1 5 8 7 9 9 9 2 9 0 7 6 1 7 3 3 8 3 0 7 0 0 4 3 0 4 2 5 2 2 4 7 6 1 6 4 0 7 1 2 6 9 9 1 8 1 1 7 6 3 1 3 0 7 3 9 4 3 0 7 7 5 2 3 3 9 6 2 0 3 5 7 1 8 8 2 9 2 6 8 1 7 6 3 8 3 0 9 5 7 4 3 1 5 7 5 2 4 0 2 6 2 3 3 3 7 1 9 2 5 9 3 5 8 1 7 8 5 9 3 1 1 9 6 4 3 3 8 8 5 2 9 2 7 6 2 5 2 5 7 1 9 7 7 9 4 3 6 1 8 4 5 9 3 1 2 9 4 4 3 6 7 6 5 3 1 7 3 6 3 1 3 8 7 2 3 0 1 9 7 3 7 1 8 6 4 5 3 2 4 8 2 4 4 2 4 5 5 3 6 4 9 6 3 1 4 5 7 2 4 3 4 Næsti útdráttur fer fram 31. maí 2012 Heimasíða á Interneti: www.das.is Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Fataskápar í miklu úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.