Morgunblaðið - 25.05.2012, Síða 27

Morgunblaðið - 25.05.2012, Síða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012 ✝ Arnbjörg Dav-íðsdóttir fædd- ist á Gunn- arsstöðum í Þistilfirði 13. maí 1917. Hún lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykja- vík 16. maí 2012. Foreldar hennar voru Davíð Árnason frá Gunnarsstöðum, rafvirki og magn- aravörður hjá Ríkisútvarpinu, f. 1892, d. 1983 og eiginkona hans Þórhalla Benediktsdóttir frá Hallgilsstöðum á Langanesi. Þór- halla var fædd árið 1893 en lést frá þrem ungum börnum árið 1921, aðeins 28 ára að aldri. Arn- björg var elst þriggja alsystkina, næstur var Benedikt, f. 1918, d. 2004 og yngst Sigþrúður, f. 1919, d. 1995, hún bjó í Danmörku. Arnbjörg fluttist með föður sín- Örn er kvæntur Höllu Mjöll Hall- grímsdóttur, börn þeirra eru: Erna, Hörður og Oddný Mjöll. Þórhalla giftist Braga Erni Ing- ólfssyni sem nú er látinn, synir þeirra eru: Ingólfur Birgir, Axel Örn og Davíð Þór. Sambýlis- maður Þórhöllu er Jón Jóhann- esson. Fyrri eiginmaður Jóhönnu var Finnbogi G.H. Finnbogason, synir þeirra eru: Sævar Ari, Guðni Örn og Finnur Trausti. Síðari eiginmaður Jóhönnu er Sigurður Ingólfsson. Ari er kvæntur Hjálmfríði Lilju Niku- lásdóttur, börn þeirra eru fjögur: Steinunn, Örn Ýmir, Sólveig Anna og Andri Þór. Arnbjörg átti einnig nítján langömmubörn. Fyrstu árin sín bjuggu Arn- björg og Hörður á Akranesi og í Innri-Njarðvík. Þau hjónin voru meðal frumbyggja Kópavogs, en þau fluttu á Borgarholtsbraut 47 (síðar 67) árið 1945. Þar áttu þau sitt heimili í nær 60 ár eða uns heilsa Harðar gaf sig og þau fluttust að Hrafnistu í Reykjavík árið 2008. Útför Arnbjargar fer fram frá Áskirkju í dag, 25. maí 2012, kl. 14. um til Reykjavíkur eftir lát móður hennar og bjuggu þau á Skólavörðu- stíg 5, þaðan sem hún gekk í Landa- kotsskóla. Davíð giftist aftur, Þóru Steinadóttur, börn þeirra og hálf- systkin Arnbjargar eru Þórhalla, f. 1929, Steinunn, f. 1930, hún lést af slysförum 6 ára gömul, Þóra, f. 1932 og Að- alsteinn, f. 1939. Arnbjörg gekk að eiga Hörð Bachmann Loftsson á að- fangadag árið 1935. Hjónaband þeirra entist meðan bæði lifðu, eða í 72 ár og 104 daga. Hörður lést í apríl 2008. Börn Arn- bjargar og Harðar eru: Örn, f. 1937, Þórhalla, f. 1944, Jóhanna Guðný, f. 1952 og Ari, f. 1957. Móðir mín, Arnbjörg Davíðs- dóttir, Adda, kvaddi þennan heim tveim dögum eftir 95 ára afmælið sitt, sátt við örlög sín. Afmælisdagurinn hennar var okkur öllum góður og þar átti hún sína síðustu veislu í faðmi fjölskyldunnar. Adda var ein af þeim sem nutu þess innilega að gleðjast með glöðum en þrátt fyrir fé- lagslyndi sitt tengdist hún að- eins fáum náið, en þá sterkum böndum. Adda var aðeins 17 ára gömul þegar hún kynntist ungum manni, Herði Loftssyni vél- stjóra. Þau voru bæði létt í skapi, mikið dansfólk og fjör- kálfar sem fundu strax gleði og öryggi hvort í örmum annars. Á aðfangadag árið 1935 gekk hún að eiga Hörð, þá átján ára göm- ul og entist hjónaband þeirra meðan bæði lifðu, eða í 72 ár og 104 daga. Það var einmitt þessi tryggð sem einkenndi líf móður minnar og alla ævi hafði hún jafn gam- an af að gleðjast í góðra vina hópi. Líf sjómannskonunnar sem veitti heimilinu forstöðu ein meðan eiginmaðurinn var til sjós var ekki besti vettvangur fyrir skemmtanahald, en ég minnist þó úr barnæsku veisln- anna þar sem mamma og allar hinar „frænkurnar“ hittust með barnahópinn sinn og söngur og gleði réð ríkjum. Þessi frænku- boð voru gott félagslegt vega- nesti inn í lífið. Sjálf flutti ég einnig mjög ung að heiman og stofnaði heim- ili. Eftir það kom bersýnilega í ljós hvaða eiginleika við móðir mín áttum sameiginlega. Þegar við hittumst var það einkum tvennt sem við ræddum; handa- vinna og ljóðlist. Handavinna var ástríða henn- ar í lífinu. Ég man ekki eftir móður minni öðruvísi en prjón- andi, heklandi eða saumandi út í þeim frístundum sem hún átti og hún lagði gífurlegan metnað í verk sín. Okkur dætrum sínum kenndi hún strax í bernsku að bakhlið útprjóns- og saums yrði að vera jafn vandað, fallegt og slétt og framhliðin. Eftir að hún komst á tíræðisaldur var hand- bragð hennar enn jafn hárná- kvæmt og listrænt, og í engu búi hef ég séð eins mikið af fín- gerðri og glæsilegri handavinnu og liggur eftir móður mína. Síðustu misserin ræddum við mæðgurnar einnig um fram- haldslíf. Móðir mín var sann- færð um að þegar hún flytti úr þessari tilveru myndi hún hitta fyrir pabba, Árna móðurbróður sinn og frænkur sínar þær Guð- björgu og Margréti sem voru henni stoð og stytta meðan þeim entist aldur. Ég trúi því líka að þannig sé það núna og treysti því að hún sé nú umvafin gleði endurfundanna í nýjum heimi. Jóhanna Guðný Harðardóttir. Tengdamóðir mín Arnbjörg Davíðsdóttir er látin 95 ára að aldri. Þetta er hár aldur en hún bar aldurinn frábærlega vel þar til hallaði undan fæti og heilsan bilaði. Hún var stálminnug, ljóð- elsk og bókhneigð. Einnig var hún þvílík listakona í höndunum. Fallega handavinnan hennar prýddi heimili hennar og afkom- enda hennar. Einstaklega fal- lega útsaumaðir dúkar, líka heklaðir og prjónaðir. Útsaum- aðar myndir og klukkustrengir. Hún sat við fínustu handavinnu alveg fram til 94 ára aldurs. Hún var fædd á Gunnarsstöðum í Þistilfirði og hafði mikil tengsl við ættingja sína þaðan, sérstak- lega frænkurnar. Hún minntist föðursystra sinna, Guðbjargar frænku og Möggu frænku, með sérstakri hlýju, en þær höfðu gengið henni að einhverju leyti í móðurstað þegar hún missti mömmu sína fjögurra ára að aldri. Ég kom inná heimili henn- ar 1959 er ég kynntist elsta syn- inum sem seinna varð eiginmað- ur minn. Það var lítið hús á Kársnesinu í Kópavogi. Hús- móðirin Arnbjörg heima að gæta bús og barna meðan hús- bóndinn, Hörður Loftsson, lærð- ur vélstjóri, stundaði sjóinn. Þau höfðu byrjað búskap sinn í kreppunni 1935 en unnið sam- hent að uppbyggingu heimilis- ins. Elsti sonurinn Örn fæddist á Akranesi, Þórhalla í Innri- Njarðvík en 1945 fluttu þau í Kópavoginn þar sem Jóhanna og Ari fæddust. Þar áttu þau heimili sitt þar til heilsa Harðar bilaði og þau fluttu á Hrafnistu í Reykjavík 2004. Hörður lést 2008. Mér var vel tekið á heim- ilinu, Arnbjörg mikil húsmóðir, bjó til góðan mat, saumaði og prjónaði á börnin eins og þá tíðkaðist. Hún var heimakær og sat gjarnan við handavinnuna. Hún var frekar dul og bar ekki tilfinningar sínar á torg. Ég minnist sunnudaganna, lamba- læri og sveskjugrautur með rjóma í hádeginu. Oft var hátíð í bæ þegar Hörður kom heim af sjónum og hafði í farteskinu vörur erlendis frá sem ekki voru á hvers manns borði. Við Örn hófum okkar búskap í Kópavog- inum og var stutt á milli okkar. Arnbjörg fylgdist vel með sínum börnum og barnabörnum, hvað þau væru að mennta sig og ferðast. Hún ferðaðist ekki mik- ið, fór þó til Danmerkur að heimsækja systur sína Sigþrúði og einhvern tíma sigldi hún með Herði. Frumbýlingsárin í Kópa- vogi hafa eflaust oft verið hús- móðurinni erfið, en þarna var mikið frelsi og gott að ala upp börn. Það gleymist oft þegar líf sjómannsins er dásamað og þeir nefndir hetjur hafsins, að heima situr sjómannskonan og ber ábyrgð á heimili og börnunum ein. Þær eru líka hetjur. Ég minnist Arnbjargar með virð- ingu og þökkum, lítil og nett, glaðleg og ræðin, sitjandi við handavinnuna sína. Blessuð sé minning hennar. Starfsfólki á H2 deild Hrafnistu í Reykjavík færi ég alúðarþakkir fyrir frá- bæra umönnun. Halla M. Hallgrímsdóttir. Elskuleg amma mín, Arn- björg Davíðsdóttir, fékk hvíld- ina sína aðfaranótt 16. maí sl. Hún varð 95 ára gömul 13. maí sl. en Hörður Loftsson afi minn sem lést 97 ára gamall hefði orðið 100 ára þann 8. maí sl. Þau voru sæmdarhjón, vél- stjórinn og húsmóðirin á Borg- arholtsbrautinni í Kópavogi og síðar á Hrafnistu í Reykjavík. Amma mín veiktist fyrir u.þ.b. 12 vikum, en fram að þeim veik- indum var hún frekar hress miðað við aldur, sem orðinn var hár. Enda fannst henni undir það síðasta nóg lifað, þó svo að í aðra röndina væri hún ekki tilbúin að hætta að lifa. Hún var einstaklega létt og jákvæð kona, nægjusöm og listræn. Hennar lífsstarf fólst í því að ala upp börnin sín fjögur, elstan pabba minn, vera sjómannskona og stunda list sína. Hún var listræn hannyrðakona og eftir hana liggur mikið lífsverk í ýmiss konar hannyrðum sem prýðir heimili barna, barnabarna og barnabarnabarna og vina. Hrein unun er að eiga handverk henn- ar, sem er vandað og fagurt, unnið af fíngerðum höndum. Fætur hafði hún netta og sjón hafði hún skarpa fram í andlát- ið, en skarpari var síkvikur hug- ur hennar. Hún fylgdist vel með öllum í fjölskyldunni, lét sig varða hvað fjölskyldumeðlimir voru að gera, mundi alla afmæl- isdaga og hringdi til að óska til hamingju. Hún var örlát á hand- verk sitt og gjafir hennar voru rausnarlegar. Samt barst hún aldrei á, enda af þeirri kynslóð sem hafði lítið og þurfti lítið fyr- ir sjálfa sig. En það var bara ekki fjölskyldan sem hún fylgd- ist vel með, hún fylgdist með stórfjölskyldu og vinum, fréttum og þjóðmálum, var vel að sér um líðandi stund. Hún var sel- skapsdama og naut sín á mannamótum og í fjölskyldu- boðum. Á sjötugsafmæli pabba míns mætti hún teinrétt í sæ- grænum síðkjól og heill karla- kór varð kjaftstopp þegar það fréttist að hún væri móðir af- mælisbarnsins. Sá kór mun syngja við útför hennar og það mun henni vel líka, tónelsk sem hún var. Heillandi var hún gamla konan. Hún hafði unun af því að heimsækja börn og barnabörn, fá heimsóknir og fara á mannamót. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum lif- andi eða látnum manni. Það var ekki í hennar eðli. Pabbi minn og mamma voru henni betri en enginn síðustu árin, en þau sinntu henni af mikilli ræktar- semi og alúð. Sannarlega okkur börnum sínum fögur fyrirmynd í því að létta henni aldraðri lífið. En amma hætti að vilja fara með þeim úr húsi þegar göngu- grind var orðin staðalbúnaður. Með svoleiðis lét hún ekki sjá sig á almannafæri, hvað þá í hjólastól. Hún var líka ófeimin við að segja skoðun sína, og gerði það gjarnan á gamansam- an hátt. Þegar hún og afi áttu 70 ára brúðkaupsafmæli sagði amma: „Æi, hjónabandið var ekki gert til að endast svona lengi.“ Þar átti hún við hjóna- bandið sem félagslega einingu, og hló svo. Hún elskaði súkku- laði og önnur sætindi, bakaði dýrindis smákökur, pönnukökur og „vöpplur“ meðan hún gat. En núna var nóg lifað. Hún fékk hvíldina sína í svefni. Ömmu mína kveð ég með virðingu og söknuði, en ég veit að hún er hvíldinni fegin. Erna Arnardóttir. Arnbjörg Davíðsdóttir ✝ Klara Guð-bandsdóttir fæddist í Dísukoti í Þykkvabæ 9. des- ember 1935. Hún lést á sjúkrahúsi Suðurlands 17. maí 2012. Foreldrar henn- ar voru María Markúsdóttir frá Dísukoti, f. 20.9. 1915, d. 17.2. 1962 og Guðbrandur Pálsson frá Hafnarfirði, f. 6.11. 1911, d. 16.11. 1953. Systkini hennar eru: Esther, f. 11.1. 1937, d. 28.5. 1992, maki Gunnar G. Steinsson, f. 28.11. 1932; Páll f. 25.1. 1940, maki Hjördís Sig- urbjartsdóttir f. 21.6. 1943; Fjóla, f. 1.2. 1942, maki Ásbjörn Skarphéðinsson, f. 3.4. 1934, d. 1.1. 1994; Markús, f. 10.5. 1945, maki Bryndís Ingvarsdóttir, f. 19.1. 1952; Kristjón, f. 3.8. 1947, d. 26.2. 1994, maki Elín Árnadóttir, f. 23.5. 1943. Þann 20. ágúst 1955 giftist Klara Einari Einarssyni frá Nýjabæ og eru börn þeirra: Guð- brandur, f. 17.11. 1953, hann á fjögur börn, sambýliskona Sigurlína J. Gunn- arsdóttir, f. 8.8. 1958, hún á eina dóttur, til samans eiga þau ellefu barnabörn; Katrín, f. 19.1. 1955, maki Geir Jónsson, f. 18.4. 1955, þau eiga þrjú börn og fimm barnabörn; Einar Smári, f. 31.5. 1957, hann á tvo syni; Ægir, f. 6.3. 1959, hann á einn son; Sig- urður, f. 12.4. 1961, maki Gíslína Jensdóttir, f. 4.10. 1962, þau eiga fjögur börn og tvö barna- börn; Sverrir, f. 3.3. 1967, maki Sigrún Helga Einarsdóttir, f. 25.5. 1970, þau eiga þrjú börn. Klara verður jarðsungin frá Selfosskirkju í dag, 25. maí 2012 og hefst athöfnin kl. 15.30. Nú er komið að leiðarlokum og margs að minnast frá þessum næstum 40 árum síðan ég kom fyrst til ykkar Einars í Þorleif- skot í Laugardælum en það var stuttu eftir að við Kata kynnt- umst. Ekki var verra að nokkru áður hafði mágur Einars kynnt mig fyrir ykkur, hann sá eitthvað sem við sáum ekki á þessum tíma og innan fárra mánaða var ég fluttur inn á heimilið ykkar. Þar kynnist maður strax þinni léttu lund sem átti síðan eftir að hjálpa þér í gegnum þau veikindi sem þú áttir við að stríða síðustu árin. Tvennt vil ég leyfa mér að nefna, þú hafðir ákveðnar skoð- anir á hlutunum og stundum fannst manni sem þú tækir of sterkt til orða, en þú sagðir síðan alltaf: Á maður ekki að segja það sem manni finnst? Síðan er ekki hægt annað en að nefna mat, þú hafðir svo gaman af að elda og kaupa í matinn og ófá eru mat- arboðin í gegnum árin. Og fram á síðasta dag þurftir þú að fara í búð, það voru svo góð tilboð og það yrði að vera nóg til ef ein- hver kæmi til þín. En síðustu ár- in dvaldir þú á Ási í Hveragerði, þar sem þér leið mjög vel. Ég vil sérstaklega þakka þann tíma sem við vorum hjá ykkur Einari meðan ég kláraði námið og það var gott að vita af Kötu og litla snáðanum okkar hjá ykkur þeg- ar ég var í Danmörku. Ég þakka samfylgdina og ég veit að þú fylgist með vel okkur á þessum nýja stað sem þú ert komin á. Geir Jónsson. Loksins ertu kominn hingað á minn fund; finn svo gjörla – þetter töfrastund. Úti vindur og fjúk – kósíheit par exelans. (Baggalútur) Verður veisla? spurði ég ömmu Klöru þegar ég kom í sveitina sumarið 8́3, amma var tilbúin með 20 kótilettur og allt það meðlæti sem hugsast gat. En það var víst bara ég sem var í mat, bara ég og amma, afi var ekki einu sinni heima. Ég minnist Klöru ömmu samt mest fyrir hláturinn, hún hló sig máttlausa þegar hún reyndi að kenna mér að keyra Löduna sína á veginum niður að Ölfusá. Hún var nú reyndar bara nýkomin sjálf með bílpróf, rétt að verða fimmtug og ég tíu ára. Húmorinn var ömmu í blóð borinn, Bagga- lúts-jólagjafir sanna það. Svo ekki sé talað um áramótaskaupin og Áfram-myndirnar sem til voru á endalausum spólum heima í Laugardælum. Það var alltaf svo gaman að fara í sveit- ina til ömmu og afa, þar biðu æv- intýri út um allt. Ég og amma lentum í einu slíku þegar við fór- um saman að veiða í Rauðalæk. Við fórum beint í fossinn og byrj- uðum á því að borða nestið og þá gerðist það, eitthvað svakalegt beit á svo ég öskraði úr hræðslu, henti veiðistönginni í ömmu og hljóp í burtu. Þessa sögu áttum við tvö og rifjuðum hana stund- um upp þó að enginn fiskur hefði náðst í þessari ferð. Æska mín er böðuð gleði- minningum úr sveitinni hjá ömmu og afa, þar var yndislegt að vera. Nú ertu aftur komin heim og færð þína verðskulduðu hvíld við hlið afa. Eftir þig liggur ríkidæmi sem mun lifa áfram í afkomendum þínum. Minning- arnar munu öðlast nýtt líf og minna okkur á það hvað við er- um, við erum fjölskylda, fjöl- skyldan þín. Ég á eftir að sakna ömmu minnar. Stormur rís við úfið Haf Náð er landi eftir langa För Hvíldin gefur minningu Líf Einar Jón Geirsson og fjölskylda. Klara Guðbrandsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf grein- in að hafa borist á hádegi tveim- ur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar ✝ Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGMUND JÓHANNSSON fyrrverandi teiknari Morgunblaðsins, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugardaginn 19. maí. Útför hans verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 26. maí kl. 14.00. Helga Ólafsdóttir, Hlynur Bjarklund Sigmundsson, Kateryna Sigmundsson, Ólafur Ragnar Sigmundsson, Björn Bragi Sigmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KARL FRIÐRIK HALLBJÖRNSSON, Sæviðarsundi 64, lést á Vattarnesi mánudaginn 21. maí. Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 31. maí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Blindrafélagið, rnr. 0115-26-47015, kt. 470169-2149. Guðríður Valborg Hjaltadóttir, Hallbjörn Karlsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Hjalti Karlsson, Vera Yuan, Karl Ólafur, Atli Freyr, Dagur Li, Ólöf Stefanía og Embla Margrét.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.