Morgunblaðið - 25.05.2012, Side 34

Morgunblaðið - 25.05.2012, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012 Þetta er bara venjulegur vinnudagur og svo er ég að spila leik íkvöld á móti Stjörnunni í Garðabæ þannig að ég eyði afmæl-iskvöldinu með minni annarri fjölskyldu sem er liðið,“ segir Lilja Dögg Valþórsdóttir, fyrirliði knattspyrnuliðs KR, en hún fagn- ar þrítugsafmæli sínu í dag. Hún segist þó ætla að halda lítið matar- boð og Evróvisjónpartí annað kvöld fyrir sína nánustu til að halda upp á tímamótin. Lilja Dögg er ekki smeyk við að komast á fertugs- aldurinn en hún segir þó liðsfélaga sína, sem nær allir eru um tíu ár- um yngri, vera duglega að minna sig á það. „Þær láta mig vita á hverjum einasta degi hvað ég sé gömul svo ég fæ aldrei að gleyma því. Það er spurning hvort þær hætti þegar ég er loksins orðin þrítug. En þetta er nú bara einhver tala,“ segir hún og hlær. Lilja Dögg starfar hjá Icelandic Group auk þess að spila með KR. Sumarið er undirlagt af fótboltanum og því ekki mikið pláss fyrir önnur áhugamál. Hún segist hafa gaman af því að ferðast og í fyrra fór hún meðal annars í sex vikna reisu um Suðaustur-Asíu auk þess að heimsækja Bahamaeyjar og Jamaíka. „Ég er aðeins byrjuð að hugsa fyrir næstu ferð sem verður von- andi strax eftir tímabilið. Eigum við ekki að segja að maður fari til Havaí í september?“ segir hún kát. kjartan@mbl.is Lilja Dögg Valþórsdóttir er þrítug í dag Morgunblaðið/Golli Dugnaður Fyrir utan fótboltann segist Lilja Dögg hafa mikinn áhuga á íþróttum almennt. Þegar hún var yngri var hún mikið á skíðum. Fótboltaliðið sem önnur fjölskylda J óel er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp frá þriggja ára aldri, en fyrstu æviárin bjó hann í New York þar sem Páll faðir hans nam jarðeðlisfræði. Jóel hefur mikið látið að sér kveða í íslensku tónlistarlífi. Hann hefur stundað tónlistarnám frá átta ára aldri og lék fyrst á klar- inett en um fimmtán ára aldur sneri hann sér að saxófón og hefur spilað á hann síðan. Eftir útskrift frá Tónlist- arskóla FÍH og Tónmenntaskóla Reykjavíkur hélt hann til náms við Berklee College of Music í Boston, Bandaríkjunum, og útskrifaðist það- an með hæstu einkunn (Summa Cum Laude) og BM-gráðu 1994. Jóel hef- ur leikið á um 200 hljómplötum og komið fram í Evrópu, Bandaríkj- unum, Kanada og Kína á tónleikum og tónlistarhátíðum. Jóel hefur gefið út plöturnar Prím, Klif, Septett, Varp og Horn Jóel Pálsson tónlistar- og athafnamaður og lífskúnstner 40 ára Morgunblaðið/Sigurgeir S. Athafnamaður Jóel hefur ekki haldið upp á afmælið í 12 ár en í dag býður frúin þeim feðgum út að borða. Tvíburi sem leikur tveim skjöldum Tónlistarmaðurinn Jóel hefur mik- ið látið að sér kveða í tónlistarlífinu, bæði hérlendis og erlendis. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Hafnarfjörður Rúnar Helgi Snædal fæddist 12. júlí kl. 7.54. Hann vó 3.665 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans heita Helena Björk Rúnarsdóttir og Jón Garðar Jónsson. Nýir borgarar Grindavík Guðmunda Júlía fæddist 24. júlí kl. 9.57. Hún vó 3.445 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Theodóra Steinunn Káradóttir og Eggert Daði Pálsson. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is www.lifandimarkadur.is Borgartúni 24 | Reykjavík Hæðasmára 6 | Kópavogi Sími: 585 8700 Lífsorkan þín er ástríðan mín Í LIFANDI markaði færð þú allar þær vörur og meira til, sem Þorbjörg mælir með í þáttunum sínum „9 leiðir til lífsorku“ sem sýndir eru í MBL sjónvarpi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.