Morgunblaðið - 25.05.2012, Page 35

Morgunblaðið - 25.05.2012, Page 35
með frumsaminni tónlist, auk platna sem hann hefur unnið í samstarfi við aðra; Stikur með Sigurði Flosasyni og Skuggsjá með Eyþóri Gunn- arssyni. Tónlist Jóels hefur meðal annars verið gefin út af hljómplötu- fyrirtækinu Naxos í 40 löndum. Hann hefur hlotið íslensku tónlist- arverðlaunin fimm sinnum, þar á meðal fyrir djasshljómplötu ársins fjórum sinnum. Jóel var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norður- landaráðs 2011. Með mörg járn í eldinum Jóel segist sjálfur leika tveim skjöldum; sinnir tónlistargyðjunni á morgnana og á kvöldin en um miðj- an daginn sér hann um rekstur hönnunarfyrirtækisins Farmers Market. Hann stofnaði það 2005, ásamt konu sinni, Bergþóru Guðna- dóttur, sem hannar alla línuna. Fyr- irtækið hefur vaxið jafnt og þétt og fást vörurnar í verslunum víða um heim. Um þessar mundir eru fyr- irtækið og verslunin að koma sér fyrir á nýju og rúmgóðu húsnæði á Hólmaslóð 2. Jóel hefur ekki haldið upp á af- mælið síðan hann var tólf ára en í dag ætlar konan að bjóða honum út að borða ásamt sonum þeirra, Breka, f. 1998 og Guðna Páli, f. 2003. „Svo verður þetta bara voða létt á laugardaginn, fjölskyldan og nokkr- ir félagar úr músíkinni ætla að skála við mig, ætli maður horfi ekki með öðru auganu á Evróvisjón þar sem Jónsi klæðist vitaskuld buxum frá Farmers Market. Svo er fræðilegur möguleiki á að eitthvað verði gripið í hljóðfæri.“ Fjölskylda Jóel kvæntist 19.7. 1997 Berg- þóru Guðnadóttur, f. 1971. Synir þeirra eru Breki, f. 1998 og Guðni Páll, f. 2003. Bræður Jóels eru Einar Baldvin, f. í Reykjavík 16. júní 1967 og Magn- ús, f. 23.2. 1992 (samfeðra). Faðir Jóels er Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur, f. í Reykjavík 27. 3. 1947. Foreldrar hans voru Kristín Pálsdóttir ritari, f. 8. janúar 1917, d. 2.5. 2006, og Einar B. Páls- son verkfræðingur, f. 29.2. 1912, d. 28. október 2011. Móðir Jóels er Anna Þorbjörg Jó- elsdóttir, myndlistarmaður, f. að Stóra-Fljóti í Biskupstungum 29. maí 1947. Foreldrar hennar eru Sal- ome Þorkelsdóttir, fv. forseti Al- þingis, f. 3.7. 1927, og Jóel Kr. Jóels- son, garðyrkjubóndi, f. 22.1. 1921, d. 16.7. 2007. Úr frændgarði Jóels Kristins Pálssonar Guðfinna Einarsdóttir Páll Magnússon járnsmiður Sigríður Siemsen Páll Einarsson borgarstj. og hæstarréttard. Þorkell Sigurðsson vélstjóri Margrét J. Sveinsdóttir Jóel Kr. Jónsson skipstjóri Jóel Kristinn Pálsson Anna Þorbjörg Jóelsdóttir myndlistarm. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur Einar B. Pálsson verkfræðingur Kristín Pálsdóttir ritari Jóel Kr. Jóelsson garðyrkjubóndi Salóme Þorkelsdóttir fyrrv. forseti Alþingis Anna Þorbjörg Sigurðardóttir Farmers Market Jóel og eiginkona hans, Bergþóra Guðnadóttir, að störfum í hönnunarfyrirtæki sínu. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012 95 ára Sigurpáll Árnason 90 ára Gyða Arnórsdóttir Magnús Ágústsson 85 ára Guðlaugur Eiríksson 80 ára Geir S. Geirmundsson Guðbjörg Guðmundsdóttir Ragnar Garðar Bragason Svavar Gylfi Jónsson 75 ára Guðbjört Ásgeirsdóttir Guðjón Sveinsson Sólveig Jóhannsdóttir Steinþór Þorsteinsson 70 ára Arnþrúður K. Ingvadóttir Auðbjörg Elísa Stef- ánsdóttir Auðun Benediktsson Stefanía Stefánsdóttir Sverrir Skaftason 60 ára Árni Benediktsson Guðbrandur Þ. Elíasson Guðríður S. Hauksdóttir Hreinn Rafnar Magnússon Jón Guðnason Kjartan J. Sigurðsson Kristín Gunnlaugsdóttir Rafn Benediktsson Sólveig Thorarensen Vignir Sigurþórsson 50 ára Alfreð Frosti Hjaltalín Arna Alfreðsdóttir Baldur Haraldsson Elísabet Halldóra Pálsdóttir Erna Gunnarsdóttir Ingibjörg Hjartardóttir Ingibjörg Ólafsdóttir Michael Sigþórsson Sigríður Huld Garðarsdóttir 40 ára Agnieszka Piatkowska Andrés Geir Magnússon Arnar Þórarinn Barðdal Bjarni Pálsson Björn Guðmundsson Guðjón Sveinn Magnússon Guðmundur F. Grétarsson Hartmann Kárason Ingólfur Arnar Magnússon Jóel Kristinn Pálsson Magnús Jón E. Gunnarsson Ragnar Björn Ragnarsson Stefanía Kjartansdóttir Stefán Þór Guðmundsson Vignir Þór Gunnarsson Þorbjörg Heidi Johannsen Þorvarður L. Björgvinsson 30 ára Díana Árnadóttir Einar Dung Ínuson Guðni S. Sigurðsson Gunnar Páll Baldvinsson Lilja Dögg Valþórsdóttir Lindberg Már Scott Magnús Unnar Georgsson Sandra Dröfn Gylfadóttir Sigrún Hafþórsdóttir Sonja Dögg Hákonardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Hjalti er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Maki Tinna Björk Óðins- dóttir, f. 1982, vinnur í bakaríi. Börn Dagur Elías Beck, f. 2003, Gabríel Máni Beck, f. 2005, og Ásta Bryndís Beck, f. 2010. Foreldrar Rögnvaldur Stefán Cook, f. 1964, bíl- stjóri og Kristín Þóra Páls- dóttir Beck, f. 1965, vinn- ur við umönnun. Hjalti Páll Beck 40 ára Vilborg er fædd í Reykjavík og búsett í Vestmannaeyjum. Hún er húsfreyja. Maki Gísli Guðnason, f. 1965. Börn Sigurður Lárus Gíslason, f. 1995, og Eyþór Gíslason, f. 2001. Foreldrar Sigurður Lárus Einarsson, f. 1942, og Guðbjörg Frið- riksdóttir, f. 1943. Vilborg Sigurðardóttir Friðrik Friðriksson æskulýðs-leiðtogi fæddist 25. maí 1868að Hálsi í Svarfaðardal og ólst upp í Eyjafirði og Skagafirði og fór þaðan suður til Reykjavíkur 18 ára. Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1893, heimspekiprófi við Kaupmannahafnarháskóla 1894, stundaði þar nám í læknisfræði og málfræði og lauk prófi í guðfræði við Prestaskólann í Reykjavík 1900. Hann var prestur á nokkrum stöð- um en skamma stund á hverjum stað. Einkum er hans minnst fyrir að koma á fót ýmsum félagasam- tökum sem höfðu mikil áhrif á þjóð- lífið á Íslandi á 20. öld. Hann stýrði kristilegu æskulýðs- starfi í þágu reykvískrar æsku um áratugaskeið. Friðrik kynntist starfi KFUM í Kaupmannahöfn 1893-97 og varð fljótlega þekktur innan þeirra raða. Þegar heim var komið beitti hann sér fyrir stofnun KFUM og K á Íslandi 1899 og var lífið og sálin í þeim félagsskap til dauða- dags. Hann kenndi einnig við kvöld- skóla KFUM og starfaði við sum- arbúðir samtakanna í Vatnaskógi og Vindáshlíð. Karlakórinn Fóst- bræður rekur upphaf sitt til Friðriks en kórinn hét áður karlakór KFUM. Skátafélagið Væringja stofnaði hann um líkt leyti. Friðrik var mikill áhugamaður um fótbolta og stuðlaði að stofnun knatt- spyrnufélagsinsVals árið 1911, ásamt fjórtán drengjum, innan vé- banda KFUM. Þá lagði hann grunn að stofnun hafnfirska knattspyrnu- félagsins Hauka 1931. Séra Friðrik fór í Suðurgöngu ár- ið 1923 og hitti páfann í Róm og töl- uðu þeir saman á latínu. Friðrik var mikill persónuleiki, lífsglaður og sístarfandi, lat- ínumaður og barnavinur. Hann orti töluvert jafnt kvæði og sálma, sjálf- ævisaga Friðriks kom út í tveimur bindum, Undirbúnings- árin, 1928 og Starfsárin, 1933. Hann var heiðursdoktor við HÍ og heið- urborgari Akranesbæjar. Mynda- stytta Sigurjóns Ólafssonar af séra Friðrik er á horni Lækjargötu og Bókhlöðustígs. Friðrik lést árið 1961. Merkir Íslendingar Friðrik Friðriksson 30 ára Birgir ólst upp í Reykjavík. Hann er húsa- smíðameistari og með BS gráðu í bygginga- tæknifræði frá HR. Hann er sjálfstætt starfandi. Maki Íris Thelma Jónsd., f. 1983, starfar hjá Vodafone. Börn Ásdís Katla, f. 2008, og drengur á leiðinni í júní. Foreldrar Ólafur Hreið- arsson, f. 1949, og Helga Ingibjörg Kristjánsdóttir, f. 1951. Birgir Rafn Ólafsson Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Meiri kraftur Betri nýting Meiri hagkvæmni Fleiri valkostir • • • • Nýr Iveco Daily sendibíll Dalvegi 6-8 201 Kópavogur S. 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is ATVINNUBÍLAR Í FREMSTU RÖÐ Kynntu þér kosti Iveco Daily sendibíla hjá Kraftvélum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.