Morgunblaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hafðu svör á takteinum ef þú verð- ur spurð/ur um ákveðið mál. Þú ert með of margt í takinu svona dagsdaglega og það veldur of miklu álagi fyrir þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Þetta er alls ekki góður dagur til þess að eiga í viðræðum um launahækkun í dag. Fólk samgleðst þér innilega vegna árangurs þíns. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt á hættu að verða fyrir barðinu á manneskju sem á mjög erfitt um þessar mundir. Það gengur ekki að vera í vetrardvala lengur, enda komið sumar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú tjáir þig alla daga. Hugsanlega ferðu út fyrir landsteinana fljótlega og það er mikil tilhlökkun hjá þér vegna þess. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þig dreymir dagdrauma þegar þú getur. Kapp er best með forsjá. Þú rembist eins og rjúpan við staurinn í ræktinni – ár- angurinn verður eftir því. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Veröldin snýst í kringum vinnuna þessa dagana. Þú eyðir án þess að hafa efni á því. Taktu í taumana strax. 23. sept. - 22. okt.  Vog Segðu já við beiðni sem þér virðist pirrandi eða asnaleg. Til að eignast nýja vini þarftu fyrst og fremst að sýna öðrum vinsemd. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það þarf svo lítið til þess að setja allar áætlanir úr skorðum hjá þér. Rannsakaðu mál upp á eigin spýtur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Samræður við maka eru erfiðar núna, ekki síst ef umræðuefnið er pen- ingar. Dagurinn í dag er kjörinn til þess að hitta vini, skemmta sér og finna út hvernig hægt er að bæta veröldina. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert mjög hænd/ur að vissri manneskju, en sambandið hefur breyst. Best er að treysta eðlisávísuninni, hversu órökrétt, sem tilfinning þín kann að virð- ast. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fylgdu því vel eftir sem þú skynjar sem mikilvægt. Spurningin er hvort væntingar þínar til viss einstaklings hafi verið raunhæfar? 19. feb. - 20. mars Fiskar Venus er áberandi í korti þínu um þessar mundir og gerir þig einstaklega að- laðandi í augum annarra. Láttu tímann ekki trufla þig, því í raun liggur ekkert á. Helgi Seljan sendir umsjón-armanni Vísnahorns skemmti- lega kveðju: „Datt sú endaleysa í hug að senda þér þetta: Síðasta söngvaka okkar Sigurðar Jónssonar tannlæknis og píanóleik- ara var 23. maí. 19 söngvökur eru að þessu sinni að baki og á þær komu alls 1.450 manns. Þar hafa margir lagt gott lið og ósjaldan í vísnaformi. Ég sagði í lokin: Vertíðarlok nú virðast mér, vilja því margir fagna. Það allra bezta held þó hér, ef Helgi verður að þagna. Sigurður átti stórafmæli á dög- unum sem leynt fór og ég sagði: Afmæli um daginn átti, enginn þetta vita mátti. Á ’onum þó ekkert sé, sem aldur látið gæti í té. En af þessu tilefni og hyllingu söngvökugesta mælti Sigurður svo: Á söngvöku sýnist mér óhætt að segjast nú ver’a yfir áttrætt og í Stangarhyl, að ég hlakki til að spila uns nálgast ég nírætt. Mér er áttræðum sýndur sá sóminn, að á söngvöku hækka menn róminn, en þess vil ég geta að það kann ég meta, enda sáttur við söngvökuhljóminn. Lokaorð mín eftir góðan söng- vökuvetur gætu svo verið þessi: Ykkur gæfu óska nú við endalokin haltur þó ég sé og hokinn og húmor allur burtu fokinn.“ Höskuldur Búi Jónsson orti í til- efni af söngvakeppninni í gær: Ömurð sker nú eyrun mín og inn í haus sest bræla. Ýmsir þurfa aspirín sem evróvisjón svæla. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af söngvökuhljómi, 1.450 manns og vertíðarlokum G æ sa m am m a o g G rí m ur G re tt ir S m áf ól k H ró lfu r hr æ ði le gi F er di n an d JÓN, ÞÚ FERÐAST EKKI NÓGU MIKIÐ NÚNA ER HANN Í TEPPALANDIÝT EN SÚ STELPA EN SÁ HUNDUR ÉG HEFÐI GETAÐ SKAUTAÐ Í ALLA NÓTT ÉG HEFÐI GETAÐ SKAUTAÐ Í ALLA NÓTT... ÉG HEFÐI GETAÐ SKAUTAÐ Í ALLA NÓTT... KANNSKI ÆTTI ÉG AÐ GIFTA MIG... ÉG VEIT AÐ ÉG ER EKKI ALLTAF SAMMÁLA ÞÉR EN MUNDU BARA AÐ ÉG MUN ALLTAF VERJA ALLT SEM ÞÚ SEGIR, SAMA HVAÐ! ÞAÐ ÆTTI AÐ BANNA ALLA ÁFENGA- DRYKKI! EN ÉG GET SAMT EKKI VARIÐ SVONA KJÁNALEGAR HUGMYNDIR! HVAÐ ERTU AÐ GERA? SÁL- FRÆÐINGURINN MINN BAÐ MIG AÐ TEIKNA TIL ÞESS AÐ TJÁ TILVIST MÍNA OG HVAÐ ERTU AÐ TEIKNA? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI ALVEG EN ÉG ER ALVEG AÐ VERÐA BÚINN HVAÐ HELDURÐU AÐ ÞETTA SEGJI UM TILVIST MÍNA? AÐ HÚN SÉ EINFÖLD OG GRÁ? Víkverji, sem er enn að jafna sigeftir eftir taugatrekkjandi út- sendingu RÚV frá Keflavíkur- flugvelli síðasta föstudagskvöld, varð fyrir enn einu áfallinu í vik- unni. Það kom nefnilega í ljós að Víkverji hafði farið með fleipur í ein- um af sínum víðlesnu og vinsælu pistlum. Villan birtist sl. fimmtudag þegar Víkverji lét móðan mása um ofnotkun á stórum staf í nöfnum stofnana og hélt því blákalt fram að sýslumaðurinn í Reykjavík væri ein þeirra stofnana sem hefðu tekið upp stóra-stafs-villutrúna. Sýslumað- urinn hefur nú bent Víkverja á að þetta sé ekki rétt, embættið noti alls ekki stóran staf í upphafi nafnsins. x x x Ástæðan fyrir ruglinu í Víkverjavar líklega sú að margar aðrar stofnanir og stjórnvöld hafa tekið upp á því að rita nafn sýslumannsins í Reykjavík með stórum staf, a.m.k. stundum. Dæmi um þennan rithátt má m.a. finna í tilkynningum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, innanríkisráðuneytinu, efnahags- ráðuneytinu, Reykjavíkurborg og Landspítalanum. Víkverji var orð- inn svo vanur að sjá sýslumann með stóru s-i að hann dró þá röngu ályktun að sýslumaðurinn hefði tek- ið upp þennan rithátt. Svo er sem sagt ekki því embættið ritar sýslu- maður með litlu s-i og stóri staf- urinn er alls ekki á ábyrgð þess. Víkverji þakkar fyrir ábendinguna frá sýslumanninum og biðst innilega afsökunar á þessum slælegu vinnu- brögðum. x x x Undanfarna daga og vikur hefurMorgunblaðið flutt nokkrar fréttir af umgengni hins opinbera og almennra borgara um landið, m.a. um algjörlega óþarfar en full- komlega leyfilegar skemmdir á Úlf- arsfelli, um skemmdir af völdum aksturs á hálendinu austanlands og um að ofbeit í hrosshögum hafi ekki verið meiri í yfir 20 ár. Þessar frétt- ir hafa enn staðfest þá skoðun Vík- verja að Íslendingar gangi alls ekki nógu vel um landið sitt. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Enginn er þinn líki, Drottinn! Mikill ert þú og mikið er nafn þitt sakir máttar þíns. (Jeramía 10, 6.) ými - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.