Morgunblaðið - 04.06.2012, Síða 11

Morgunblaðið - 04.06.2012, Síða 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári Fatahönnuðurinn Ingvar Helgason hannar föt fyrir forvitnar og ferðaglaðar konur sem lifa lífinu. kúrsa í sniðagerð, saumaskap, hönn- un og fögum sem gætu nýst mér í starfinu. Svo hef ég öðlast mikla starfsreynslu í gegnum árin og lært þannig inn á starfið,“ segir Ingvar sem er nú búsettur í London þar sem Ostwald Helgason er með stúdíó. Leiðir hans og Susanne lágu saman er þau störfuðu saman hjá hönnuðinum Marjan Pejoski en sá hannaði meðal annars hinn fræga svanakjól Bjarkar sem hún klæddist svo eftirminnilega á rauða dreglinum á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2001. „Það fór strax mjög vel á með okkur Susanne og við skildum hvort annað mjög vel,“ segir Ingvar um fyrstu kynni þeirra Susanne. Dramatískt ferli Ingvar segir samstarf hans og Susanne yfirleitt ganga vel en stund- um rekist ólík sjónarmið hans og Susanne á í hönnunarferlinu. „Við höfum svipaða hugsjón en komum úr tveimur ólíkum áttum. Þetta er alltaf mikið drama, hún vill eitt og ég annað. Stundum eru mikil slagsmál og deilur í ferlinu. Ég vil hafa þetta svona og svona en hún hin- segin en einhvern veginn endar þetta alltaf með því að útkoman verður eins og best verður á kosið,“ segir hann, ánægður með samstarfið. „Hönn- unarferlið fer yfirleitt fram þannig að Susanne er meira í tæknilegu deild- inni en ég,“ segir Ingvar og bendir á að hún sé menntaður fatahönnuður. „Við veljum efni saman, svo býr hún til mynstur og velur litapallettu og loks vinnum við saman að sniðum og lúkkinu,“ segir Ingvar um vinnuferl- ið. Allt á fullu Vörur Ostwald Helgason eru nú þegar seldar í búðunum í Opening Ceremony sem eru í New York og Los Angeles og búðinni Browns Fo- cus í London. „Frá og með haustinu bætast svo við búðir eins og Fivestory og Club 21 í Singapúr og Taílandi,“ segir Ingvar og bendir á að íslenskar kon- ur geti nálgast vörurnar í netversl- unum Opening Ceremony og Browns Focus. Í vikunni verður sýnd svokölluð millilína Ostwald Helgason í New York. „Við verðum ekki með tísku- sýningu í þetta skiptið, það bíður fram á haust fyrir stærri línu,“ út- skýrir hann. Nóg er um að vera hjá þeim Ingvari og Susanne en ásamt því að vera á leið til New York að sýna milli- línuna eru þau einnig á fullu í vinnslu nýrrar línu sem og að fylgja haust- og vetrarlínunni eftir. „Núna er línan sem við sýndum á tískuvikunni í New York í febrúar í framleiðslu og við erum að vinna í að koma henni í búðir. Svo erum við á fullu að vinna í nýju línunni sem verð- ur tilbúin í haust,“ segir Ingvar, spenntur fyrir komandi mánuðum. „Þetta er alltaf mikið drama, hún vill eitt og ég annað.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2012 Brúðubíllinn verður með sýningar að venju í júní og júlí undir stjórn Helgu Steffensen og eru þær sniðnar við hæfi yngstu borgaranna og eru til skemmtunar og fræðslu. Brúðubíllinn starfar á vegum SFS og eru sýningarnar ókeypis og allir eru velkomnir. Nýja sýningin sem frumsýnd verður í vikunni kallast „Allir dansa konga“ og er að venju samsett úr stuttum þáttum, leik- ritum, sögum og söngvum, en ætíð er passað upp á að hafa lög í sýningunni sem krakkarnir geta tekið undir. Forsýning verður í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg miðvikudaginn 6. júní kl. 14:00 og frumsýning í Árbæjar- safni 7. júní kl. 14:00. Annars eru sýningarnar klukkan 10:00 og 14:00 yfir sumarið en í fyrrasumar sáu yfir 12.000 börn í Reykjavík sýningar Brúðubílsins. Dagskrá sumarsins má nálgast á brudubillinn.is. Brúðubíllinn fer af stað Morgunblaðið/Ernir Gleði Krakkarnir taka virkan þátt. Allir dansa konga í sumar Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Heyrðu vel í sjónvarpinu án þess að hækka hljóðstyrkinn (og talaðu við sessunaut um leið!) Komdu í nákvæma greiningu hjá faglærðum heyrnarfræðingi ReSound heyrnartækin eru með kringóma hljóðvinnslu sem gefa einstaklega skýr hljóð Talaðu fyrirhafnar- laust í farsímann Öðlastu aftur tilfinningu fyrir því að taka þátt í lífinu Faðmaðu ástvin án þess að heyrnartækin væli Heyrðu vel það sem vinur segir án þess að þið séuð augliti til augnlits Hlustaðu á börn að leik án þess að hávaðinn trufli þig ára Veglegur kaupauki aðverðmæti 9.950 kr. fylgir öllumseldum Alera heyrnartækjum Kíktu til okkar kl. 14:00 á morgun og sjáðu kynningu á nýjustu heyrnartækjunum. Léttar veitingar í boði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.