Morgunblaðið - 04.06.2012, Side 15

Morgunblaðið - 04.06.2012, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2012 Skapaðu góðar minningar með parketi frá Boen Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum! Norskt viðarparket með 5g smellukerfi sem gerir lögnina einfalda og fljótlega. AFP | 89 manns létu lífið í Sýrlandi á laugardag- inn, þar af 57 stjónarhermenn og 29 óbreyttir borgarar. Um er að ræða mesta mannfall sem sýrlenski stjórnarherinn hefur orðið fyrir á ein- um degi síðan uppreisnin hófst í mars 2011. At- burðirnir á laugardag koma í kjölfar mikilla átaka í síðustu viku þar sem a.m.k. 350 manns létu lífið. Þá ber að minnast þess að 100 manns féllu í fjöldamorðum í Houla helgina 25.-26. maí. Starfsmaður sýrlenskra mannréttindasam- taka segir mannfallið skapast af auknum átök- um í landinu. „Hersveitir geta verið auðveld skotmörk þar sem þær eru ekki þjálfaðar í átökum í borgum og bæjum auk þess sem þær eru að berjast við heimamenn sem þekkja svæðið út og inn.“ Forseti Sýrlands, Bashar al- Assad, hélt ræðu á sýrlenska þinginu í gær. „Grímurnar hafa fallið og hlutverk erlendra að- ila í hérlendum atburðum er augljóst. Vanda- mál okkar er ekki stjórnmálalegs eðlis, við stöndum frammi fyrir árásum á landið okkar.“ Hann gerði auk þess lítið úr áhrifum arab- íska vorsins í Sýrlandi. „Sýrlenska þjóðin er greind og fylgir atburðum í öðrum löndum eftir í blindni.“ Ávarpið í gær kemur í kjölfar þess að leiðtogar Arabaríkjanna biðluðu til Samein- uðu þjóðanna að stöðva blóðsúthellingar í Sýr- landi sem nú hafa staðið yfir í 15 mánuði. Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, Saud al-Fai- sal, sakaði Assad um undanbrögð á sameig- inlegum blaðamannafundi með Ban Ki-Moon, aðalritara SÞ. „Þeim umleitunum sem sýrlensk yfirvöld hafa samþykkt hefur ekki verið hrint í framkvæmd. Hann [Assad] er að kaupa sér og stjórn sinni tíma,“ sagði Saud al-Faisal. Ban Ki-Moon hvatti stríðsaðila til að fylkja sér um fyrirhugaða áætlun Kofi Annans, sendifulltrúa SÞ og Arababandalagsins. Saud al- Faisal sagði áætlunina verða að innihalda skýra, bein- skeytta og nákvæma stefnu í málinu. Þess má geta að 13.400 manns hafa fallið í átökum í Sýrlandi frá því uppreisnin hófst fyrir rúmu ári. Þar af hafa 2.400 fallið frá því vopna- hlé tæknilega hófst hinn 12. apríl síðastliðinn. Ekkert lát á mannfalli í Sýrlandi  Tæplega 500 manns fallið í átökum í landinu undanfarna viku  Assad forseti grunar erlend ríki um græsku  Von á friðaráætlun frá Arababandalaginu AFP Átök Bashar al-Assad, forseti Sýr- lands, lét þung orð falla um helgina. Fjögurra daga hátíðarhöldum vegna krýningarafmælis Elísabetar II. Eng- landsdrottningar lýkur á morgun. Almenningur í Bretlandi tekur virkan þátt í skemmtuninni, um 100.000 manns mættu á laugardag á veðreiðar í Epsom sem mörkuðu upphaf þessarar hátíðar. Vinsældir konungsfjöl- skyldunnar hafa ekki mælst svo miklar í áratugi en nýlegar kannanir sýna að 80% Breta vilja að landið verði áfram konungdæmi. AFP Sextíu ára krýningarafmæli drottningar fagnað Talið er að yfir sex milljónir manna víðsvegar um Bretland hafi tekið þátt í hátíðarhöldunum um helgina AFP | Þúsundir manna mót- mæltu á götum Kaíró og fleiri egypskra borga alla helgina eftir að dómstólar kváðu upp dóm yfir Hosni Mub- arak, fyrrver- andi forseta landsins. Mub- arak var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að bera ábyrgð á dauða yfir 850 mótmælanda í aðdraganda byltingarinnar sem átti sér stað í landinu í febrúar 2011. Fimm fyrr- verandi yfirmenn öryggismála í stjórn Mubaraks voru látnir lausir við sama tækifæri. Skrifstofa ríkis- saksóknara í landinu segir að til standi að áfrýja dómunum, sama gera verjendur Mubaraks. Mubarak og synir hans voru auk þess sakaðir um að hafa auðgast um 331 milljón á innherja- viðskiptum á egypskum hlut- bréfamarkaði, en þær ákærur voru dregnar til baka vegna formgalla. „Eftir að hafa hlustað á dóms- uppkvaðninguna hafa margir á til- finningunni að við séum að endur- upplifa gamla tíma, þá tíma þegar Mubarak réð ríkjum,“ segir mót- mælandinn Feda Essam. Mótmæla vægum dómi yfir Mubarak Hosni Mubarak AFP | Óttast er um líf 157 farþega flugvélar sem hrapaði í Lagos, stærstu borg Nígeríu, í gær. Flug- vélin brotlenti á fjölbýlishúsi og kirkju og brotnaði í tvennt við höggið. Björgunarmenn á svæðinu segja að fólk á jörðu niðri hafi einn- ig látist við brotlendinguna. Eldar kviknuðu strax og mikinn reyk lagði yfir hverfið sem er skammt frá flugvellinum í Lagos. „Flugvélin hafði flogið mjög lágt með mjög miklum hávaða í u.þ.b. fimm mínútur áður en hún brot- lendi,“ segir sjónarvottur. Aðstæður á slysstað voru mjög erfiðar þar sem mikill eldur geisaði í flaki flugvélarinnar auk þess sem bensín lak úr vélinni. Mikill reykur torveldaði aðstæður enn frekar. „Ég var að koma úr kirkju um miðjan dag þegar ég heyrði ein- hvers konar sprengingu. Síðan sá ég mikla elda frá staðnum þar sem flugvélin fórst,“ segir Tunji Da- wodu, íbúi í nálægu hverfi. Yfirvöld segja ósennilegt að nokkur finnist á lífi í flaki vél- arinnar. Orsakir slyssins liggja ekki fyrir en að sögn flugmálayfirvalda í Níg- eríu fannst flugriti vélarinnar og er hann kominn í hendur viðeigandi aðila. Forseti Nígeríu, Goodluck Jo- nathan, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu. AFP Hörmungar Flugmálayfirvöld segja ósennilegt að farþegar finnist á lífi í flaki flugvélarinnar sem brotlenti á fjölbýlishúsi í Lagos í Nígeríu í gær. Flugvél brotlenti í íbúðahverfi í Lagos

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.