Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 7. J Ú N Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  131. tölublað  100. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG FRUMKVÖÐLAR, ATVINNULÍF OG FRÆÐI Á ÁSBRÚ VIÐSKIPTI GERIR EKKI UPP Á MILLI SINFÓNÍANNA Sviðin jörð hjá verk- tökum á Íslandi SINFÓ SPILAR BEETHOVEN 42ÞORP Í ÞRÓUN 20-21 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Óvissa um framtíð evrusvæðisins seinkar afnámi gjaldeyrishafta og eru teikn á lofti um að gengi krónu veikist frekar á haftatímanum. Styrmir Guðmundsson, sjóðsstjóri hjá eignastýringarfyrirtækinu Júpí- ter, telur að umrótið í Evrópu geti haft „afdrifaríkar afleiðingar“ fyrir áætlanir um að afnema höftin. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka, tekur undir með Styrmi að langt sé í afnám hafta og að útlit sé fyrir að gengi krónu muni veikjast. Það muni hækka verðtryggðar skuldir og hafa önnur neikvæð áhrif. Spáir Ingólfur því að höftin verði í mörg ár enn. Davíð Stefánsson, sérfræðingur hjá Arion banka, óttast verðbólgu vegna niðursveiflunnar í Evrópu og að erfiðara verði fyrir íslensk fyrir- tæki að endurfjármagna erlend lán. Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðla- bankastjóri Seðlabanka Íslands, seg- ir að eftir því sem kreppan á evru- svæðinu dragist á langinn því meiri líkur séu á að hún hafi neikvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Viðbúið sé að gengi krónu gefi eftir ef fiskverð lækkar vegna kreppunnar í Evrópu. Umsóknin ekki forgangsmál Skuldakreppan í Evrópu gæti einnig haft áhrif á hraða aðildarvið- ræðna Íslands við ESB, að sögn Árna Þórs Sigurðssonar, formanns utanríkismálanefndar. Ástæðan sé sú að lykilstjórnendur sambandsins verði uppteknir við lausn kreppunnar og hafi því minni tíma en ella fyrir umsókn Íslands. MLangvinn kreppa »14 Evrukreppa lengir höft  Óróinn á evrusvæðinu gæti gert strik í áætlanir um afnám gjaldeyrishafta  Formaður utanríkismálanefndar telur kreppuna geta tafið viðræður við ESB Tímarammi í uppnámi? » Í fyrrahaust samþykkti Al- þingi að gjaldeyrishöftin skyldu gilda til 31. desember 2013. » Lög um höftin voru hert í mars í ár og er deilt um hvenær hægt verði að afnema þau. AP„Það er sem betur fer þannig að það að greinast með krabbamein í dag er ekki eins skelfilegt og það var fyrir fimmtíu árum, þetta er gjörbreytt. Nú getum við sagt að tveir af hverj- um þremur lifi sitt krabbamein af,“ segir Jón Gunnlaugur Jónasson, yfirlæknir Krabbameinsskrárinnar sem er nýlega komin út. Lífslíkur þeirra sem greinast með krabbamein á Íslandi hafa stórauk- ist síðastliðin fimmtíu ár. Á hinn bóginn hefur krabbameinstilfellum fjölgað á sama tíma og hættan á því að greinast með krabbamein aukist um 1% á ári. »12 Krabbamein er ekki eins skelfilegt Morgunblaðið/Árni Sæberg Hætta Minnt á brjóstakrabba með því að baða Perluna bleiku ljósi. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Gert er ráð fyrir að 30-40 skip sigli til Reykjavík- ur vegna samstöðufundar útgerðarmanna og starfsmanna þeirra gegn kvótafrumvörpum rík- isstjórnarnnar sem verður á Austurvelli í dag. Adolf Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, LÍU, vísar því eindregið á bug að nokkur sé beittur þvingunum, á fundinn mæti aðeins þeir sem það vilji gera. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambandsins, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að sjó- menn þyrðu ekki annað en taka þátt í fundinum á Austurvelli. Gísli Garðarsson, skipstjóri á Kap VE-4, sagði alla í áhöfn hans ætla að taka þátt í fundinum. En eru menn skikkaðir til að mæta? „ Ég kannast ekki við það, allir sem ég hef hitt eru sammála um að standa í þessum aðgerðum,“ segir Gísli. „Ef útgerðin fer á hausinn fáum við ekkert kaup, við erum ekki ríkisstarfsmenn.“ Hópur fólks sem krefst þess að ríkisstjórnin leggi á aukið veiðigjald hefur boðað til mótmæla- fundar á sama stað og á sama tíma. Samtök fisk- framleiðenda og útflytjenda segja að fari kvóta- frumvörpin tvö óbreytt í gegn muni fiskmarkaðir leggjast af og þúsundir manna missa vinnuna. Stjórn Landssambands smábátaeigenda sam- þykkti í gær yfirlýsingu um að skora á fé- lagsmenn að binda báta sína í dag og taka þátt í mótmælunum við Alþingi. MUmmæli álitsgjafa »6 Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson Siglir Kristbjörg VE-71 á leið úr höfn í Eyjum í gærkvöldi. Skipin sem sigla til Reykjavíkur eru aðallega úr Eyjum og frá vestanverðu landinu. Tugir skipa til Reykjavíkur  LÍÚ segir engan þvingaðan til að mæta á samstöðufund á Austurvelli  Skipstjóri: „Ef útgerðin fer á hausinn fáum við ekkert kaup“ Dæmi eru um að leigjendur bíla- leigubíla hafi verið ofrukkaðir um háar fjárhæðir. Alls eru nú um 100 bílaleigur á Íslandi. Bandaríkjamaður átti að greiða nær tvær milljónir í viðgerðir vegna öskuskemmda en hann ók bílaleigubíl m.a. um öskufokssvæði í apríl 2010. Fjárhæðin var lækkuð í í rúmlega 660 þúsund krónur. Í öðru máli var rukkað um 162.000 krónur vegna skemmda á aftur- stuðara en síðan kom í ljós að reikn- ingur fyrir viðgerðinni var upp á 116.000 krónur. »16 Bílaleigur ofrukka vegna viðgerða FINNUR.IS Óvissa fylgir óverð- tryggðum lánum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.