Morgunblaðið - 07.06.2012, Page 2

Morgunblaðið - 07.06.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 00000 Veiðikortið 37 vötn Eitt kort 6.000 kr. www.veidikortid.is FLEIRI VÖTN ÓBREYTTVERÐ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Ég hef haft það betra!“ segir Elisabeth Gluyas, breska konan sem slasaðist illa þegar hún féll niður í gil við fossinn Gljúfrabúa á öðrum degi hvítasunnu, þegar blaðamaður spyr hvernig henni líði þar sem hún ligg- ur í sjúkrarúmi á Landspítalanum í Fossvogi öll samanskrúfuð. „En ég er mjög heppin kona að vera hér,“ bætir hún við. Talið er að Elisabeth hafi hrapað um fimm eða sex metra niður og brotnaði hún við það á fótum, öxl, mjöðm og úlnlið. Auk þess féllu lungun í henni saman við höggið. Sjálf segist hún þó ekkert muna eftir slysinu. Rankaði við sér á fimmtudegi Fossinn Gljúfrabúi er við bæinn Hamragarða nærri Seljalandsfossi og þurfa þeir sem vilja skoða hann að gægjast inn í gljúfrið til að sjá hann betur. „Ég man eftir að ég gekk að foss- inum og aftur til baka því að það var fólk að bíða. Eftir það man ég ekki eftir neinu,“ segir Elisabeth um slysið. Ferðafélagar hennar hafi lýst því þannig að eina stundina hafi hún verið við hlið þeirra en þá næstu hafi hún verið horfin. „Enginn þeirra sá hvað gerðist í raun,“ segir hún. Björgunarsveitarmenn af Hvols- velli björguðu Elisabeth upp og var hún flutt með þyrlu á Landspítalann. Þar lá hún á gjörgæslu fyrstu dag- ana eftir slysið. Það var svo ekki fyrr en á fimmtudeginum eftir slysið sem hún komst aftur til meðvitundar. „Ég sá flísarnar í loftinu en hafði ekki hugmynd um hvar ég var eða hvað gengi á. Það var mjög óraun- verulegt,“ segir hún um það þegar hún rankaði aftur við sér. Elisabeth liggur nú á bæklunar- deild Landspítalans og bíður þess að vera flutt með flugi heim til Leicester á Englandi. Það gæti jafn- vel gerst í lok þessarar viku. Hún þarf þó að vera með skrúfur í mjöðm og úlnlið í sex vikur. Allir reynst henni vel Elisabeth segir alla, björgunar- sveitar-, sjúkraflutningamenn og starfsfólk sjúkrahússins, hafa reynst sér afar vel. „Starfsfólkið hér er frá- bært,“ segir Elisabeth sem er létt í lund þrátt fyrir hrakfarirnar. „Ég er ekkert orðin afhuga Íslandi þrátt fyrir þetta. Landið er mjög fallegt,“ segir hún. Morgunblaðið/Ómar Stórslösuð Elisabeth á sjúkrabeði. Hún segir sakamálaþátt sem BBC sýndi seint á 8. áratugnum sem gerðist á Ís- landi hafa gert sig áhugasama um að koma til landsins. Hún man þó ekki nafn þáttarins og auglýsir eftir því. „Ég er mjög heppin kona að vera hér“  Féll 5-6 metra nærri Seljalandsfossi og slasaðist illa Guðni Einarsson gudni@mbl.is Reglur um notkun almennings á neyðarsendum hafa verið rýmkaðar en til þessa hafa þeir einungis verið leyfðir um borð í skipum og bátum. Sem kunnugt er sendi ástralskur ferðamaður neyðarboð með hjálp neyðarsendis á þriðjudag og var honum bjargað af Skeiðarárjökli. Það er ekki fyrsta dæmið um að slíkur neyðarsendir hafi komið ferðamanni til bjargar hér. Jónas Guðmundsson, hjá Slysa- varnafélaginu Landsbjörg, sagði að maðurinn hefði verið með neyðar- sendi (PLB) sem sendir boð um gervitungl á 406 megariða tíðni. Kerfið er vaktað af alþjóðlega björgunarfyrirtækinu Cospas-Sar- sat sem m.a. er með vakt í Noregi og Bretlandi. Neyðarboð fara til Landhelgisgæslunnar og Neyðar- línunnar. Póst- og fjarskiptastofnun bann- aði notkun neyðarsenda á landi þar til nýverið. Jónas sagði að Land- björg hefði verið með undanþágu til að eiga og leigja út fimm PLB- senda til notkunar á landi. Erlend- um ferðamönnum var hins vegar leyft að koma með svona senda. „Okkur þótti halla á íslenska ferðamenn en nú má hver sem er eiga þetta og hver sem er selja þetta. Skilyrðið er að tækið sé skráð hjá Póst- og fjarskiptastofnun og í alþjóðlegan gagnagrunn Cos- pas-Sarsat,“ sagði Jónas. Vaxandi eftirspurn hefur verið eftir að leigja sendana, en leigan er 3.500 kr. á viku. Jónas sagði að lík- lega þyrfti að fjölga leigusendunum í sumar. Nú mega allir eiga neyðarsenda til notkunar á landi  Vaxandi ásókn í neyðarsenda hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg Morgunblaðið/Eggert Neyðarsendir Tækið er á stærð við klunnalegan GSM-síma. Ferðin til Íslands var hluti af fögnuði í tilefni af fimmtugsafmæli El- isabeth. Kom hún hingað með hópi Breta og fóru meðlimir hans í ýmsar léttar dagsferðir frá Vík á Mýrdal. Það var í einni slíkri ferð sem slysið varð. Elisabeth segir að annar draumur hennar sem hún lét rætast á af- mælinu hafi verið að aka Jagúar E-Type. „Ég fór og ók svoleiðis sportbíl á keppnisbraut. Svo fer ég til Íslands í gönguferð og enda svona útlítandi! Ég held að ég láti þetta gott heita af fimmtugsafmælisfögnuði,“ segir hún hlæjandi. Til að bæta á kaldhæðn- ina heitir gönguhópurinn sem hún fór með til Íslands „Heilsugönguhóp- urinn“ (e. Healthy Walks Group). „Svo enda ég á spítala!“ segir hún. Heilsugangan endaði á spítala FAGNAÐI FIMMTUGSAFMÆLINU Á ÍSLANDI Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sala á grillkjöti tók vel við sér í góð- viðriskaflanum í síðustu viku, eins og ávallt þegar sólin skín. Ekki er ólík- legt að útigrillum hafi fjölgað veru- lega með aukinni samkeppni í bygg- ingavöruverslun og að fólk hafi notað fyrsta tækifæri til að hita upp nýju grillin. Nægar birgðir eru til af lambakjöti í landinu. Kjötframleiðendur sem rætt var við segja að sumarsalan fari almennt vel af stað. Góðviðriskaflinn hafi haft góð áhrif. Þá kviknar á útigrillunum. Metsala er á grillvörum hjá SS og nemur aukningin tugum prósenta frá fyrra ári, segir Steinþór Skúlason forstjóri. SS hefur sett nýja bragðl- ínu í grillkjöti, með ítölskum krydd- blöndum, á markað. Steinþór telur að góð viðbrögð við henni skýri aukn- ingu í sölu. „Við þetta bætist svo sér- stakur góðviðriskafli sem hefur létt lund landsmanna og aukið kjöt- neyslu,“ segir hann. Mikil sala var á útigrillum í sam- keppninni sem var í tengslum við opnun nýrrar byggingarvöruversl- unar Bauhaus í Reykjavík. Hægt var að kaupa grill á góðu verði víða í verslunum og virtist fólk nýta sér það. Steinþór telur líklegt að sú stað- reynd að fleiri grill eru til á heimilum landsins hafi stuðlað að aukinni kjöt- sölu. 3.000 tonn af lambakjöti í birgðum Síðasta vor komu upp umræður um skort á lambakjöti og einhverjir kaupmenn töldu sig ekki fá það sem þeir þurftu. Því neituðu framleið- endur, sögðu að aldrei hefði orðið kjötskortur. Tæplega þrjú þúsund tonn voru til af kindakjöti í birgðum í byrjun maí á þessu ári og dugar það til margra mánaða sölu. Annað vinsælt grillkjöt, eins og til dæmis svínakjöt, kemur úr slátrun allt árið. Telur Sigurður Jó- hannesson, formaður Landssamtaka sláturleyfishafa, að birgðir af lamba- kjöti séu í jafnvægi og tryggt að nóg verði til af kjöti á grillið í allt sumar. Nýju grillin komin í notkun  Kjötsala jókst í góðviðriskaflanum  Metsala á grillkjöti hjá SS  Útsölur á útigrillum auka kjötsölu  Ekki útlit fyrir skort á lambakjöti í sumar Morgunblaðið/hag Lostæti Grillmatur er góður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.