Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 3
Útvegsmannafélag Austfjarða Útvegsmannafélag Akraness Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar Útvegsbændafélagið Heimaey Útvegsmannafélag Hornafjarðar Útvegsmannafélag Norðurlands Útvegsmannafélag Reykjavíkur Útvegsmannafélag Snæfellsness Útvegsmannafélag Suðurnesja Útvegsmannafélag Vestfjarða Útvegsbændafélag Vestmannaeyja Útvegsmannafélag Þorlákshafnar Þrátt fyrir alvarlegar athugasemdir hafa frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld ekki tekið nauðsynlegum breytingum. Þau frumvörp sem nú liggja fyrir þinginu munu skaða sjávarútveginn og skerða lífskjör almennings. Við ítrekum ósk okkar um viðræður og samstarf. Umsagnir um frumvörpin sýna glöggt í hvers konar ógöngur þetta mál er komið. Sýnum samstöðu okkar í verki og mætum á sameiginlegan fund sjómanna og útgerða á Austurvelli í dag kl. 13. „Mælt er með að endurskoða frumvarpið frá grunni þar sem tillögur þess muni hafa alvarleg áhrif á stöðu sjávarútvegsfyrirtækja hér á landi og samfélagið allt.“ – Úr umsögn Landsbankans frá 18. apríl sl. „Verði þessi frumvörp, sem eru unnin án alls samráðs við atvinnugreinina, að lögum munu þau viðhalda og jafnvel auka ósætti innan greinarinnar með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.“ – Úr umsögn Farmanna- og fiskimannasambandsins og Félags skipstjórnarmanna frá 17. apríl sl. „Er niðurstaðan sú að umfang gjaldtöku samkvæmt frumvarpinu sé langt umfram það sem útgerðin getur staðið undir.“ – Úr áliti sérfræðihóps skipuðum af atvinnuveganefnd frá 2. maí sl. Það verður aldrei sátt án samstarfs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.