Morgunblaðið - 07.06.2012, Síða 8

Morgunblaðið - 07.06.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Meirapróf Næsta námskeið byrjar 13. júní 2012 Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737 Ragnar Arnalds skrifar stór-merkan pistil, skyldulesn- ingu, á vef Vinstri vaktarinnar. Hér er aðeins rúm fyrir kafla úr niðurlagi hans. Hann rekur fram- göngu Samfylkingarinnar í ESB- málinu og hags- muni hennar af því að draga það að lyktir fáist og segir svo:    En fyrir VG eróhugsandi og nánast dauðadómur að sigla inn í kosn- ingabaráttu komandi vetrar með ESB-málið í lausu lofti, enda er nú svo komið að almennir kjósendur botna hvorki upp né niður í því fyrir hvað flokkurinn stendur í þessu máli.    Það sem flokksforystan hafðisér til afsökunar fyrir þremur árum að heppilegt væri fyrir landsmenn „að kíkja í pakkann og sjá hvað í boði er“ var kannski brúkleg viðbára fyrir einhverja í skamman tíma.    En sá tími er löngu liðinn. Aðþremur eða fjórum árum liðnum getur enginn haldið því fram að hann sé enn „að kíkja í pakkann“.    Þegar við blasir að þeir semstóðu að umsókninni um ESB- aðild reyna sjálfir hvað þeir geta að tefja tímann í góðri samvinnu við stækkunardeild ESB vegna þess að þeir vita að málið er stein- dautt um leið og þjóðaratkvæða- greiðsla fer fram, þá er það skylda VG að grípa í taumana og segja við samstarfsflokkinn: Hingað og ekki lengra! Nú er nóg komið! Annað hvort greiðum við atkvæði um það ekki síðar en í haust hvort þjóðin vill ganga í ESB – eða við leggjum málið til hliðar og hreyf- um ekki við því aftur nema að undangengnu þjóðaratkvæði.“ Ragnar Arnalds Nú er nóg komið STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.6., kl. 18.00 Reykjavík 9 alskýjað Bolungarvík 4 alskýjað Akureyri 6 rigning Kirkjubæjarkl. 8 skýjað Vestmannaeyjar 8 skýjað Nuuk 3 upplýsingar bárust ek Þórshöfn 8 skýjað Ósló 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Helsinki 11 skúrir Lúxemborg 16 skúrir Brussel 17 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 15 léttskýjað London 17 skýjað París 20 skúrir Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 11 skúrir Berlín 13 skúrir Vín 20 skýjað Moskva 22 þrumuveður Algarve 23 léttskýjað Madríd 32 léttskýjað Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 26 heiðskírt Róm 23 skýjað Aþena 25 léttskýjað Winnipeg 26 léttskýjað Montreal 18 léttskýjað New York 18 léttskýjað Chicago 21 léttskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:08 23:47 ÍSAFJÖRÐUR 2:07 24:57 SIGLUFJÖRÐUR 1:45 24:45 DJÚPIVOGUR 2:25 23:28 Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Ég er í vinnunni frá 9 til 5 og þegar ég kem heim þá er ég ekki kjörinn fulltrúi,“ sagði Einar Örn Bene- diktsson, kjörinn borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður menn- ingar- og ferðamálaráðs Reykjavík- urborgar, í samtali sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Ummælin lét hann falla eftir að hafa þegið ferð í boði WOW air. Reglurnar skýrar Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn er ekki sammála túlkun Einars á siða- reglunum og setur spurningarmerki við skilning hans á þeim. Í siðareglum fyrir kjörna fulltrúa borgarinnar segir að þeir þiggi ekki gjafir, fríðindi eða önnur hlunn- indi frá við- skiptamönnum eða þeim, er leita eftir þjónustu borgarinnar, nema um sé að ræða óverulegar gjafir. „Siðareglur borgarinnar, bæði fyrir borgarfulltrúa og starfsmenn borgarinnar, eru mjög skýrar hvað þetta varðar. Þær kveða einfaldlega á um að slík fríðindi megi ekki þiggja. Þessar siðareglur höfum við samþykkt án þess að greina með nokkrum hætti á milli athafna okkar sem borgarfulltrúa og einstaklinga. Sé það skilningur meirihlutans að við getum sjálf ákveðið með ein- hverjum hætti hvenær við látum á reglurnar reyna sem einstaklingar þá þarf augljóslega að endurskoða gildandi siðareglur eða þá að ein- staka borgarfulltrúar verði að segja sig frá þeim,“ segir borgarfulltrú- inn. „Það er alveg ljóst að þegar siða- reglurnar voru settar hér árið 2009 þá taldi enginn, og það hefur enginn áður komið fram með þá túlkun, að þær ættu við um okkur í vinnutím- anum en ekki þess utan. Það er al- veg ný túlkun og ég tel hana frá- leita.“ Ábyrgðin hjá borgarstjóra Hanna Birna svarar því, spurð út í eftirmál málsins, að meirihlutinn og borgarstjóri verði að svara því hvort viðkomandi túlkun sé almenn túlkun þeirra á siðareglunum eða hvort um sé að ræða túlkun eins borgarfulltrúa. „Borgarstjórinn í Reykjavík er æðsti embættismaður borgarinnar og hann á að tryggja að gildandi reglum sé fylgt og bregðast við sé það ekki gert. Jón Gnarr get- ur ekki vikið sér undan þeirri ábyrgð.“ Það skal tekið fram að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist hvorki í formann borgarráðs, Dag B. Egg- ertsson, né varaformann borgar- ráðs, Óttar Ólaf Proppé. Ekki náðist heldur í Jón Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, en hann sagði í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi að þetta yrði að „vega og meta í hverju tilfelli.“ Einar Örn hefði gefið sínar skýringar á þessu og Jón sagðist í raun engu hafa við þær að bæta. Túlkun á siðareglum fráleit  Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir engan áður hafa haldið því fram að siðareglur ættu bara við milli kl. 9-5 Hanna Birna Kristjánsdóttir Fram kemur í fréttatilynningu frá Max Dager, forstjóra Nor- ræna hússins í Reykjavík, að krían sé aftur farin að verpa í Vatnsmýrinni eftir margra ára hlé. Dager segir að Norræna húsið sé að reyna að endurvekja og skapa „friðland fyrir fugla í einhverju erilsamasta borgarumhverfi sem hugsast getur. Þetta er sannarlega mikil áskorun hérna upp við hraðbrautina og í ná- lægð við flugvöll, en það eru fugl- arnir sem munu kveða upp dóminn um hvernig til tekst. Nú þegar hef- ur krían snúið hingað aftur eftir margra ára hnignun. Á þessu ári hafa 10-15 pör gert sér hreiður á svæðinu.“ kjon@mbl.is Krían verpir aftur í Vatnsmýrinni Kría Í Vatnsmýrinni eftir langt hlé.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.