Morgunblaðið - 07.06.2012, Síða 11

Morgunblaðið - 07.06.2012, Síða 11
Saga til næsta bæjar Í dag kl. 17 verður opnuð sýning í Hönnunarsafninu sem ber yfirskrift- ina SAGA TIL NÆSTA BÆJAR. Á sýningunni er leitast við að varpa ljósi á mótun vöruhönnunar á Íslandi síðasta áratuginn til dagsins í dag. Sjónum er sérstaklega beint að sam- starfsverkefnum vöruhönnuða. Á sýningunni eru um 50 verk eftir fjölda íslenskra vöruhönnuða en að auki er sagt frá stórum samstarfs- verkefnum sem nú standa yfir. Í tilkynningu segir að verkefni vöruhönnuða séu oftar en ekki þver- fagleg, margbreytileg og mikilvæg í mótun landslags vöruhönnunar á Ís- landi og um leið fyrir íslenskt sam- félag. Inn í þetta samhengi fléttast sögur þeirra hönnuða sem hafa látið að sér kveða fyrr og nú auk hinna nýju radda yngri kynslóðarinnar sem hefur sprottið fram. Sýningin mun standa fram í októ- ber en safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Nánar um hönnunarsýninguna á www.honnunarsafn.is. Something fishy Verk eftir Rós- hildi Jónsdóttur sem er fædd 1972. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Átak María Björk Óskarsdóttir og Sigríður Snævarr eru hugsjónakonur í því að leiðbeina fólki í atvinnuleit. þar sem fundirnir verða haldnir á tveggja vikna tímabili. „Munurinn felst aðallega í tímalengdinni en nú viljum við klára þetta átak fyrir sumarið svo þátttakendur tvístrist ekki yfir sumartímann. Síðan mun- um við hittast í lok sumars og sjá hvar allir eru staddir,“ útskýrir hún og bætir við að með þessu verði sú breyting gerð að þær fari hraðar að kjarna málsins, séu með mikið af nýju efni og praktískum verkefnum sem öll eiga að hjálpa þátttakendum í leit þeirra að nýjum tækifærum. Ferilskráin tekin í gegn „Við teljum að fólk fái atvinnu- leit hvorki með móðurmjólkinni né í skóla,“ segir Sigríður. „Þetta er heimur sem er flestum algjörlega ókunnur. Það eru ótrúlega margar aðferðir bæði til að koma sér á fram- færi og til að sannfæra vinnuveit- anda um gildi sitt. Flestir hafa svo mikið meira til brunns að bera held- ur en ferilskráin segir til um. Við förum yfir ferilskrána og kynningar- bréf hjá fólki og slípum hana til. At- vinnurekendur sem hafa fengið fer- ilskrár þeirra sem hafa tekið þátt í átakinu segja að þær skeri sig úr vegna þess hve vandaðar þær eru,“ segir Sigríður og bendir á að það að lýsa sjálfum sér liggi ekki í íslenskri menningu eins og það geri í banda- rískri menningu. „Það skiptir til dæmis mjög miklu máli hafa fjöl- breyttan orðaforða til að lýsa mann- eskju, ekki bara stundvís, reglu- samur og traustur,“ bendir Sigríður á og María er sama sinnis. „Margir eru með mikla mennt- un á bakinu en aðrir eru kannski með 30 ára starfsreynslu á bakinu. Það er til dæmis ekki hægt að lýsa slíkri reynslu í einni línu í feril- skránni heldur er mikilvægt að við- komandi lýsi því hvað gerðist á þessum 30 árum,“ útskýrir María. Sjálfsskoðun mikilvæg María segist leggja mikla áherslu á að fólk viti hvert það vilji stefna við upphaf atvinnuleitar. „Sannleikurinn er sá að fólk þarf að staldra við og hugsa sig um. Sumir eru á algjörlega réttri hillu og vilja halda áfram í sínum geira en aðrir hafa kannski aldrei haft gaman af starfinu sínu og þurfa virkilega að breyta til og þora að stíga út fyrir kassann,“ segir María og Sigríður er henni hjartanlega sammála. „Ég er æ meira farin að sjá það hvað sjálfs- skoðunin hefur mikið að segja. Fólk hefur alltaf verið hvatt til að bæta við sig menntun og fara á fleiri nám- skeið sem er alveg frábært en eitt og sér er það ekki nóg. Það skiptir líka máli hvernig fólk ætlar sér að útkljá deilumál í vinnunni og hversu úrræðagóðir einstaklingar eru,“ útskýrir Sigríður. Ekki bara atvinnuleitendur Alls hafa um 800 manns í 25 hópum tekið þátt í ferlinu Nýttu kraftinn, hingað til og bendir Sigríð- ur á að þar séu ekki einungis á ferð- inni einstaklingar í atvinnuleit. „Þeir sem standa frammi fyrir starfs- lokum hafa út af fyrir sig sömu áskorun: Hvernig ætla ég að lifa verðugu og innihaldsríku lífi utan vinnumarkaðar þannig að ég sé virðisauki í samfélaginu?,“ segir hún um helstu útgangspunkta ferlisins. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Nýttu kraftinn fer í gang með nýjan hóp þriðjudaginn 12. júní. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.nyttukraft- inn.is, en þar er einnig hægt að skrá sig í hópinn sem mun hitt- ast fjórum sinnum á tveimur vikum og svo í lok sumars. Nýr hópur í næstu viku HRAÐFERÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.