Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 20
SVIÐSLJÓS Texti: Ingveldur Geirsdóttir Ljósmyndir: Ragnar Axelsson Þegar bandaríski herinn yfirgaf varnarsvæðið í Keflavík árið 2006 eftir 60 ára veru stóð eftir mann- laust þorp, þorp þar sem áður höfðu búið þegar mest var 6.000 manns. Ekki dugði að láta öll þau mann- virki sem höfðu verið reist á vell- inum grotna niður og var ákveðið að koma svæðinu í borgaraleg not. Gamla varnarsvæðið hefur nú hlotið nafnið Ásbrú og þegar ekið er þar um er ljóst að uppbygging á svæðinu er langt komin, langt er þó enn í land. „Hér á svæðinu eru nú um 2.000 íbúar og helmingur húseign- anna er kominn í notkun. Þegar mest var bjuggu hér 6.000 manns en fjöldinn var kominn niður í 2.800 í mars 2006 þegar tilkynnt var um lokun stöðvarinnar. Sumarið 2007 flytja svo fyrstu íslensku íbúarnir inn á svæðið,“ segir Kjartan Þór Ei- ríksson framkvæmdastjóri Þróun- arfélags Keflavíkurflugvallar, Ka- deco. Kjartan segir forsendur svæð- isins hafa breyst eftir efnahags- hrunið 2008. „Í grunninn er þetta stórt fasteignaþróunarverkefni og fasteignamarkaðurinn er alls ekki búinn að vera blómlegur. Því til við- bótar er þetta líka stórt atvinnu- uppbyggingarverkefni og sá bransi hefur heldur ekkert verið sér- staklega blómlegur. Í ársbyrjun 2008 fundum við fyrir því að það varð minni eftirspurn eftir húsnæði. Þá fórum við að skoða stefnuna okk- ar og sjá hvað við gætum gert til að halda þessu gangandi. Þar af leið- andi fórum við að horfa meira á frumkvöðlaverkefni, hlúa að ný- sköpun og skapa umgjörð fyrir hana til að fá inn minni fyrirtæki sem leigja húsnæði hjá okkur. Það hefur gengið vel og við höfum rekið þetta svoleiðis síðan þá. En frá upphafi höf- um við reynt að fá inn erlend fjárfest- ingarverkefni og vinnum enn að því af fullum krafti,“ segir Kjartan. Gríðarlega stórt svæði Rúmlega áttatíu stofnanir og fyrir- tæki eru nú með starfsemi sína á svæðinu. „Við erum með allt frá eins manns sportafyrirtækjum upp í stærri fyrirtæki eins og Gagnavörsl- una og Verne Global. Svo erum við með fyrirtæki sem voru hér fyrir að þjónusta herinn og eru með tugi starfsmanna. Um daginn vorum við að gera samning við fyrirtæki sem er að koma á svæðið með fimmtán starfsmenn og hefur mikla mögu- leika á að vaxa. Það er öll flóran hér en ekki mikið af mjög stórum fyrir- tækjum, við sjáum fyrir okkur að þau geti orðið fleiri hér.“ Það eru ekki aðeins tómar bygg- ingar sem Kadeco er að koma í not á svæðinu því þeim til viðbótar er stórt landsvæði, um 50 ferkílómetrar, allt í kringum flugvöllinn sem stefnan er að byggja upp. „Svæðið sem við erum að höndla með er gríðarlega stórt. Framtíðartækifærið í verkefninu okkar er landsvæðið sem er eitt verð- mætasta atvinnuuppbyggingarland á Íslandi. Ef við horfum á það sem er að gerast í kringum alþjóðaflugvelli annarstaðar í heiminum eru engar forsendur til að áætla annað en að sama gerist hér,“ segir Kjartan. Fólk með þekkingu og menntun Hugmyndirnar fyrir Ásbrú eru stórar og það er ekkert sem segir annað en að úr þeim muni rætast. Ásbrú er samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs og segir Kjartan að heildarstefnan gangi út á það að skapa samfélag sem er blanda af þeim þáttum. Fyrsta verkefnið sem var sett á laggirnar í Ásbrú er Keilir. Skólinn var stofnaður 2007 og bygg- ist upp á fjórum mismunandi skólum. Keilir er grundvöllur fræðilífsins á svæðinu og er stærsti hlutinn af íbú- um Ásbrúar námsmenn og fjöl- skyldur þeirra. Auk Keilis má finna á svæðinu heilsuþorp, kvikmyndaver, tækniþorp með alþjóðlegt gagnaver og fjöldann allan af sprotafyrir- tækjum. „Einn af mikilvægustu þáttunum við að byggja upp svona samfélag er fólk með þekkingu og menntun. Við vitum að við eigum ekki eftir að halda í allt þetta fólk sem býr hér á náms- tímanum en ef ákveðinn hluti af því festir rætur á svæðinu, tekur þátt í þeim verkefnum sem hér eru eða er með eigin hugmyndir, mun þetta þroskast og þróast á næstu árum á jákvæðan hátt. Með þessari aðstöðu sem við höfum verið að skapa hefur sótt hingað mikið af fólki sem er hæfileikaríkt og með miklar hug- myndir um að gera hitt og þetta,“ segir Kjartan. Byggir upp nýtt samfélag Ásbrú er rekið eins og hvert annað hverfi í Reykjanesbæ, þar eru tveir leikskólar og grunnskóli og önnur hefðbundin þjónusta sveitarfélaga. „Einn af ókostunum en jafnframt kostunum við svæðið er hvað það er dreift. Það er mikið bil á milli húsa og langar vegalengdir sem þarf að fara í ekki stærra samfélagi en þetta. Fólk er dreift en jákvæði hlutinn er sá að hér eru margar lóðir til þess að þróa og byggja upp,“ segir Kjartan sem stefnir að því að svæðið verði fullsetið innan tíu ára. „Það er mikið af tæki- færum hér og það er skemmtilegt viðfangsefni að fá að byggja upp nýtt samfélag.“ Ásbrú Þegar varnarliðið yfirgaf bækistöðvar sínar í Keflavík árið 2006 stóð eftir heilt þorp þar sem áður bjuggu þegar mest var 6.000 manns. Nú er unnið að því að koma staðnum í borgaraleg not. Þorp í þróun til framtíðar  Um 2.000 manns búa nú á gamla varnarsvæðinu í Reykjanesbæ  Rúmlega áttatíu stofnanir og fyrirtæki eru með starfsemi sína þar  Ásbrú er samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs 20 Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 2.000 manns tæplega búa nú á svæðinu, flestir á háskólagörðunum. 80 fyrirtæki og stofnanir eru nú með starfsemi á Ásbrúarsvæðinu. 2006 er árið sem bandaríski herinn yfir- gaf Keflavík og afhenti varnar- svæðið íslenskum stjórnvöldum. Herinn dvaldi á Íslandi í 60 ár. 6.000 manns bjuggu á varnarsvæðinu þegar mest var, hermenn og fjöl- skyldur þeirra. ‹ ÁSBRÚ › » Í þróun Kjartan Þór Eiríksson er framkvæmdastjóri Kadeco. Af athygli Ráðstefnan Startup Iceland fór fram í menningarhúsinu And- rews á Ásbrú nýverið. Góð aðstaða fyrir ráðstefnuhald er á svæðinu. Ásbrú í Reykjanesbæ er samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.