Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 21
21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Þær eru ýmsar hugmyndirnar sem verða að veruleika í Ásbrú. Í húsi Virkjunar, sem er miðstöð fyrir at- vinnulausa og öryrkja á Reykjanesi, er verið að smíða kistur undir gælu- dýr sem kvatt hafa jarðvistina. „Við erum að smíða líkkistur fyrir gæludýr, stór sem smá,“ segir Jónas Helgi Eyjólfsson og býður blaða- manni og ljósmyndara að ganga í bæinn. Jónas er verkefnastjóri í Virkjun og stundar kistusmíðina ásamt tveimur smiðum á milli þess sem hann kennir valin námskeið. „Við byrjuðum á þessari smíði fyrir um þremur vikum síðan, hún er liður í því að fá fólk til að gera eitt- hvað,“ segir Jónas. Hann er fatlaður eftir heilablóðfall og fór að leggja leið sína í Virkjun í fyrra og hefur verið þar síðan, eins og hann segir sjálfur. „Ég kenni sjálfstraust og sigurvissu og er áfallahjálpar- ráðgjafi þegar fólk missir vinnuna eða verður fyrir einelti. Ég er fyrr- verandi rannsóknarlöglumaður og yfirlögregluþjónn og hef víðtæka reynslu af þessum málaflokkum.“ Hér hvílir besti vinur minn Jónas fékk hugmyndina að kistu- smíðinni undir gæludýrin og vinnur nú að því að skipuleggja gæludýra- grafreit í Reykjanesbæ, en enginn slíkur er á svæðinu. Kisturnar verða seldar til dýralækna og í gælu- dýraverslun í bænum. Kisturnar eru smíðaðar úr afgangstimbri sem Virkjun fær gef- ins frá byggingarvöruverslunum. Að innan eru þær klæddar með dúk, sem er saumaður eftir máli á staðn- um, og þá eru þær málaðar hvítar með gylltu krossmarki. Á hverja kistu er letrað: Hér hvílir besti vinur minn. Jónas segir að hann hafi kannað markaðinn fyrir slíkar kistur og þörfin sé augljóslega til staðar. „Fólk vill fá kistur utan um gælu- dýrin sín, sérstaklega eldra fólk sem hefur átt dýrið sem vin í mörg ár. Það vill geta gengið frá dýrinu sínu af virðingu eftir að það er aflífað.“ Ekki bara láta hræið í ruslapoka og brenna. Hugmyndin að þessu kom nú til vegna þess að það talaði við mig gamall maður sem var að fara inn á elliheimili. Hann þurfti að taka hund af lífi, sem hann hafði átt í tólf ár, og þótti það sárt. Hann hefði viljað hafa grafreit fyrir gæludýr svo að hann gæti heimsótt gröf besta vinar síns. Þannig datt mér kistusmíðin og gæludýragrafreiturinn í hug. Ég at- hugaði markaðinn hjá dýralæknum og í gæludýrabúðum og allir voru sammála um þörfina fyrir þetta,“ segir Jónas. Starfið skiptir öllu máli Fleira er smíðað á trésmíðaverk- stæðinu í Virkjun en gælu- dýrakistur. Námskeið í leik- fangasmíði eru á staðnum og tréskurðarnámskeið eru í sal við hliðina á smíðaverkstæðinu. Mest er að gera á morgnana í Virkjun sem er til húsa þar sem launaskrifstofur hersins voru áður. Plássið er mikið og aðstaðan góð að sögn Jónasar. Þangað koma um hundrað manns á dag af öllu Reykja- nesi til að sækja hin ýmsu námskeið. Virkjun er samkomustaður fólks sem vill búa sig undir ný tækifæri í atvinnu með námi, námskeiðum eða mannbætandi tómstundum og menningarstarfsemi. Margir sækja þangað í endurmenntun og félags- skap í atvinnuleysinu og segir Jónas slíka starfsemi geta skipt öllu máli fyrir fólk í þeirri stöðu. Smíða kistur undir gæludýr  „Fólk vill geta gengið frá dýrinu sínu af virðingu eftir að það er aflífað“  Virkjun mannauðs á Reykjanesi er með aðstöðu á Ásbrú  Kistusmíðin liður í að fá atvinnulausa til að gera eitthvað Í smíðum Jón Maríus Emilsson smiður og Jónas Helgi Eyjólfsson með kistu í smíðum á milli sín. Hún er hugsuð fyrir stóran hund en þeir smíða einnig litlar kistur fyrir minni gæludýr eins og ketti. „Hér hvílir bestir vinur minn,“ verður letrað á kistuna, auk þess sem hún verður klædd að innan og máluð hvít. Fyrirmyndir Leikföng á trésmíðaverkstæðinu. Þau eru notuð sem fyr- irmyndir á námskeiði hjá Virkjun í leikfangasmíði. Í Frumkvöðlasetrinu Eldey liggur sköpunarkrafturinn í loftinu. Þar býður atvinnuþróunarfélag Suður- nesja upp á þjónustu í samstarfi við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Frumkvöðlasetrið er fyrir frum- kvöðla, sprota- og nýsköpunarfyrir- tæki en einnig starfandi fyrirtæki sem vilja efla nýsköpun og vöruþróun. Dagný Gísladóttir er verkefna- stjóri hjá Heklu, atvinnuþróunar- félagi Suðurnesja. Hún sér um rekst- urinn á Eldey og segir það vera skemmtilegt starf. „Við komum hing- að inn í september síðastliðnum og það er búið að vera ofsalega gaman að fylla þetta hús,“ segir Dagný og hún hefur nóg pláss að fylla, byggingin er um 3.300 fermetrar að stærð. Nú eru þar átján fyrirtæki og um þrjátíu starfsmenn. Innan frumkvöðlasetursins má finna skrifstofuaðstöðu, smiðjurými, kennslustofur og fundarherbergi sem frumkvöðlar geta nýtt sér. Hátt til lofts og vítt til veggja Smiðjurnar eru níu talsins og um- setnar hönnuðum. Í einni þeirra er Mýr hönnun sem var fyrsta fyrirtæk- ið til að koma inn í húsið. Helga Stein- þórsdóttir hjá Mýr var að sauma brúðarkjól þegar blaðamaður átti leið um. Hún segir aðstöðuna í Eldey ekki geta verið betri, hátt til lofts, vítt til veggja og bjart. Margir hópar heim- sækja húsið og segist Helga hafa nóg að gera við að taka á móti þeim. Í annarri smiðju eru tvö fyrirtæki nýflutt inn, Raven Design er annað þeirra og þar voru Hulda Sveinsdóttir og Hrafn Jónsson að koma sér fyrir. Þau segjast vera í skýjunum með aðstöðuna á staðnum. Stutt er fyrir þau að fara á verkstæð- ið enda eru þau Suðurnesjamenn, búsett í Njarðvík. Samvinna meðal hönnuða Dagný segir mikinn kraft vera í hönnuðunum í húsinu og margir þeirra séu farnir að vinna saman. „Það hafa orðið til samstarfsverkefni hér í húsinu, hönnuðirnar styðja hver við annan. Það eru engir veggir og ekki samkeppni heldur samvinna. Frumkvöðlasetrið er stoppistöð, það endar með því að þú ferð út úr húsinu, þetta er stoppistöð á meðan þú ert að byggja þig upp,“ segir Dagný. Fleira er í boði í Eldey en aðstaða til leigu því atvinnuþróunarfélagið er einnig með námskeið og ráðgjöf. „Við förum yfir viðskiptaáætlanir og aðstoðum við styrkumsóknir. Þannig að stuðningurinn hér er mjög góður. Auk þess sem þú hittir nýja frum- kvöðla,“ segir Dagný. Að lokum fylgir hún blaðamanni upp á aðra hæð hússins þar sem er, að því er virðist vera, endalaust skrif- stofurými í boði. Keilir hóf starfsemi sína þar en nú eru leigð út skrifborð til fyrirtækja og námsmanna, tvö tölvufyrirtæki eru staðsett þar núna og farin að vinna saman, auðvitað. Stoppistöð fyrir frumkvöðla Kraftur Helga í Mýr, t.v., saumar brúðarkjól ásamt aðstoðarkonum sínum.  Frumkvöðlasetrið Eldey býður upp á þjónustu fyrir eldhuga  3.300 fermetra húsnæði sem er leigt út til frumkvöðla  Átján fyrirtæki þegar komin inn  Smiðjurnar eru eftirsóttar af hönnuðum Raven Design Hulda Sveinsdóttir og Hrafn Jónsson voru að koma sér fyrir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.