Morgunblaðið - 07.06.2012, Page 24

Morgunblaðið - 07.06.2012, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ífrétt Morg-unblaðsins ígær segir: „Hópur MS- sjúklinga hefur ver- ið án lyfja um allt að fjögurra til fimm mánaða skeið. Öflugasta lyfið sem er í notkun hér á landi, ty- sabri, getur haft lífshættulegar aukaverkanir í för með sér fyrir þennan hóp en hann fær ekki nýtt lyf sem til stóð að setja hann á þar sem Sjúkratrygg- ingar taka ekki inn ný lyf eins og er.“ Vitnað er til orða Bergþóru Bergsdóttur, stjórnarmanns í MS-félagi Íslands, um þau áhrif sem lyfjaskorturinn hefur á þann hóp sem þarf á þeim að halda: „Það er sjáanlegur mun- ur á bæði andlegri og líkamlegri líðan þeirra. Þeir sem eru búnir að vera lengst án lyfja hafa verið það í 4-5 mánuði. Það er langur tími fyrir fólk, því fólk sem er á tysabri er með hraðan sjúkdóm. Að vera án lyfja hefur áhrif en fólk var tilbúið að gera það í þrjá mánuði til að fara á nýtt lyf sem tryggir öryggi þess.“ Sjúkratryggingar gefa þá skýringu að fjárskortur hamli greiðsluþátttöku í nýjum S- merktum lyfjum. Lyfið gilenya, sem þykir koma hvað næst virkni tysabri en vera án hinna hættulegu aukaverkana, er 46.286 krónum dýr- ara, hver skammt- ur. En það er mikið í húfi fyrir þann hóp sjúklinga sem á í hlut eins og Berg- þóra bendir á: „Þetta má ekki dragast. Eftir því sem lengra líður þeim mun meiri verður fötlunin. Þegar fólk er komið á ákveðið stig kemur getan ekki til baka og fötlunin verður varanleg. Þess vegna er svo mikið í húfi að fólk haldi lífs- gæðum sem það þegar hefur.“ Það er vissulega hægt að hafa samúð með þeim sem halda aft- ur af útgjöldum. En þegar horft er á ríkisstjórn sem kastar fjár- munum á glæ í fullkomnu kæru- leysi, eins og sú sem nú situr, eru ekki efni til samúðar. Millj- arði króna, þúsund milljónum, er eytt í einkennilega atlögu að stjórnarskrá landsins. Fjögur hundruð milljónum er kastað í óþarft hringl með ráðuneyti stjórnarráðsins. Milljörðum er sóað í aðildarumsókn að ESB sem ber dauðann í sér. Hundr- uðum milljóna var kastað í samninganefnd vegna Icesave sem gekk erinda andstæðinga Íslands. En MS-sjúklingar skulu verða fyrir varanlegum skaða í sparnaðarskyni! Er þetta forgangsröðun „norrænu velferðarstjórnarinnar“ eins og hún kallaði sig í upphafi? Einkennileg for- gangsröðun ríkis- stjórnarinnar veldur varanlegum skaða} Velferðarstjórn forgangsraðar Voðaverk Brei-viks í Noregi er einstakur óhugnaður í nor- rænni sam- tímasögu. Atburð- urinn var mikið áfall í landi þjóðar, sem er í fremstu röð op- inna lýðræðisþjóða. Dómsmálið, sem nú fer fram, er óhjákvæmileg þrautaganga. Í rauninni er ekki verið að gera þar út um sekt eða sakleysi nema að formi til. Þó er þar mikilvægt úrslausnarefni sem skera verður úr sem snýr að sakhæfi hins ákærða. Það atriði er að auki mjög matskennt í eðli sínu. Því er ekki að neita að við meðferð málsins hefur komið fram að norsk lögregluyfirvöld voru illa búin undir hina óhugn- anlegu atburði. Svo vont sem það auðvitað er, þá er það einn- ig skiljanlegt. Það er naumast hægt að gera kröfu til þess að yfirvöld í norrænu friðsemdar- landi hafi verið búin undir slík ósköp. En eftir atburðina í Nor- egi yrði slík afsökun síður tekin gild annars staðar. Meira að segja Ísland verður að hafa það í huga. Þá voru viðbrögð lögreglu, eftir að upplýsingar um voðaverk bárust til hennar, æði viðvan- ingsleg og jafnvel klaufaleg. Ekkert verður full- yrt hvort snarpari viðbrögð af hennar hálfu hefðu bjargað mannslífum og jafnvel mörgum. En sú tilfinning situr þó eftir. Þá hefur réttarhaldið sjálft ekki verið nægjanlega sannfær- andi. Fyrst tók dómari sæti í dómnum, þótt hann hefði opin- berlega lýst því yfir að réttast væri að taka hinn ákærða af lífi. Næst nær einstaklingur í rétt- arsalnum að henda skóm í verj- endur ákærða. Og loks lætur einn af fimm dómurum þessa stórmáls standa sig að því að vera að leggja kapal í tölvu sinni í miðri málsmeðferð! Allt eru þetta vissulega hrein smá- atriði í samanburði við þann at- burð sem verið er að fjalla um og ganga mun til dóms. En það er engu að síður bæði skaðlegt og dapurlegt að láta slík atriði fella skugga á meðferð máls sem varpaði sjálft svartamyrkri um miðjan dag yfir Noreg og vinaríki landsins. Eftirleikur voða- verksins í Noregi er ekki gallalaus} Eftirleikur vekur spurningar S töð 2 er einkarekin sjónvarpsstöð og forsvarsmenn hennar hafa því frjálsari hendur en RÚV um það hvernig þeir haga umræðum um forsetakosningar. Það er því engin ástæða til að gera sérstaka athugasemd við það að Stöð 2 hafi viljað bjóða í sérþátt þeim forsetaframbjóðendum sem samkvæmt skoðanakönnunum hafa yfirburðafylgi. Mál þróuðust reyndar öðruvísi en ætlað var. Allir frambjóðendur mættu í umræðuþáttinn en þrír þeirra gengu út í byrjun þáttar. Ekki var mikill forsetabragur á þeirri útgöngu. Þó gerðu þremenningarnir sjónvarpsáhorf- endum stórgreiða því áhorfendur þurftu fyrir vikið ekki að eyða tíma í að hlusta á þrjá fram- bjóðendur sem enga möguleika eiga á að sigra í forsetakosningum heldur gátu einbeitt sér að frammistöðu þeirra þriggja sem eftir voru. Í hópi forsetaframbjóðenda er að finna einstaklinga sem hafa getið sér gott orð á sínum starfsvettvangi. Þessir einstaklingar gætu sinnt forsetastarfinu þokka- lega en þjóðin hefur einfaldlega ekki áhuga á að kjósa þá – alveg sama í hversu marga umræðuþætti þeir mæta. Svo eru þarna aðrir sem eiga greinilega alls ekkert er- indi á Bessastaði og virðast fara í framboð til þess eins að komast í fjölmiðla og fá af sér myndir. Engu skiptir hversu lítið fylgi framjóðenda er, þeir fylgislausu fá sömu meðhöndlun og þeir frambjóðendur sem hafa yfirburðafylgi. Frambjóðendur með 0,5-8% fylgi fá í umræðuþáttum nákvæmlega sama tíma og frambjóðendur sem eru með 35-50% fylgi eða meira. Þjóð sem veit hvaða fram- bjóðendur hún ætlar alls ekki að kjósa skal fá sinn skylduskammt af málflutningi þeirra, hvort sem henni líkar betur eða verr. Nánast hver sem er getur boðið sig fram til forseta Íslands og fengið mikið rými í fjöl- miðlum þrátt fyrir að hafa litla hæfileika í þetta ábyrgðarmikla embætti og eiga nánast engan stuðning meðal þjóðarinnar. RÚV sinnir svo öllum frambjóðendum samvisku- samlega, eins og þeirri stofnun ber skylda til. Einkarekin sjónvarpsstöð eins og Stöð 2 get- ur leyft sér meira frelsi en RÚV og hugðist nýta sér þetta svigrúm, en framkvæmdin og útfærslan var fremur klúðursleg. Þarna kom það í bakið á sjónvarpsstöðinni að hafa raðað inn á fréttastofu sína ungu og reynslulitlu fólki. Allir fjöl- miðlar þurfa að eiga reynslubolta. Stöð 2 þarf ekki endilega að þjónusta þá frambjóð- endur sem hafa sáralítið fylgi. Kappræður milli sterk- ustu frambjóðendanna hverju sinni eru fínasta sjón- varpsefni sem meira en sjálfsagt er að bjóða upp á. Hættan er auðvitað sú að sá frambjóðandi sem telur sig munu standa höllum fæti í kappræðum guggni og búi til ástæðu fyrir því að mæta ekki. Hann gæti til dæmis vís- að til sterkrar réttlætiskenndar og sagt að rangt væri að bjóða bara sumum frambjóðendum en ekki öllum. Held- ur þætti manni sú afsökun vesældarleg. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Frambjóðendur án fylgis STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is N ý kersmiðja Alcoa Fjarðaáls við Reyðar- fjörð verður opnuð formlega við hátíð- lega athöfn á laugardaginn. Flatarmál bygginganna sem reistar hafa verið er um fjögur þús- und fermetrar en hafist var handa við verkefnið í nóvember árið 2010. Bygging kersmiðjunnar er lokaáfanginn í byggingu álvers Fjarðaáls við Reyðarfjörð og má því segja að með opnun hennar sé byggingu álversins lokið. Heildarkostnaður við þessar framkvæmdir við kersmiðjuna er 4,6 milljarðar króna. VHE tók að sér alla verkþætti fyrir Fjarðaál í nýja húsnæðinu Alls eru 336 ker í álveri Fjarða- áls og framleidd tæplega þrjú tonn af áli á hverjum sólarhring. Það er Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar (VHE) sem hefur tekið að sér að fóðra kerin og annast rekstur kersmiðjunnar, sem var boðin út. Að sögn Guðgeirs Sigurjóns- sonar, framkvæmdastjóra hjá VHE á Austurlandi, munu 40 starfsmenn starfa í kersmiðjunni. „Við komum til með að vinna alla verkþætti fyrir Fjarðaál í þessu nýja húsnæði,“ segir Guðgeir. Hann segir þetta verða góða viðbót við starfsemi VHM en sam- hliða henni fara einnig fram stál- viðgerðir fyrir álverið á verkstæði VHE, sem kallar á 10 til 12 starfs- menn til viðbótar, að sögn hans. Áætlað er að endurfóðra 40 til 45 ker í kersmiðjunni á þessu ári og 100 ker til viðbótar á næstu tveimur árum þar á eftir. VHE hefur fjölmörg verkefni á sinni könnu og er heildarfjöldi starfsmanna fyrirtækisins nú 160 til 180 talsins að meðtöldum starfs- mönnunum í kersmiðjunni við Reyðarfjörð. Hálf önnur milljón tonna og verðmætið 400 milljarðar Álver Fjarðaáls framleiðir að jafnaði 340-350 þúsund tonn á ári. Leyfileg heildarframleiðsla fyrir- tækisins í fullum rekstri er sam- kvæmt starfsleyfi 360.000 tonn á ári. Um seinustu áramót höfðu ver- ið framleidd 1.362 þúsund tonn í verksmiðjunni frá upphafi fram- leiðslustarfseminnar. Í desember ár- ið 2010 var milljónasta tonnið fram- leitt í álveri Fjarðaáls og jafngilti verðmæti framleiðslunnar um 265 milljörðum kr. miðað við álverð og gengi dollars á þeim tíma. Ekki liggja fyrir staðfestar tölur frá fyrirtækinu um framleiðslu álversins á seinustu mánuðum en ætla má að um þessar mundir sé þeim áfanga náð í álverinu að fram- leiðsla þess frá upphafi sé komin yfir 1,5 milljónir tonna. Í fyrra voru framleidd þar tæp- lega 341 þúsund tonn. Heildar- verðmæti þess miðað við 2.400 doll- ara meðalverð á áltonnið á markaði í fyrra og 116 kr. meðalgengi Banda- ríkjadals gagnvart krónu, jafngildir um 95 milljörðum kr. Áætla má að á fyrstu fimm mánuðum þessa árs hafi verið fram- leidd ríflega 142 þúsund tonn í álveri Fjarðaáls og verðmæti þeirrar fram- leiðslu, miðað við 2.200 dollara meðalverð fyrir tonnið það sem af er ári og meðalgengi dollars, jafngildir um 38 milljörðum kr. Að þessu gefnu má gróflega áætla að heildarverðmæti álafurða verksmiðjunnar á þessu fimm ára tímabili nemi samanlagt nálægt 400 milljörðum króna. Kersmiðja rís Bygging kersmiðju Fjarðaáls hófst í nóvember árið 2010. 40 manns fá störf í nýju kersmiðjunni Yfir 1,5 milljónir tonna » Framleiðsla hófst í álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði í aprílmánuði árið 2007. » Ætla má að framleidd hafi verið um eða yfir ein og hálf milljón tonna á þeim fimm árum sem álverið hefur starfað. » Framkvæmdum við nýja kersmiðju hófust í byrjun nóv- ember á árinu 2010. » Álver Fjarðaáls hefur heimild til að framleiða 360 þúsund tonn á ári. » Í álverinu eru framleiddir svonefndir T-barrar, sér- steyptir álhleifar, álblöndur í formi 10-20 kg hleifa sem eru einkum notaðar í felgur og álvírar sem eru helst notaðir sem rafmagnsvírar. » Kersmiðjan sem er verið að taka í notkun skiptist í ker- fóðrunarbyggingu og ker- brotabyggingu. » Vélaverkstæði Hjalta Ein- arssonar hefur tekið að sér að fóðra kerin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.