Morgunblaðið - 07.06.2012, Side 25

Morgunblaðið - 07.06.2012, Side 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Brunnið Slökkviliðsmenn börðust í gær við gróðurelda í Heiðmörk. Þeir nutu liðsinnis björgunarsveitarmanna en áætlað er að hið brunna svæði sé u.þ.b. einn ferkílómetri að stærð. Júlíus Við undirritaðir, skipstjórar á fiskiskipum í íslenska flot- anum, skorum hér með á stjórnvöld að draga þegar í stað til baka vanreifuð frum- vörp um veiðigjald og breyt- ingar á lögum um stjórn fisk- veiða og hefja víðtækt samráð við þá sem starfa í íslenskum sjávarútvegi, sveitarstjórnar- menn og aðra sem hagsmuna eiga að gæta um breiða sátt um málefni atvinnugreinarinnar. Þrátt fyrir margvíslegar at- hugasemdir og viðvörunarorð í fjölmörgum umsögnum um frumvörpin, sem nú liggja fyrir Alþingi, eru þau enn þannig úr garði gerð að þau munu valda ómældu tjóni á íslenskum sjávarútvegi nái þau fram að ganga. Í þrjú ár hafa stjórnvöld haft í hótunum við fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi og starfsmenn þeirra með hug- myndum um róttækar breyt- ingar sem engin sátt er um. Ítrekað hefur verið leitað eftir því við stjórnvöld að þau taki boði um samráð til að leiða til lykta þann ágreining sem uppi er og finna lausn sem hægt er að búa við. Á það hefur ekki verið hlustað. Skipstjórnarmenn tekur það sárt að fiskiskipaflotinn liggur bundinn við bryggju en við treystum því að almenningur virði þessa aðgerð. Stórhækkað veiðigjald og breytingar á lög- um um stjórn fiskveiða snerta ekki aðeins fyrirtækin heldur fyrst og fremst fólkið sem hjá þeim starfar, atvinnu þess og afkomu. Koma verður í veg fyrir það tjón sem við blasir. Víðtækt samráð er leiðin til sátta um framtíðarfyrirkomulag í íslenskum sjávarútvegi. Alexander Hallgrímsson, Fróði II ÁR 38 Arnar Kristjánsson, Helgi SH 135 Birgir Þór Sverrisson, Vestmannaey VE 444 Daði Þorsteinsson, Aðalsteinn Jónsson SU 11 Grétar Þór Sævaldsson, Bergur VE 44 Hannes Einarsson, Freri RE 73 Hjörtur Guðmundsson, Örvar SK 2 Jónas Árnason, Bergur Vigfús GK 43 Magnús Jónasson, Sighvatur Bjarnason VE 81 Óskar Matthíasson, Bylgja VE 75 Sigmundur Sigmundsson, Snæfell EA 310 Sigurbergur Hauksson Börkur NK 122 Sigurður Ragnar Kristinsson, Geir ÞH 150 Sturla Einarsson, Guðmundur VE 29 Unnsteinn Jensson, Sighvatur GK 57 Vigfús Markússon, Tómas Þorvaldsson GK 10 Þorsteinn Guðmundsson, Hvanney SF 51 Undir þessa áskorun skrifa 77 skipstjórar til viðbótar. Eftir skipstjóra á fiskiskipum í íslenska flotanum » Stórhækkað veiðigjald og breytingar á lögum um stjórn fiskveiða snerta ekki aðeins fyrirtækin heldur fyrst og fremst fólkið sem hjá þeim starfar Víðtækt samráð er leiðin til sátta Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða á Ís- landi, Danmörku og Belgíu er lægri en í nokkrum öðrum aðildarríkjum Efna- hags- og framfarastofnunarinnar OECD. Nýjustu tölur þar að lútandi eru frá 2010 og rekstrarkostnaður íslenskra lífeyrissjóða svaraði þá til 0,23% af heild- areignum sjóðanna. Hlutfallið í Finn- landi, Hollandi og Póllandi var 0,4% en hæst var það í Tékklandi, 1,4%, eins og meðfylgjandi upplýsingar frá OECD sýna. Tölur frá Íslandi eru einnig studd- ar upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu. Nauðsynlegt er að koma þessu á framfæri í ljósi endurtekinna rangra fullyrðinga stjórnarmanns í VR, Ragn- ars Þórs Ingólfssonar, um „glórulausan“ rekstrarkostnað lífeyr- issjóða á Íslandi. Hann er fastagestur í Silfri Egils og í spjallþáttum Bylgjunnar og hefur jafnan uppi stór orð um lífeyrissjóði og starfsemi þeirra og um- gengst staðreyndir býsna frjálslega í málflutningi sínum. Það er afar und- arleg ráðstöfun af hálfu þáttastjórnenda fjöl- miðlanna að kalla Ragnar Þór aftur að hljóðnemum í ljósi þess að margoft hefur verið sýnt fram á að sjaldn- ast stendur steinn yfir steini í málflutningi hans. En þá fyrst kastaði tólfunum þegar sjónvarps- fréttamaður RUV tók viðtal við Ragnar Þór, þar sem hann fékk gagnrýnilaust að fara með rangfærslur sínar. Fréttamað- urinn taldi hvorki ástæðu til að kanna sjálfur hvort fullyrðingar Ragnars Þórs stæðust né gefa Landssamtökum lífeyr- issjóða tækifæri til andsvara eins og vönduð fréttamennska hefði gefið fullt tilefni til. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Ragnar Þór gagnrýnir rekstrarkostnað lífeyrissjóða og birtir undarlega útreikn- inga sem standast enga skoðun Auk þess má benda á að hann hefur talið rétt að sameina alla lífeyrissjóði Íslendinga í einn sjóð, sem væntanlega yrði þá á for- ræði ríkisins. Það er vissu- lega sjónarmið út af fyrir sig en hefur tæplega mik- inn hljómgrunn í röðum sjóðfélaga innan hins al- menna lífeyrissjóðakerfis. Staðreyndin er sú, og auðveldlega má sannreyna þá fullyrðingu, að víða um heim er bent á íslenska lífeyriskerfið sem fyr- irmynd. Jafnframt er eftir því tekið að kostnaður við rekstur þess er með því minnsta sem þekkist. Meðfylgjandi súlurit segir allt sem segja þarf um rekstrarkostnað ís- lenskra lífeyrissjóða í alþjóðlegum sam- anburði. Mikil hagræðing hefur átt sér stað í rekstri lífeyriskerfisins á undanförnum árum samfara fækkun lífeyrissjóða. Fyrir um tveimur áratugum voru þeir alls um 90 talsins en nú taka aðeins 23 sjóðir við nýjum sjóðfélögum og fimm þeirra stærstu halda utan um 60% af eignum lífeyrissjóða landsmanna. Tíu stærstu sjóðirnir halda utan um rúmlega 80% eigna allra lífeyrissjóða. Lífeyrissjóðum á Íslandi mun fækka enn frekar. Nýlega hafa til að mynda nokkrir lífeyrissjóðir sameinast Söfn- unarsjóði lífeyrisréttinda og meðal minnstu sjóðanna, sem nú eru starfandi, eru nokkrir sjóðir sveitarfélaga sem taka ekki við nýjum sjóðfélögum. Þeir munu því sjálfkrafa leggjast af á næstu árum. Stjórnendur lífeyrissjóðanna fagna að sjálfsögðu málefnalegri umræðu um sjóðina í fjölmiðlum, en biðjast undan ómálefnalegri gagnrýni sem hefur þann eina tilgang að gera starfsemi þeirra tor- tryggilega og ótrúverðuga gagnvart al- menningi. Ábyrgð fréttamanna og stjórnenda spjallþátta er því mikil í þessum efnum sem öðrum. Eftir Hrafn Magnússon » Víða um heim er bent á íslenska lífeyriskerfið sem fyrirmynd. Eftir því er tekið að kostnaður við rekstur þess er með því minnsta sem þekkist. Hrafn Magnússon Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Rekstrarkostnaður íslenskra lífeyr- issjóða einn sá lægsti í OECD Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða 2010 Hlutfall af heildareign Té kk lan d Sp án n Un gv er jal . Sl óv en ía Ný ja- Sj ál. Ás tra lía Sl óv ak ía Gr ikk lan d Pó lla nd Ho lla nd Fin nla nd Ísr ae l Ka na da No re gu r Be lgí a Ísl an d Da nm ör k 1,4 1,2 1,0 0,8 0,6 0,4 0,2 0 1,4 1,3 1,0 0,9 0,7 0,6 0,5 0,5 0,4 0,4 0,4 0,3 0,3 0,3 0,2 0,2 0,1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.