Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.06.2012, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Sólskálar -sælureitur innan seilingar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Fjarðargata 13-15 ~ 220 Hafnarfjörður ~ Sími 565 5666 fjordur.is Vinaleg verslunarmiðstöð Síðustu árin hafa á þessu landi einkennst af miklum átökum. Ekki var nóg með að Íslend- ingar þyrftu að takast á við risavaxna efnahags- lega örðugleika. Leið- togar þjóðarinnar, sem báru allir sína ábyrgð á óförunum, ákváðu að leggja þyrfti meira á þjóðina en eitt stykki bankahrun. Hún þyrfti endilega að takast á við sig sjálfa líka. Fólki var hottað ofan í hinar flokks- pólitísku skotgrafir. Fundin voru ný deilumál og þeim bætt við þau gömlu. Hagsmunaöflin vígbjuggust og hafa tekist á sem aldrei fyrr. Fjölmiðlum er beitt í þeirra þágu og menn hafa ekki hikað við að draga dómstóla landsins með sér niður í leðjuslaginn. Á það hefur verið bent, að á þessum örlagatímum hafi þjóðina skort leið- toga, manneskju, sem sameinaði hana í baráttunni við óblíð efnahagsöflin. Að sjálfsögðu hefði slíkur leiðtogi þurft að njóta trausts þjóðarinnar til að geta hafið sig yfir þá flokkadrætti sem löngum hafa einkennt okkar fámenna klíkusamfélag. Forseti Íslands hefði getað verið þessi leiðtogi. Ég er þakk- látur núverandi forseta fyrir margt. Mörgum fannst kærkomið þegar hann á sínum tíma tók til varna fyrir Ísland og talaði máli þjóðarinnar á alþjóða- vettvangi. Þá hefur hann hlustað á þjóðina þegar honum bárust áskor- anir verulegs hluta hennar um að vísa umdeildum málum í dóm landsmanna. Hann átti samt erfitt með að sinna því mikilvæga starfi að leiða þjóðina í gegnum efnahagserfiðleikana og sam- eina hana til átaka við þá. Þar háði honum pólitískur bakgrunnur hans og þátttaka í því ferli sem til bankahruns- ins leiddi. Nú þegar þjóðin velur sér nýjan þjóðarleiðtoga rísa upp tvær gamlar valdablokkir stjórnmála og auðvalds og tefla fram sínum frambjóðendum. Þjóðin skal rekin ofan í gömlu skot- grafirnar í þessum kosningum sem öðrum. Baráttan er kostuð af sömu öflunum og náðu hér yfirráðum fyrir Hrun. Sem betur fer eru valkostirnir þó fleiri. Þjóðin getur að nýju eignast leiðtoga sem ekki er þátttakandi í sand- kassaleik íslensks flokksræðis og ekki er háður auðugum og valdagráðugum hags- munahópum. Herdís Þorgeirsdóttir er sá val- kostur. Henni er treyst- andi til að vera sá leið- togi þjóðarinnar sem gætir hagsmuna henn- ar. Herdís er málsvari mannréttinda, frelsis og réttarríkis, þeirra grunngilda sem þjóð- félag okkar byggist á. Hún er þroskuð og reynd kona, vel menntuð, bæði í lífsins skóla og öðrum menntastofn- unum. Glæsimennska og þokki ein- kennir framkomu hennar. Það er hlýja í röddinni en líka snerpa og hug- rekki. Herdís er fljót að greina aðal- atriði frá því sem minna máli skiptir. Og síðast en ekki síst: Herdís kann að hlusta á fólk og sýna því virðingu. Hún gerir sér grein fyrir að enda þótt emb- ætti forseta Íslands sé virðulegt og því fylgi völd er það fyrst og fremst þjón- usta við fólkið í landinu, í borg, bæjum og sveitum. Þjóðin eignast góðan forseta þegar starfi hans er sinnt af auðmýkt og hjartaheitri elsku til lands og þjóðar. Þjóðin eignast góðan forseta í Herdísi Þorgeirsdóttur. Þjóðin eignast forseta Eftir Svavar Alfreð Jónsson Svavar Alfreð Jónsson »Herdís er málsvari mannréttinda, frels- is og réttarríkis, þeirra grunngilda sem þjóð- félag okkar byggist á. Höfundur er sóknarprestur í Akureyrarkirkju. Í Austurglugg- anum á Reyðarfirði sem kom út 23. mars sl. lýstu stuðnings- menn Axarvegar áhyggjum sínum yfir því að öllum áherslum á uppbygg- ingu vegarins hefði verið sópað undir teppið. Fullyrt var í júní 2006 í Fram- kvæmdafréttum sem Vegagerðin gefur út að yfir sum- armánuðina hefði meðalumferð á dag um Axarveg verið 189 bílar árið 2008. Fyrir vel uppbyggðum heilsársvegi um Öxi eiga Djúpa- vogsbúar ekki að treysta þing- mönnum Norðausturkjördæmis sem sitja í stjórn Vaðlaheið- arganga ehf. Óhugsandi er að Djúpivogur, Fljótsdalshérað og Egilsstaðir verði á samfelldu at- vinnusvæði þótt ráðist yrði í fram- kvæmdir við þennan veg milli Berufjarðar og Skriðdals. Engin svör fást frá Vegagerðinni þegar spurt er hvort búið sé að hanna þennan uppbyggða veg sem fyrr- verandi samgönguráðherra, Krist- ján Lárus, lofaði Djúpavogsbúum strax að loknum kosningum 2007. Erfitt er að treysta því að inn- anríkisráðherra telji sig bundinn af þessum loforðum vegna deilna um Norðfjarðargöng sem hann stendur í við fyrirrennara sinn frá Siglufirði. Heppilegra hefði verið að taka fyrirhuguð Norðfjarð- argöng samhliða nýjum vegi þar sem nýju kirkjunni var valin stað- ur. Fyrir Alþingiskosningarnar 2007 lýsti Halldór Blöndal, fyrr- verandi samgönguráðherra, því yf- ir í viðtölum að vilji sinn hefði staðið til þess að skoðaðir yrðu möguleikar á tvíbreiðum veggöng- um milli Eskifjarðar og Norð- fjarðar þegar mikil umferð flutn- ingabifreiða úr báðum áttum var farin að skapa vandræði í Odd- skarðsgöngunum. Inni í þessari einbreiðu slysagildru stöðvuðu stóru ökutækin umferð lögreglu, slökkviliðs og sjúkrabíla þegar neyðartilfelli komu upp. Í Oddskarðinu halla göngin í átt- ina til Eskifjarðar. Þarna yrði aldrei komið í veg fyrir dauðaslys ef flutningabifreið með sprungið bremsurör á leiðinni frá Norðfirði fer inn í þessa einbreiðu dauða- gildru á meira en 30 km hraða. Inni í göngunum yrðu afleiðing- arnar skelfilegar ef þessi sami flutningabíll færi framan á bens- ínflutningabifreið sem kæmi frá Eskifirði inn í gangamunnann. Spurningin er hvort starfandi læknar við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað megi til þess hugsa ef þeir fá skelfilegar fréttir af örlögum barnshafandi kvenna í sjúkrabílum sem myndu strax lokast inni á milli stóru ökutækjanna þegar sprenging í Oddskarðsgöngunum yrði óumflýjanleg. Eldsvoðinn í Mont Blanc veggöngunum sem kostaði nærri 40 mannslíf árið 1999 ætti að vera holl áminning um það sem betur má fara, þar eyðilögðust 34 ökutæki þegar slökkviliðinu gekk illa að ráða niðurlögum eldsins. Allir þingmenn Norðaustur- kjördæmis skulu svara því hvort þeir telji það sjálfsagt að of mikil umferð milli Eskifjarðar og Nes- kaupstaðar skuli bjóða upp á aukna eldhættu í þessari einbreiðu dauðagildru á Mið-Austurlandi. Viðauki við samgönguáætlun sem samþykkt var á Alþingi 2008 gerði ráð fyrir því að framkvæmdir við Norðfjarðargöng hæfust vorið 2009 þótt stuðningsmenn Axarveg- ar teldu ódýrara að flytja stóra Fjórðungssjúkrahúsið frá Nes- kaupstað upp í Egilsstaði. Héðan af er það óhugsandi þó að þessi staðsetning verði aldrei við óbreyttar aðstæður aðgengileg fyrir Austfirðinga sem búa sunnan Oddskarðsganganna, á suðurfjörð- unum, norðan Fagradals og Hellisheiðar eystri. Vorið 2009 samþykkti Alþingi að Norðfjarðargöngum yrði raðað framar en Dýrafjarðargöngum þegar íbúar Fjarðabyggðar sem búa norðan einbreiðu slysagildr- unnar töldu mjög erfitt og stund- um vonlaust að komast í vinnu til Alcoa á Reyðarfirði vegna illviðris og snjóþyngsla. Þá höfðu bíl- stjórar lögreglu, slökkviliðs, sjúkrabíla og flutningabifreiða áhyggjur af öryggismálum Odd- skarðsganganna þegar þeir sendu Vegagerðinni og öllum þingmönn- um Norðausturkjördæmis skýr skilaboð um að þessi einbreiða slysagildra uppfyllti ekki hertar öryggiskröfur ESB. Flýtum útboði Norðfjarðarganga eins og for- sætisráðherra leggur til. Alþingi samþykkti Norðfjarðargöng 2009 Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson » Flýtum útboði Norð- fjarðarganga eins og forsætisráðherra leggur til. Höfundur er farandverkamaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.