Morgunblaðið - 07.06.2012, Side 37

Morgunblaðið - 07.06.2012, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 10:00: Jaðar 17, lnr. 212-984, Borgarbyggð, þingl. eig. Lögbrekka ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf. Sýslumaðurinn í Borgarnesi, 6. júní 2012, Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Lindarbraut 6, 206-7556, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Magnea Ólöf Guðjónsdóttir og Halldór Kjartansson Björnsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 11. júní 2012 kl. 13:30. Ljósheimar 22, 202-2267, Reykjavík, þingl. eig. Herdís Haraldsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 11. júní 2012 kl. 10:00. Lækjargata 6b, 200-2709, Reykjavík, þingl. eig. þb. Greipt í stein ehf., gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, Reykjavíkurborg og Vörður tryggingar hf, mánudaginn 11. júní 2012 kl. 14:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 6. júní 2012. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Básvegur 1, fnr. 208-6998, Keflavík, þingl. eig. Kristinn Guðmundsson, gerðarbeiðandi Reykjanesbær, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 10:35. Básvegur 3, fnr. 228-7026, Keflavík, þingl. eig. Kristinn Guðmundsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 10:40. Birkidalur 3, fnr. 229-7058, Njarðvík, þingl. eig. Ágúst Harðarson, gerðarbeiðendur N1 hf, Reykjanesbær, Sýslumaðurinn í Keflavík og Vörður tryggingar hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 12:20. Birkiteigur 1, fnr. 208-7059, Keflavík, þingl. eig. Stefán Egilsson og Kristín Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Avant hf, Íslandsbanki hf, Reykjanesbær og Sýslumaðurinn á Blönduósi, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 09:55. Brekkustígur 20, fnr. 209-4700, Sandgerði, þingl. eig. Einar Hans Þorsteinsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sandgerðisbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 09:10. Fitjabraut 14, fnr. 209-3241, Njarðvík, þingl. eig. Svavar Sædal Einars- son og Einar Sædal Svavarsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 11:35. Fífumói 5c, fnr. 209-3192, Njarðvík, þingl. eig. Friðrik Jónsson, gerðarbeiðandi Fífumói 5c, húsfélag, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 11:05. Grímsholt 5, fnr. 228-8169, Garður, þingl. eig. Birgitta Sædís Ey- mundsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sveitarfélagið Garður og Vörður tryggingar hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 08:45. Grænás 2b, fnr. 209-3327, Njarðvík, þingl. eig. Evy Britta Kristinsdóttir, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 11:45. Háseyla 3, fnr. 209-3354, Njarðvík, þingl. eig. Kristín Fjeldsted, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 12:00. Heiðarhvammur 5, fnr. 208-8968, Keflavík, þingl. eig. Lúðvík Helgi Hallsson, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Blönduósi og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 09:45. Hlíðargata 34, fnr. 209-4798, Sandgerði, þingl. eig. Brynja Hjarðar Þorsteinsdóttir og Ásgeir Svavarsson, gerðarbeiðendur Landsbank- inn hf. ogTryggingamiðstöðin hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 09:20. Njarðvíkurbraut 26, fnr. 209-4000, Njarðvík, þingl. eig. Katrín Sjöfn Sveinbjörnsdóttir og Jósef Zarioh, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Tryggingamiðstöðin hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 12:10. Sjávargata 18, fnr. 209-4093, Njarðvík, þingl. eig. Abdul Sami Sina Omid, gerðarbeiðandi Reykjanesbær, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 11:25. Sólvallagata 40, fnr. 209-0570, Keflavík, þingl. eig. Héðinn Heiðar Baldursson og Ragnheiður Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Faxabr. 25-27/Sólvg. 38-40,húsfél og Sýslumaðurinn á Blönduósi, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 10:55. Tjarnargata 29, fnr. 209-0935, Keflavík, þingl. eig. Anna Lilja Hregg- viðsdóttir, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Blönduósi og Tryggingamiðstöðin hf, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 10:05. Vatnsnesvegur 22a, fnr. 209-1130, Keflavík, þingl. eig. Ásta Gunnars- dóttir og Emil Ágúst Georgsson, gerðarbeiðandi Reykjanesbær, þriðjudaginn 12. júní 2012 kl. 10:15. Sýslumaðurinn í Keflavík, 5. júní 2012, Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi. Félagsstarf eldri borgara                                             !          "   #  $% & ## '   (     )  *  +   *       !"       #  $  ,  #    -   # . -*/     - * 0    %  #  %  $& # '       *       1  (  )     $    * 0/   2( -   /!. -*    3 #   #/ #   4/. +  -   -    *& '+,         . #5     *&  )6 7#  '  -   4 "   # 8 /      11     *"   ,-(,.  95   0   :/!    95    . ##   -5 /)    $   ; *    &(   7   ,(  $ <   -(  ===  :  &(   (  >    %!1/1   * ???   0 & '  @        #  1%. +   . +(   ++   . +( +  / 1  &  2   #  ##-     A##   %  < #   & ##   1 1    #  %    # *    '    9     0   #   *   &'(   +7/  '    &'(  3      +  >    1/ 1%  :44/4:    #  . +   .    Hinn góði drengur, tengda- sonur minn, ljóðskáldið Jónas Þorbjarnarson, lést sviplega á Ítalíu langt fyrir aldur fram og fór jarðarförin hans fram 4. júní í fallegu þorpi við Canzo þar sem þau hjónin höfðu sitt heimili. Hanna dóttir mín og Jónas voru ákaflega góð saman, bæði miklir listamenn, Hanna söngkona, pí- anóleikari, rithöfundur, tónlist- arkennari og umsjónarmaður með vefmiðlum og skipuleggj- andi listsýninga svo að fátt eitt sé nefnt og auk þess mikill kokkur og matgæðingur eins og móðir hennar heitin Jóhanna Halldóra Sveinsdóttir. Jónas var lífs- kúnstner af hæstu gráðu, lifði fyrir lífið og áhrifin af því og kom þeim til skila með ljóðum, sterkri og yfirvegaðri heimspekilegri þögn. Jónas var geysilegt náttúru- barn og þau hjónin nutu hverrar stundar á Ítalíu enda stutt í feg- urð fjalla og dala þar sem þau hafa búið. Samverustundir urðu ekki eins margar við Jónas og við hefðum kosið, því miður, en mér er minnisstætt er við hjóluðum saman um Monza-borg fyrir nokkrum árum og skoðuðum miðbæinn af hjóli. Það er allt annað sjónarhorn en að aka um í borginni þar sem önnur hver gata er einstefnugata og meðal- maður verður tiltölulega fljót- lega það sem kallast á góðu máli alveg „bilaður“ á að aka um göt- ur borga á Ítalíu. Reiðhjólið var farartæki Jónasar og gjörþekkti hann meir en margur heimamað- urinn leynileiðir og fallega staði eingöngu vegna ferðamátans. Parco Monza, stærsti garður Evrópu, var honum mjög kær og sat hann þar og orti ljóð á hinum ýmsu stöðum. Hanna og Jónas fluttu svo til fallega smábæjarins Canzo fyrir norðan Mílanó og voru að koma sér fyrir í nýrri íbúð þegar hið hörmulega slys átti sér stað. Jónas stundaði mik- ið sjósund á Íslandi og hafði oft synt í stöðuvatninu sem að lokum tók hann til sín. Margar minn- ingar flæða um við svona atburði og er mér minnisstæður brúð- kaupsdagurinn þeirra en þá lék Jónas á gítarinn sinn og Hanna söng fyrir gesti. Þau komu oft og víða fram og sungu og spiluðu og unnu mikið að menningarsam- skiptum á milli Íslands og Ítalíu, oftast að mestu í sjálfboðavinnu. Mikið er framundan hjá Hönnu og verður ekki eins auðvelt nú þegar Jónas er horfinn sem dag- legur félagi en þökk sé öllum sem lögðu hönd á plóg þá fær hann að hvíla á Ítalíu hjá Hönnu sinni í fallega kirkjugarðinum Galliano Jónas Þorbjarnarson ✝ Jónas Þor-bjarnarson fæddist á Akureyri 18. apríl 1960. Hann varð bráð- kvaddur í Canzo á N-Ítalíu 28. maí 2012. Jónas var jarð- sunginn í kirkju- garði Eupilio við Segrinovatn 4. júní 2012. (Eupilio) og er það mikil huggun í harminum. Við Jóhanna, Júl- ía og Ragna sendum Hönnu og aðstand- endum Jónasar hugheilar samúðar- kveðjur og þökkum fyrir góðu stundirn- ar. Friðrik Á. Brekkan. Jónas Þorbjarnarson ljóð- skáld er látinn, langt fyrir aldur fram. Hann var sá eini af ljóðskáld- unum undir sextugu, sem mér fannst að væri þess maklegur að halda á lofti merki hinna mennt- uðu ljóðskálda á Íslandi, í anda þeirrar vestrænu ljóðahefðar sem hefur tíðkast í Evrópu frá dögum forn-Grikkja. Ég kynntist honum fyrst á upplestrarkvöldum skáldanna í Andblæ á Málstöðum, árið 1994. Eftir það bauð ég honum nokkr- um sinnum á fundi hjá okkur í Hellas-hópnum; upplestrarfélagi skálda; og í Vináttufélagi Íslands og Kanada. Einnig fór ég á ljóða- upplestra hans, og gaf honum ljóðabók eftir mig. Við vorum báðir stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri; og var mér því ljúft að telja hann á meðal helstu MA-skálda; í sam- nefndri Morgunblaðsgrein minni fyrir nokkrum árum. Ég hef mikið unnið með sjúkraþjálfurum, og orðið var við að hann þótti vera hið þekkta skáld úr þeirra hópi. Hann var jafnan útgefinn af stóru bókaforlögunum, og var sigursæll í ljóðasamkeppnum. Margir minnast þess er hann vann til ljóðaverðlauna er tengd- ust Morgunblaðinu, kringum 1996. Ég hafði hugsað mér að efla nánar kynni mín við þennan ljúf- lingsdreng, en nú er það orðið of seint. Það er nú ekki annað að gera en að reyna að kveðja hann með einhverju viðeigandi ljóði. Hér kemur því eitt sem bíður nú birtingar í minni fjórtándu ljóða- bók, og minnir á eldmóðinn sem var í kringum okkur skáldin í Andblæ forðum daga; en það heitir: „Segðu það Spartverjum“: Farandi, segðu það Fjallkonunni Að listinni trúir Liggjum vér ljóðskáldin Hér allir í kös undir barði; Sem féllu, lífsstarfi sínu trúir Í einarðri baráttu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu þrútna: Með ljóðin, sem áttu að vernda sjálfstæðið, Áttu að vera þjóðin; En eru nú bara sem skrautrúnir Á skrælnandi bókum grúskara Segðu það Fjallkonunni Að við óskum að varðveitast í minningu hennar Er hún horfir fram úr þögninni Niður á ævintýramenn okkar Íslendinganna Er klöngrast upp á jöklana Í stillviðrum framtíðarinnar Tryggvi V. Líndal. Elsku pabbi. Þrátt fyrir að sam- band okkar var kannski ekki dæmigert feðginasamband, þá ert þú eini pabbi minn og munt alltaf vera eini pabbi minn. Við vorum alltaf góðir vinir. Haukur Richardsson ✝ Haukur Rich-ardsson fædd- ist í Reykjavík 1. desember 1950. Hann lést 24. maí 2012. Útför Hauks fór fram frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 1. júní 2012. Ég á fáar en ein- staklega góðar minn- ingar frá samveru- stundunum okkar þegar ég var lítil sem ég á alltaf eftir að varðveita vel í hjarta mínu. Ég man þegar þú kenndir mér að spila yatzy og við spiluðum endalaust við eldhúsborðið á Bragagötunni. Þú varst svo góður við mig og vildir að ég mundi vinna en það er ekki svo auðvelt að vita hvernig teningarnir mundu lenda, þannig að við spil- uðum stundum fram á nótt ef ég var ekki að vinna þig. Við vökn- uðum síðan snemma til þess að fara í Kolaportið og alltaf leyfðir þú mér að kaupa lukkupakka á 100 kr. sem var rosalega spennandi. Síðan áttum við kisuna Raisu Gorbatsjov sem kom alltaf þegar þú hristir lyklana þína þegar við komum heim. Mér fannst það alltaf svo skemmtilegt. Svo eignaðist Raisa kettlinga sem við þurftum að gefa og man ég að það var mikil sorg en þú útskýrðir vel fyrir mér að við gætum ekki átt allar kisurn- ar. Ég er rosalega montin að segja að þú kenndir mér að sitja á mót- orhjóli. Ég var 10 ára þegar ég fékk að sitja aftan á hjá þér og vá, hvað það var gaman. Fyrst vildi ég alltaf halla mér í öfuga átt í beygj- unum eins og maður gerir gjarnan á reiðhjóli til þess að ná jafnvægi, en þú kenndir mér að halla mér í sömu átt og við vorum að beygja. Síðasta sumar var ég gæsuð fyrir brúðkaupið okkar Davids og tveir svakalegir mótorhjólagæjar sóttu mig um morguninn. Ég var ekkert hrædd þegar þeir fóru upp í 130 kílómetra hraða á Sæbrautinni því að ég vissi að pabbi minn hefði kennt mér að sitja aftan á mótor- hjóli. Í minningunni var alltaf gott og bjart veður þegar við vorum sam- an. Ég er rosalega þakklát fyrir þær minningar sem ég á með þér elsku pabbi. Ég veit að afi hefur tekið vel á móti þér uppi á himnum og Camilla og örugglega Raisa líka. Þrátt fyrir að við töluðum ekki saman þegar þú varst á jörðunni, þá veit ég núna að ég get alltaf talað við þig og þú heyrir í mér. Við verðum alltaf feðgin. Elska þig. Þín dóttir, Tinna. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjón- arfólki minningargreina viðvart. Minningargreinar Bridsdeild Félags eldri borgara Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Stangarhyl 4, mánudaginn 4. júní. Spilað var á 10 borðum. Meðalskor: 216 stig. Ár- angur N-S: Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 270 Bjarni Þórarinss. – Jón Lárusson 245 Ingibj. Stefánsd. – Margrét Margeirsd. 245 Óli Gíslason – Björn Svavarsson 223 Árangur A-V: Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 256 Ægir Ferdinandss. – Helgi Hallgrímss. 243 Oddur Halldórss. – Ragnar Björnsson 231 Þröstur Sveinss. – Rúnar Sveinsson 223 Aðalfundur Bridsfélags Reykjavíkur Aðalfundur BR verður haldinn mánu- daginn 18. júní kl. 17:30 í Síðumúla 37 (hús- næði BSÍ). Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarrit- ara. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. 5. Kjör for- manns stjórnar. 6. Kosning stjórnar, end- urskoðenda og annarra fulltrúa. 7. Ákvörðun um félagsgjald fyrir komandi ár. 8. Lagabreytingar ef fram koma. 9. Önnur mál. Stefnt er að því að fundi verði lokið fyrir 19 þannig að áhugasamir geti spilað hjá Svenna í sumarbrids. Boðið verður upp á kaffiveitingar á fundinum. Hvetjum alla til að mæta og leggja sitt afl á vogarskálarnar til að gera BR að enn betra bridsfélagi. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.