Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 40
40 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stundum er allt í lagi að fara eftir fyrstu tilfinningu þótt yfirleitt sé skyn- samlegt að tékka hana af til öryggis. Þú vilt gjarnan komast upp úr hjólfarinu í dag. 20. apríl - 20. maí  Naut Það léttir lífið að hafa gamansemina alltaf við höndina. Kannski tekst þér að bjarga einhverjum með því að vera eins og þú átt að þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara. Allir hafa gott af einhverjum breyt- ingum þótt bylting sé ekki á dagskrá. Ekki taka samt við öllu sem að þér er rétt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að kveðja fleiri til ef þér á að takast að ljúka ætlunarverki þínu í tæka tíð. Varastu að ganga of langt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Skrifaðu lista yfir það sem þú átt eftir ógert svo þér finnist þú betur skipulagður. Samskipti eru yfir höfuð eitthvað stirð í dag og ekkert við því að gera. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú bókstaflega ljómar þessa dagana og vekur eftirtekt hvar sem þú kemur. Vinir þínir kynna þig fyrir nýjum möguleikum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Notaðu helgina til þess að komast aftur í snertingu við vonir þínar og þrár. Góðu frétt- irnar eru þær að þú veist það sem þú veist, svo nýttu þér það í dag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt skilið umbun fyrir það starf sem þú hefur innt af hendi. Sýndu öðr- um þá tillitssemi sem þarf. Mánuðurinn framundan felur í sér rómantík fyrir ykkur flest. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér berast til eyrna áhugaverð leyndarmál í dag. Slakaðu á en þó ekki of lengi því alltaf koma ný og ný verkefni. Rækt- aðu gömul vináttusambönd. 22. des. - 19. janúar Steingeit Komandi mánuður hentar sér- staklega vel til að fara fram á lán eða annars konar aðstoð. Skoðaðu vandlega hvað þú hefur sjálfur og lærðu að meta það. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það kallar á heilmikið skipulag þegar margt liggur fyrir bæði í starfi og utan þess. En það eina sem þú þarft að gera er að skipuleggja hlutina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hugsanlega eru breytingar á heimili eða í fjölskyldu og gætu þær slegið þig eilítið út af laginu tímabundið. Til greina kemur að þú takir að sér ráðgjafarhlutverk gagnvart einhverjum öðrum. Frétt í Morgunblaðinu í gær umutanferð Einars Arnar Bene- diktssonar með flugfélaginu WOW air vakti nokkra athygli, en þar sagðist hann ekki hafa komið fram sem fulltrúi Reykjavíkurborgar. „Ég var þarna sem Einar Örn og hagaði mér sem slíkur,“ sagði hann og bætti við að fyrir ferða- lagið hefði hann tekið niður hin pólitísku gleraugu og sett upp þau listrænu. „Ég geri skýran grein- armun á hver er kjörinn fulltrúi og hver er Einar Örn. Ég er í vinnunni frá 9-5 og þegar ég kem heim þá er ég ekki kjörinn fulltrúi.“ Hjálmar Freysteinsson tók eftir þessu: Það er skálkaskjól og vörn svo skandall verði umflúinn, að vera stundum Einar Örn – ekki borgarfulltrúinn. Davíð Hjálmar Haraldsson fylg- ist einnig með þjóðmálunum og orti að gefnu tilefni: Á heimsmarkaði hækkar bensínverð og hagnaðarbros innflytjenda stækka en kerfið er af flækjufótar gerð og fæstir kunna á það til að lækka. Og forsíðufrétt Fréttablaðsins varð til þess að hann áttaði sig á því hvers vegna kínverski auðjöf- urinn Nubo vill flytja til Grímsstaða: Hann kemur úr austri, þar ársól rís heit og ofgnótt vex ljúffengra grjóna og sest að á hölkni í háfjallasveit því hann er að læra að prjóna. Kristján Hreinsson veltir vöng- um: Trausti er ríkisstjórn rúin, ráðherrar læðast með veggjum og moldríka forsetafrúin er farin að kasta eggjum. Pétur Stefánsson er kominn í sumarfrí og ver tímanum vel. Hann orti á sjötta degi: Um bæinn ég sprangaði sprækur, og sparaði notkun á bíl, keypti mér boli og brækur, buxur og jakka í stíl. Ég hætti um fimmleytið flakki og flýtti mér áleiðis heim, bjó mér til bollur úr hakki, og borðaði mikið af þeim. Þórarinn Eldjárn kastaði fram á fésbók á dögunum: Að vera á undan sinni samtíð er sannkölluð meinsemd. Að lifa í falskri framtíð í firringu og einsemd. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Nubo, borgarfulltrúa og allt öðrum Einari Erni G æ sa m a m m a o g G rí m u r G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð ile g i F er d in a n d HVAR ER KJÚKLINGURINN? OG KARTÖFLURNAR? HALTU ÁFRAM HVERT ERTU AÐ FARA? ÉG ER AÐ FARA Á FUND *ANDVARP* ...OG MUNDU BARA AÐ YTRI FEGURÐ ER EKKI ALLT ÉG ER EKKI BARA FALLEG AÐ UTAN, ÉG ER FALLEG ALVEG INN AÐ BEINI! HVORT ÉG ER FEGURÐ MÍN ER MJÖG DJÚP ERTU AÐ FARA Í ÁRAMÓTA- PARTÝ? JÁ, BOLABÍTURINN LÁRUS, GAMALL VINUR MINN ÆTLAR AÐ HALDA PARTÝ ÉG VEIT HINSVEGAR EKKI HVAR HANN BÝR. HANN SAGÐI SAMT AÐ HANN VÆRI MEÐ SKILTI Í GARÐINUM EN VEISTU Í HVAÐA HVERFI HANN BÝR? HVERFINU MEÐ SKILTIÐ Í GARÐINUM Fjöldinn vill hlusta á músík í moll.Þetta er niðurstaða þýskra og kanadískra fræðimanna við Freie Universität í Berlín, sem rannsökuðu hvernig tónlist slær í gegn. Fræði- mennirnir tóku fyrir þúsund lög frá árunum 1965-1969, 1975-1979, 1985- 1989, 1995-1999 og 2005-2009 og greindu bæði eftir tóntegund og hraða. Komust þeir að því að á þess- um tíma hefur fjöldi smella í moll tvö- faldast. Þá er tilhneigingin sú að hafa lög lengri og hægari en áður. Þó segja þeir að listamenn á okkar tím- um virðist líklegri til að fara yfir allan skala tilfinninganna en áður fyrr og nefna þar James Blunt og Rihönnu. x x x Þótt lög verði stöðugt raunalegri erekki þar með sagt að við hengj- um stöðugt haus,“ segir Christian von Scheve, sem gerði rannsóknina ásamt E. Glenn Schellenberg. Erfiðir tímar á borð við Víetnamstríðið eða 11. september hafi ekki orðið til þess að toppsæti vinsældalistans hafi fyllst af tónlist fyrir tárakirtlana, en þó hafi smellirnir orðið lengri og hægari. x x x Hæg lög í moll hljóma alvarlegarog sorglegar en hröð lög í dúr, sem virka glaðleg og upplífgandi. Von Scheve og Schellenberg studd- ust við þessa einföldu sálfræði tón- listarinnar. x x x Hugmyndina að rannsókninnifengu Von Scheve og Schellen- berg þegar þeir ræddu dægurtónlist yfir kaffibolla og sá síðarnefndi, sem hefur fengist við tónlist, velti fyrir sér hvort tónlist væri orðin tregafyllri en áður var. x x x Rannsóknin fór þannig fram að lög-in voru greind með ýmsum hætti, þar á meðal hvað mörg slög væru á mínútu, hljómagangar og hvort þau væru í dúr eða moll. Á sjö- unda áratugnum voru 85% laga sem komust í 40 efstu sæti bandaríska vinsældalistans í dúr en nú er hlutfall laga í dúr aðeins 42%. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Orð dagsins: En Jesús sagði við þá: „Gjaldið keisaranum það, sem keis- arans er, og Guði það, sem Guðs er.“ Og þá furðaði stórlega á honum. (Mark. 12, 17.) AF HVERJU EKKI AÐ FÁ MEIRA FYRIR MINNA? Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Pípulagnahreinsir Perfect Jet Síuhreinsihaus Stuðningssæti U.V. Áburður fyrir lok Glasabakki Yfirborðshreinsir fyir skel FituhreinsirFroðueyðir Síuhreinsir 3499,- 1249,- 2899,- 2899,-2999,- 3299,- 3499,- 4499,- 1999,- *Öll verð eru m/vsk og birt án ábyrgðar Úrval fylgihluta fyrir heita potta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.