Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 07.06.2012, Qupperneq 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2012 Það var einstök og vand-gleymanleg reynsla aðupplifa í fyrsta, og e.t.v.síðasta, skipti Martin Berkofsky í Norðurljósasal Hörpu sl. laugardagskvöld. Andrúmsloftið bar hrífandi keim af hugleiðslu er undirstrikaðist af sætaröðun í fók- userandi hálfhring kringum upp- sprettuna, Steinwayflygilinn. Sá stóð á ekta persneskum teppum, auk þess sem logaði umhverfis á 27 kertastjökum (magískri tölu Pýþagórea ef rétt er munað). Sem sagt hafði ég aldrei áður notið leiks amerísk-hvítrússneska píanósnillingsins, jafnvel þótt dvalið hefði nokkur ár hér upp úr 1980 – vel áður en ég tók að sinna tónlistarlífi landsmanna á prenti. Þó fór ég ekki frekar en aðrir á sínum tíma varhluta af fréttum um að píanistinn hefði þá lent í það alvarlegu bifhjólaslysi að fyr- irfram þótti útilokað að hann gæti nokkurn tíma tekið aftur upp þráðinn á hvítum nótum og svört- um. Engu að síður náði Berkofsky sér undrafljótt aftur á strik, hvort sem þakka mátti velheppnaðri skurðaðgerð eða almættinu, nema hvorttveggja væri. Munu síðan lífsgæðamarkmið píanistans hafa breytzt á þá leið að vinna frekar að almenningsheill fremur en að sanka í séreignarsjóð, ef marka má hvað hann kvað upp frá því hafa látið tónleikatekjur sínar rakna til fyrrgetinna þarfa – og ekki sízt þegar við bættist krabba- mein frá um aldamótum sem ný- lega hefur tekið sig upp aftur. Um þau mál mátti m.a. lesa í tónleikaskrá umrædds kvölds. En jafnvel þótt sú dapurlega umgjörð gæti e.t.v. hafa sett temprandi aukasvip á upplifunina, þá var það í engu að sjá eða heyra á spila- mennskunni. Hvort tveggja var til staðar í ríkum mæli – fítons- kraftur og álfræn dúnmýkt, er spönnuðu allt dýnamíska breið- tjaldið frá þórdunum ragnaraka til blíðasta angurhvísls. Hér mátti aldrei þessu vant heyra persónuleg sérkenni er af- sönnuðu þá annars auðteknu full- yrðingu að flestir nútímapíanistar séu hverjir öðrum líkir. M.a. í afar sérstæðum rúbatóum og flein- hvössu stakkatói, að ekki sé minnzt á íbyggna húmorinn í 12. Rapsódíu Liszts. Þótt undirr. sé enginn sérstakur fylgifiskur Franz Liszts, er átti alla dagskrá kvölds- ins nema aukalagið (Impromptu Schuberts í As-dúr), þá hlaut rat- vís hæfileiki túlkandans til að halda manni þetta vel við efnið að vera einhvers virði. Upp úr stóðu bráðskemmtilegir tónleikar – hylltir „á fæti“ eins og sagt er – sem lengi verða í minn- um hafðir. Birt með leyfi Krabbameins- félagsins. Morgunblaðið/Golli Minnisstætt Tónleikar Martins Berkofskys í Norðurljósasal Hörpu voru bráðskemmtilegir. Mögnuð ögurstund Einleikstónleikar Martins Berkofskys Einleikstónleikar Martins Berkofskys í Norðurljósum Hörpu 26.5. 2012. Franz Liszt: Pater Noster; Il festi tran- figurationis nostri Jesu Christi; Lég- ende: St. François d’Assise; La prédica- tion aux oiseaux; Miserere d’Aprés Palestrina; Valhalla (aus der Ring des Nibelungen); Les Morts-Araison; Lég- ende: St. François de Paule marchant sur le flots; Ungversk rapsódía nr. 12. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Í umsögn Önnu Jóa um verkefnið Sjálfstætt fólk / (I)ndependent People í Lesbók féll niður inngangur greinarinnar. Hann fer hér á eftir: Myndlistarhluti Listahátíðar í Reykjavík í ár ber yfirskriftina „Sjálfstætt fólk“ sem á ensku nefnist „(I)ndependent People. Collabora- tions and Artists Initiatives“. Verkið teygir anga sína víða um borgina í allsherjarsamstarfi ýmissa burðugra stofnana og samtaka hér á landi og erlendis, og um eitt hundrað lista- manna frá Íslandi, Norðurlönd- unum, Eystrasaltslöndunum, Frakklandi, Bretlandi, Bandaríkj- unum og víðar. Sýningarstjórinn, hinn sænski Jonatan Habib Eng- kvist, hefur stefnt listamönnunum saman þannig að þeir mynda 29 mis- stóra hópa: enginn starfar upp á eig- in spýtur, heldur leggur hver og einn „egóið“ til hliðar og semur sig að hugmyndum og löngunum ann- arra í hinu listræna sköpunarferli – þannig skapast oft dýnamík sem leitt getur til spennandi útkomu. Af- urðirnar má sjá í helstu sýning- arrýmum borgarinnar, svo sem Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni ASÍ, Ný- listasafninu, Kling & Bang galleríi, SÍM-húsinu auk ýmissa óhefðbund- inna rýma, má þar nefna Litlu kaffi- stofuna við þjóðveginn og rústir Edens í Hveragerði í tengslum við óbeina þátttöku Listasafns Árnes- inga í verkefninu. Á dagskrá „Sjálf- stæðs fólks“ eru áhugaverðir við- burðir langt fram eftir sumri. Inngangur féll niður LEIÐRÉTT Listakonan Guðlaug Geirsdóttir er tilnefnd til verðlauna á alþjóðlegu CERCO keramiklistahátíðinni sem stendur yfir í Zaragoza á Spáni. Guðlaug var tilnefnd fyrir verk sitt Syllur sem er nytjaskúlptúr inn- blásinn af umhverfi Hítarvatns í Hítardal og gömlu íslensku prjóna- mynstri, að því er fram kemur í til- kynningu. CERCO er einn stærsti viðburður Spánar á sviði keramik- listar og er hátíðin haldin í tólfta sinn. Dómnefnd hátíðarinnar valdi 33 verk sem kepptu til úrslita og var verk Guðlaugar þeirra á meðal. Verkið verður til sýnis út hátíðina en henni lýkur 22. júlí. Guðlaug Geirsdóttir útskrifaðist úr mótunardeild Myndlistaskólans í Reykjavík árið 2010 og hafði þá lokið námi í hönnun við Tækniskól- ann. Guðlaug hélt einkasýninguna Fjallasýn í Handverki og hönnun í fyrra og munir hennar voru til sýn- is í Kraumi í tengslum við síðasta Hönnunarmars. Nytjaskúlptúr Verkið sem Guðlaug var tilnefnd fyrir, Syllur. Tilnefnd til verð- launa á CERCO Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum. Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit. Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft ekki annað tæki en bizhub C35. Verð: 379.900 kr. Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið) Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30 Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 22. júní. Dagleiðin langa (Kassinn) Lau 16/6 kl. 19:30 Allra síð.sýn. Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní. Afmælisveislan (Kassinn) Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30 Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu. Kristján Eldjárn - minningartónleikar (Stóra sviðið) Fim 7/6 kl. 20:00 Allur ágóði rennur í minningarsjóð Kristjáns Eldjárn Gamli maðurinn og hafið (Kúlan) Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30 Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012 Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins (Kassinn) Fös 22/6 kl. 19:30 Aeðins þessi eina sýning! 568 8000 | borgarleikhus.is Svar við bréfi HelguHHHH EB. Fbl Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið) Fös 8/6 kl. 20:00 aukas Lau 9/6 kl. 20:00 20.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá Rómeó og Júlía (Stóra svið ) Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar! Tengdó (Litla sviðið) Fös 8/6 kl. 20:00 lokas Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar! Beðið eftir Godot (Litla sviðið) Lau 9/6 kl. 20:00 lokas Tímamótaverk í flutningi pörupilta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.